NT - 31.08.1985, Qupperneq 6
IÐNSKÓLINN
í REYKJAVÍK
Iðnskólinn verður settur mánudaginn 2. sept-
ember kl. 14.00. Þá eiga nýnemar að koma
í skólann. Nemendur framhaldsdeilda og
samningsbundnir iðnnemar á öðru og
þriðja stigi sæki stundaskrár og bókaskrár
sama dag kl. 10.30.
Nemendur meistaraskóla sæki stunda-
skrár mánudaginn 2. september kl. 17.00.
Kennarafundur verður sama dag kl. 9.00.
Deildarstjórafundur verður kl. 11.00.
Iðnskólinn í Reykjavík
Bandalag kennarafélaga og
Kennaraháskóli íslands
efna til ráðstefnu um íslenska skólastefnu
laugardaginn 31. ágúst kl. 9.00 til 17.00 að
Borgartúni 6, Reykjavík.
Erindi flytja:
Jónas Pálsson, rektor Kennaraháskóla
íslands,
Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri í mennta-
málaráðuneyti,
Svanhildur Kaaber, formaður Bandalags
kennarafélaga,
dr. Wolfgang Edelstein, prófessor við Max
Planck rannsóknarstofnunina í Vestur-
Berlín.
Ráðstefnan er öllum opin.
Stjórn Verkamannabústaða í
Hafnarfirði
auglýsir hér meö eftir umsóknum um íbúðir í verkamannabú-
stöðum í Hafnarfiröi.
Um er að ræða 15 íbúðir, sem byggðar verða á árinu 1986
við Þúfubarð.
Þeir sem koma til greina þurfa að uppfylla eftirtalin skilyrði:
1. Hafa lögheimili í Hafnarfirði, þegar sótt er um.
2. Eiga ekki íbúð, eða samsvarandi eign.
3. Hafa ekki haft hærri meðaltekjur árin 1982-1983 og 1984
en 318.000,- kr. á ári auk 29.000.- kr. á hvert barn innan
16 ára aldurs.
Sérstök athygli er vakin á því, að eldri umsóknir þarf ekki að
endumýja.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu verkamannabú-
staða að Móabarði 34, sem er opin á mánudögum þriðjudög-
um og miðvikudögum kl. 16.00-18.00.
Umsóknarfrestur er til 18. september n.k. og ber að skila
umsóknum á skrifstofuna í síðasta lagi þann dag, eða í
pósthólf 272, Hafnarfiröi.
Umsóknir, sem síðar berast veröa ekki teknar gildar.
Grunnskóli
Reyðarfjarðar
Kennara vantar til starfa í eldri bekki veturinn
1985-1986. Æskilegar kennslugreinar,
handmennt stúlkna, tungumál, raungreinar,
almenn kennsla og sérkennsla. Mjög ódýrt
húsnæði fyrir hendi, flutningsstyrkur greidd-
ur. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
97-4247 eða 97-4140.
Skólanefnd.
Til sölu
Dodge Weebon árgerð 1953, í góðu lagi,
með 4ra cyl. Trader dieselvél og vegmæli.
Mikið af varahlutum. Einnig er til sölu Perkins
dieselvél 4,236 ný upp tekin. 5 gíra Chevrolet
gírkassi getur fylgt. Upplýsingar í síma
99-5592 og 99-5528.
Laugardagur 31. ágúst 1985 6
Útlönd j
■ Skrópagemlingar sem suðurafríska lögreglan hefur handtekið. Mörg börn og unglingar tóku þátt í bardögunum við lögregluna í gær.
Suður-Afríka:
Barist í Höfðaborg
Tugir hafa látið iifið í átökunum
Höfðaborg-Reuter.
■ Harðir bardagar urðu í
gær á milli grímuklæddra
unglinga og lögreglu í út-
hverfum Höfðaborgar. Bar-
- dagarnir eru sagðir einhverj-
ir þeir hörðustu sem orðið
hafa á þessu svæði. Ekki er
vitað hvað mikið mannfall
varð en það mun vera talið í
tugum.
Þungvopnaðir hermenn
og lögreglumenn óku á milli
úthverfanna í brynvörðum
bílum og reyndu að bæla
niður óeirðirnar sem bloss-
uðu stöðugt upp á nýjum
stöðum. Lögreglan beitti skot-
vopnum, svipum ög táragasi
óspart á unglingana.
Lögreglan setti upp veg-
tálmanir við úthverfin og
meinaði fréttamönnum að
fara inn í þau. Hópur ung-
menna köstuðu grjóti og
bensínsprengjum að bílum
og járnbrautarlestum sem
óku framhjá þeim. Þeir
strengdu líka gaddavír yfir
göturnar til að reyna að slasa
lögreglumenn.
Margar búðir hafa verið
rændar og eyðilagaðar í
átökunum sem nú eru ekki
einungis bundin við hverfi
fátækra blökkumanna held- aðra úthverfa þar sem til-
ur hafa breiðst út til bland- tölulega vel stætt fólk býr.
Eiturslys
á Indlandi
Bombay-Reutcr.
■ Að minnsta kosti einn vera. Aðrir sem slösuðust
maður lést og mörg hundruð voru verkamenn og íbúar
slösuðust í eiturslysi á Ind- sem bjuggu í námunda við
landi í gær þegar klórgas lak verksmiðjuna.
úr leiðslu í efnaverksmiðju í Einn þingmaður var í hópi
Chembur sem er ein af út- hinna slösuðu, dr. Datta
borgum Bombay. Gaslekinn Mills, en hann er meðal þekkt-
varð einmitt þegar verka- ustu stjórnarandstæðing-
menn við verksmiðjuna annaáþinginuíNýjuDelhi.
höfðu safnast saman til að Eiturgasslys eru tiltölulega
mótmæla því að verksmiðj- algeng á Indlandi. Fyrir
unni hafði.verið lokað. tveimur mánuðum slösuðust
Að sögn indversku frétt- t.d. 113 manns eftir gasleka
astofunnar PTI voru 14 í annarri verksmiðju við
brunaliðsmenn og 12 lög- Bombay og í desember á
reglumenn meðal hinna slös- seinasta ári létust um 2.500
uðu en þeir höfðu farið inn í manns þegar gas streymdi út
verksmiðjuna til að flytja úr úr verksmiðju Union Carbi-
henni fólk sem þar kynni að de í Bhopal.
Indverskt umframkorn
sent til Sovétríkjanna
- blandað hálmi og múrsteinum
Nýja Delhi-Reuter.
■ Sovétmenn hafa á þessu ári
flutt inn um 150.000 tonn af
indversku umframkorni. Þeir
segjast gjarnan vilja kaupa
meira kom af Indverjum á næst-
unni svo fremi sem Indverjar
tryggi að kornið verði ekki
blandað hálmi og múrsteins-
brotum eins og fyrri sendingar.
Mikil komuppskera að undan-
förnu hefur leitt til gífurlegra
umframbirgða á korni í Ind-
landi þar sem mikið magn af
korni liggur nú undir skemmd-
um vegna þess að allar korn-
skemmur eru löngu troðfullar.
Jlndverjar hafa reynt að selja
kornið, sem er aðallega hveiti,
til annarra ríkja en hingað til
hefur þeim aðeins tekist að fá
Sovétmenn og Víetnama til að
skrifa undir kaupsamninga.
Sovétmenn samþykktu fyrr á
þessu ári að kaupa 500.000 tonn
af korni en þeir stöðvuðu inn-
flutning sinn á índversku korni
i júní eftir að hafa aðeins flutt
inn 150.000 tonn. Sovétmenn
kvörtuðu þá yfir því að hluti
kornsins væri skemmdur og að
hálmur og múrsteinsbrot væru í
korninu. Indverjar neituðu
þessum ásökunum Sovétmanna
í fyrstu en sendu svo hóp sér-
fræðinga til Sovétríkjanna í
seinasta mánuði til að kanna
gæði kornsins.
Það er talið að umframbirgð-
ir Indverja af korni séu samtals
um sjö milljónir tonna þannig að
Indverjum er mikið í mun að fá
Sovétmenn til að flytja inn meira
af indversku korni. Sovétmenn
tilkynntu nú í vikunni að þeir
myndu senda verslunarnefnd til
Nýju Delhi ti! að semja um
áframhaldandi kornkaup. Þeir
tóku sérstaklega fram að í hópn-
um væru matvælasérfræðingar.
Væntanlega er þeim ætlað að
tryggja gæði kornsins.