NT - 25.04.1985, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 25. apríl 1985 5 Blað II
Lostætir grænmetisréttir
■ Ræktun og neysla grænmetis hef-
ur aukist mjög á síðustu árum hér á
landi. Möguleikarnir í framreiðslu
grænmetisins eru fjölmargir og breyti-
legir. Hér á eftir eru nokkur dæmi
um hvernig hægt er að tilreiða græn-
metisrétti.
Kalt kartöflusalat
3 söxuð, harðsoðin egg
8-10 soðnar kartöflur (skornar í ten-
inga)
1-2 msk klipptur graslaukur
Vt söxuð gúrka
1 lítill saxaður laukur
Vi bolli olíusósa
Vi bolli sýrður rjómi
Krydd eftir smekk
Blandið öllu saman og kælið síðan.
Gott með grófu brauði og síld.
Fyllt paprika
2 grænar paprikur
2 rauðar paprikur
400 g magurt hakkað kjöt
1 lítill laukur
2 msk. kartöflumjöl
1 di tómatdjús
1 lítil dós tómatpuré
legg
1 msk kínversk soya
salt, pipar, papríka
Vi-1 bolli soð
1 msk smjör
Skerið paprikuna í tvennt og fjar-
lægið kjarna. Sjóðið í saltvatni 4-5
mín. Hrærið saman hakkað kjöt,
rifinn lauk, kartöflumjöl, tómatdjús,
tómatpuré, egg, kínverska soya og
krydd. Fyllið paprikurnar með þessu
og látið í smurt eldfast mót. Látið
smjörbita ofan á og hellið svolitlu
soði í mótið og látið í 200° heita ofn.
Látið soð drjúpa yfir paprikuna
öðru hvoru. Steikið í 30 mín. Berið
fram heitt með hrísgrjónunum og
hráu salati.
Einnig er hægt að fylla paprikurnar
með kjötfarsi og baka síðan í eldföstu
formi við 175-200°C í ca 30 mín.
Blaðlaukssúpa
3-4 stk. blaðlaukur
35 g smjörlíki
Vn tsk karrý
VA1 vatn
Vá dl rjómi
3V4 msk hveiti
2 dl vatn
2 tsk salt
Vt tsk pipar
soðduft, steinselja
Blaðlaukurinn er hreinsaður og
skorinn í þunnar sneiðar og látinn
krauma í feitinni um stund ásamt
karrýinu. Soðinu (eða vatninu) hellt
yfir og suðan látin koma upp. Hveiti-
jafningurinn hristur í glasi og súpan
jöfnuð og látin sjóða í 5 mín. Rjóm-
anum hellt útí og hitað aftur. Full-
kryddað eftir bragði og söxuð stein-
selja látin útí.
TIL JARÐYRKJUSTARFA
GOTTVERÐ
SENDUM UM
ALLT LAND
r \
Stunguskóflur Garðslöngur
Stungugafflar Slönguvagnar
Hnausagafflar Slöngutengi
Arfasköfur Vatnsúðarar
Hakar Járnkarlar
Malarskóflur Ruslakörfur
áhjólum
Hjólbörur
Plöntuskeiðar Plöntugafflar
Greinaklippur Graskiippur
Góðarvörur Góðþjónusta
v J
" ÁRMÚLA 42 >
STOFNAÐ 1903
tmaenj
ÁRMULA 42 > HAFNARSTRÆTI 21
SÍMAR 38775 og 13336
ELSTA VERKFÆRAVERSLUN REYTKJAVÍKUR