NT - 01.08.1985, Síða 22

NT - 01.08.1985, Síða 22
 Franska knattspyrnan: Paris SG enn efst -eftir sigur á meisturum Bordeaux ■ Paris Saint Germain gerir það ekki endasleppt í frönsku 1. deildarkeppninni í knattspyrnu þessa dagana. Um síðustu helgi sögðum við frá því að félagið væri efst í deildinni í fyrsta skipti síðan það var stofnað. Parísarliðið gerði sér svo lítið fyrir og vann meistarana frá Bordeaux í fyrradag með einu marki gegn engu. Bordeaux féll úr öðru sætinu og niður í það fimmta við þessi tíðindi. Það var varnarmaðurinn Jean-Marc Pilogret sem skoraði eina mark leiksins þegar um það bil 15 mínútur voru liðnar af honum. Pilogret þessi lék þarna fyrsta leik sinn í 18 mán- uði. Hann varð að hætta knatt- spyrnuiðkun vegna bílslyss sem hann lenti í en byrjar ekki amalega upp á nýtt. Úrslitin í Frakklandi og staða efstu liða koma hér á eftir: Strasbourg-Lille Toulon-Metz Nantes-Bastia Brest-Marseilles Nancy-Laval Monaco-Rennes Lens-Toulouse Nice-Ruxerre Sochaux-Le Havre Paris S.G.-Bordeaux Paris S.G. Toulon ... Lens..... Nantes ... Bordeaux . Auxerre .. 2-1 2-1 2-0 2-1 1-0 1-0 2-0 1-1 1-1 1-0 .44001138 .4 3 1 0 5 1 7 .430 1 1246 .4220 526 .4 3 0 1 4 2 6 .4 1 3 0 6 4 5 Stærsta mótið í London síðan ’48 ■ íþróttafólk frá 56 þjóðlönd- um tekur þessa dagana þátt í miklu móti í London. Frekar hljótt hefur verið um mótið enda kannski engin furða þar sem á Ólympíuleikunum er ekki keppt í neinni hinna 24 greina á mótinu. Hver kannast til að mynda við uggasund, taek- wando eða faustbolta? Mótið hófst 25. júlí og stend- ur til 4. þessa mánaðar og munu þátttakendur vera um 1700. Áhorfendur hafa hins vegar ver- ið sárafáir á hinum átta keppnis- stöðum í London, þrátt fyrir að þetta sé stærsta íþróttamót sem haldið hefur verið í Englandi síðan Ólympíuleikarnirfóru þar fram 1948 og er áhugaleysi fjöl- miðla kennt um. Mótshaldarar fullyrða þó að fjöldi fólks hafi fylgst rneð mót- inu heirna í stofu og giska á að' um 900 milljónir manna hafi þannig fylgst með leikjunum í- sjónvarpinu. Þegar hafa mörg heimsmet verið sett á mótinu, sem móts- haldarar kalla heimsmeistara- keppni. ítalirnir Monica Negro og Robert Bonanni slógu gantla metið í „mannsbjörg", en sú íþrótt er fólgin í því að vaða yfir alls kyns torfærur til að bjarga dúkku. Talam Banda frá Indó- nesíu og Tony Stevens, Bret- landi, hafa einnig sett heimsmet íkraftlyftingum. Góðurárangur hefur einhig náðst í keppni á rúlluskautum og trampólíni. Meðal áhorfenda hafa hins vegar vatnaskíðakeppnin, kar- ate, netbolti og kappakstur á hraðbátum verið vinsælustu greinarnar. Mikla athygli hefur vakið á mótinu að stjórnmál og aðrar daglegar erjur hafa algjörlega verið látnar sigla lönd og leið, íþróttirnar hafa rutt burtu öilum landamærum þjóða í heiminum. Til marks um þetta má nefna að við setningu leikjanna gengu keppendur inn á völlinn undir merki íþróttar sinnar cn ekki þjóðfána síns eins og venjan er. Engir þjóðsöngvar eru heldur leiknir við verðlaunaafhend- ingu. „íþróttir eru alls staðar eins og heimurinn er sem ein stór fjölskylda,“ sagði japanski milljónamæringurinn Ryoichi Saskawa, sem er einn þeirra sem hvað best hafa stutt við bakið á leikununt. Petta er í annað sinn sent leikarnir eru haldnir, þeir fóru fyrst fram í Kaliforníu fyrir fjórum árum. Til stendur að þeir verði haldnir á fjögurra ára fresti og næst þykir líklegast að þeir fari fram í Svíþjóð eða Vestur-Þýskalandi. Svona rétt í lokin má geta þess að uggasund er sund þar sem keppendur nota hreifa og stundum öndunarpípur til að ná sem mesturn hraða. Taekwando er hernaðarlist þar sem menn sparka og kýla og faustbolti er afbrigði af blaki. * Fimmtudagur 1. ágúst 1985 22 Fer Socrates heim aftur? - eftir aðeins eitt tímabil á Ítalíu ■ Socrates, miðvallarleik- maðurinn snjalli í brasilíska landsliðinu sem undanfarið hef- ur leikið með ítalska 1. deildar- liðinu Fiorentina vill heim. Hann hefur aðeins leikið eitt keppnistímabil á Ítalíu. „Hugur minn er heima í Bras- ilíu, meðal fólksins míns. Ég bíð aðeins eftir því að eitthvert félag semji við Fiorentina, þá er ég farinn,“ sagði Socrates frétta- mönnum Reuters. ítalska liðið keypti hann frá Corinthians á um 110 milljónir króna. Socrates lék með brasilíska landsliðinu á Spáni 1982 og átti mikinn þátt í því að liðið var af flestum talið það besta í heims- meistarakeppninni. Hann sagði við Reutersfréttamanninn að hann hefði ekki hrifist af ítölsku knattspyrnunni: „Ég hafði mikla ánægju af því að leika knattspyrnu í Brasilíu en hér á Italíu er þessu öðruvísi varið. Ég hef aldrei fundið mig almenni- lega í þessu landi,“ sagði hann. Félagi Socratesar í brasil- íska landsliðinu, Paolo Roberto Falcao, sem er samningsbund- inn 1. deildarliðinu Roma á Ítalíu mun að öllum líkindum fara frá því félagi. Hann átti við meiðsli að stríða allt síðasta keppnistímabil og sagt er að forseti Roma sé orðinn leiður á honum. Líkur benda til að Falc- ao fari til Fiorentina í stað Socratesar. Þrír 1. deildar- leikmenn í bann i \ ■ jp > - , fi * mm ■ ■ Socrates á fullri ferð ■ Aganefnd KSÍ mun starfa áfram, en um tíma var talið að nefndin myndi segja af sér vegna „Jónsmálsins“ sem frægt er orðið. Aganefnd kom saman í fyrrakvöld og þá voru tekin fyrir alls 13 mál er vörðuðu leikbann leikmanna í knatt- spyrnunni. Þrír l.deildarleikmenn munu ekki geta tekið þátt í næstu leikjum liða sinna vegna leik- banns. Sveinbjöm Hákonarson frá ÍA mun missa af leik ÍA og KR þann 10. ágúst vegna eins leiks banns fyrir að vera búinn að fá 4 spjöld. Þá mun varnar- maðurinn sterki hjá Fram, Við- ar Þorkelsson, missa af leik Fram og Vals er fram fer þann 11. ágúst. Þriðji 1. deildarleik- maðurinn sem fer í eins leiks bann er Sigurbjörn Viðarsson frá Þór Akureyri. Hann mun því missa af leik Víkings og Þórs- þann 12. ágúst. Nokkrir leikmenn úr 2. deild voru settir í leikbann af aga- nefnd. Þeir eru: Tómas Kára- son, KS í einn leik vegna spjalda, Magnús Magnússon ÚBK í einn leik vegna brottvís- unar og Árni Þór Freysteinsson KA vegna spjalda. f 3. og 4. deild lentu líka nokkrir leikmenn í banni. Björgvin Tómason Æskunni fær einn leik, Magnús Bogason Leikni R. fær einn leik, Sigurð- ur Valgeirsson Hugin færeinn leik, Stefán Halldórsson, Hveragerði einn leik, Svanur Kárason Leikni F. fær einn leik og Þórður Þorkelsson Reyni S. fær einn leik. Það hefur greinilega verið mikið að gera hjá aganefnd á fundinum og nú er bara að vona að skeytin komist til skila. C-riðill Evrópubikarkeppninnar í frjálsíþróttum: Róðurinn verður Svíum erfiður í Laugardalnum ■ Það kann að hljóma undar- lega að Svíar skuli vera í C-riðli í Evrópubikarkeppninni, með allan þann skara frábærra frjáls- íþróttamanna, sem þeir eiga í dag. Það er þess vegna, sem Undankeppni HM í knattspyrnu: Urslit nálgast í Asíu - fjögur lið frá Afríku keppa um tvö sæti í úrslitunum ■ Suður-Kórea sigraði Indó- nesíu 4-1 í síðari leik liðanna í annarri umferð undankcppni HM í knattspyrnu. Kóreumenn unnu einnig fyrri leikinn og eru komnir í næstu umferð með samanlagða markatöhr 6-1. Þeir leika næsta annað hvort við Japan eða Hong Kong um laust sæti í úrslitum HM í Mexíkó næsta sumar. Byun Byung-Joo skoraði fyrsta markið á 8. mínútu, Choi Soon-Ho bætti öðru marki fljót- lega við og Huh Jung-Moo skor- aði hið þriðja á 33. mín. Kim Joo-Sung innsiglaði sigurinn áður en Dede Sulaeman ntinnk- aðt muninn undir lokin. Marokko og Líbýa munu leika annarsvegar og Túnis og Alsír hinsvegar um þau tvö sæti sem Afríkuþjóðir eiga í úrslit- akeppni HM í knattspyrnu. Leikið verður heima og heiman og á fyrri leikjunum að vera lokið 6. október en þeim seinni þann 20. október. S víar ætla að hrista af sér slyðru- orðið og færast strax upp í B-hópinn. í því skyni koma allar stjörnur þeirra í Laugardal 10. og 11. ágúst. En þrátt fyrir það eru Svíar engan veginn öruggir með sigur, því Belgíumenn eiga einnig fjöl- marga frábæra frjálsíþrótta- menn. Verður keppni Svía og Belga ef að líkum lætur gífur- lega mikil, því báðar þjóðirnar ætla sér upp í B-hópinn, en þangað kemst bara einn úr keppninni hér, og leggja þeir allt í sölurnar til að það megi takast. Svíar eiga frábæra kastara, stökkvara og grindahlaupara, einnig millilengda- og lang- hlaupara. En Belgíumenn eiga- bara aðeins betri millilengda- og langhlaupara, einnig fljótasta Evr- ópubúann í 100 metrum og ekki síðri stökkvara en Svfar. Grindahlaupara eiga báðar þjóðirnar á heimsmælikvarða, en vinni Svíar sigur í keppninni þá liggur munurinn á þjóðunum fyrst og fremst í kastgreinunum. Kastarar Svía eru í sérflokki. Stefan Fernholm er með sjötta besta heimsárangurinn í kringlukasti í ár, 67,72 metra. Dag Wennlund er með þriðja besta heimsárangurinn í spjóti, 92,20 metra, næstur á undan Einari Vilhjáhnssyni. Sören Tallhem er aldeilis frábær kúlu- varpari, varpaði fyrr á þessu ári 21,24. í stökkgreinum eiga Svíar sjálfan Patrick Sjöberg, Évrópumethafann, en hann ntun þurfa að hafa heldur betur fyrir sigri í hástökki, því næst- besti maður heims í dag, Eddy Annys, er frá Belgíu og kemur hingað, en hann hefur stokkið 2,36 metra í ár, eða tveimur sentimetrum lægra en Sjöberg, sern stökk 2,38 metra og setti Evrópumet í júní. Sjöberg átti um tfma heimsmet innanhúss í vetur, einnig 2,38 metrar. í stangarstökki mæta bæði Belgar og Svíar með stökkvara, sem eiga 5,60 metra. Brassar rekaenn stjórana ■ Carlos Alberto Torres, fyrirliða Heims- meistara Brasilíu í knatt- spyrnu árið 1970, hefur verið sagt upp starfi sínu sem aðalframkvæmda- stjóri Corinthians. Corinthinns er eitt af vinsælustu liðunum í Brasilfu en hefur aðeins tekist að vinna einn af síðustu átta leikjum sínum.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.