NT - 08.06.1985, Page 11

NT - 08.06.1985, Page 11
_ IH' Laugardagur 8. júní 1985 11 I liL Stjórn Mjólkurbús Flóamanna: Óviðunandi aðþvinga sumarbúgreinarákostnaðannarra Deildra meininga verður víða vart á frumvarpi því tii laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum sem nú er til meðferðar á Alþingi. Verður þessa vart í hópum framleiðendanna, vinnslu- stöðvanna og meðal formælenda þeirra sem endanlega afgreiða búvörurnar til neytenda. Meðal þeirra sem sent hafa landbúnaðarnefnd Alþingis ályktun um frumvarpið er stjórn Mjólkurbús Flóa- manna og er hún svohljóðandi: Margóskað eftir frestun - Stjórn Mjólkurbús Flóamanna hef- ur 10. maí eindregið óskað eftir því við hið háa Alþingi að framlagningu laga- frumvarps um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum verði frestað til hausts. í sama streng tók aðalfundur MBF þann 23. apríl og þá hafði aöal- fundarfulltrúum ekki gefist kostur á að sjá nein frumvarpsdrög og lítil von til þess að fulltrúarnir gætu næstu vikur eftir aðalfund fjallað sameiginlega um þetta mál. Enginn fékk að sjá það Þá ber einnig að harma að frumvarp þetta hefur ekki verið sent til umsagnar stjórnarformanni eða mjólkurbússtjóra þessa stærsta mjólkuriðnfyrirtækis landsins. Þar sem frumvarp þetta er nú Björn Haraldsson frá Austurgörðum Fæddur31.maí 1897 Dáinn 29. maí 1985 Björn Haraldsson fyrrum kennari og bóndi að Austurgörðum í Keldu- hverfi lést á sjúkrahúsinu á Húsavík 29. maí sl. í nokkrum orðum langar mig að minnast tengdaföður míns og þakka góð kynni. Björn Haraldsson fæddist að Aust- urgörðum þann 31. maí 1897 sonur hjónanna Haraldar Ásmundssonar bónda þar og Sigríðar Sigfúsdóttur. Hann var elstur átta systkina og eru nú sjö þeirra látin. Eftir lifir Björg, fyrrum húsfreyja að Mýri í Bárðardal. Búið að Áusturgörðum var í smærra lagi. Pað hefur því þurft að halda vel á öllu og fara sparlega með. En fjölskyldan var samhent og komst sæmilega af þrátt fyrir erfiða tíma. Snemma mun Björn hafa tekið til hendinni eins og alsiða var á þeim tíma og sú iðjusemi, ér hann tamdi sér í bernsku, entist honum alla ævi. Hann varsístarfandi meðan kraftarn- ir leyfðu og kunni aldrei við sig verklaus. Skólaganga Björns var ekki löng en nýttist honum ákaflega vel. Auk farkennslunnar, er hann naut í sveit sinni, stundaði hann nám við unglingaskólann í Axarfirði veturinn 1911-12 og eftir það las hann um tíma við Gagnfræðaskólann á Akur- eyri. En Björn var fróðleiksfús að upplagi og bókhneigður, enda vel að sér í ýmsum greinum. Strax um tvítugt fór hann að fást við kennslu og má segja að það hafi verið hans annað aðalstarf um dagana. Hann kenndi á ýmsum stöðum um áratuga skeið og seinast á Reykjum í Hrútafirði. Björn var félagslyndur og áreiðanlegur enda hlóðust snemma á hann trúnaðarstörf heima íhéraði. Hann varm.a. oddviti í Kelduhverfi um skeið, mörg sumur sá hann um verkstjórn við vegalagnir, og þingskrifari var hann á árunum 1928—37. Hann sat í ýmsum nefndum og stjórnum og lagði gjörva hönd á margt. Af þessu má sjá, að Björn naut trausts og virðingar samtíðar- manna sinna, sern kunnu vel að meta greind hans og dugnað. En það vita þeir er til þekkja, að Björn steig sitt mesta gæfuspor þann 7. okt. 1939 er hann gekk að eiga eftirlifandi eigin- konu sína Þorbjörgu Þórarinsdóttur frá Kollavík í Þistilfirði. Þó lundarfar þeirra hjóna væri um margt ólíkt varð hjónaband þeirra farsælt og ham- ingjuríkt. Þeim varð þriggja barna auðið. Þau eru Þórarinn f. 1940, Sigríður f. 1946 gift þeim er þetta ritar, og Guðný gift Jónasi Þórðar- syni. Barnabörnin eru níu.- Er ég kynntist Birni var hann orðinn aldraður maður. Mér er enn minnistætt hversu vel og innilega hann tók á móti mér er ég kom í fyrsta sinn í heimsókn að Austurgörðum sumarið 1976. Björn stóð þá á þeim tímamótum að vera að bregða búi. En það var fjærri honum að setjast í helgan stein. Hann snéri sér þá af krafti að áhugamáli sínu, ritstörfun- um. Þetta sama haust komu út eftir hann tvær bækur, „Ljóðakver" en þar kemur glögglega í Ijós hve létt hann átti með að klæða hugsanir sínar í búning stuðla og höfuðstafa, og „Kaupfélag Norður-Þingeyinga 1894-1974“. Þar er greinargóð lýsing á því hve samvinnuhreyfingin og stofnun kaupfélagsins hafði afgerandi áhrif á „mannlíf við ysta haf“ en það var undirtitill bókarinnar. Áriö 1979 kom út eftir hann bókin „Lífsfletir", sem er ævisaga Árna Björnssonar tónskálds, en þeir voru sveitungar og vinir. En stærsta ritverkið, sem hann vann að, entist honum hvorki heilsa né aldur til að ljúka. Það var saga samvinnuhreyfingarinnar. í það mikla verk hafði hann dregið saman óhemju fróðleik. Það urðu honum vonbrigði að geta ekki lokið því verki. Björn var í lægra meðallagi á hæð, svipsterkur og sviphreinn. Hann var léttur á fæti meðan kraftar entust og sístarfandi. Ógleymanleg er mér ferð er við fórum eitt sinn í hinu fegursta veðri austur að Dettifossi ásamt fleir- um. En þar kleif hann léttilega kletta og klungrur og hafði þó tvo um áttrætt. Björn var vellesinn og víðles- inn, hagmæltur í betra lagi, ljóðelskur og ritfær vel, eins og bækur lians bera vott um. Hann átti drjúgt safn góðra bóka sem voru honum kærar. Hann hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og fór ekki dult með þær, var rökfastur og fylginn sér og gilti þá einu hver í hlut átti. Hann bjó yfir farsælum gáfum er nýttust honum vel. Hann var góður fulltrúi íslenskrar bændamenningar í þess orðs bestu merkingu. Síðustu árin reyndust Birni erfið á ýmsan hátt. Það átti ekki við hann að sitja með hendur í skauti. Glíman við elli kerlingu var bæði löng og ströng. Hann unni átthögum sínum mjög og vildi dveljast heima svo lengi sem þess var nokkur kostur. Þorbjörg kona hans tók fullt tillit til óska bónda síns, og hjúkraði honum daga og nætur afástúðogumhyggju. Þorbjörg er ein af hetjum hversdagsins, sem í hógværð og af fórnfýsi reyndi hvað hún gat að létta undir með ellimóðum eiginmanni sínum. Við, sem þekktum Björn, vissum að hann varð hvíldinni feginn. Andlát hans kom engum á óvart. Eigi að síður er nú skarð fyrir skildi. Það er dapurt til þess að hugsa að eiga ekki lengur eftir að blanda geði við þennan aldna heiðursmann. En eftir lifir minningin um heilsteyptan mann, sem í engu brást er honum var til trúað, og kveður nú þennan heim sáttur við Guð og menn að loknu ósviknu dagsverki, eða eins og hann sjálfur segir í einu ljóða sinna: Rétt er rétt í heimi hér og hafið það. Gert er gert og frágengið og fullkomnað. Ég sendi tengdamóður minni Þor- björgu og öðrum ástvinum innileg- ustu samúðarkveðjur. Egill Friðleifsson. komið fram á Alþingi óskar stjórn MBF eftir að benda á þessi atriði til lagfæring- ar og óskar eindregið eftir því að ábend- ingar stjórnarinnar verði teknar til greina. Mótmælt oddaaðstöðu æviráðins embættismanns Verðlagning, vinnslu- og heildsölu- kostnaður mjólkur á samkvæmt frum- varpinu að vera í höndum 5 manna nefndar þar sem verðlagsstjóri yrði sjálf- kjörinn oddamaður. Stjórn MBF mót- mælir því að æviráðinn embættismaður ríkisins hafi þarna oddaaðstöðu, einkum vegna þess að áfrýjunarréttur til yfir- dóms yrði enginn. Óskað er eftir ákvæði um yfirdóm sem hægt er að vísa til öllum ágreiningi út af þessum þætti verðlagn- ingar. Allir geta opnað mjólkurbú Engar skorður eru reistar við stofnun nýrra afurðasölustöðva nema þá helst í 40. gr. - og þá því aðeins að leitað yrði lána hjá opinberri lánastofnun til að reisa eða endurbyggja afurðasölustöð. Stjórn MBF leggur eindregið til að í 6. gr. komi ákvæði um að framleiðsluráð veiti afurðasölustöðvum starfsleyfi sem ráðherra staðfestir. Hver á að skaffa peningana Vegna ákvæðis 29. gr. um að afurða- sölustöðvar í mjólkuriðnaði verði að inna greiðslur til framleiðenda af hendi eigi síðar en 10. dag næsta mánaðar eftir innleggsmánuð, óskar stjórn MBF eftir skýrari ákvæðum um skyldur ríkisvalds- ins til að: a) Fjármagna þessar full- greiðslur. b) Um eftirkröfurétt afurða- stöðva vegna endurgreiðslu á kvóta. (Engin ákvæði eru um fjármögnun á birgðum óseldrar vöru né heldur um endurgreiðslur þegar í ljós kemur að framleiðandi hefði átt að þola verðskerð- ingu vegna framleiðslu umfram kvóta.) Framleiðsluráði ætlað að lúra á sjóðnum Vakin er sérstök áthygli á ákvæðum 22. greinar um að útborgunarverð til framleiðenda geti verið mismunandi hátt eftir árstímum. Þó skuli verðmiðlunar- gjald af því tilefni ekki hafa áhrif á útsöluverð mjólkur til neytenda. Við fullgreiðslu mjólkurafurða við lægra sumarverði er tekið fram að framleiðslu- ráð geymi þennan verðmismun. Stjórn MBF leggur til að uppsafnaður sjóður með þessum hætti verði geymslufé við- komandi afurðastöðvar, sem sér um að ávaxta það uns til þess er gripið þegar hækka skal útborgunarverð á öðrum árstíma. Óviðunandi að þvinga suma en ekki aðra í 30. grein er ákvæði um stjórn á framleiðslu búvara er aðeins talað um samninga við ríkisvaldið um magn mjólkur- og sauðfjárafurða, sem fram- leiðendum yrði ábyrgst fullt verð fyrir. Stjórn MBF telur að allar búgreinar eigi að falla undir framleiðslustjórnun. Ekki verður unað við að þvinga eingöngu tvær búgreinar til stórfellds samdráttar - þær greinar sem helst framleiða af því sem landið gefur - en láta aðrar búgreinar sem byggjast á innfluttu fóðri ana stjórn- laust áfram. Bein sala - brask og undirboð? Stjórn MBF varar við ákvæðum í 2. mgr. 44. gr. frumvarpsins um beina sölu húvöruframleiðslu til smásöluverslana eða neytenda. Ekki er að sjá að þessi grein sé í neinum tengslum við megintil- gang laganna um stjórn á framleiðslu búvara og það heildarskipulag sem lögin boða. Draumur okkar allra Astrid Lindgren: Elsku Mió minn. Heimir Pálsson þýddi. Mál og menning 1985. ■ Þetta er önnur útgáfa þar sem hin fyrri kom út 1977. Nú er búningurinn sá að þetta er kallað barnaugla en þar með er átt við það sem nefnt hefur verið pappírskilja sem ætluð er börnum. Myndskreytingar eru eftir llon Wikland, yfirlætislausar teikningar sem falla vel að þessu mikla ævintýri. Þar sem þetta er endurútgáfa á vinsælli bók er efnið ýmsum kunnugt. Astrid Lindgren kann jafnt að segja helgisögur í ævintýrabúningi og að lýsa hversdagslegum börnum á venju- legum heimilum. Þetta ævintýri fjall- ar um draum alls mannkyns um lausn úr álögum og frelsun frá synd og hörmum. Álögin eru staðreynd og veruleiki. Þegar um þau er talað má vera að einhverjum komi fyrst í hug þeir sem eru ofurseldir eiturlyfjum. En þetta er ekki svo einfalt. Flestir vita töluvert um það hvernig mætti og ætti að lifa svo að mannlífið í heild væri fagurt og gott þó að okkur auðnist ekki að fylgja þeirri forskrift. Við erum ekki nógu góðviljuð og staðföst. Syndir okkar eru leti og sérhlífni, kaldlyndi og kæruleysi, og þeim fylgja harmar og raunir. Víst skiljum við að fólk sé í álögum. Og öll dreymir okkur um frelsun og lausn. Því er þetta efni sem nær vel til okkar. Ætla mætti að þetta væri vönduð þýðing og yfirleitt er málið gott. Samt stansaði ég við á bls. 37 þar'sé-m stendur: „hvít lömb með hrokkið skinn voru á beit á grasinu". Oft hef ég séð lömb með hrokkið hár, hrokkna ull, þó að skinnið væri slétt. Og séð hef ég dögg á grasi en ósköp hafa lömbin verið létt á sér ef þau hafa verið á grasinu. Kannske hefur verið talað um hrokkinn feld á lömb- um sem bitu gras í haga. „Ég var jú riddari" stendur á bls. 107. Þetta er kækur sem ég kann aldrei við. Halldór Laxness segir það sé danskur kækur. Verra þykir mér þó á blaðsíðu 175 og 182 þegar börnin eru að lýsa gleði sinni yfir því sem orðið er og segja: „Mér þykir svo vænt um að við erum ekki lengur í álögum. - Mér þykir svo vænt um að við gátum veitt sverðið þitt upp úr djúpinu. - Mér þykir svo vænt um að vera komin heim". Þetta er ekki venjulegt mál. Við erum glöð að vera komin heim og okkur þykir gott að vera frjáls. Kannske þykir okkur vænt um stjórn- arskrána en ég hygg að vandfundin sé í bókum sú játning að okkur þyki vænt um að kóngurinn hafi komið með hana og var honum þó vel fagnað. Þjóðskáldin orðuðu það öðruvísi enda hugsuðu þau á íslensku en voru ekki að þýða. Þetta kann að þykja tilefnislítil aðfinnsla en vegna höfundar, sögunn- ar sjálfrar og þýðandans ber okkur að gera strangar kröfur. H.Kr. BRAUTARHOLTI 33 - SÍMI: 62 12 40 # VIÐ ERUM í hjarta borgarinnar viö Brautarholt. # VIÐ HÖFUM rúmgóöan sýningarsai og útisölusvæði. # VIÐ BJÓÐUM mikiö úrval notaöra bíla af öllum geröum. # VIÐ VEITUM góöa og örugga þjónustu

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.