NT - 01.08.1985, Blaðsíða 6

NT - 01.08.1985, Blaðsíða 6
Fimmtudagur 1. ágúst 1985 Moskva fagnar afmæli Helsinkisamkomulagsins fram ákveðnar meginreglur um mannréttindi. Mismunandi skilningur Fyrir bæði austur og vestur var Helsinkisamkomulagið hápunktur þeirrar slökunar- stefnu sem blómstrað hafði í upphafi sjöunda áratugsins en fölnað enn skjótar í lok sama áratugs. Samkomulagið hafði varla verið undirritað, þar á meðal af þáverandi leiðtogum Bandaríkjanna og Sovétríkj- anna, Gerald Ford og Leonid Brezhnev, þegar í ljós kom að stórveldablokkirnar tvær aust- an og vestan járntjalds lögðu mismunandi skilning á ákvæði samkomulagsins. Sovétmenn lögðu áherslu á gildi samkomulagsins sem formlegrar viðurkenningar á núverandi landamærum í Evr- ópu og einnig á ákvæði sam- komulagsins er kvað á um sjálfsákvörðunarrétt ríkja um eigin málefni og virðingu ann- arra ríkja þar að lútandi. Hins vegar lögðu'vestrænu ríkin megináhersluna á mann- réttindakafla samkomulagsins, sem kveður m.a. á um tjáning- arfrelsi, upplýsingafrelsi og síðast en ekki síst ferðafrelsi sem þegnum kommúnistaríkj- anna hefur að mestu leyti verið neitað um. Vesturlönd höfðu náð fram mannréttindaákvæð- um samkomulagsins með því að viðurkenna í staðinn núver- andi landamæri ríkja í Evrópu. Mannréttindakaflinn þótti mikill árangur, þó fram- kvæmdin hafi orðið allt önnur og síðri. A. Shevchenko, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og hæst setti diplómatinn sem flúið hef- ur Sovétríkin, lét þá skoðun í ljós í nýútkomnum endur- minningum sínum að valdhaf- arnir í Moskvu hafi talið sig gefa of mikið eftir við samn- ingaborðið í Helsinki í ákafa sínum við að gera ráðstefnuna að eins konar „friðarsigri" Brezhnevs. Hörkulegar deilur Á árunum síðan samkomu- lagið var undirritað í Helsinki hafa verið haldnar tvær ráð- stefnur til að endurskoða sam- komulagið og framkvæmd þess, í Belgrad 1977-78 og í Madrid 1980-83, og í ár er fyrirhuguð slík ráðstefna í Ott- awa. Ráðstefnurnar tvær hafa umfram allt einkennst af hörkulegum deilum um fram- kvæmd mannréttindakafla samkomulagsins og hefur ár- angurinn verið eftir því. Pegar að lokinni Helsinki- ráðstefnunni gerðu Kremlverj- ar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að nokkur sovéskur þegn fengi þá flugu í höfuðið að mannréttindaklásúlurnar í Helsinkisamkomulaginu fælu í sér rétt til að setja sig upp á móti alræði sovésica kommún- istaflokksins. Öryggislögregl- an KGB, sem þá var undir stjórn Yuri Andropovs síðar leiðtoga Sovétríkjanna, hóf þegar að taka andófsmenn kerfisbundið úr umferð, en þeir höfðu myndað hópa í Moskvu og fleiri borgum til að fylgjast með því að mannrétt- indaákvæði Helsinkisam- komulagsins væru haldin af stjórnvöldum. Þegar leið að lokum sjöunda áratugsins voru flestir andófsmennirnir komnir á bak við lás og slá, í útlegð innan Sovétríkjanna ellegar erlendis. Til dæmis var einn andófsmannanna, Anatoly Shcharansky, dæmdur til 13 ára fangelsisvistar á þeint for- sendum að hann stundaði njósnir í þágu Bandaríkjanna, en því var alfarið neitað af þáverandi forseta Bandaríkj- anna, Jimmy Carter. Frægasti og jafnframt virtasli baráttu- maður mannréttinda í Sovét- ríkjunum, eðlisfræðingurinn Andrei Sakharov, var komið fyrir í einangrun í borginni Gorky 1980 og er hann þar enn, Sakharov var þó aldrei meðlimur í þeim hópum, sem kenndir voru við Helsinkisam- komulagið. ■ Um þessar mundir eru 10 ár síðan Sovétríkin undirrit- uðu víðtækan sáttmála um mannréttindi á Öryggismála- ráðstefnunni í Helsinki 1975. Endurskipulögð forystusveit Gorbachevs hyggst minnast af- ntælisins með því að efla bar- áttuna gegn hvers kyns andófi í Sovétríkjunum. í hugum valdhafanna í Kreml virðist engin mótsögn felast t' því að berja niður andóf þeirra fáu baráttumanna fyrir mannréttindum sem enn hafa ekki lent í klóm stjórn- valda og að lýsa yfir velþóknun sinni með árangur Helsinki- samkomulagsins, sem þeir gerðu um leið og Viktor Che- brikov yfirmaður KGB hótaði frekari aðgerðum gegn and- ófsmönnum. Það sem undirstrikar tví- skinnunginn í þessum málum er sú staðreynd að um þessar mundir undirbýr hinn nýi utan- ríkisráðherra fyrstu meiri hátt- ar för sína erlendis, sem verður einmitt farin til Helsinki á há- tíðarsamkomuna í tilefni 10 ára afmælis. Opinberir stjórnmála- skýrendur í Sovétríkjunum hafa undanfarið lofað Hel- sinkisamkomulagið og þær ráðstefnur, sem haldnar hafa verið í framhaldi af henni, sem einstakan sögulegan atburð sakir þess mikla árangurs sem þær hafa leitt til. Einn skýrend- anna, Y. Kashlev, heldur því fram að alþjóðlegt gildi sam- komulagsins sé óumdeilaniegt og það hafi hjálpað til að leggja og styrkja grundvöllinn fyrir öryggi í Evrópu. Svipaða niðurstöðu má finna í afmælis- riti, sem ritað er af háttsettum Sovétmönnum, en þar er því haldið fram að Helsinkisam- komulagið sé orðið áhrifamik- ið og sjálfstætt afl í þróun mála í Evrópu og heiminum öllum. Helsinkisamkomulagið varð að veruleika eftir ráðstefnu leiðtoga 33 ríkja í Evrópu auk Bandaríkjanna og Kanada í Helsinki 1975. Samkomulagið, sem hefur ekkert lagalegt gildi, fól í sér eins konar forsögn fyrir pólitíska og efnahagslega samvinnu milli ríkja og setti ■ Bresjnev, alvaldur þegar sáttmálinn var undirritaður. ■ Gromyko, fyrrum utanríkisráðherra. ■ Gorbachev, aðalritari miðstjómar Kommúnistaflokks Sov- étríkjanna. Meðferðin á andófs- mönnum ekki milduð Eins og fyrr getur þá er ekkert lát á baráttunni gegn andófsmönnunum. Chebrikov yfirmaður KGB, sem á Gor- bachev stöðu sína að þakka, hét því opinberlega fyrir nokkrum dögum að ganga enn harðar fram í að brjóta allt andóf á bak aftur, því andófs- mennirnir væru ekki fulltrúar FIMM ÞÚSUYD UR 10. 26 MAHZ 1981 „Græddur er geymdur eyrir“ Orðtakið: „Græddur er geymdur eyrir“ varð argasta öfugmæli. „Glötuð er geymd króna" varð að sannmæli. Með verðtryggingu og hækkuðum vöxtum nú undanfarin ár hefur þetta verið að snúast við á ný ■ Miklu minni bílainnflutn- ingur en nokkru sinni á síðari árum. Stórar íbúðarhallir aug- lýstar í tuga og hundraða tali á verði langt neðan við bygging- arkostnað og seljast samt treg- lega. Færri utanlandsferðir framan af sumri en ferðaskrif- stofurnar höfðu reiknað með. Já, og jafnvel laxveiðileyfin eru hætt að ganga út og komin á útsölu - orðin allt of dýr segja menn. Hvað er eiginlega að gerast - allir svona blankir eða hvað? Ekki aldeilis. Nýj- ustu tíðindin eru þau, að á sama tíma og framansagt er að gerast leggur fólk milljarða af sparifé inn á sparireikninga bankanna og bíður í röðum eftir hverju álitlegu skulda- bréfi hjá verðbréfasölunum. Frekar verðbréf en laxveiði? Já, hvað er eiginlega að gerast með íslendinga? „Menn vilja kannski heldur kaupa verðbréf fyrir peninga sína heldur en laxveiðileyfi,“ lum- aði einn hagfræðinganna okkar út úr sér í samtali nýlega, spurður um ástæður hinnar miklu sparifjáraukningar. Sá hinn sami upplýsti að innflutn- ingur hafi að undanförnu auk- ist mun minna en kauphækk- anirnar gæfu tilefni til að ætla. Annar hagfræðingur sagði svo virðast að kauphækkanirnar að undanförnu hafi að mestu farið inn í bankana - annaðhvort sem sparnaður eða til að borga niður skuldir þær sem fólk hefur safnað undanfarin ár með því að lifa um efni fram. Tímamótaár? Er það mögulegt að árið 1985 sé að verða nokkurt tíma- mótaár í afstöðu ýmissa til verðmæta? Eru fleiri og fleiri íslendingar að læra aftur hinar fornu dyggðir afa okkar og ömmu, langafa og langömmu, hagsýni og sparnað? Safna fyrir; hlutum sem þá langar tii að eignast - til elliáranna - ellegar til að eignast nokkurn varasjóð, sem óneitanlega gef- ur þeim nokkra frelsistilfinn- ingu umfram þá sem alltaf eru að velta síðustu krónunni, eða' eru jafnvel búnir að eyða öllum sínum launum fyrirfram hverju sinni og meira en það? Græddur er geymdur eyrir - sannmæli á ný Ýmsir þeirra sem vel fylgjast með peningamálunum eru á því að hugarfarsbreyting í þessa átt hafi einmitt verið að eiga sér stað að undanförnu, þótt sumum hafi gengið illa að söðla um, enda kannski ekki á öðru von. Þær kynslóðir sem enn eru undir miðjum aldri hafa flest sín mannsdómsár hlegið að hinum nægjusömu og sparsömu aldamóta- og fyrirstríðskynslóðum fyrir að vera svo vitlausar og láta af- raksturinn af erfiði sínu brenna upp á bankareikningum með allt niðurí 20-30% neikvæðum vöxtum um margra ára skeið.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.