NT - 08.06.1985, Blaðsíða 20

NT - 08.06.1985, Blaðsíða 20
 Laugardagur 8. júní 1985 20 tilkynningar Takið eftir! Vegna sjómannaverkfallsins býður Löndun- argengi fram þjónustu sína. Tökum að okkur ýmis konar verk, svo sem garðslátt, málningarvinnu og margt fleira. Duglegir menn,vönduð vinna.góð þjónusta. Upplýsingar í síma 12281, 34916, 37538 eftir kl. 17. Geymið auglýsinguna Hlíðardalsskóli Ölfusi Umsóknarfrestur um skólavist í 8. og 9. bekk ertil 28. júní. Upplýsingar í símum 91 -13899 og 99-3607. Rannsóknastyrkir EMBO í sameindalíffræði Sameindalítfræöisamtök Evrópu (European Molecular Bio- logy Organization, EMBO), styrkja vísindamenn sem starfa í Evrópu og ísrael til skemmri eða lengri dvalar viö erlendar rannsóknastofnanir á sviöi sameindalíffræði. Nánari upplýs- ingar fást um styrkina í menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík. - Umsóknareyöublöö fást hjá Dr. J. Tooze, Executive Secretary, European Molecular Biology Organizat- ion, Postfach 1022.40, D-6900 Heidelberg 1, Sambandslýö- veldinu Þýskalandi. Umsóknarfrestur um styrki til 3ja mánaöa eöa lengur er til 15. ágúst en um styrki til skemmri tíma má senda umsókn hvenær sem er. Menntamálaráðuneytið 4. júní 1985. Héraðsskólinn í Reykholti Auk náms í 9. bekk er hægt að stunda 2 ára nám á öllum bóklegum brautum áfangakerfis fjölbrautaskólanna. Hægt er að Ijúka námi á eftirtöldum 2 ára brautum: Viðskipta, uppeldis og íþróttabraut. Umsóknarfrestur um skólavist er til 15. júní. Nánari upplýsingar eru veittar í símum 93-5200, 93-5201 og 93-5210. Skólastjóri. atvinna í boði Félagsmálafulltrúi -Tómstundafulltrúi Egilsstaðahreppur óskar að ráða félagsmálafulltrúa sem jafnframt gegnir störf- um tómstundafulltrúa. Krafist er menntunar félagsráðgjafa eða annarrar hliðstæðrar menntunar. Starfið er fullt starf frá 1. september 1985 og felst í samvinnu við og framkvæmdastjórn fyrir þær nefndir sem starfa á félagsmála- sviðinu í Egilsstaðahreppi. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist sveitarstjóra Egilsstaðahrepps fyrir 1. júlí 1985. Sveitarstjóri. t Valdimar Jónsson bóndi, Álfhólum Vestur-Landeyjum, sem lést 31. maí, veröur jarðsunginn frá Akureyjarkirkju laugardaginn 8. júní kl. 14. Bílferð verður frá umferðarmið- stöðinni kl. 11:30. Hrefna Þorvaldsdóttir Sigríður Valdimarsdóttir Valdís Bára Valdimarsdóttir Rósa Valdimarsdóttir Ómar Jóhannsson Þorvaldur Örn Árnason Auður Haraldsdóttir Franskar kjarnorkuvarnir í Evrópu í stað bandarískra? ■ Frönsk stjórnvöld liafa að undanförnu látið í Ijós þá skoð- un sína að Frakkar eigi að taka meiri þátt í sameiginlegum vörnum Evrópu. Frakkar segja að aukinn kjarnorkuvígbúnað- ur þeirra þjóni ekki aðeins því markmiði að efla varnir Frakk- lands heldur hafa þeir gefið í skyn að frönsk kjarnavopn eigi að vera hluti af kjarnorkuvörn- um allrar Evrópu. í seinasta mánuði hleyptu Frakkar af stokkunum nýjum kjarnorkukafbát, sem þeir gáfu nafnið Inflexible „Hinn ósveigj- anlegi". Um borð í þessum eina kafbát eru 96 kjarnorkusprengj- ur sern hægt er að skjóta á loft öllum á aðeins sjö mínútum. Sprengjurnar eru á sextán flug- skeytum sem hvert hefur sex kjarnaodda. Áður en Inflexible var tekinn í notkun höfðu ■ Mitterrand Frakklandsforseti kemur í skoðunarferð í nýjasta og fullkomnasta kjarnorkukafbát Frakka, Inflexible. Frakkar aðeins 48 kjarnaskeyti með einum kjarnaoddi hvert í kafbátum sínum. Þessi nýju kjarnavopn gera Frökkum kleift að skjóta kjarn- orkuskeytum á skotmörk í allt að 4.500 kílómetra fjarlægð í stað 3000 kílómetra áður. Varnarmálaráðherra Frakka, Charles Hernu, segir að í lok þessa árs verði kjarnorku- sprengjur um borð í frönskum kafbátum orðnar 176 og árið 1992 verði þær því sem næst fimm hundruð talsins. Fram til þessa hafa frönsk kjarnorkuvopn nær eingöngu verið ætluð til að verja Frakk- land gegn hugsanlegri kjarn- orkuárás. Það er að vísu gert ráð fyrir því að frönsk kjarna- vopn gætu hugsanlega verið not- uð þótt ekki sé um beina árás á franskt yfirráðasvæði að ræða, ef forsetinn ákveður að um „lífsnauðsynlega hagsmuni" Frakka sé að ræða. Jacques Huntzinger alþjóða- ritari Sósíalistaflokks Frakk- lands sagði fyrr í þessum mán- uði að frönsk kjarnorkuvopn yrðu á einn eða annan hátt að gegna stærra hlutverki. Fram- kvæmdastjórn sósíalistafloksins mun ræða hlutverk kjarnorku- vígbúnaðar Frakklands og breytingar á því á fundi sínum 12. júní. Vestur-þýsk stjórnvöld hafa þegar látið í ljós stuðning við aukna þátttöku Frakka í vörn- um Evrópu. En þeir hafa samt séð ástæðu til að undirstrika þá skoðun sína að frönsk og bresk kjarnavopn geti ekki komið í staðinn fyrir bandarísk kjarna- vopn í Evrópu. Franskir sósíalistar hafa látið í ljós efasemdir um karn- orkuvarnir Bandaríkjamanna í Evrópu. Huntzinger alþjóðarit- ari ílokksins bendir á þann möguleika að með geimvopna- áætlun sinni muni Bandaríkja- menn hugsanlega draga sig út úr vörnum Evrópu. Frakkar eru mjög' eindregið á móti geim- vopnaáætlun Bandaríkjamanna og vilja þess í stað byggja upp evrópskt geimvarnakerfi sem sé ekki byggt á vopnum úti í geimnum heldur á fjarskipta- og njósnahöttum. Frakkar hafa þegar hafið undirbúning að eigin geim- varnakerfi, Eureka, og Mitter- rand Frakklandsforseti hefur boðið öðrum Evrópuþjóðum samvinu við uppbyggingu þess. Bandaríkjamenn hafa greini- lega gefist upp á að tryggja sér afdráttarlausan stuðning evr- ópskra bandamanna sinna í NATO við geimvopnaáætlun sína eins og fram kom á nýaf- stöðnum fundi utanríkisráð- herra NATO í Portúgal. Þar sýndu Frakkar mjög ákveðna andstöðu við „stjörnustríðshug- myndir“ Reagans og Danir, Norðmenn og Grikkir lýstu sig heldur ekki tilbúna til að styðja bandarísku geimvopnaáætlun- ina. Evrópumenn eiga erfitt með að sjá á hvern hátt þeir geti notið góðs af bandarísku geim- vopnaáætluninni, sem margir vísindamenn telja reyndar óframkvæmanlega. Jafnvel þótt Bandaríkjamönnum takist að smíða geimvopn sín eiga Evr- ópumenn erfitt með að sjá hag sinn af slíku þar sem geim- vopnakerfið myndi fyrst og fremst efla varnir Bandaríkj- anna sjálfra fyrir árásum með langdrægum kjarnaflaugum. Slíkt væri lítil vörn fyrir Evrópu. Evrópumenn hafa mestan áhuga á því að Bandaríkjamenn semji um fækkun kjarnorku- vopna við Sovétmenn. En til þess að það takist verða þeir líklega að hætta við geimvopnaá ætlun sína þar sem Sovétmenn segja slíkt skilyrði fyrir samning- um um fækkun kjarnorku- vopna. Frakkar telja að ekki sé hægt að treysta því að Bandaríkja- menn taki fuilt tillit til hags- muna Evrópumanna við eflingu varna sinna eða í samningum við Sovétmenn. Þess vegna hafa þeir ákveðið að efla eigin kjarn- orkuvarnir sem mest til þess að vera ekki háðir Bandaríkja- mönnum. Fyrir Frökkum er það eðlilegt framhald af þessari stefnu sinni að útfæra hana fyrir alla Evrópu og gera hana óháða Bandaríkjunum í varnarmál- um.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.