NT - 11.08.1985, Síða 17
NT Sunnudagur 11. ágúst 1985 21
Við þurfum andlegan
styrk en ekki peninga
■ Það sem hér fer á eftir er sga frá
umliðnum öldum, sem svo sælt er að
minnast. Ég sé í anda frelsarann,
hinn látlausa Guðsmann, sem með
andlegum krafti sínum læknaði sjúka
og gaf blindum sjón. Hann dró að sér
bæði börn og fullorðna og vermdi
með blíðu sinni. Hann sagði við þá
sem þurftu á styrk að halda: „Fylg þú
mér". Það hefur verið sælt að fá að
ganga með honum og það er undur
hversu miklu hann kom í verk á þeim
stutta tíma sem hann kenndi hinurn
óupplýstu. Þeir geymdu og hin heil-
næmu frækorn andans í hjörtum
sínum. „Fylg þú mér". Annað hvort
gerum við það eða ekki, aldrei sértu
hálfur hvað það snertir. Það að fjar-
lægjast hið sanna sem hann kenndi er
í rauninni blekking. Þegar það hendir
okkur verðum við eins og meistarinn
sagði „tómar grafir".
Einmitt nú er nauðsyn að fylgja
frelsara okkar og fara eftir því sem
hann kenndi og að skilja hvað dásam-
legt er að skilja til hvers við erum hér.
Við hljótum að læra af reynslunni en
um leið verðum við að játa að við
erum aðeins börn sem þráum sanna
hamingju.
Við skulum heldur ekki láta neinn
blekkja okkur með þeirri fölsku
kenningu að okkur sé nauðsyn á að
vígbúast. í fornöl héldu Rómverjar
að þeir væru ósigrandi og illmennið
Neró kastaði þeim kristnu fyrir
ljónin. En það snéri ekki fólkinu. Trú
jreirra var byggð á traustum grunni.
Og nú er hótað að brenna allt að
grunni með kjarnorkusprengjum.
Hefur Hírósíma gleymst? A að fórna
öllu lífi fyrir heimspólitík sem er engu
betri en þær aðferðir sem Neró beitti?
Þeir sem standa að baki slíkum villu-
kenningum munu falla á eigin bragði.
Það er ekkert leyndarmál að menn
eru að búa til óvini og svo skapast
atvinna við að búa til sprengjur. Það
eru heimskir menn sem halda að nöfn
þeirra verði í eilífum hetjuljóma fyrir
slíkt.
Það er hægt að benda á mörg dæmi
þess að þjóðir hafi verið hvattar til að
Guðjón R. Sigurðsson
frá Fagurhólsmýri skrifar:
Stöndum saman
kaupa vopn og ráðast á nágranna
sína. Það hefur skapað atvinnu meðal
hinna svokölluðu menntuðu þjóða.
Þessir menn kalla sig kristna, þeir
fara í kirkjur og biðja þar Guð um að
styrkja sig og áætlanir sínar.
Við megum ekki gleyma sögunni er
djöfullinn birtist Kristi í sínum falska
sícrúða, rétt eins og engill dróttins
væri mættur. „Allt þetta skal ég gefa
þér", sagði hann „ef þú fellur fram og
tilbiður mig". „En Jesú vissi til hvers
hann hefði verið sendur á okkar
plánetu. Hann varheldurekki hrædd-
ur að deyja fyrir sannleikann. Það
fannst einnig þeim sem Neró lét
drepa þeir töldu það sælt að deyja
fyrir sannleikann sem Kristur kenndi.
í dag finnst mér stór spurning
hverjir það eru sem geta kallast
siðaðar þjóðir. Ég sé ekki betur en
djöfullinn sé víða í sjónvarpi og
útvarpi klæddur í sakleysisskrúða.
Allur auðurinn mun fara í grafirnar
eins og líkamar okkar. Vöknum því
og hugsum til hins hæsta sem sendi
okkur til jarðarinnar til að fylgja
frelsaranum. Munum hvað hann
sagði: Fylg þú mér því ég er sann-
leikurinn og lífið". Og munum. „Ef
Guð er með oss hver er þá á móti oss.“
Það er sorglegt hvað skammt við
komumst í hinni andlegu sælu og þó
er Guð í öllum hlutum. Hann er hinn
ósýnilegi kraftur sem kemur trjánum
til að vaxa. Og hið saklausa blóm með
fegurð og ilm. Þetta allt minnir okkur
á hina æðri tilveru.
Það er einnig sorglegt hversu oft
mannkynið hefur verið leitt út í
styrjaldir með öllu því sem þeim
fylgir. Svo benda stóru Farisearnir
bara og segja að það hafi verið þessi
þjóðin eða hin sem orsakaði það allt.
Hvaðan koma peningarnir sem fjár-
magna slíkar aðgerðir? Okkur vantar
skilning á lífinu.
Við hér á íslandi getum þakkað
Guði fyrir hin góðu skáld sem skrif-
uðu sálmana og sáðu þar með heil-
brigðu fræi í huga okkar.
Stöndum því saman og stefnum til
hins hæsta. Við þurfum á andlegum
styrk að halda en ekki peningum.
■ Guðjón R. Sigurðsson: „Ég get
ekki betur séð en djöfullinn sé víða í
fjölmiðlum klæddur saklevsisskrúða
eins og á fjallinu forðum“.
SVEITARFÉLÖG
FISKELDISSTÖÐVAK
Flotbryggjan á Akranesi er smíðuð úr einingum, steyptum úr rykbættri trefjasteypu og einangrunarplasti og hefur reynst
mjög vel.
Lausn á sídustu krossgátu
Borgarplast hf. í Borgarnesi hefur hafiö fram-
leiðslu á flotkössum og flotbryggjum úr ryk-
bættri trefjasteypu og einangrunarplasti.
Framleiðsluréttur er fenginn og undir eftirliti
Sérsteypunnar sf., sem er sameignar- og þró-
unarfélag Sementsverksmiðju ríkisins og (s-
lenska járnblendifélagsins hf.
Flotbryggjur eru hagkvæm og fljótleg
lausn á aðstöðuleysi smábáta í höfnum
landsins. Bryggjugerð fyrir smábáta verð-
ur ekki lengur ofviða sveitarfélögunum.
Flotkassar hafa verið notaðir sem kvíar við
fiskeldi í nágrannalöndum okkar um árabil
og er góð reynsla af þeim. Ný framleiðslu-
grein í landinu á eingöngu að njóta hins
besta.
• Flotkassarnir eru mjög stöðugir í sjó.
• Hæð yfir sjólínu er um 60 sm. og breytist
lítið við venjulegt álag.
• Staðlaðar einingar, 2,3x6,0 m., auk sér-
óska.
• Hver eining getur borið allt að 7.600 kg.
fyrir utan eigin þunga.
• Hver eining vegur aðeins um 4.200 kg.
• Einingarnar tengjast auðveldlega hver
annarri.
• Margs konar festingar eru við sjávarbotn.
• Þegar er tæplega tveggja ára reynsla
fengin af þessum flotkössum í sjó.
LEITIÐ NÁNARI UPPLÝSINGA UM
FLOTBRYGGJUR OG FLOTKASSA.
Borqarplast
Bofqainesi 93-7370