NT - 08.06.1985, Síða 12

NT - 08.06.1985, Síða 12
Él á Laugardagur 8. júní 1985 12 rzj Nýr taktur gömul 1 sveifla Bubbi kóngur . 'T- 1 með nýja sólóplötu Rás 2 Gn (1) 1. View to kill - Duran Duran (-) (2) 2. Axel F - Harold Faltermeyer (2). (3) 3, Nineteen - Poul Hardcastíe (-> (5) 4. Clouds across the moon - RAH Band (1) (6) 5. Lover come back - Dead or alive <-) (4) 6. Just a gigolo - David Lee Roth (-)' (12) 7. Raspberry beret - Prince (-) (7) 8. The beast in me - Bonnie Pointer (5) (9) 9, Some like it hot - Power station (-) (8)10, The unforgettable fire - U2 (-) ■ Fimmtudagurinnsíðasti,6. juni, var merkilegur fyrir margra hiuta sakir. Sjötti júní er þjóðhátíöardagur Svía og upprennandi hátíðisdagur ís- lenskra rokkunnenda. Þann dag voru liðin fimm ár síðan Bubbi Morthens gaf út sína fyrstu sólóplötu, ísbjarnar- blús. Sú plata hafði ómæld áhrif á íslenska rokkmússík og markaði upphafiö á miklum og stormasömum ferli Buhba. Þann sjötta júní síðastliðinn gaf Bubbi út sína fímmtu sóló- plötu. Platan nefnist Kona og er gefín út af Gramminu, Bubbi var tekinn tali af þessu tilefni og hann var fyrst spurð- ur hvernig honum liði á þessum tímamótum. „Vcl, alveg glinirandi vel. Ég er í góðu formi líkamlega og andlega og sáttur við það sem ég er að gera núna. Þessi plata er sú besta sem ég hef gert hingað til, hún er róleg/ einlæg og sönn. Tónlistin er öll önnur en á fyrstu plötum mín- um og alger andstæða þess sem Utangarðsmenn voru að gera á sínum tíma. Báðar þessar tónlistastefnur eru mér ná- komnar, en rólegri kassagítar- blúsinn er þó nær mér. Ég er þó óhress með eitt smáatriði í dag og það er að blaðamannafundurinn vegna útkomu plötunnar skuli vera haldinn á „pöbb“. Ég hafði aldrei komið inná íslenskan „pöbb“ áður. Ég reyndi einu sinni, cn þá var löng biöröð, og útúrfullir menn ultu um gang- stéttirnar. Þetta á ekki við mig. Gamla sveitaballs- stemmningin er komin inn í bæinn. Eftir þessa reynslu mína grcip ég það í mig að láta þessa „pöbba“ afskiptalausa, enda bjóða þeir ekki uppá alvörubjór. Þetta er „prinsipp" Þáfimmtuá fimm árum hjá mér og það er ekki byggt á neinum bindindisrökum." Nú ert þú kominn úr mikilli hljómleikaferð um landið, var hún ekki á vitlausum tíma? Er ekki vaninn að fara í tónleika- ferðir og kynna nýútkomnar plötur? „Það getur svo sem verið að það tíðkist hjá einhverjum, en ekki hjá mér. Ég fer alltaf hring um landið og kynni óút- komnar plötur. Það er auðvit- að meiri áhætta, en margborg- ar sig ef vcl gengur. Síðan fer ég gjarnan í aðra tónleikaferð eftir að platan er komin út. Þetta eru mikil ferðalög og mikil vinna, en ég lít á þetta sem þjónustuskyldu lista- mannsins og auðvitað í já- kvæðri merkingu þess orðs. Ég kemst þarna í nálægð við fólkið sem kaupir plöturnar rnínar og ef ég á að segja eins og er þá finnst mér það lágmarks- kurteisi að heimsækja þctta fólk. Á þessum hringferðum mínum bý ég oftast í verbúðum og þá glatast ekki tengslin við táfýluna og slorið. Já, ég held mig alltaf í nálægð við fiskinn, það eru til mynda ekki nema tvö ár síðan ég fór síðast á síldarvertíð." En ef við snúum okkur að plötunni, þetta er tilfinninga- rík og persónuleg plata, hvern- ig er að bera tilfinningar sínar svona á torg? „Það er vissulega einstakl- ingsbundið, en mér finnst það gott. Það er mikill léttir að geta losað sig við sársauka og standa fyrir utan tilfinningarn- ar. Það eru forréttindi að geta virkjað tilfinningarnar og kom- ið þeim frá sér. Já, þetta er léttir. Þessa dagana er ég að undir- búa tónleikaferð, annars lifi ég ósköp venjulegu líf. Ég vakna uppúr sex á hverjum morgni og æfi lyftingar til klukkan níu. Þá sest ég við skriftir eða fer í stúdíó og er venjulega búinn að öllu um hádegið. Núna er í deiglunni samn- ingur við skandinavískt plötu- fyrirtæki og það verður gaman að sjá hvað það leiðir af sér. Á sínum tíma gerði ég samning við bandaríska aðila og rann sá samningur út fyrir nokkrum mánuðum. Þeirgeta örugglega lögsótt mig því ég stakk af frá öllu saman. Fyrir því eru mjög persónulegar ástæður og þetta vil ég helst ekki ræða." Nú gefur Grammið út þessa plötu þína. Þú gafst upp á Steinum, af hverju ferð þú yfir á Grammið? „Það er einfaldlega vegna þess að mér finnst Grammið eina íslenska plötufyrirtækið sem sinnir almennilega öllum kröfum markaðarins. Fyrstu plötur mínar og Utangarðs- manna höfðu óneitanlega mik- il áhrif á íslenskt tónlistarlíf og það má segja að Grammið sé eðlilegt framhald þess sem þá var að gerast.“ Nú kemur þessi plata út í lok kvennaáratugar og hún heitir Kona. „Já, það er vegna þess að allt það yndislegasta og dá- samlegasta í þessum heimi býr í konunni. Þær eiga allar sinn hluta í þessari plötu og þá sérstaklega konan sem var kveikjan að plötunni, en sú kona prýðir plötuumslagið.“ Vinsældí ■ „Til hamingju með plötuna, já og afmælið.“ Megas og Tolli mæta á kynningarfund og afmælishóf Bubba Morthens.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.