NT - 31.08.1985, Side 14
auglýsingar
varahlutir
Hedd hf.
Skemmuvegi M-20 Kópavogi
Varahlutir - ábyrgáLr viðskipti
Höfum fyrirliggjandi varahluti í flestar
tegundir bifreiöa, m.a.
Galant 1600 árg 79
Subaru 1600 árg 79
Honda Civic árg 79
Datsun 120 A árg 79
Mazda 929 árg 77
Mazda 323 árg 79
Mazda 626 árg 79
Mazda616árg75
Mazda818árg76
Toyota M II árg 77
Toyota Cressida 79.
-*S/plvo 343 árg 79
Rán’ge Rover árg 75
Bronco árg 74
Wagoner árg 75
Scout II árg 74
Cherokee árg 75
Land Rover árg 74
Villis árg '66
Ford Fiesta árg '80
Wsrtburg árg '80
Laoa Safir árg '82
Toyota Corolla árg 79^ Landa Combi árg '82
Toyota Carina árg 74" Lada*Sport árg '80 1
Toyota Celica árg 74
Datsun Diesel árg 79
DatSun .120 árg 77
Datsun 180 B árg 76
Datsun 200 árg 75
Datsun 140 J. árg 75
Datsun 100 A árg 75
Daihatsu
Carmant árg 79
Audi 100 LS árg 76
Passat árg 75
^pefRecerd árg 74
VW 1303 árg 75
C Vega árg 75 -
Mir\i árg 78
Ábyrgð á öllu, allt inni þjöppumælt’
og gufuþvegið. Vélar yf irfarnar eða
uppteknar með allt að 6 mánaða
ábyrgð. ísetning ef óskað er.
Kaupum nýlega bíla til niðurrifs og
jeppa. Staðgreiðsla. Opið virka
daga frá kl. 9-19 laugardaga kl.
10-16. Sendum um land allt.
Hedd h.f. síma 77551 og 78030
Reynið viðskiptin
ökukennsla
Lada 1600 árg '81
Volvo 142 árg 74
Saab.99 árg 76
Saáb 96 árg 75
Cortina 2000 árg '79
Sc&ut árg 75
V-Cjtievelle árg '79
A-AJegro árg '80
Transit árg 75
Skódi 120 árg '82
Fiat 132 árg '79
Fiat 125 P árg '82
F-Fermont árg '79
f-Branada árg 78
Kenni á Audi ‘82. Nýir nemendur
geta byrjað strax og greiða aðeins
tekna tíma.
Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst;.
réttindi. Æfing í borgarakstri. Lærið'
þar sem reynslan er mest. Greiöslu-
kjör, ennfremur Visa og Eurocard.
Símar 27716 og 74923.
Ökuskóli Guðjóns Ó. Hanssonar.
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIDJAN
dddda h f.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KOPAVOGUR
SIMt 45000
varahlutir
Aðalpartasalan
Sími 23560
Autobianci’77 BuickAppalo'74,
AMCHomet'75 HondaCivic’76
AustinAllegro’78 Datsun100A’76
Austin Mini 74 Simca1306'77
:Chevy Van 77 ' Simca1100 77
Chevrolet Malibu’74 Saab 99 73
Chevrolet Nova 74 Skoda 120 L 78
DodgeDart’72 Subaru4WD’77
Dodge Coronet '72 Trabant 79
Ford Mustang 72 Wartburg 79
Ford Pinto 76 T oyota Carina 75
Ford Cortina 74 T oyota Corolla 't4
FordEscort’74 Renault4’77
Fiat 131 77 Renault5’75
Fiat 132 76 Renault12'74
Fiat 125 P 78 Peugout504'74
Lada1600’82 Jeppar
Lada 1500 78 Wagoneer 75
Lada1200’80 RangeRover’72
Mazda323 77 Scout’74
Mazda929’74 FordBronco'74
Volvo145’74
VW1300-1303 74 ,
VW Passat 74
Mgrcury Comet 74 _
Ábyrgð á öllu, kaupum bíla til
niðurrifs, sendum um land allt.
Opið virka daga frá kl. 9-19,
laugardaga frá kl. 10-Jp. Aðal-
partasalan Höfðatúni 10, sími
23560.
bílaleiga
BÍUUIICA
REYKJAVÍK:
AKUREYRI:
BORGARNES:
VÍÐIGERÐI V-HÚN.:
BLÖNDUÓS:
SAUÐÁRKRÓKUR:
SIGLUFJÖRÐUR:
HÚSAVÍK:
EGILSTAÐIR:
VOPNAFJÖRÐUR:
SEYÐISFJÖRÐUR:
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR:
HÖFN HORNAFIRÐI:
91-31815/686915
96-21715/23515
93-7618
95-1591
95-4350/4568
95-5884/5969
96-71498
96-41940/41594
97-1550
97-3145/3121
97-2312/2204
97-5366/5166
97-8303
interRent
óskast
RAFHA þvottapottur óskast í góöu
ásigkomulagi. Upplýsingar í síma
99-2190.
húsnæði óskast
GD
óskar að taka á leigu
herbergja íbúö fyrir einn starfsmai
blaðsins. Upplýsingar í síma 6876!
á skrifstofutíma, kl. 9 til 17.
BÆNDUR
BÍLAVERKSTÆÐI
OG AÐRIR EIGENDUR
LAND-ROVER BIFREIÐA
ATHUGIÐ!
HÖFUM ÚRVAL VARAHLUTA OG
BODDÝHLUTA í LAND-ROVER
EINNIG VARAHLUTI í RANGE-
ROVER OG MITSUBISHI
ÞEKKING OG REYNSLA
TRYGGIR ÞJÓNUSTUNA
VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR
HEILDSALA - SMÁSALA
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS ^
ÍTF Laugardagur 31. ágúst 1985 14
LlI Minnincp
Eiríkur E. F. Guðmundsson
bóndi Meltúni, Mosfellssveit
Fæddur 20.5 1907.
Dáinn 24.8 1985.
Eiríkur Guðmundsson lést á heim-
ili sínu Meltúni, laugardaginn 24.
ágúst s.l. Útför hans verður gerð frá
Lágafellskirkju mánudaginn 2. sept.
n.k. kl. 14.00.
Föðurbróðir minn Eiríkur í Mel-
túni er látinn á 79. aldursári. Maður
trygglyndis og jafnaðargeðs er fallinn.
Foreldrar hans voru Guðmundur
Ágúst Halldórsson bóndi í Botni
Súgandafirði (Halldórssonar bónda
Hóli Hvilftarströnd, Önundarfirði og
konu hans Guðrúnar Jónsdóttur frá
Vöðlum, Önundarfirði) og kona hans
Guðfinna Ólöf Daníelsdóttir (Ólafs-
sonar bónda Dalshúsum, og konu
hans Guðrúnar Edilríðar Sturludótt-
ur frá Dalshúsum Önundarfirði.)
Guðfinna var fyrri kona Guðmund-
ar, þá ekkja eftir Eirík Egilsson frá
Arnarnesi í Dýrafirði, en hann lést
árið 1903. Eignuðust þau Guðfinna
og Eiríkur 7 börn en eitt þeirra dó á
fyrsta ári. Guðmundur Ágúst var
hennar seinni eiginmaður og áttu þau
einn son Eirík Egil Finn sem hér er
minnst. Brjóstveiki tók að hrjá Guð-
finnu fæðingarár Eiríks og varð hún
fljótt heilsulítil upp frá því. Guðfinna
lést svo 11. ágúst 1912. Seinni kona
Guðmundar Agústs var Sveinbjörg
Hermannsdóttir og eignuðust þau
saman þrjú börn. Alls fæddust því 10
systkini þessa frænda míns og lifa
hann tvö, sitt hvoru megin frá þau
Guðrún Eiríksdóttir f. 1896 búsett á
Flateyri í hárri elli og Hermann
Guðmundsson f. 1917 símstöðvar-
stjóri á Akranesi.
Vorið 1907 flyst að Botni einhleyp
systir Guðmundar, Júlíana Halldórs-
dóttir hagleikskona frá Hóli ásamt
fleirum.
Eftir fæðingu Eiríks Guðmunds-
sonar það vor og hnignandi heilsu
Guðfinnu gengur Júlíana Eiríki nán-
ast í móður stað og annast hann. Alla
tíð í Botni reynist hún honum sem
besta móðir og minntist hann hennar
oft ög jafnan er talað var um liðna tíð,
og hvað hún hafi verið sér einlæg.
Æska og uppvöxtur Eiríks var eins
og tíðarandinn krafðist, fyrst við leik
og störf síðan á búi foreldranna.
Um vor 1927 hleypti Eiríkur heim-
draganum og réðst í kaupavinnu að
Skógum í Flókadal í Borgarfirði til
hausts er hann hóf nám við Hvítár-
bakkaskólann næstu tvo vetur. Seinni
vetur sinn þar kynntist hann Sigríði
Pórmundsdóttur frá Bæ í Borgarfirði
og með þeim tókst gagnkvæm tryggð
og vinátta er seinna leiddi til hjúskap-
ar.
Vík varð milli vina er Hvítárbakka-
dvöl lauk, því Eiríkur réðst þá að
Korpúlfsstöðum frá vori ’29 til jafn-
lengdar árs ’30. Eftir það stóð hugur
til frekari kynningar atvinnulífsins og
fór hann það sumar á síld til Siglu-
fjarðar. Haustið 1930 réðst hann svo
sem fjármaður að Grímsstöðum á
Mýrum til vors ’31 er hann fer til
sumardvalar að Bæ í návist unnustu
sinnar. Það var ekki hlaupið að því að
kaupa eða taka við búi í þá daga
frekar en nú á tímum. Aura þurfti
saman. Fullur vonar og vilja heldur
Eiríkur á vertíð til Keflavíkur um
haustið og er fram á vetur. Þá veikist
hann af berklum ogflyst á Vífilsstaði.
Eftir brottfararleyfi frá Vífilsstöð-
um, í huganum heill og vongóður um
að bati hafi náðst heldur hann svo um
haustið 1932 til kennslustarfa við
barnaskólann á Suðureyri, síns heima
héraðs. Hefur Eiríkur svo þar með
höndum kennslu 9 ára barna og segir
mér einn nemenda hans frá þeim
vetri að þar hafi farið hæfiieikamaður
í tilsögn og vináttu við æskuna. Passar
sú umsögn vel inn í þann ramma er
kynni okkar leiddu af sér. Síðla þetta
haust kemur svo Sigríður unnusta
hans vestur.
Brúðkaupsdagur þeirra rann upp
27. desember 1932 og voru þau gefin
saman í Staðarkirkju.
Skammt er högga á milli, ungu
hjónin verða aðskilin þar sem Sigríð-
ur veikist nú, uppúr áramótunum og
fer á sjúkrahúsið á ísafirði. Undir vor
veikist svo Eiríkur einnig og lendir á
sjúkrahúsinu. Þar liggja þau svo
sjúklingar í sitt hvorri stofu, fram í
október það ár er hún útskrifast og
fer til móðursystur sinnar Ingunnar á
Reykjahvoli í Mosfellssveit en hann á
Vífilsstaði hvar hann dvelst til des-
ember 1934. Upp úr því ræðst hann í
vinnu til Álafoss. Ferðast nokkuð um
landið sem sölumaður. Snemma árs
1937 þarf hann svo enn að leggjast inn
á Vífilsstaði og vera langt á þriðja ár,
til hausts 1939.
Hefst nú loks tími aukinnar birtu
sambúðar þeirra Sigríðar frá sjúk-
dómum, þótt hvorugt hafi gengið
alheilt til skógar eftir vágest berkla-
veikinnar. En hugur fylgdi hönd og
kjark vantaði ekki.
Vann Eiríkur þennan vetur í lausa-
mennsku jafnframt því að þau hjónin
komu sér upp litlu húsi til íbúðar í
landi Reykjahvols er þau nefndu
Hverabakka og bjuggu þar næstu átta
árin. Þau flytja að Meltúni 1947 með
húsið með sér, endurbæta það og
stækka, byggja útihús og yrkja jörð.
Á þessu ári hafa þau búið þar í 38 ár.
Kærleiksheimili, barna, frænd- og
tengdaliðs varð Meltún. Margir
komu, sumir sveitunganna oft. Hlýja
var þar inni og ekkert tillit tekið til
stærðar eða smæðar. Viðræður og
veitingar voru þar viðhafðar af
drengskap. Ekkert á torg borið.
Erfitt getur verið á annað að minn-
ast ef tvö eru um, sem hér.
Kjördóttur eignuðust þau, Sigur-
björgu f. 23.11. ’41 kom hún til þeirra
aðeins 2ja vikna gömul og var þeim
sólargeisli fyrst að Hverabakka, svo
Meltúni og síðast en ekki síst hin
seinni ár með fjölskyldu sinni. Svo
var og með fósturbörnin sem trygga
viðkomu áttu í skjóli hjónanna. Sig-
urbjörg Eiríksdóttir er framr.m. að
mennt gift Svavari Sigurjónssyni
skipasm.m. og framr.m. Eiga j)au
þrjú börn, þau Áslaugu Sigríði f.
19.2. ’59 hjúkr.fr. Hennar unnusti er
Geir Magnússon bankastm. og eiga
soninn Magnús Brynjar 1. árs. -
Margréti Björk f. 11.12. ’63 stúdent.
Hennar unnusti er Ingólfur Geir Giss-
urarson, stúdent og nemi í
íþr.kennslufr. og Eirík Sigurjón f.
23.9. 72.
Tvö börn tóku þau Eiríkur til
fósturs tímabundið og virtu sem sín
eigin og tóku þau börn miklu ástfóstri
við fósturforeldra sína. Þau eru
Guðný Jóna Hallgrímsdóttir f. 16.11.
’45 sem kom til þeirra misserisgömul
sumarlangt og seinna þrjú ár sam-
fleytt. Hennar maki er Bjöm Haralds-
son kaupm. Grindavík og eiga þau
fjögur börn.
Svo var það Sigmar Pétursson,
hálfbróðir Sigurbjargar f. 23.9. ’52.
Hann kom 2ja ára og dvaldi með
þeim fram að skólaaldri samfleytt og
sumarlangt eftir það fram yfir ferm-
ingu. Aldrei þurfti hans að leita í túni
eða utan. Fylgdi hann fóstra sínum
hvert fótmál í önnum dagsins vakandi
og sofandi. Sigmar er framr.m. að
mennt kvæntur Þrúði Jónu Kristjáns-
dóttur og eiga þau þrjár dætur.
Minningar eru ríkar frá heimsókn-
um mínum í Meltún frá því fyrst ég
kom þar 14 ára gamall. Reyndar
hófust kynni lítilsháttar fyrr, er frændi
og fjölskylda komu vestur í foreldra-
hús mín til heimsóknar. Ég get varla
sagt lítilsháttar kynni, því frá því fyrst
ég sá frænda minn kviknaði neisti
gjörþekkingar að mér fannst, svo
aðlaðandi og viðmótsgóður var hann.
Þær stundir sem ég hefi átt í návist
hans um dagana eru geymdar kær-
leiksstundir minninganna. Einlæg
elskusemi og vinarþel lék um handtak
og koss.
Eiríkur var ekki fasmikill maður
þótt eftirminnilegur væri, en trúnað
átti hann í sveit sinni og ábyrgð fylgdi
hans gjörð.
Nú er söknuður í brjóstum barna-
barnanna og annarra í frændskap og
vináttu sár. Allt líf tekur enda. Hann
hafði fyrr á árum tekið út sína
sjúkrahúsvist.
Við sem eldri erum megum þakka
í tímabundinni sorg hversu sterkur
hann var sitt æviskeið og það sem
hann okkur var.
Hugheilar hluttekningarkveðjur
sendi ég og fjölskylda mín, nú að
leiðarlokum, eftirlifandi eiginkonu
hans, dóttur, fósturbörnum og að-
standendum öðrum.
Skarð er fyrir skildi, frændi erfallinn
í valinn.
Blessuð sé minning hans.
Guðmundur Óskar Hermannsson
Mér er Eiríkur Guðmundsson
minnisstæður frá æskuárum. Lífs-
glaður unglingur, æðrulaus og stund-
um gáskafullur.
Strax á æskuárum urðu erfið veik-
indi hlutskipti hans. Þá sýndi sig best
karlmennska hans og manndómur.
Æðruleysið entist honum. Glaðværð
hans og kímniskyn fölskvaðist aldrei.
Þrátt fyrir valta og veika heilsu var
Eiríkur gæfumaður þar sem hann bjó
með Sigríði á smábýli sínu, sinnti um
bú sitt og studdi börn sín til þroska.
Þar er falleg saga sem af má læra.
Okkur sýnist að sumum séu bundn-
ir þyngri baggar en öðrum. Þeir sem
undir því rísa hafa mest að gefa.
Þaðan stafar ljómi á hrjóstur lífsins.
Þannig er gott að minnast Eiríks í
Meltúni með virðingu og hlýrri þökk.
H.Kr.
Flóamarkaðurinn
á Öldugötu 11 heldur áfram á laugardag 31.
ágúst frá kl. 2-5 eftir hádegi.
Fatnaöur, leikföng - ALLT Á TÍKALL.
Húsgögn og skrautmunir á prúttverði. Nýtínd
rifsber seld í kílóavís. Og fleira og fleira og fleira.
Kaffi og vöfflur til sölu. Afmælisrit og gömul
jólakort.
Mætiö stundvíslega og geriö kaup ársins.
Stjórn FEF.
\