NT - 11.08.1985, Side 6

NT - 11.08.1985, Side 6
NT Sunnudagur 11. ágúst 1985 6 ■ Þau heita Coieen Rowe og Ervin Bartha - ferðalangar utan úr hinum stóra heimi og á sífelldu ferðalagi. Ferð þeirra hingað er þáttur í leit og athugun á þeim andlegu áhrifum sem birtast í bókmenntum og listum meðal þjóða, bæði í nútíð og fortíð. Bæði hafa lagt stund á listir en aðaláhugi þeirra beinist að því að kynna sér hvernig þau symbol eða tákn sem ávallt birtast í listinni koma fram í ýmsum mismunandi gervum í samræmi við þjóðareinkenni. Þau hafa dvalið meðal Eskimóa og Indíána og lcitast við að kynna sér list þeirra og andlega menningu en á meðal frumstæðra þjóða birtast þessi innri tákn oft hvað skýrast. Á ferðalögum okkar höfum við veitt því eftirtekt að alisstaðar á jörðinni og á öllum tímum hafa ávallt komið fram ákveðin grundvallartákn sem eru afar svipuð frá einum stað til annars. Þá kemur í Ijós að það sem liggur að baki þessara tákna er alltaf sú sama innri þrá og andlega viðleitni sem allsstaðar kemur fram. Það er verið að túlka þann sama raunveruleika og hvað varðar Tarottáknin þá fundum við þessi tákn meðal ólíkustu þjóða. Þannig hefur raunveruleikinn alltaf birst á mörgum sviðum svo sem í tónlist, þjóðdönsum og trúardönsum, myndlist, höggmyndalist, bygg- ingalist. Öll þessi tákn eru sammannleg og hafa fylgt mannkyninu í viðleitni hans gegnum aldirnar - og hafa alltaf borið einkenni uppruna síns. Tarrottáknin eru skipuleg niðurröðun þessara tákna sem einhvern tíma í fyrndinni hefur verið raðað þannig saman í eina heild.“ mannsins. Samband tveggja aðila t.d. hlýtur að birta eitthvert þessara tákna því að Tarottáknin birtast í sérhverju lífsmynstri. En fela táknin ekki líka í sér mismunandi „þrep“ vitundar ef svo mætti segja þannig að við vinnum úr þeim hverju á sinn hátt? Jú, en þessi stig er reynsla okkar, þau áhrif sem við verðum fyrir og hvernig við bregðumst við þeim. Þessi reynslusvið eru öllum sameigin- leg og við tökum öll þátt í þeim á einhvern hátt. Er nauðsynlegt að skilja Tarottákn- in til að skilja þetta? Nei, alls ekki, myndirnar tala því máli sem allir skilja, þau höfða til allra jafnt því þau birta eðli þeirra hluta sem öllum eru áskapaðir, áhrif sem eru allsstaðar að verki í tilver- unni. Það er því nóg að horfa á táknin og lát'a þau tala sínu máli. Börn hafa oft verið að skoða myndirnar og síðan komið með at- hugasemdir sem sýna að þau skilja þetta táknmál ágætlega. Það er því ekki nauðsynlegt að lesa margar bæk- ur um Tarot til að hafa gagn af spilunum. Geta þá allir haft gagn af Tarotspil- um? Þeir sem vilja opna sig gagnvart nýjum áhrifum og sjá lífið í nýju Ijósi geta vissulega haft mikið gagn af þeim. Hvernig er best að byrja notkun Tarotspilanna? Fyrsta skrefið er auðvitað að út- vega sér góð spil - sitja í rólegu umhverfi þar sem ekkert1 truflar - virða myndirnar síðan fyrir sér á rólegan hátt án þess að vera neitt að reyna að skilja myndirnareða sökkva sér niður í þær - öll áreynsla er óþörf og gerir síst gagn. Hver mynd segir sína sögu - spilin eru eins og mynda- bók - ekki er nauðsynlegt að vita allt um merkingu þeirra. Er nauðsynlegt að hafa náð á- kveðnu þroskastigi til að geta skilið Tarottáknin? Þetta er að vissu leyti erfið spurning en verður þó ekki svarað á aðra leið en þá að sumir eiga til að bera þann djúpa skilning á tilverunni sem birtist í táknunum án þess að hafa nokkru sinni séð Tarottáknin. En það þarf ákveðið næmi til að geta skiiið tákn- mál tilverunnar - og börn hafa einmitt oft sýnt hve opin þau eru að þessu leyti. Einhver kynni ef til vill að spyrja hvort Tarottáknin væru ekki aðeins forn tákn sem ckkert erindi ættu til nútímamannsins? Tarottáknin eru ekki bundin tíma eða rúmi en höfða til mannverunnar eins og hún er í eðli sínu og hún er í grundvallaratriðum sú sama hvort sem um er að ræða nútímamanninn eða eins og hann var fyrir 5 þúsund - eða 50 þúsund árum síðan. Það sem skiftir máli í þessu sambandi er það á hvern hátt mannveran skilur sjálfa sig og stöðu sína í tilverunni. Þetta er að sjálfsögðu alveg óháð allri tækniþró- un - bílar eða skýjakljúfar breyta engu í þessu tilliti - eða þeir hlutir sem við notum í daglegu lífi. Það sem um er að ræða er hvernig mannveran upplifir sjálfa sig, tilgang sinn og möguleika í lífinu - og þetta er óháð stað og tíma. Er hægt að nota öll Tarotspilin 78 að tölu, til að öðlast meira innsæi? Já, að sjálfsögðu. Þau mynda öll eina heild, trompspilin 22 höfða til sköpunaraflanna - alheimsins - en hin 56 höfða til mannverunnar innan sköpunarverksins. Það er þá hægt að nota hin 56 til að hugleiða? Já, vissulega, þau eru öll til þess fallin og eftir því sem við hugleiðum innihald þeirra oftar því meira vex skilningur okkar - það er eins og með Biblíuna - við uppgötvum alltaf eitthvað nýtt eftir því sem við lesum hana oftar. Tarotspilin eru endalaust En þau Coleen og Elvin hafa ekki aðeins áhuga á að athuga og kynna sér áhrif þessara tákna á listir og bókmenntir - þau vilja kynna fólki hvernig hægt er að nota táknin til að opna nýjan lífsskilning og að öðlast meiri lífsfyllingu. Tarrottáknin sýna þessi tákn í einföldum og skýrum myndum. Táknin eru fyrst og fremst ætluð til að vekja manninn til vitundar um sjálfan sig og stöðu sína í tilvcrunni. Þau eru tæki til að vekja hann til vitundar um eigin samvisku - tengsli hans við skapara sinn og meðbræður - lífið sjálft. Að opna sig á þennan hátt er lykillinn að dýpri skilningi á Tarottáknunum - en leiðarljósið er samviska okkar. Samviska felur í sér hæfileika mannverunnar til að vera fullkomlega meðvituð um sjálfa sig og athafnir sínar undir öllum kringumstæðum. Það merkir að gera sér Ijósar afleiðingar gerða sinna áður en maður framkvæmir - og að framkvæma hið rétta í hverju tilviki. Hér er átt við samvisku sem alheimslegt fyrirbæri sem hlýtur að leiða af sér samkennd með öllu lífi, kærleika, trú, von og visku, miskunn og réttlæti þannig að þetta verða ekki aðeins hugtök í lífi okkar hcldur lifandi reynsla. Orðið samviska felur í sér að hafa meðvitund um þá þróunarleið sem Tarottáknin sýna og þá möguleika sem hún bendir á. Nokkrar spurningar voru lagðar fyrir þau Coleen og Ervin sem þau svöruðu greiðlega og fer samtalið hér á eftir. Þið hafið fundið ýmis andleg tákn birtast í listinni innan hinna mismun- andi listgreina? Þetta er kjarninn í myndabók Tarottáknanna - tilgangur þeirra er að benda á þessa innri þekkingu sem varðveitt hefur verið allt frain á þennan dag og er eins og flestir vita, ævaforn. Tarottáknin eru vegvísar að innri gerð vitundar okkar - þeim frumöflum hennar sem eru sameiginleg öllum mönnum óháð þjóðfélagslegum strúktúr, þjóðerni eða trúarbrögðum. Mynd- irnar tákna mismunandi ástand vitundarinnar, hugsun, framkvæmd, tilfinningar - og eðlishvatir sem eru sameinkenni allra manna. Þegar við förum að þekkja þessar táknmyndir sem eigin reynsiu getum við notað þær til að gera okkur frjálsari tilfinningalega og hugrænt og forðað okkur frá því að þurfa sífellt að sækja í sama farveg tiltínningalcgra vandamála - þau vísa okkur inn í nýjan og endurnýjandi farveg. Tarotspilin geta verið og eru áhrifamikið tæki til sjálfsþekking- ar, til skilnings á tengslum okkar við annað fólk, umheiminn og okkar innri og raunverulega tilgang í lífinu. Að nota spilin á þennan hátt er því áhrifarík aðferð til endurnýjunar og umsköpunar - til að skynja tilveruna á dýpri og fullkomnari hátt fyrir hvern þann sem er reiðubúinn að horfa inn á við og sjá þann raunveruleika sem er kjarni og grundvöllur hans eigin persónu. Þau eru hagkvæm aðferð til að komast í snertingu við þá vitund sem felur í sér alla möguleika tilverunnar í þeim alheimi sem við skynjum svo og á öllum öðrum stigum tilverunnar. Takist okkur að stilla okkur þannig til samræmis við innri grundvöll vitundar okkar þurfum við ekki lengur að vera í vafa um stöðu okkar og hlutverk í þeim alheimi sem við lifum því þá höfum við öðlast nýjan skilning á lífinu. Þegar við höfum þannig losað okkur við fjötra vanþekkingar, ótta og óvissu, færist nýr og ferskur blær inn í líf okkar og það opnast ótal nýir möguleikar sem við komum ekki auga á fyrr. Þannig getur tilveran orðið okkur óþrjótandi uppspretta ánægju og gleði - það verður gaman að lifa! en að kynna sér Tarotspilin er einmitt eitt þeirra skemmtilegu viðfangsefna sem tilveran hefur að bjóða! Já, við höfum unnið að athugununi á þeim innri táknum sem birtast í listinni hvar sem er í heiminum og eru sammannleg eða alheimsleg. Þau koma fram í mismunandi tilbrigðum í samræmi við þjóðareinkenni hverrar þjóðar og eru breytileg eftir því liver bakgrunnur þjóðarinnar er. En tii þess að geta skilið til fulls þessi tákn eins og þau-koma fram í listum og lífnaðarháttum er nauðsynlegt að kynnast fólkinu sem þar býr og reyna að sjá hlutina sömu augum. Við höfum búið meðal ýmissa þjóðflokka svo sem Hopi-Indíána - Navahoe Indíána og Eskimóa og í list þeirra koma fram mjög sterk andleg symbol. Þar kemur fram greinileg þróun innan þessara tákna. Það er líka athyglisvert að þjóðir sem við oft álítum frum- stæðar vegna þess að þær birta ekki mikla ytri f jölbreytni eða tækniþróun, eiga oft rnikinn andlegan þroska og auðugt innra líf. Ein aðalástæða þess að við erum á flakki um heiminn er að við viljum upplifa þau áhrif og kynnast þeim frumímyndum sem birt- ast hvarvetna í mannlífinu og sjá hvernig þessi frumtákn þróast meðal hinna ýmsu þjóða. Ekki er hægt að taka eitt tákn eða ímynd og segja: Þetta tákn er að verki hér - því að táknin koma ávallt fleiri saman og mynda heildaráhrif þótt eitt eða fleiri tákn geti að sjálfsögðu verið ríkjandi. Það er þá ekki hægt að segja sem svo að við séum virk innan eins ákveðins tákns eða lifum í einu ák- veðnu tákni: Táknin eru lifandi áhrif sem sífellt eru að starfi í tilverunni - alheimsleg og fyrir hendi allsstaðar og í lífi Táknín hafa fylgt mannkyn

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.