NT

Ulloq

NT - 31.08.1985, Qupperneq 2

NT - 31.08.1985, Qupperneq 2
■ Einn af ísbrjótum banda- rísku strandgæslunnar átti við- komu í Sundahöfn í Reykja- vík, nú í vikunni. Skipið er sex þúsund tonn að þyngd, og getur brotið leið í gegnum allt að fjögurra metra þykka ís- hellu. 144 menn eru í áhöfn skipsins, og þar við bætist flugáhöfn og vísindamenn um borð. Skipið hefur víða farið á ferli sínum, og er hann nokkuð glæsilegur. Northwind, en það er nafn skipsins, varð fyrsti ísbrjóturinn til þess að ná eiturlyfjasmyglurum. Það gerðist á Karabíska hafinu í fyrra. Þá hefur skipið marg- sinnis hlotið verðlaun fyrir björgunarstörf á hafi úti. Frægt varð þegar Northwind bjargaöi sænska kaupskipinu Orion í ofsaveðri. Alls hefur skipiö og áhöfn þess hlotið átta slíkar viðurkenningar. Svo haldið sé áfram að rekja glæsilegan feril skipsins, þá var Northwind fyrsta skipið til þess að sigla Itina svokölluðu norð-vestur- leið í einni lotu, fram og til baka. Með í förinni var skipið Manhattan. Áriði 1970 bætti Northwind metið, í því að sigla inn í norðurskautsísinn að vetri til, um níu mílur. Skipið gengur oft undir nafn- inu Óldungur norðurhafa, og Laugardagur 31. ágúst 1985 2 ■ í leguplássinu í Sundahöfn. Tilbúið til þess að halda áleiðis til Grænlands að brjóta ís. ísbrjótur í Sundahöfn Skipið á glæsilegan feril að baki ekki að ástæðulausu. Skipið var smíðað í lok síðari heims- styrjaldarinnar, og sjósett í júlímánuði 1945. Þávarskipið fimmta skip sinnar tegundar. Nú eru einungis tveir ísbrjótar eftir í heiminum af þessari gerð. Meginhlutverk Northwind er að halda opnum siglinga- leiðum og fylgja birgða- skipum. Þá hefur skipið gegnt veigamiklu hlutverki við rann- sóknir á heimskautasvæðun- um. Skipið er vel tækjum búið, og meðal þess sem fyrst ber fyrir augu, þegar farið er um borð í skipið, er mikið þyrlu- skýli sem staðsett er á þilfarinu. Þar inni eru tvær öflugar þyrlur geymdar, en þær eru mikið notaðar við rannsóknir á heim- skautasvæðunum. Northwind varð fyrsta skipið til þess að nota þyrlur við rannsóknir á heimskautasvæðum, árið 1946. Ferðir skipsins eru langar, og er áhöfnin oft burt frá heim- kynnum sínum svo mánuðum skiptir við að brjóta ís. NT tók tali nokkra úr áhöfninni. Flest- ir voru þeir óbreyttir, sem voru um borð, þegar skipið var heimsótt. Þeir voru sammála um að ferðir skipsins, og áætl- unin sem framundan er, gefi góða möguleika til þess að ferðast um heiminn. Að vísu jánkuðu þeir því að tilbreyt- ingarleysi gæti orðið yfirþyrm- andi, þegar ekkert væri gert nema brjóta ís mánuðum saman. Skipið er kraftmikið, eins og gefur að skilja, þegar brjóta þarf leið í gegnum þykkan ís. Skipið knýja fjórar þrjú þús- und hestafla díselvélar, sem aðskildar eru í tveimur vélar- rúmum. Áeldsneytisforðanum sem skipið ber, kemst það 24 þúsund mílur, án eldsneytis- töku. Skipið var á leið sinni til Grænlands, þegar það átti við- komu í Sundahöfn. ■ Einn af vélstjórunum fylgist með að allt sé klárt, áður en lagt er af stað til Grænlands. nt mynd Svenir. ■ Pyrlurnar tvær, merktar bandarísku strandgæslunni. Þær eru notaðar til eftirlits og rannsókna út frá skipinu. ■ t brúnni. Stóll skipstjórans er lengst til hægri á myndinni. Þaðan fylgist hann með ísnum framundan og tekur ákvarðanir um aðgerðir. ■ Unnið við steypuvinnu á plötu nýja félagsheimilisins. NT-mynd: Haraldur Ingi. r BLAÐBERA VANTAR ______JIEFTIRTALIN HVERFI: Rauðarárstíg, Kambsveg, Norðurbrún, Kleppsveg, Laugar- ásveg, Aðalland, Álaland/ Álftaland, Árland, Bjarmaland, Kjarrveg, Markveg, Birkimel, Grenimel, Hagamel, Hofsvalla- götu, Neshaga, Melhaga./kópavog og Seltjarnarnes. 1 Síðumúli 15. Sími 686300 Knattspyrnufélag Akureyrar: Félags- heimili rís Haraldur lngi Haraldsson, Akureyri: ■Lokið er við steypa plötu á félagsheimili KA á Akureyri. Fyrirhugað er að þetta 530 fermetra hús verði fokhelt í haust, Mjög ör uppbygging hefur verið á svæði knatt- spyrnufélagsins. Þar eru nú þrír knattspyrnuvellir í notkun, og sá fjórði í bygg- ingu. Mikið og öflugt unglinga- starf hefur verið á vegum KA í sumar, og á annað hundrað barna og unglinga hafa verið þar við æfingar í sumar. Rás2 Síðasta vertíðin? ■ Hvalveiðibátarnir þrír héldu úr Reykjavíkurhöfn, sl. helgi, til veiða á sandreyði. Óveiddar eru 32 sandreyðar, og mun þá hvalveiðum við landið vera lokið í ár. Fyrirhugaðar eru veiðar í vísindaskyni á næsta ári, en eins og kunnugt er, má búast við hörðum mótmælum hinna ýmsu hvalfriðunarsamtaka vegna þeirra veiða. NT-mynd: sverrir. Hundruð bréfa í hverri viku ■ Á fimmta hundrað lausna barst í síðustu viku við get- rauninni í þættinum Léttir sprettir sem er vikulega á dagskrá Rásar 2, og hefur þátttaka hlustenda í getrauninni vaxið jafnt og þétt undanfarnar vikur. Hlustendur taka vissulega virkan þátt í dagskrá Rásar 2, og eru ófeimnir við að hringja í símatíma stöðvarinnar og hundruð manna taka þátt í vali vinsælustu laga Rásarinnar. Á meðfylgjandi mynd er Hildur Gunnarsdóttir starfs- maður Rásar 2 að draga úr réttum lausnum í íþróttaget- rauninni, með henni á mynd- inni er Jón Ólafsson dagskrár- gerðarmaður og Ingólfur Hannesson íþróttafréttamað- ur.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.