NT

Ulloq

NT - 01.08.1985, Qupperneq 9

NT - 01.08.1985, Qupperneq 9
Þeir ódýru: Allir bílar undir 300.000 kr. Porsche sýning Reynsluakstur: Toyota Land Cruiser II 26. tölublað. 2. árgangur Fimmtudagur l.ágúst 1985 Umsjón: Ari Arnórsson Porschesýning ■ S.I., sunnudag var haldin vegleg sýning á vegum Porsche uinboðsins á íslandi í húsakynnum Bílasölunnar Brautar. Ekki færri on 14 Porsche bílar af öllum gerðum voru á staðnum, frá 1970 árgerð af 911 til ’85 árgerðar af 944, allir eins og nýjir. Porsche umboðið ýtti úr vör á sýningunni Auto ’84 fyrir ári og síðan hefur Porsche bílum fjölgað úr nokkr- um eintökum upp í 16. Flestir þeirra voru mættir á sunnudaginn og vöktu mikla athygli, milli 3 og 4 þúsund manns komu að sjá og skoða. Ekki voru bara bílar til sýnis, heldur líka vörur austurríska fyrir- tækisins Porsche Design sem fram- leiðir hágæðavörur hannaðar af Butzi Porsche með samþykki bílasmiðjunn- ar. Þar má nefna sólgleraugun klass- ísku, töskur hjálma og íleira með útlitshönnun og gæðastimpli Porsche Design. Einnig var til sýnis framleiðsla Porsche á öðru en bílum, fatnaður, regnhlífar og annað í þeim dúr. Jón S. Halldórsson forstjóri Porsche umboðsins býður upp á bíla frá notuðum Porsche 924 fyrir um 500.000 upp í fullkomnasta bíl heims, Porsche 959, sem fer í tak- markaða framleiðslu innan skamms og ætla má að kosti hingað kominn 15 milljónir króna. Geri aðrir betur. Ein aðal leiðin til að ná því mark- miði að fjölga Porsche bílum á Islandi sér Jón vera að bjóða valda notaða bíla erlendis frá.Porsche framleiðir sennilega vönduðustu bíla heims (jú, að meðtöldum Rolls Royce), bíla sem halda sér eins og nýjum árum saman og eins og notaðir áratugum saman. Til dæmis má nefna að um 75% heildarframleiðslu Porsche er enn í notkun. Notaðir Porsche er því skynsam- legri fjárfesting en nýr bíll í svipuðum verðflokki, sem hrapar í verði og lætur á sjá meðan Porschinn heldur sér eins, þetta sjá þeir sem verið hafá að fá sér Porsche að utan síðastá árið. Án efa verður einhver hinna 3- 4.000 gesta á sýningunni á sunnudag kominn á eigin Porsche innan árs eða gangandi í Porsche jakka með Porsche gleraugu og Porsche tösku í hendinni. Nánari upplýsingar veitir Jón S. Halldórsson í síma 34351. A.A. ■ Nokkrir hinna fjórtán Porsche bða á sýningunni. Mitsubishi líka - með stillanlega forþjöppu ■ Fyrir skömmu varhér í BNTsagt frá byltingarvaldandi nýjung frá Niss- an í forþjöpputækninni, afgasfor- þjöppu með stillanlegu innstreymi. Bæði Nissan og Mitsubishi telja sig fyrsta með þessa nýjung í framleiðslu, Nissan í fólksbíla en Mitsubishi selur sína gerð í vörubílum fyrirtækisins, FUSO. Pessi japönsku risafyrirtæki hafa farið aðeins mismunandi leiðir að sama marki, útfærsla Mitsubishi er mun flóknari og sennilega töluvert dýrari. Mitsubishi notar marga litla stýri- fleti (um 16) í stað eins blaðs eins og Nissan, og eru þeir stillanlegir á þrjá vegu. Minnsta opnun er höfð við lágan snúning og gjöf til að þvinga innstreymandi afgas til að fara hraðar og þrýsta utarlega á hverfilblöðin (sjá mynd). Þegar magn gassins eykst við aukinn snúning og gjöf yrði hraðinn of mikill ef ekkert væri að gert og er stýriflötunum þá snúið til að beina straumnum meira að miðju blaðanna þar sem átakið er minna. Um leið er auknum staumi hleypt í gegn, alveg eins og þegar haldið er fyrir endann á garðslöngu til að sprauta vatninu. Við mesta gjöf er síðan allt opnað á gátt svo hraði hverfilsins fari ekki yfir þau mörk sem forþjappan þolir og yfirsnýst eða myndar eyðileggjandi höggbylgjur. Stjórnun þessara stýriflata sem sjá má á myndinni fer auðvitað fram eftir forsögn tölvuheila eins og algilt er að verða um stjórnþarfir í japönskum bílum. Velur heilinn þá af þrem möguleikum sem best henta hverju sinni með því að finna stöðu eldsneyt- isgjafar, snúningshraða, álag og fleiri atriði. Fyrst um sinn að minnsta kosti verða þessar stillanlegu þjöppur Mitsubishi aðeins fáanlegar í vörubíl- um á Japansmarkaði, en skammt er þar til útbreiðsla hefst fyrir alvöru og forþjöppuvélar nútímans verða taldar gamaldags og úrelt dót. Næsta víst er að með stillimöguleik- ana verði Mitsubishi reiðubúnir með keramik hverfla (í stað stáls) þegar nýja forþjöppukynslóðin leysir þá eldri af hólmi. Bara það á að skera töfina (biðtímann meðan þjappan er að ná sér upp á nægilegan snúning og fer að blása lífi í vélina sem hún er tengd við) niður um helming eða svo, stillimöguleikinn að gera svipað auk þess sem notkunarsviðið stóreykst, færist neðar eftir snúningssviði vélar- innar og upp á við líka ef þess þarf með. A.A. ■ Skýringarmynd til að sýna hvernig leitast er við að halda snúningshraða forþjöppunnar stöðugum með því að stjóma innstreymi afgassins. Ljósgrátt sýnir lítið loftmagn, og dökkgrátt að magnið sé orðið mikið, þá stendur allt opið svo snúningshraðinn haldist svipaður og meðan h'tið streymdi um þröng op, alveg eins og þegar haldið er fýrir endann á garðslöngu. ■ Sundurskorin þjappa af nýju gerðinni. í röð kringum hverfílinn, eins og bútar úr flugvélarvæng, eru stýrisfletirnir. Allir hlutar túrbínu- hlutans, sem tekur við afgasinu nýtur orku þess til að snúa þjöppunni, þeim hluta sem þrýstir loftinu inn á vélina, verða að vera sérlega hitaþolnir vegna heitra lofttegundanna beint úr bruna- holunum sem hitna enn frekar við þrýstinginn í túrbínunni. ■í þessum bíl er ‘illanlega þjappan fyrst fáanleg.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.