NT - 25.04.1985, Page 4
Fimmtudagur 25. apríl 1985 4 Blað II
GARÐEIGENDUR
ATHUGIÐ
Höfum til sölu eins og áöur úrvals
trjáplöntur, meðal annars:
Birki - Sitkagreni - Stafafuru og
víðitegundir.
JÓN MAGNÚSSON,
Lynghvammi 4,
220 Hafnarfirði.
Því ekki að gera áætiun fyrir vorið í róleg
heitum heima í stofu?
Það vorar senn
Þarftu aö skipuleggja
nýja garðinn þinn,
eða lagfæra þann gamla?
Hringið eða skrifið og ykkur verða sendir
; pöntunarlistar yfir allar algengustu plöntu-
- tegundir ásamt litprentuðum bækling yfir
Z garðrósir.
: GARÐYRKJUSTÖÐIN
J GRÍMSSTAÐIR
J Hveragerði - Símar: 99-4161, 99-4230
KArsnai
lóTnaskdlirm
Körsnesbraut 2. Simi 40380 og 40810.
Rósir og runnar í gróðurhúsið
og garðinn
Mikiðúrval
Laukar og rætur
100 teg. af dalíum
Hjartablóm, sporasóley,
musterisblóm, anemónur,
auk fjölda annarra tegunda
Hringið og við sendum
pöntunarlista yfir allar
okkar tegundir
Og að sjálfsögðu ungplöntur,
margar tegundir.
Pottar, ker, mold og allskonar
garðyrkjuáhöld ásamt
gjafavörum o.fl.
Sendum um allt land.
Heildsala -
Smásala
ÁB
Körsnei
lórnashdl'inn
Körsnesbraut 2. Sími 40980 og 40810.
frá júlílokum og fram í september, en
falla við fyrsta næturfrost.
Þá er skorið ofan af plöntunni
u.þ.b. 10 sm frá jörðu og ræturnar
grafnar varlega upp. Moldin er látin
þorna á rótunum á dinimum en
loftgóðum stað þangað til hægt er að
hrista hana af. Eftir það eru ræturnar
geymdar í þurrum sandi á svölum
stað til næsta vors. Öruggast er að
merkja hverja rót með nafni, gerð og
lit um leið og þær eru teknar upp til
að fyrirbyggja rugling seinna.
Dahlíur henta vel til ræktunar í
gróðurskálum. Þar blómgast þær
betur, fyrr og lengur en úti. Stórvöxn-
ustu tegundirnar þurfa að ráða yfir
einum fermetra af gólffleti og loft-
hæðin verður auðvitað að vera nóg.
Smávaxnari tegundir geta staðið
þéttar. Þar sem jörð ekki frýs geta
dahlíurnar staðið óhreyfðar í mold-
inni í nokkur ár og fengið sömu
meðferð og aðrar fjölærar plöntur.
Þetta á þó einungis við gróðurhús eða
skála sem haldið er svölum og þurrum
á veturna án þess að frjósi í þeim
(2-lO°C). Sé vetrarhitinn hærri er
hætta á því að plönturnar fái ekki
nóga vetrarhvíld heldur rembist við
að vaxa allt árið sér um megn.
Dahlíum er raðað niður í 10 hópa
eftir eðli og blómgerð.
Gladíólur - Kesjuliljur
Stöngulhnýðin eru gróðursett eitt og
eitt í 10-12 sm potta og forræktuð á
björtum stað (kjörhiti 5-15°C).
Suðurgluggi, frostlaust gróðurhús eða
bjartur bílskúr henta vel. Vegna þess
hve flestar gladíólutegundir blómgast
seint er best að hefja forræktunina
eins fljótt og hægt er.
í pottunum eru hnýðin rétt hulin
mold, toppurinn eða spíran má
gjarnan standa upp úr. Vökva skal
varlega í fyrstu en auka eftir því sem
vöxtur eflist.
í júníbyrjun má svo fara að venja
plönturnar við útivist. Veljið til þess
hlýjan dag en verjið plönturnar gegn
sterku sólskini og næturfrostum. Um
miðjan júlímánuð er víðast hvar
óhætt að gróðursetja gladíólurnar á
sinn sumarstað sunnan undir
húsvegg. Haft er 15-20 sm bil á milli
plantnanna.
Gladíólur þrífast best í hlýjum,
sendnum og frjóuni jarðvegi. 1 beð-
unum eru hnýðin hulin með 3-5 sm
lagi af mold. Gladíólur þarf undan-
tekningarlaust að binda upp við ca 60
snt prik, hækka verður bandið jafn-
hliða því sem plantan vex.
Gladíólur byrja að blómgast í júlí-
lok þegar best lætur en hafa sjaldnast
lokið því af fyrir frost. Þær standa
afburðavel í vasa. Hægt er að skera
stilkana af um leið og neðsta blómið
fer að sýna lit - þá halda þau áfram
að springa út eitt af öðru til efsta
blóms.
Gladíóluhnýði þroskast sjaldnast
nógu vel hérlendis til að það borgi sig
að geyma þau til næsta árs. Því er best
að kaupa ný hnýði árlega.
Begónía - Skáblað -
Hnúðbegoníur
Rótarhnýðin eru sett í 10-12 sm
potta hálffylltum með góðri gróður-
ntold. Hnýðunum er þrýst niður í
moldina en ekki hulin. Þau eru íhol á
þeirri hlið sem á að snúa upp. Þeim
er komið fyrir á hlýjum, björtum stað
og úðað yfir þau með vatni öðru
hverju. Þegar spírurnar hafa náð 3 sm
hæð er léttri mold bætt á pottana, en
begoníuplantan nær aldrei fullkomn-
um vexti nema rótarhnýðin séu fyrr
eða síðar hulin mold.
Um miðjan júní ætti að vera óhætt
að gróðursetja begoníur úti í garðin-
um á skjólsælum og hlýjum stað.
Jarðvegurinn verður einnig að vera
mjög vel unninn. Begoníur þurfa
fulla birtu en sterkt sólskin á ekki
mjög vel við þær þannig að best er að
gróðursetja þærþarsem forsælu nýtur
á meðan sól er hæst á lofti.
Við fyrstu frost falla plönturnar og
er þá hægt að grafa þær upp og
þurrka, eftir nokkurn tíma er moldin
hrist af og stöngullinn losnar frá, og
hnýðin síðan geymd í sandi á frost-
lausum stað. Þegar kemur fram í
febrúar er rétt að líta til þeirra því
búast má við að þau fari að spíra úr
því.