NT - 25.04.1985, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 25. apríl 1985 9 Blað II
Fimmtudagur 25. apríl 1985 8 Blaðll
■ Per i Mörk stendur hér við
ágræddar trjáplöntur sem hann
græðir sjálfur á.
™T-mjndir Árni Bjar
Staldrað við hjá nokkrum
garðplöntuframleiðendum
■ Það er vel við hæfi nú þegar menn
eru að skríða úr híðum sínum og
stinga nefinu út í svala vorgoluna, til
að huga að ástandi og skipulagi
garðholunnar sinnar, að líta aðeins
inn hjá nokkrum garðplöntufram-
leiðendum og heyra í þeim hljóðið.
Skógræktarfélag Reykjavíkur
framleiðir bæði tré og runna til notk-
unar í görðum og sumarbústaðalönd-
um, og skógarplöntur s.s. greni, furu,
lerki og birki. Skógarplönturnar að
mestum hluta framleiddar fyrir
Reykjavíkurborg og hafa verið
gróðursettar af unglingum í sumar-
vinnu hjá borginni í Reykjavík og
nánasta umhverfi. Auk þess eru fram-
leiddar plöntur til gróðursetningar í
Heiðmörkinni, en samkvæmt samn-
ingi milli Skógræktarinnar og borgar-
innar á Skógræktarfélag Reykjavíkur
að sjá um gróðursetningu og umhirðu
í Heiðmörk.
„Þarna eru að jafnaði um 80 krakk-,
ar yfir sumartímann, bæði frá okkur
og vinnuskóla borgarinnar. Við höf-
um lagt til verkstjóra að hluta og
síðan hafa þeir Vignir Sigurðsson á
Elliðavatni og Ólafur Sæmundsson
eftirlit með svæðinu og daglegum
rekstri þar uppfrá,“ sagði Vilhjálmur
Sigtryggsson framkvæmdastjóri
Skógræktarfélagsins.
„f stöðinni eru svo um 15 manns í
fastri vinnu en við bætum við allt upp
í 45 krökkum þegar mest er að gera á
sumrin.
Um það bil helmingur framleiðsl-
unnar eru skógarplöntur en hitt eru
garðplöntur. Við höfum verið með
flcst algengustu garðtré og runna að
undanskildum rósum, sem hafa verið
fluttar inn og seldar hér á landi um
nokkurt skeið en heppnast misjafn-
lega en við ætlum að prófa þetta núna
í vor því að eftirspurnin hefur verið
nokkuð mikil.
Á þessum tíma árs er alltaf mjög
mikið um að fólk leiti til okkar til að
fá upplýsingar um ýmislegt í sam-
bandi við ræktun og umhirðu trjá-
gróðurs. Síminn er nánast glóandi á
mánudögum t.d. og þegar líður
lengra á vorið fer fólk að koma og
skoða sig um. Oft hafa menn ekki
mjög ákveðna hugmynd um hvað
þeir ætla að fá.vilja tré eins og er
einhversstaðar úti í bæ eða runna eins
og nágranninn. Svo eru aðrir sem eru
mjög vel heima í þessum málum og
vita hvað þeir vilja.
Það má geta þess í þessu sambandi
að skógræktarfélögin, skógrækt ríkis-
ins og garðplöntuframleiðendur hafa
verið að vinna að flokkunarstaðli sem
á að gera það auðveldara fyrir kaup-
endur og seljendur raunar líka, að
vita hvað þeir eru með í höndunum
og fá fram samræmi milli framleið-
enda hvað varðar verð og gæði
plantnanna.“
I gróðrarstöðinni Grænuhlíð var
sumarblómaframleiðslan komin í
fullan gang þegar við litum þar inn.
Þeir Grænhlíðingar kváðust aðallega
vera með sumarblóm og þá aðallega
stjúpur.„Það er sennilega helmingur-
inn stjúpur og hitt skiptist svo milli ca
25 tegunda.“ Einnig framleiða þeir
og selja grænmetisplöntur og hafa
auk þess flutt inn og selt rósir í garða
og garðskála. Þegar sumarblóma-
ræktunin er afstaðin taka þeir fjölær
blóm og runna til ræktunar í húsinu.
„Fólk er mjög íhaldssamt í sumar-
blómunum. Það vill fá sínar stjúpur
og engar refjar. Það er frekar í
fjölæru blómunum sem spurt er eftir
nýjum afbrigðum og sortum.“
Hjá Per í Mörk kennir margra
grasa, sumarblóm.fjölær blóm, tré og
runnar. „Helst vildi ég vera eingöngu
með tré en viðskiptavinurinn vill geta
gengið að öllum tegundum úr því að
maður er með smásölu á annað borð.
Æskilegast væri að framleiðendur
gætu einbeitt sér eingöngu að fram-
leiðslunni og söluaðilar sæju um söl-
una, eins og víðast hvar erlendis, en
hér á landi hvorki nógu stór markaður
né nógu margir framleiðendur.
Fólk er yfirleitt farið að sýna um-
hverfi sínu meiri áhuga en áður. T.d.
er fólk í einbýlishúsum oftast fljótt að
laga vel til í kring um sig en aftur á
móti er trassað að gera fínt í kring um
fjölbýlishús þó að það sé sáralítill
kostnaður á hvern íbúa.
Við höfum gefið út bæklinga með
upplýsingum um plönturnar til þess
að auðvelda fólki að velja réttar
plöntur í garðana. Það er oft sem
menn vilja byrja strax að rækta við-
kvæma skrautrunna og nenna ekki
að bíða eftir að grunngróðurinn eins
og birki, víðir,sitkagreni og reyndar
reynir og ösp, vaxi upp og myndi
skjól fyrir viðkvæmari gróður. Við
reynum að ráðleggja hverjum og
einum eftir aðstæðum um hentugt
plöntuval eftir aðstæðum, en það
getur oft verið erfitt að skipuleggja
garð eftir munnlegri lýsingu.“
Eitt af því sem vakti athygli okkar hjá
þeim í Mörk voru ágræddar trjáplönt-
ur sem græddar hafa verið á hjá þeim.
Per sagðist hafa reynt þetta með
selju, birki og reyni til þess að fá
líkari einstaklinga og sleppa þannig
við breytileikann sem fylgir fræfjölg-
uninni. Sagði hann að t.d. væri öll
selja sem hann seldi ágrædd til að
verjast blöndun við aðrar víðitegund-
ir og ennfremur til að framleiða
eingöngu karltré sem eru skrautlegri
en kvenleggurinn.
Að lokum spurðum við Per hvort
samkeppnin væri orðin hörð í þessum
„bransa“.
„Það er ekki hægt að tala um harða
samkeppni á milli einkastöðvanna.
Hins vegar erum við oft óhressir með
þátttöku skógræktarfélaganna og
Skógræktar ríkisins í smásölu garð-
plantna. Það hlýtur alltaf að vera
erfitt að keppa við aðila sem maður
greiðir sjálfur niður verðið fyrir að
hluta sem skattgreiðandi. Það hefur
verið nánast ómögulegt fyrir garð-
yrkjumenn að setja á stofn nýjar
garðplöntustöðvar vegna þessa. En
við verðum að vera bjartsýn - græna
byltingin er varla byrjuð ennþá.“
Vegna ,
bjóðum við nu
^TTAU-husa
ingarveröt- rra
Stærðir íra 1
I 2,6 m x 3,2 m.
[\ GRlTTALL i1
|\ vinsæiustu 9
I ^dahaíÆ
|\ þróuðíhatta
t\ GRiTTALL
*\ fríum álromr
l\ sterkbyg9°-
:\in. Snotur —
b\hæLEruma
■rir ’85 modeU
[ví ’8A módeitð
/erðinunaestuc
Aspera mótor
10.980,
B&S mótor að
11.659, _
Síið\uve9U'2°
smv.
Kópavogur
cRlTvp\tlr
verttureltir
Steerð’. 6\ 2.5l0,
Verð aðetns
VJESTV/OOD
aarðtraW°rar
Bensínmotorf 270.o00,
cNOTR/t
Akureyri Halldór Asgeirsson, Hjarðarlundi 4, s. 22594.
Akranes Elsa Sigurðardóttir, Deildartúm 10, s. 93-1602.
Borgarnes Guðný Þorgeirsdóttir, Kveldúlfsgötu 12, s. 93-7226.
Hellissandur Víglundur Höskuldsson, Snæfellsási 15, s. 93-6737.
Rif Snædis Kristinsdóttir, Háarifi 49, s. 93-6629.
ólafsvík Margrét Skarphéðinsdóttir, Vallarholti 24, s. 93-6306.
Grundarfjörður Jóhanna Gústafsdóttir, Fagurhólstúni 15. s. 93-8669.
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir, Silfurgötu 25. s. 93-84010.
Búðardalur Sólveig Ingvadóttir, Gunnarsbraut 7, s. 93-4142.
Patreksfjörður Ingibjörg Haraldsdóttir, Túngötu 6, s. 94-1353.
Tálknafjörður Niels Ársælsson, Hamraborg, s 94-2656 (2514).
Bildudalur Jóna M. Jónsdóttir, Tjarnarbraut 5. s. 94-2206.
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir, Brimnesvegi 2, s. 94-7673.
Suðureyri Sigrún Edda Edvardsdóttir, Sætúni 2, s. 94-6170.
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir, Hafnargötu 115, s. 94-7366.
ísafjörður Svanfríður G. Bjarnadótlir, Pólsgötu 5, s. 94-3527.
Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54, sími 94-8131
Súðavik Heiðar Guðbrandsson, Neðri Grund, s. 94-4954.
Hólmavik Guðbjörg Stefánsdóttir, Bröttugötu 4. s. 95-3149.
Hvammstangi Baldur Jessen, Kirkjuvegi, s. 95-1368.
Blönduós Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, s. 95-4581.
Skagaströnd Ingibjorg Skúladóttir, s 95-4885.
Sauðárkrókur Guttormur Oskarsson, Skaf.braut 25, s 95-5200.
Siglufjörður Friðfinna Símonardóttir, Aðalgötu 21, s. 96-71208.
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, s. 96-62308
Dalvík Brynjar Friðleifsson. Ásvegi 9, s. 96-61214
Grenivik Jóhann Axel Pétursson, Túngötu 14. S. 96-33188.
Húsavik Hafliði Jósteinsson, Garðarsbraut 53, s. 96-41765.
Kópasker Þórhalla Baldvinsdóttir, Akurgerði 7, s. 96-52151.
Raufarhöfn Ófeigur I. Gylfason, Sólvöllum. s. 96-51258.
Reynihlíð Þuriður Snæbjarnardóttir, Skútahraum 13, s. 96-44173.
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson, Austurvegi 1, s. 96-81157.
Breiðdalsvik Jóhanna Guðmundsdóttir. Selnesi 36, s. 96-5688
Borgarfjörður eystri Hallgrimur Vigfússon, Vinaminni.
Vopnafjörður Jóhanna Aðalsteinsdóttir, s. 97-3251
Egilsstaðir Páll Pétursson, Árskógum 13, s. 97-1350
Seyðisfjörður Svanur Sigmarsson, Oddagötu 4. s. 97-2360
Neskaupstaður Marin Árnadóttir, Viðimýri 18, s. 97-7523.
Eskifjörður Jónas Bjarnason, Strandgötu 73. s. 6262
Reyðarfjörður Marinó Sigurbjörnsson, Heiðavegi 12. s. 97-4119.
Fáskrúðsfjörður Sonja Andrésdóttir, Þingholti, s 97-5148.
Stöðvarfjörður Stefán Magnússon, Undralandi, s. 97-5839.
Djúpivogur Rúnar Sigurðsson, Garði, s. 97-8820.
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir, Smárabraut 13, s. 97-8255
Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir, Sólheimum, s. 99-8172.
Hella Hrafnhildur Þórarinsdóttir, Geitasandi 3. s. 99-5904
Selfoss Helga Snorradóttir. Tryggvavegi 5. s. 99-1658
Stokkseyri Sturla G. Pálsson, s. 99-3274.
Eyrarbakki Ragnheiður Marteinsd, Hvammi, s 99-3402.
Þorlákshöfn Þóra Sigurðardóttir, Sambyggð 4, s. 99-3924
Hveragerði Sigriður Ósk Einarsdóttir, Heiðabrún 46, s. 99-4665
Vík Guðrún Árnadóttir. Mánabraut 14. s. 99-7233.
Vestmannaeyjar Ingveldur Gisladóttir. Bröttugötu 26. s. 98-2270.
Grindavík Sólveig Valdimarsdóttir, Efsta Hraum 17. s. 92-8583
Garður Kristjana Óttarsdóttir, Lyngbraut 6. s. 92-7058
Sandgerði Snjólaug Sigfúsdóttir, Suðurgötu 18, s. 92-7455.
Keflavík Guðriður Waage, Austurbraut 1, s. 2883.
Ingibjörg Einarsdóttir, Suðurgjötu 37, s. 4390.
Ytri Njarðvík Kristinn Ingimundarson, Hafnargata 72. s. 3826.
Innri Njarðvík Guðriður Árnadóttir, Kópabraut 16. s. 92-6074.
Hafnarfjörður María Sigþórsdóttir, Austurgötu 29, B, S. 54476.
Garðabær Sigrún Kristmannsdóttir, Hofslundi 4, s. 43956.
Mosfellssveit Jónína Ármannsdóttir, Arnartanga 57. 666481
GERIST
ÁSKRIFENDUR
HJÁNÆSTA
UMBOÐSMANNI