NT

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 11.08.1985, Qupperneq 2

NT - 11.08.1985, Qupperneq 2
NT Sunnudagur 11. ágúst 1985 2 ■ Svo sem kunnugt er orðið af fréttum eru staddir hér á landi tveir Japanar, en hingað komu þeir í tilefni þess að fjörutíu ár eru iiðin frá því að kjarnorkusprengjunum var varpað á Hiroshima og Nagasaki. Þetta eru þeir Okamura Toshio og Yoshio Niki. Okamura Toshio, sem er 66 ára gamall tilheyrir þeim hópi manna sem kallast hibakusha, en það eru þeir sem lifðu af kjarnorkusprengj urnar. Yoshio Niki hins vegar, er rúmlega fertugur læknir sem fengist hefur við rannsóknir á fórnarlömbum sprengjanna. Þeir félagar hafa víða farið á þeim stutta tíma síðan þeir komu hingað og heimsótt forsetann með meiru. Líklega munu þeir þó eyða mestum tíma í friðabúðunum við Keflavíkurflugvöll enda er þar miðstöð minningaraðgerða um sprengjurnar. Japanarnir áttu leið um Síðumúlann í vikunni og því gripum við tækifærið til að spjalla við þá nokkra stund. un og útrýming kjarnorkuvopna. Hins vegar geri ég mér grein fyrir því, að útrýming kjarnavopnanna gerist ekki á einni nóttu þó slíkt geti verið tilfellið með útrýmingu heims- ins af völdum þessara vopna. Það verður að koma til pólitískur vilji fyrir þessu og þar leika ríkisstjórnir, einkum stjórnir stórveldanna, aðal- hlutverkið. En fjöldahreyfingar og grasrótarþrýstingur hefur áhrif á ákvarðanir stjórnvalda og ef þessi þrýstingur verður nógu mikill má einstök dæmi eða tilfelli hibakusha ékki mikið því þeir eru oft ekki svo frábrugðnir öðrum japönskum borgurum og margir telja því að þeir séu ósköp eðlilegir. Það kemur hins vegar ýmislegt í Ijós þegar þetta fólk er skoðað sem hópur. Þannig er krabbamein til dæmis mun algengara hjá þeim sem lifðu sprengjuna af en öðrum og einnig virðast þeir vera mun næmari fyrir ýmsum öðrum sjúkdómum. En í dag, 40 árum eftir sprengjurnar, eru búa, eins og fram kemur í kvik- myndum eins og „The Day After“ og umræðunni um „gróðurhúsa- áhrifin" svokölluðu. Við berum þetta undir Niki og spyrjum hvaða vísbendingar hibakushar geti gefið um svona nokkuð. „Það er ekki gott að segja neitt ákveðið um þetta því svo margt getur spilaðinn í. En nú þegarliggja fyrir ákveðnar vísbendingar og það erþað eina sem hægt er að byggja á ■ Okamura Toshio og Yoshio Niki við friðareldinn í búðunum hjá Keflavíkurflugvelli. Þegar við spurðum hibakushann Toshio hvaða tilfinningar það vekti hjá honum að líta um öxl, til sprengjunnar sagði hann að það væri fyrst og fremst hryllingur, um leið og hann óskaði þess að eins hræðilegur atburður ætti aldrei aftur eftir að verða hlutskipti nokkurs mannlegs samfélags. Við spurðum þá hvort hann væri reiður og því svaraði hann: „Auðvit- að er ég reiður. Ég er reiður yfir því að sprengjan, þetta óhugnanlega vopn, hafi verið notað til þess að eyða lífi alls þessa saklausa fólks. Hins vegar hlýtur spurningin að vera sú hvernig hægt sé að beina þessari reiði í farveg sem beislar hana og virkjar til gagns. Sprengjan og afleiðingar hennar eru stað- reyndir sem enginn fær breytt, en meginmálið er að koma í veg fyrir að þetta gerist aftur. Því nota ég nú krafta mína til að ná fram þessu markmiði.“ Og hvaða leiðir telur Toshio helst koma til greina í þessu sambandi? „Það er sannfæring mín að endan- legt markmið verði að vera afvopn- reikna með því að stjórnvöld taki við sér.“ Læknirinn Niki segist vera sam- mála félaga sínum hvað þetta varðar þegar við spyrjum hann. Hann segir ennfremur að í rauninni þurfi rnenn ekki að þekkja afleiðingarnar af kjarnorkusprengjununt af eigin raun til þess að komast að þessari niðurstöðu, en afskipti hans af hib- akushum hafi mjög styrkt hann í þessari sannfæringu. En að hverju hefur læknirinn Niki komist í rann- sóknum sínum? „Það er rétt að hafa í huga að læknisfræðilega séð segja rannsóknir á þessu sviði enn mjög ófullkomnar og erfitt að leiða í ljós með nokkurri vissu hvað er að gerast í líkama hibakushanna. Sama gildir um börn þeirra, að það er nokkurn veginn óþekkt hvaða áhrif hafa erfst til þeirra.“ Gildi læknisfræðilegra rannsókna á fórnarlömbum sprengjanna ætti að vera augljóst og meðal annars gætu þær sagt okkur eitthvað um þau áhrif sem kjarnorkustríð hefði á heilsufar þeirra sem eftir lifðu. Þessi spurning virðist hafa gerst sí- fellt áleitnari meðal Vesturlanda- enn sem komið er. Annars eru margar ástæður fyrir því hversu skammt á veg þessar rannsóknir eru komnar og þá ber hæst að Banda- rtkjamenn tóku með sér og einok- uðu mikilvægar upplýsingar á her- námsárunum og svo það að ekki hefur fengist nægjanlegt fjármagn í verkefni af þessu tagi. Það er líka rétt að benda á að félagsleg staða hibakushanna hefur nokkuð tor- veldað skipulega gagnasöfnun af þeirri einföldu ástæðu að það, að teljast til þessa hóps manna er enn þann dag í dag talsvert feimnismál. i

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.