NT - 25.04.1985, Page 3
Fimmtudagur 25. apríl 1985 3 Blað II
Ræktun nokkurra algengra vorlauka
Almennt um ræktun blómlauka
■ Til þess að laukar og hnúðjurtir
geti lifað góðu lífi og blómstrað frá ári
til árs verða þær að geta safnað
nægum forða yfir vaxtartímann sem
þær geyma svo til næsta vors, þegar
nýr vöxtur byrjar.
Með rótunum taka jurtirnar upp-
leyst næringarefni til sín úr jarðvegin-
um og með grænu blöðunum vinna
þær næringu úr loftinu. Grænu blöðin
má því ekki skera af að lokinni
blómgun. Þegar forðasöfnun er lokið
hefur jurtin ekki lengur not fyrirj
blöðin, þau gulna og þá fyrst mái
fjarlægja þau.
Fosfór og kalí eru þau næringarefni
sem síst má skorta í jarðveginn.
Fosfórinn hefur örvandi áhrif á rótar-
vöxtinn og flýtir fyrir blómgun og
þroska. Kalíáburður stuðlar að
sterkjumyndun og eykur þolgæði
þeirra og viðnám gegn sjúkdómum.
Köfnunarefni má heldur ekki skorta,
en varast skal ofnotkun þess þar sem
hún minnkar frostþol jurtanna og
viðnámsþrótt.
Ástæða er til að gefa því gaum
hvaða sýrustig hæfir best þeim lauk-
jurtum sem menn hyggjast taka til
ræktunar. Margar liljutegundir þríf-
ast ekki við sýrustig yfir pH 7 en
kjörstig þeirra flestra er pH 5,5-6,5.
Túlipanar hinsvegar þrífast best við
pH 7,5 eða hærra.
Laukjurtir þrífast best þar sem
afrennsli er gott. Sérstaklega er áríð-
andi að vatn setjist ekki að þeim að
vetri til. Sé ekki unnt að koma við
holræsagerð þar sent laukjurtum er
ætlaður staður er rnikil bót að því að
búa til upphækkuð beð sem eru 25-30
sm hærri en svæðið umhverfis.
Flestar tegundir laukjurta þrífast
best í lausum og nokkuð sendnum
jarðvegi sem er ríkur af lífrænum
moldarefnum. Hann þarf að vera
gljúpur og djúpt unninn þar sem
rætur laukjurtanna leita mjög djúpt.
Laukarnir eru gróðursettir misjafn-
lega djúpt, allt frá því að vera rétt
huldir jarðvegi og niður í dýpt sem er
þreföld hæðarmáli lauksins, eða
jafnvel dýpra.
Gladíólur, begoníur og aðrar við-
kvæmar jurtir eru grafnar upp við
fyrstu frost og hnúðar þeirra geymdir
á þurrum, frostlausum stað yfir vetur-
inn.
Nokkrar algengar
tegundir vorlauka
Við fengum Hafstein Hafliðason í
Blómavali til þess að fræða okkur um
ræktun og meðferð nokkurra al-
gengra vorlauka.
Anemónur (Maríusóley)
- Anemone coronaria
Þurr rótarhnýði. Rótarhnýðin eru
lögð í bleyti í 8-10 tíma. Þá tútna þau
út og örin eftir fyrra árs blaðvöxt
koma í Ijós sem örlítill hárkrans ofan
á hnýðinu. Hnýðin eru svo sett í litla
potta - t.d. torfpotta - með sphagn-
um-mold eða laufmold. Moldinni er
haldið rakri og pottarnir hafðir á
hlýjum og björtum stað meðan á
forræktun stendur. Ofvökvun og
kuldi geta valdið rotnun á hnýðunum.
Þau eru síðan gróðursett með 15-20
sm millibili á sólríkum stað í garðin-
um í maí-júní. Þær blómgast í júlí-ág-
úst og langt fram á haust. Blómlitirnir
eru bláir, rauðir og hvítir og ntargvís-
leg blanda þar á milli.
Mögulegt er að gróðursetja anem-
ónur í garða á haustin - þá byrjar
blómgun í júní sumarið eftir. Sömu-
leiðis er hægt að gróðursetja hnýðin
beint í garðinn án forræktunar, urn
leið og jörð þiðnar á vorin en sú
aðferð seinkar blómgun til muna.
í eðli sínu eru maríusóleyjar fjölær-
ar en sjaldan borgar sig að halda þeim
til haga ár frá ári. - Kröftugri plöntur
fást með því að endurnýja hýðin
árlega.
Anemónur skiptast í tvo stofna:
'De Caen’ með einkrýndum blómum
og St. Brigid með ofkrýndum, kögr-
uðum blómum.
■ Helstu blómgerðir dahlía: 1. Einföld blómgerð 2. Anemónugerð 3. Kragagerð 4. Bóndarósagerð 5. Skrautdahlíur.
6. Hnattdahlíur. 7. Hnapp- eða Kúludahlíur 8. Kaktusgerð 9. Óreglulegar kaktusdahlíur 10. Ýmsar dahlíur
(Brönugrasagerð).
Dahlíur un, á björtum, írostlausum stað gróðursettar grunnt, hver fyrir sig í
Dahlíur eða glitfíflar þurfaforrækt- (kjörhiti 8-18°C). Forðaræturnar eru 3-5 I. potta með góðri pottamold.
Besti tíminn er um miðjan mars en
helst ekki síðar en í apríllok. Dahlíur
þurfa venjulega um 20 vikna vaxtar-
skeið áður en þær blómgast.
í byrjun júní má fara að venja
plönturnar við útivistina. Best er að
velja til þess dumbungsdag svo að
viðbrigðin verði ekki of snögg. Verja
þarf plönturnar næturfrostum upp frá
því.
Dahlíur þurfa skjólgóðan, sólríkan
stað og frjóa gróðurmold sem gott er
að sé ögn sendin. Hávaxnar tegundir
(yfir 60 sm) verður undantekningar-
laust að binda upp unt leið og gróður-
sett er. Gera þarf ráð fyrir einu
bantbuspriki fyrir hvern stöngul sem
upp vex. Prikin verða að ná 25-30 sm
niður í jörðina til að fá góða festu plús
þrem fjórðu af hæð tegundarinnar, sem
þýðir í raun að prikið verður að vera
jafn langt uppgefinni hæð. Bundið er
upp nteð mjúku, breiðu bandi.
1 garðinum er 7-10 sm þykkt lag af
mold látið hylja ræturnar. Dahlíur
starida oftast í sínum fegursta Ijónta
Framhald sjá næstu síðu
Garðyrkjuáhöld
Trjáklippur
Garðhrífur
Skóflur
og ýmis smátæki
AGRYL - P 17 verndardúkur
gulrætur undir dúk - gulrætur án dúks
Girðingarefni:
Lóðanet
Túngirðingarnet
Skrautnet
Gaddavír
Girðingarstaurar
MJÓLKURFÉLAG
REYKJAVÍKUR
LAUGAVEGI 164, 105 REYKJAVÍK
SlMI 11125" 24355- 24339