NT - 31.08.1985, Blaðsíða 11

NT - 31.08.1985, Blaðsíða 11
■ Hvað er það sem er stórt eða lítið, mjúkt eðahart, gegn- sætt eða ógegndræpt, skothelt eða sveigjanlegt, hitaþolið og/ eða hitaeinangrandi, vatnshelt eða uppleysanlegt í vatni, og finnst allstaðar þar sem menn eru eða hafa verið...? Einmitt, það er plast! Plast er yfirleitt meðhöndlað á hina ýmsu máta til þess að fá fram þá eiginleika sem sóst er eftir, en það er kanski best í sambandi við plast að það hefur geysilega stórt notkunarsvið. Almennt gerum við okkur ekki grein fyrir því hversu miklu máli plast skiptir okkur en segja má að án þess væri mannkynið ekki jafn langt á vegi statt og það er í dag. Algengast er að plast sé notað til þess að um- lykja eitthvað og hleypa ein- ungis því sem við viljum í gegn, en notkun endingar- góðra ruslapoka hefur vand- amál í för með sér. Náttúran fær ekki brotið niður plastefnið og ruslið sem annars hefði myndað ágætis jarðveg, helst bundið í pokunum í hundruð ára. Þess vegna hafa menn reynt að finna upp plastefni sem endist ekki nema ákveð- inn tíma eða hægt er að brjóta niður í frumeindir svo ekki stafi skaði af. pakkninga helst möguleiki á því að halda vörunni ferskri í lengri tíma. Petta er gert með vali á réttu plasti og réttri þykkt þess. Brauð og kökur, eins og allir vita, eru þeim ósköpum gædd að missa nýjabragðið er þau þorna. Þessu hefur yfirlitt ver- ið bjargað með því að frysta þessar vörur. Hér skipta um- búðir miklu máli því við fryst- ingu breytist vatnið í ís og til að þíða brauðið verður að gæta þess að blotni ekki of mikið upp, yfirleitt er þetta lítið mál. En ef halda á brauð- inu með nýjabragðinu án þess að frysta það, þá vandast málið. Ef brauðið er geymt í þessum nýju plastumbúðum þá sjá þær um að rakastig brauðs- ins haldist rétt og ekki myndist gróður né tapist nýjabragðið, með stýringu á lofttegundum inni í pakkningunni. Plastið sér um að hleypa einungis litlum raka út (og halda þannig brauðinu mjúku) og einnig um að halda öllum koltvísýringi inni í pakkningunni en koltví- sýringurin hindrar vöxt myglu og ýmissa örvera. Á hinn bóg- inn þá drekkur kex í sig raka og skemmist og súrefni veldur því að fita í matvöru þránar, plastið sem hér á við er því ■ í tilraunastofunum fara fram rannsóknir á plasti og eiginleik- um þess. f glitrandi glerflöskum er plastið meðhöndlað.. og einnig oft í plastflöskum og flátum, plast er nefnilega tiltölulega mikið í notkun í rannsóknarstofunum vegna eiginleika þess. Hér er verið að meðhöndla rafleiðandi plastefni. Það er hér kælt niður í einöngruðum flátum til þess að forða þeim frá oxun, en við það verða þau stökk og notagildi sem rafleiðandi eyðileggst. Þegar meðhöndlun er lokið þolir plastið vel súrefnið. Vort daglegt brauð íleitaðlausnum ■■■ og öðrum efnablöndum í þessari leit sinni að réttri efnasamsetningu plasts hafa vísindamenn rekist á ýmsa kosti plasts er ekki voru áður þekktir. Fram undir miðjan sjöunda áratuginn var plast- umbúðum einungis ætlað að hafa stjórn á rakastiginu í pak- kningunni. En á þessu verður breyting á næstunni .í ljós hefur komið að plast getur einnig verið valgæft á lofttegundir sem það hleypir í gegnum sig. þetta hefurgeysimikla þýðingu fyrir matvælaiðnað þar sem með stjórn á loftinnihaldi ógegndræpt fyrir raka og sú- refni. Eitt epli á dag kemur... með nýjum geymsluaðferðum En þegar kemur að ávöxtun- um þá versnar í því, ávextir eru lifandi og taka upp súrefni og láta frá sér koltvísýring og vatn við öndun. Geymslutíma ávaxta má lengja með geymslu við rétt hitastig og með því að minnka súrefni í umhverfi nið- ur fyrir venjulegt gildi eða hækka koltvísýringsgildi. Vandamálið gerir ekki vart við sig fyrr en ávextirnir fara frá framleiðanda til kaupmanns- ins, ávöxturinn tekur allt í einu aftur við að þroskast og end- ingarhæfni hans er þar með horfin að mestu leyti. Ef ávöxt- unum er pakkað inn þá veldur öndun þeirra því að þeir auka vatnsmagn sitt og klára súrefn- ið, með auknu vatnsmagni eykst hættan á skemmdum af völdum myglu eða örvera. Nýju plastefnin hafa ýmsa kosti fram yfir þau gömlu og leysa að mestu leyti þetta vandamál. Þau eru ýmist úr nokkrum lögum af PVC (poly vinil-chlorid) eða úr efni er nefnist K-resin (butadiene- styrene copolymer) og notand- inn getur valið það efni sem hentar honum með tilliti til súrefnis, koltvísýrings og raka- stigs, en hann þarf einnig að taka tillit til öndunarhraða ávaxtanna og flæðihraða loft- tegundanna í plastinu en þar hefur hitastig nokkur áhrif á. Galdurinn er að velja rétta samsetningu lofttegunda í pak- kningunni í upphafi svo að það hægist á þroska ávaxtanna en öndun þeirra minnki ekki svo mikið að hætta sé á rotnun. Enn sem komið er þá er þetta plast enn á frumstigi í notkun en það hefur sýnt sig að þessi „stýrði lofthjúpur" gefur til dæmis tómötum og eplum meir en helmingi lengri endingartíma heldur en venju- legar pakkningar geta gefið. Laugardagur 31. ágúst 1985 11 f| Grunnskóli ísafjarðar auglýsir Sérkennarar, þroskaþjálfar. Grunnskólinn á Isafirði óskar að ráða til sérdeildar skólans, forstöðumann, kennara og þroskaþjálfa. í störfunum felst annars vegar skipulagning o'g uppbygging sérdeildar og hinsvegar kennsla og þjálfun nemenda á þjálfunar- og hæfingarskólastigi. Ennfremur sérkennsla nemenda í hinum almenna grunnskóla. Hér er um nýjan starfsvettvang að ræða sem býður uppá fjölbreytt viðfangs- efni og spennandi uppbyggingarstarf. Nánari upplýsingar veita formaður skólanefndar grunnskólans, Lára G. Oddsdóttir í síma 94-3580, skólastjóri grunnskólans, Jón Baldvin Hannesson í símum 94-3146 og 94-4294 og sérkennslufulltrúi fræðsluskrif- stöfu Vestfjarða Valborg Oddsdóttir í síma 94-3855. Skólanefnd. ATH. - ATH. - ATH. Þak-, glugga-, múr- og sprunguviðgerðir. Háþrýstiþvottur - sílanböðun. Pípulagnir - viðgerðir - viðhald o.fl. Nota aðeins viðurkennd efni. Skoða verkið samdægurs og geri tilboð. Upplýsingar í síma 64-12-74. Til sölu Mercedes Benz 230, árg. 1978, ekinn 92 þús. km. og Mercedes Benz 230 E, árg. 1983, ekinn 29 þús. km. til sölu. Upplýsingar í síma 687312.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.