NT - 11.08.1985, Page 7
ino
NT Sunnudagur 11. ágúst 1985 7
liðnum öldum býr þjóðin yfir einstæð-
um styrk og samstöðumætti. Við
höfum kynnt okkur margt um ísland
og íslendinga bæði áður en við kom-
um hingað og eftir að við komum
fyrir tveim vikum síðan og við höfum
lesið Eddu-sögurnar. Okkur finnst
mikið til þess koma hvernig íslending-
um hefur tekist að varðveita þjóðar-
einkenni sín og andlegt sjálfstæði
gegnum aldirnar þrátt fyrir harða
ásókn ytri afla.
Teljið þið að íslendingar eigi ef til
vill einhverju sérstöku hlutverki að
gegna í þessuni efnum?
Við álítum að öll viðleitni til að rífa
niður þá múra sem hindra gagnkvæm-
an skilning og samúð í mannlegum
samskiptum sé afar mikilvægt og það
sem heimurinn þarfnast mest í dag.
Og þar sem íslendingar eru afar
andlega og bókmenntalega sinnuð
þjóð álítum við slíkt framlag hvort
sem það er á sviði bókmennta eða
annarra listgreina afar mikilsvert
framlag frá þessari þjóð. Hér ríkja
afar sterkir andlegir menningar-
straumar og fólk hér er opnara gagn-
vart list og andlegum áhrifum en
víðast annars staðar. Það gleður okk-
ur að koma til þessa lands þar sem
fólkið er í svo náinni snertingu við
listir og bókmenntir og álítum að
aðrar þjóðir hafi margt að læra af
íslendingum hvað varðar þessa af-
stöðu þeirra. Það er líka áberandi hve
íslendingar eru gestrisin þjóð og hve
einstaklingseðli þeirra er sterkt
samanborið við aðrar þjóðir. Við
höfum ferðast mikið um heiminn og
við höfum séð að foreldrar hafa
víðast hvar ekki lengur tök á því að
miðla börnum sínum þeim arfi reyn-
slu og þekkingar sem þeir búa yfir,
tengslin eru rofin og börnin sitja allar
stundir við að horfa á sjónvarp og
leika tölvuleiki. Og víða fer lestrar-
kunnáttu barna í þróuðu löndunum
mjög hrakandi og þetta er hættuleg
þróun.
Þar sem íslendingar eru mikil bók-
menntaþjóð geta þeir veitt öðrum
þjóðum gott fordæmi hvað snertir
varðveislu lifandi lestrar - og bók-
menntaáhuga meðal yngri kynslóðar-
innar. Og mig langar til að nefna í
þessu sambandi aðra þjóð - Tibet -
sem veitt hefur heiminum dýrmæta
andlega þekkingu um mannlega til-
veru, andlegan arf sem þeir varð-
veittu einir uns einangrun þeirra var
rofin. Við vitum ekki hvort lslending-
ar búa yfir sömu djúpu þekkingunni
en það kæmi okkur ekki á óvart að
finna marga einstaklinga sem búa yfir
slíkri þekkingu hér. Það er mjög
áríðandi að slík þekking fái að koma
fram í dagsljósið. Eins og ástand
mannsins er á jörðinni í dag er engin
þekking eins mikilvæg og þekkingin á
hans eigin eðli og möguleikum.
Tarottáknin eru einmitt sú leið sem
fær er til að öðlast skýrari meðvitund
um sjálfan sig og stöðu sína innan
sköpunarverksins og tengjast nánar
þeim alheimskærleika sem við erum
öll hluti af. Ef við lifum ekki í
samræmi við þessa alheimsvitund og
skynjum ekki einingu alls lífs þá nær
líf okkar ekki tilgangi sínum og þeirri
fyllingu sem eðlilegt væri.
Að lokum ein spurning. Hver er
lykillinn að slíku samræmi og lífsfyll-
ingu?
Því má svara með eftirfarandi sögu. -
Sagan nefnist: Samviskan.
Dag einn kom lærisveinn til meist-
ara síns og sagði við hann: „Meistari,
eftir mikinn undirbúning, þrautir og
þjáningar hef ég komist að þeirri
niðurstöðu að ég sé nú loks reiðubú-
inn að taka við máttarorðinu sem
mun færa mér vald yfir lífi og dauða,
til að eignast hvað sem ég óska mér,
og framkvæma hvað sem ég vil. Núna
er ég reiðubúinn að taka við máttar-
orðinu ef þú vilt veita mér það“.
Meistari hans horfði á hann alvarleg-
og heillandi viðfangsefni og mögu-
leikarnir til skilnings ótakmarkaðir.
Birtast táknin í draumum okkar?
Tarottáknin hjálpa okkur til að
skilja betur drauma okkar og til að
vakna upp af þeim draumi sem líf
okkar flestra er.
Mundirðu vilja skýra betur hvað
þú átt við með því að segja að líf
okkar sé draumur?
Að vakna af draumi merkir að
engin fyrirstaða sé lengur í vitund
okkar gagnvart hinu raunverulega.
Ég skal reyna að skýra þetta betur
með dæmi: Ef við lifum í dagdraum-
um og erum að hugsa um eitthvað
annað en starfið sem við erum að fást
við - ég væri t.d. að elda mat en væri
með hugann við rokktónleika sem ég
ætlaði á daginn eftir og eldamennskan
færi af þeim sökum öll úr skorðum -
þá væri ég þannig slitinn úr tengslum
við það sem ég væri að gera og orkan
færi þá í dagdraumana en nýttist ekki
við það sem ég ætlaði raunverulega
að gera.
Hafíð þið lengi haft áhuga á Tarot-
spilunum?
Já - því allir sem hafa áhuga á
sjálfu lífinu, eðli þess og tilgangi,
hljóta um leið að hafa áhuga á Tarot-
táknunum.
Álítið þið íslendinga andlega sinn-
aða og hafa áhuga á Tarotspilum og
svipuðum efnum?
Ég held að allir menn hvar sem er
í heiminum hafi áhuga á að skilja
betur tilveru sína og eigin persónu.
Flestir menn hafa áhuga á að ná betri
tökum á lífi sínu og öðlast meiri
lífsfyllingu. Eftir því sem við höfum
komist næst um einkenni íslensku
þjóðarinnar er áberandi hvernig
henni hefur tekist að varðveita innra
sjálfstæði og friðarhugsjón. Þrátt fyrir
erlend yfirráð og erfiðar aðstæður á
ur í bragði en sagði síðan: „Til þess
að veita þér þetta vald þarf ég leyfi
meistára míns. Bíddu hér þangað til
ég kem aftur.“ Daginn eftir kom
meistari hans aftur og sagði við hann:
„Ég skal veita þér máttarorðið en
fyrst verðurðu að komast til skilings
á einu - þú verður að skilja fullkom-
lega hvað vald raunverulega er. Og til
þess verðurðu að uppfylla eitt skil-
yrði: Þú verður að fara til borgarhliðs-
ins og sitja þar í fjóra daga. Talaðu
ekki við neinn sittu aðeins kyrr og
horfðu á það sem fram fer. Fjórum
dögum síðar kom lærisveinninn aftur
eftir að hafa setið við borgarhliðið
eins og meistari hans hafði beðið
hann. „Meistari nú hef ég gert það
sem þú baðst mig um.“ Meistari hans
svaraði: „Gott, og hvað sástu?“
„Ekkert sérstakt - fólk sem kom og
fór út um borgarhliðið - jú það var
eitt sem ég man sérstaklega eftir.
Einn daginn kom gamall maðurgang-
andi að hliðinu en vörðurinn stansaði
hann og krafðist þess að hann borgaði
tollinn til að komast inn í borgina. Ég
heyri gamla manninn segja að hann
hefði enga peninga en bað vörðinn að
hleypa sér inn svo að hann gæti selt
hrísknippið sem hann bar á bakinu.
Gamli maðurinn var veikburða og
mjög aldurhniginn og hrísknippið sem
hann bar var bæði stórt og þungt. En
vörðurinn hélt að gamli maðurinn
væri að gabba sig, hrinti honum til
jarðar, sparkaði í hann og rak hann-
burt harðri hendi svo að bæði hrís-
knippið og peningapyngjan féllu til
jarðar og gamli maðurin missti aleigu
sína. Þetta var það eina athyglisverða
sem ég sá við borgarhliðið þessa fjóra
daga“. Meistarinn sneri sér þá að
lærisveininum og sagði: „Skilurðu nú
hvað vald raunverulega merkir?“
Hvað áttu við? Hvað vald raunveru-
lega merkir? Þá sagði meistarinn við
lærisveininn: „Gamli maðurinn sem
þú sást við borgarhliðið var meistari
minn“.
Ester Vagnsdóttir.
Föstudaginn 16. ágúst hefst þriggja
daga námskeið í táknmáli Tarot-spil-
anna sem þau Rowe og Bartha standa
fyrir. Nánari upplýsingar gefur Ester
í síma 621491.
í gegnum aldirnar