NT - 25.04.1985, Blaðsíða 12
Jfú n rctti timitm til að
planta i parðinn.
Trjáplöntur, runnar oq mir
nú jxgar. Einnip jumar-
blim i byrjun juni.
Utfrjn
KddnohM
5. &36W
xfa Xurulur.
GARÐYRKJUYERKFÆRIN
FÆRÐU HJA OKKUR
VÖNDUÐ
VARA
ÁGÓÐU
VERÐI
Síðumúla 4, símar 687171 og 687272 .
SKOGRÆKTARFELÆ
RE/KJAVIKUR
r FOSSVOGSBLEU11SÍM140313
GROÐRARSTÖÐ OKKAR ER í
FOSSVOGI
Þar fást yfír 100 tegundir trjáa og runna, ódýrar skógarplöntur,
valin garðtré, kröftugar limgerðisplöntur, rósir o.fl. allt vetrarúðað
þar sem við á.
Flestar tegundir fást í pottum og má því gróðursetja fram eftir sumri.
Skógræktarfélagið veitir ókeypis faglega ráðgjöf um plöntuval og ræktun.
Nú er líka á boðstólum „Kraftmold" í 30 lítra pokum. Þetta er alhliða
ódýr ræktunarmold sem má treysta. Efnainnihald rannsakað á RALA.
Skógræktarfélagið styður þig við ræktun trjágróðurs.
Gerist félagar
Fimmtudagur 25. apríl 1985 12 Blað II
Góð verkfæri
eru nauðsyn
■ Það er mikils vert að hafa góð
og þægileg verkfæri til taks þegar taka
á til höndunum í garðinum. f>ó
óþarfi sé að fjárfesta í dýrustu og
fullkomnustu tækjum á markaðinum
hverju sinni er samt nauðsynlegt að
eiga helstu tól til garðyrkjustarfa.
Það er mun skemmtilegra að vinna
vel og hreinlega með góðum verkfær-
um heldur en að vera að eyða miklum
tíma og erfiði í verkin með vonlausum
útbúnaði sérstaklega ef árangurinn er
lítill og lélegur.
Klippur o.fl.
Við klippingu og grisjun trjágróð-
urs er grundvallarregla að nota vel
beitt tæki til þess að rífa ekki greinar
og börk. Litlar handklippur eru nauð-
synleg eign hverjum garðeiganda.
Þegar fjarlægja þarf stærri greinar og
stofna verður að brúka góða sög .
Sérstakar greinasagir fást í öllum
garðyrkjuverslunum. Einnig er hægt
að fá greinaklippur - öflugar klippur
sem geta tekið allstórar greinar. Lim-
skæri eða hekkklippur til að klippa
limgerði fást í ýmsum stærðum og
gerðum og raunar er líka hægt að fá
slíka gripi raf- eða vélknúna fyrir þá
sem þurfa að klippa löng limgerði og
veigra sér við trimmið. Þá má einnig
nefna sérstakar toppaklippur, aðal-
lega ætlaðar til þess að klippa tví-
toppa og vandræðagreinar á háum
trjám.
Sláttuvélar
Af sláttuvélum er úr nógu að velja
hvað varðar stærð, gerð og útfærslu.
Fyrir nokkrum árum voru algengastar
rellurnar sem ýtt var á undan sér en
nú eru flestir með Iitlar bensínvélar.
Þær fást með drifi á hjólum þannig að
allt sem maður þarf að gera er að elta
vélina og passa að hún skreppa ekki
yfir í næstu garða. Einnig eru til
svokallaðar „loftpúðavélar", sem eru
hjólalausar en loftþrýstingurinn lyftir
■ Margs konar vatnsdreifarar og
slöngukerfí eru fáanleg í ýmsum út-
færslum.
þeim hæfilega upp. Fyrirstærri skrúð-
garða og þreytt fólk eru til sláttuvélar
sem hægt er að sitja á. Mörgum
þessum vélum fylgir búnaður sem
tekur grasið jafnóðum upp í poka eða
sekk. Þá eru á markaðinum létt og
handhæg rafmagnsorf aðallega hugs-
uð fyrir minni garða.
Kantskæri eða grasklippur eru til í
mörgum útfærslum, allt frá litlum
handklippum upp í rafknúna skera.
Ennfremur er hægt að fá skæri með
löngu skafti til að maður þurfi ekki að
skríða á hnjánum og eru þau þá oft á
litlum hjólum.
Úðadælur og vökvunarbúnaður
Tvær gerðir af bakdælum eru al-
gengastar: Einfaldar handknúnar
dælur sem verður að pumpa stöðugt
meðan verið er að úða og hinsvegar
loftþrýstidælur sem eru „pumpaðar
upp" áður en byrjað er að úða. Þá eru
og til margs konar spraybrúsar. Fyrir
stærri garða eru til hentugar véldælur.
Af hefðbundnum vökvunarbúnaði
er fyrst að nefna garðkönnurnar sem
alltaf þjóna sínu hlutverki. Með alls-
konar samsetningum og tengingum
er hægt að leiða slöngur út um allan
garð og hafa vatnsdreifara á endum.
Athyglisverð nýjung er svokölluð
„Leaky pipe“ vökvunarslanga aðal-
lega hugsuð fyrir gróðurhús og garð-
skála, en hentar einnig vel til að
leggja í grasflatir þar sem vökvunar
er þörf. Slöngur þessar eru þeirrar
náttúru að við minnsta vatnsþrýsting
lekur vatnið í dropatali út úr þeim
nánast allsstaðar. Þar er því ekki sú
hætta fyrir hendi að einhver smágöt
stíflist vegna þess að það smitar
allsstaðar út. Gerður var samanburð-
ur í Garðyrkjuskóla ríkisins með
„Leaky pipe“ og dropavökvunarkerfi
og reyndist uppskeran í öllum tilfell-
um meiri þar sem „Leaky pipe“ var
notuð. Slöngurnar eru lagðar aðeins
undir yfirborð beðsins þannig að
vökvunarkerfið hindrar ekki illgresis-
eyðingu eða aðra vinnu á yfirborðinu.
Þessar slöngur eru framleiddar á Ís-
landi eftir amerískri fyrirmynd.