NT - 31.08.1985, Síða 13
Laugardagur 31. ágúst 1985 13
■ Frá æfingu hjá Stúdentaleikhúsinu á rokk-söngleiknum „EKKÓ - guðimir
ungu“
„EKKÓ -
guðirnir ungu“
■ Að undanfömu hafa staðið yfir
æfingar hjá Stúdentaleikhúsinu á
rokk-söngleiknum „EKKÓ -guðirnir
ungu“ eftir Claes Andersson. Forsýn-
ing var í félagsmiðstöðinni Tónabæ
27. ág., og frumsýning í bíóhöllinni á
Akranesi miðv. 28. ágúst. Síðan er
ætlunin að fara með söngleikinn víða
um land skv. ferðaáætlun, sem birtist
hér á eftir.
Ólafur Haukur Símonarson rit-
höfundur annaðist þýðingu og semur
söngtexta, Ragnhildur Gísladóttir
„fyrrverandi Grýla“ frumsemur tón-
list við verkið. Andrés Sigurvinsson,
leikstýrir því. Karl Aspelund hannar
leikmynd og búninga, en Guðný B.
Richards gerir brúður, sem fara með
hlutverk hinna fullorðnu í sýning-
unni. Egill Árnason ljósahönnuður
sér um lýsinguna.
Prettán ungir leikarar koma fram á
sýningunni, en auk þeirra er heil
hljómsveit á sviðinu og taka jafnframt
þátt í leiknum atriðum. Gamalreynd-
ir leikarar ljá brúðunum raddir sínar.
Stúdentaleikhúsið vinnur að þess-
um sýningum í tilefni af „Ári æskunn-
ar“ sem nú stendur yfir.
Ferðaáætlun - „EKKÓ
- guðimir ungu“
28. ágúst kl. 20:30 ...Akranes
29. ágúst kl. 20:30 . Grundarfjörður
30. ágúst kl. 20.30 . Stykkishólmur
31. ágúst kl. 20:30 ... Búðardalur
1. sept................Ferðadagur
2. sept. kl. 20:30 . . Patreksfjörður
3. sept. kl. 20:30 ..... Þingeyri
4. sept. kl. 20:30 .... Bolungarvík
5. sept. kl. 20:30 ....Hnífsdalur
6. sept................Ferðadagur
7. sept. kl. 20:30 . . . Hvammstangi
8. sept. kl. 20:30 ..... Blönduós
9. sept. kl. 20:30 . . . Sauðárkrókur
10. sept. kl. 20:30 . . . Siglufjörður
11. sept. kl. 20:30 . . Ólafsfjörður
12. sept. kl. 20:30 ...... Dalvík
13. sept. kl. 20:30 ...Akureyri
14. sept. kl. 15:00 ...Akureyri
15. sept. kl. 20:30 . Aðald. (Ýdalir)
16. sept. kl. 20:30 ..... Húsavík
17. sept. kl. 20:30 ...Þórshöfn
18. sept. kl. 20:30 . . Vopnafjörður
19. sept. kl. 20:30 . Borgarfj. eystri
20. sept. kl. 20:30 .... Egilsstaðir
21. sept. kl. 20:30 . Neskaupstaður
22. sept. kl. 15:00 . Reyðarfjörður
23. sept. kl. 20:30 ........ Höfn
24. sept. kl. 20:30 Vík
25. sept. kl. 20:30 . . . Hvolsvöllur
.26. sept. kl. 20:30 ........ . Selfoss
27. sept. kl. 20:30 .-. . Laugarvatn
Fyrirhugaðar. ferðir um helgar í
október og nóvembér: Vestmanna-
eyjar, Keflavík, Aratunga, Stokks-
eyri, Þorlákshöfn.
Leikritið verður síðan sýnt í miðri
viku í félagsmiðstöðinni Tónabæ í
októbermánuði. ,
Septem '85
■ „Það er allt fullt af sýningum hér
í Reykjavík. Menn sem kalla sig
listamenn eru að hengja upp myndir
í öllum skúmaskotunr,11 sagði Valtýr
Pétursson einn úr Septem hópnum, á
blaðamannafundi sem boðað var til
vegna 13 sýningar hópsins.
Valtýr sagði að markáðurinn væri
orðinn fullur og vel það, því sala á
listaverkum hefur snarminnkað upp á
síðkastið.. Valtýr sagði að ■Septem
hópurinn hefði ákvcðið-að sýn«. ekki
næsta ár, en farið væri að velta
vöngum yfir sýningu 1987.
Á sýningu Septem hópsins eru
tveir gestir, Hafsteinn Austmann og
Daninn Jens Urup, sem meðal annars
sýnir steinda glugga sem hann hefur
gert í Sauðárkrókskirkju. Þeir verða
sýndir þarna, ásamt vinnuteikningum
listamannsins.
Sýningin Septem ’85 verður opnuð
í dag klukkan 14:00.
íslenskt landslag
í eigin útfærslu
■ „Þó þetta séu landslagsmyndir
ratar enginn eftir þeim,“ sagði Jón
Reykdal þegar hann sýndi blm. yfir
vestur sal Kjarvalstaða, þar sem hann
var að hengja upp 64 verk, olíumál-
verk og þurrkrítarmyndir,
Lengst af hefur Jón fengist við
grafík, en hann sagði olíumálverkið
ágæta aukabúgrein, sem hann hafði
stundað með grafíkinni.
Jón sagði landslagið á myndunum
hreinar vinnustofupælingar, „ég get
ekki farið með trönur út t' sveit og
komið landslaginu yfir á léreftið, eins
og Ásmundur og fleiri kappar gerðu
meistaralega“, sagði Jón, „en ég vona
að fólk sjái íslenska náttúru og birtu
út úr þessum myndum mínum.“
Sýning Jóns ctpnar í dag klukkan
14:00 og er opin daglega frá klukkan
14-22. sýningunni lýkur sunnudaginn
15. september.
LIGHT NIGHTS
■ Síðasta sýning á .Light Nights á
þessu sumri verða baldnar í Tjarnar-
■ Kristín G. Magnús er sögumaður
á sýningum LIGHT NIGHTS.
bíói við Tjörnina í kvöld laugardags-
kvöld. Sýningarnar hefjast kl. 21.00.
LIGHT NIGHTS sýningarnar eru
sérstaklega færðar upp til skemmtun-
ar og fróðleiks fyrir erlenda ferða-
menn. Efnið er allt íslenskt, en flutt
á ensku. Leikhússtjórar eru Halldór
Snorrason og Kristín G. Magnús,
sem er jafnframt sögumaður Light
Nights.
Orgeltónleikar
■ Björn Steinar Sólbergsson heldur
orgeltónleika í Kristskirkju Landa-
koti sunnudaginn 1. sept. kl. 17.00.
Hann mun leika verk eftir Bach,
Alain og Duruflé.
Eftirlit með innréttingum
Byggingamefnd fhjgstöðvar á Keflavíkurflugvelli vill ráða eftirlitsaðila
með innréttingu flugstöðvarinnar.
Verkið sem nefnist innréttingar FK 5 var boðið út 26. ágúst 1985 og
er ráðgert að opna tilboð 19. nóvember 1985 og að verkinu jjúki 1.
mars 1987. Verkið naar m.a. til:
a) lrinréttinga og frágángs byggingarinnar.
b) Hréinlætislftgna, vatnsúðunarkerfis, hitakerfis og loftræstikerfis.
c) Raflagna. ' ' ,
Byggingarnefndip leitar eftir einum ábyrgum eftirlitsaðila sem hefur
á að skipa hæfU starfsliði til verksins.
Einstök atriði sem meðal annarra verða lögð til grundvallar við.val á
eftirlitsaðila eru: (1) Réynsla við eftirlit með sambærilegum 'fram-
kvæmdum (2) Hæfoiviðstjórnun margþættraframkvæmda-þár með
talin áætlanagerð (3) Umsögn fyrri verkkaupa. Góð enskukunnáttá
starfsmannaér áskilin.
Verkfræðistofum sem áhuga hafa á verkefninu er boðið að senda
upplýsingar til Varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Skúla-
götu 63,105 Reykjavík eigi síðar en 16. september 1985 kl. 12:00.
Fyrirspurnum yerði’beint til skrifstofu byggingarnefndar á Keflavíkur-
flugvelli, sími (92) 1277.
Byggingarnéfnd flugstöðvar
á Keflavíkurflugvelii
I.M II
■ Hluti þeirra sem sýna á Septem ’85, frá vinstri Jóhannes Jóhannesson,
Hafsteinn Austmann, Valtýr Pétursson og Guðmundur Benediktsson.
NT-mynd - Sverrir
■ Jón Reykdal opnar sýningu m/landslagsm. aft Kjarvalsstöftum í dag.
Rykkrokk
■ Fellahellir gengst fyrir útitónleik-
um á laugardag milli kl. 18-23. Meðal
þeirra sem fram komaeru hljómsveit-
irnar „The Voice“, „No Time“,
„Sweet Pain“, og „Tic Tac“. Auk
þeirra hljómsveitin „Þetta er bara
kraftaverk” og „Kukían" sem eru
þau í Kukl auk Megasar.
Langbrók:
■ Gallerí Langbrók færir út kvíarn-
ar nú um helgina en þá opnar nýtt
gallerí, Gallerí Langbrók textíll með
verkum þeirra Guðrúnar Gunnars-
dóttur, Guðrúnar Marinósdóttur,
Sigrúnar Guðmundsdóttur, Stein-
unnar Bergsteinsdóttur, Önnu Þóru
Karlsdóttur, Asu Ólafsdóttur, Heiðu
Björk Vignisdóttur-. og Valgerði
Torfadóttur. Galleríið er á horni
Laufásvegar og Bókhlöðústígs. Opn-
unin verður laugardaginn 31. ágúst
kl. 14:00 og er allt áhugafólk boðið
velkomið. Álmennur típnunartími er
12-18:00 virka daga.
Framsóknarkonur:
■ Framsóknarkonur halda Lands-
þing Landssambands framsóknar-
kvenna að Laugarvatní helgina 31.
ágúst til 1. september. Þingið hefst
með ávarpi formanns Lands-
sambandsins, Sigrúnar Sturludóttur,
kl. 10:00 á laugardag en lýkur kl.
18:00 á sunnudag.
Frá hinu þekkta franska fyrirtæt
Telemecanique getum viö nú boðiö
af lager mjög fjölhæfa rofasam-
stasöu til samrööunar með hagan-
fega geröum rofastýringum, sem
smeila saman án skrúfufestinga.
Fyrir allan algengan iönað, stóran
og smáan, ekki síst skipalönaö.
Leltiö.nánari upplýsirrga.
trí&æmbJ!-
SÍMi; 685656„og 84530