NT - 31.08.1985, Side 16
St. Jósefsspítali
Landakoti
Lausar stöður
Barnaheimili
Starfsmaður óskast á skóladagheimiliö (börn
5-9 ára) frá 1.9.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma
19600-260 milli kl. 9-16.
Einnig óskast starfsmaður á dagheimili fyrir
börn á aldrinum 3ja-6 ára. Upplýsingar í
síma 19600-250 milli kl. 9-16.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast á lyflækninga-
deildir l-A og ll-A, handlækningadeildir l-B
og ll-B og barnadeild. Fastar næturvaktir
koma til greina. Boðið er upp á aðlögunar-
kennslu fyrstu vikurnar.
Hjúkrunarfræðingar óskast á aukavaktir á
lyflækninga- og handlækningadeildir. Einnig
vantar skurðstofu-hjúkrunarfræðing.
Námsstaða er fyrir hendi fyrir hjúkrunar-
fræðing sem vill öðlast starfsreynslu á skurð-
stofu.
Sjúkraliðar
Sjúkraliðar óskast til starfa á allar vaktir við
eftirtaldar deildir:
- Lyflækningadeild ll-A
- Handlæklingadeildir ll-B og lll-B
- Barnadeild
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf sendist hjúkrunarforstjóra sem
veitir nánari upplýsingar í síma 19600 frá kl.
11 -12 og 13-14 alla virka daga.
Starfsfólk
Starfsfólk í ræstingar vantar við allar deildir
spítalans. Upplýsingar veitir ræstingastjóri í
síma 19600-259.
Starfsmaður
Óskum að ráða starfsmann til starfa í
þvottahúsi okkar að S íðumúla 12. Upplýsing-
ar gefur forstöðukona þvottahússins í síma
31460.
Reykjavík 31.08 1985.
Frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík
Tónlistarskólinn í Reykjavík tekur til starfa
föstudaginn 20. september n.k. Inntökupróf
verða sem hér segir:
Fimmtudaginn 5. september:
píanódeild kl. 13.00
strengjadeild kl. 14.00
blásaradeild kl. 16.00
Föstudaginn 6. september:
söngdeild kl. 13.00
tónfræðideild kl. 15.00
Innritaðir nemendur staðfesti umsóknir sínar
og greiði fyrri hluta skólagjalds, þriðjudaginn
10 og miðvikudaginn 11. september kl. 9-15
á skrifstofu skólans, Skipholti 33.
Skólastjóri.
Menningarsjóður íslands og
Finnlands
Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og
islands. i því skyni mun sjóðurinn árlega veita ferðastyrki og
annan fjárstuðning. Styrkir verða öðru fremur veittir einstakl-
ingum, en stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til
greina ef sérstaklega stendur á.
Umsókn um styrki úr sjóðnum skulu sendar stjórn Menningar-
sjóðs íslands og Finnlands fyrir 1. október n.k. Áritun á íslandi
er: Menntamálaráðuneytið, Hverfisgötu 6, 101 Fteykjavík.
Æskilegt er að umsóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku,
finnsku eða norsku.
Stjórn Menningarsjóðs íslands og Finnlands
31. ágúst 1985.
Verkefnisstjóri
Félagsmálaráðuneytið óskar eftir aö ráða starfsmann til að
stjórna framkvæmd norræns verkefnis á íslandi á sviði
jafnréttismála. Fyrst í stað er gert ráð fyrir hálfri stöðu. Tekið
skal fram að áhersla er lögö á hæfileika til að vinna sjálfstætt.
Einnig er æskilegt að væntanlegur starfsmaður geti tjáð sig
munnlega og skriflega á dönsku, norsku eða sænsku.
Verkefni það sem hér um ræðir er að hluta til kostað af
norrænu ráðherranefndinni. Það er unnið á vegum embættis-
mannanefndar norrænu ráðherranefndarinnar sem fjallar um
jafnréttismál.
Markmið verkefnisins er að stuðla að fjölbreyttara náms- og
starfsvali kvenna. Framkvæmd þess fer fram samtímis á
öllum Norðurlöndunum og er unnið undir yfirstjórn norræns
verkefnisstjóra. Skipuð verður nefnd á vegum félagsmáia-
ráðuneytisins sem vinnur með verkefnisstjóra og ber hún
ábyrgð á framkvæmd verkefnisins á íslandi. Gert er ráð fyrir
að verkefnisstjórar í löndunum hefji störf nú í september og
er áætlað að vinna við verkefnið standi til ársloka 1988.
Helstu verkefni eru m.a.:
- Semja drög að áætlun um framkvæmd verkefnisins
hérlendis og sjá um framkvæmd hennar hér á landi.
- Samstarf við fyrirtæki, skóla, aðila vinnumarkaðarins,
hlutaðeigandi sveitarstjórn og yfirstjórnir atvinnu- og
menntamála.
- Samskipti við fjölmiðla.
- Tengsl við samnorrænan verkefnisstjóra, en í því felst m.a.
gerð ársskýrslu um framgang verkefnisins.
- Samning iokaskýrslu um framkvæmd og árangur verkefnis-
ins.
Ákveðið er að verkefnið verði unnið á Akureyri í samvinnu við
bæjarstjórn Akureyrar og hefur verkefnisstjórinn aðsetur þar.
Skriflega umsókn þar sem greini menntun og fyrri störf skal
senda félagsmálaráðuneytinu, Arnarhvoli, í síðasta lagi 20.
september n.k. Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna.
Reykjavík, 29. ágúst 1985
Félagsmálaráðuneytið.
Hestar tit sölu
1. Stóðhesturinn Hrani 973 frá Hrafnkeis-
stöðum, 9 vetra, alhliða ganghestur með
rúmt skeið, hlaut 1. verðlaun 1983 frá
Stóðhestastöð.
2. Geldingurinn Djákni frá Kirkjubæ, 6 vetra,
glæsilegur ganghestur, er nú í þjálfun og
til sýnis hjá Páli Bjarka í Gunnarsholti,
sími 92-5088.
Skriflegum tilboðum sé skilað þangað eða í
Búnaðarfélagið fyrir 10. sept. 1985.
Búnaðarfélag íslands
Bændahöllinni.
Rannsóknarmaður
- bútækni
Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, bú-
tæknideild Hvanneyri, óskar að ráða rann-
sóknarmann til starfa. Almenn búfræði-
menntun ásamt þekkingu og reynslu í notkun
og meðferð búvéla áskilin og framhalds-
menntun í búfræði æskileg. Upplýsingar í
síma 93-7500.
Rannsóknarmaður
- efnagreiningar
Rannsóknarstofnun landbúnaðarins óskar
að ráða rannsóknarmann á efnagreiningar-
stofu. Upplýsingar um menntun og fyrri störf
sendist fyrir 17. september, til Rannsóknar-
stofnunar landbúnaðarins, Keldnaholti, 110
Reykjavík.
I
PÓST- OG SiMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða verkamenn við lagningu
jarðsíma á Stór-Reykjavíkursvæðið. Nánari
upplýsingar verða veittar í síma 26000.
Lyfsöluleyfi
er forseti íslands veitir.
Lyfsöluleyfi Blönduóssumdæmis (Apótek Blönduóss) er aug-
lýst laust til umsóknar.
Fráfarandi lyfsala er heimilað að neyta ákvæða 11. gr. laga
um lyfjadreifingu nr. 76/1982 varðandi húsnæði lyfjabúðarinn-
ar og íbúð lyfsala (húseignin Urðarbraut 6).
Verðandi lyfsali skal hefja rekstur lyfjabúðarinnar 1. janúar
1986.
Umsóknir um ofangreint lyfsöluleyfi skulu hafa borist heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu fyrir29. september n.k.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
29. ágúst 1985.
Húseign á Siglufirði
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið auglýsir eftir einbýlishúsi á
Siglufirði til kaups.
I tilboðum skal greina verð og greiðsluskilmála auk nánari
upplýsinga um húsið, þar á meðal stærð þess og gerð.
Æskilegt er, að útlits- og grunnteikningar fylgi.
Tilboð skulu hafa borist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fyrir
kl. 16.00 10. september 1985.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna
öllum.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
28. ágúst 1985.
Húseign í Búðardal
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið auglýsir eftir einbýlishúsi í
Búðardal til kaups.
(tilboðum skal greina verð og greiðsluskilmála auk nánari
upplýsinga um húsið, þar á meðal stærð þess og gerö.
Æskilegt er, að útlits- og grunnteikningar fylgi.
Tilboð skulu hafa borist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fyrir
kl. 16.00 10. september 1985.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna
öllum.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
28. ágúst 1985.
Tilkynning til skattgeiðenda
Dráttarvextir vegna vangreiddra þinggjalda verða reiknaðir að
kvöldi miðvikudagsins 4. septemþer n.k.
Vinsamlegast gerið skil fyrir þann tíma.
Fjármálaráðuneytið 30. ágúst 1985.
Kennarar
Almenna kennara vantar við Grunnskóla
Grindavíkur. Húsnæði fyrir hendi. Nánari
upplýsingar veitir skólastjóri í síma 92-8555
og 92-8504.
TOLLSKÝRSLUR -
VERÐÚTREIKNINGAR
Tek að mér
tollskýrslugerð,
verðútreikning,
bókhald
og vélritun.
Vönduð vinna
- gott verð.
Steinunn Björk Birgisdóttir, Skeifan 8,
sími 38555 frá kl. 9-13.
t
Móðir okkar,
Sigríður Emilía Bergsteinsdóttir,
Hvassaleiti 30,
andaöist í Borgarspítalanum föstudaginn 30. ágúst. Jarðar-
förin auglýst síöar.
Börnin
E!E^DDDnDCG
zzznnnaaaj
IGronDQDDG
- □□□□
;□□□□
rrrrm
[TTTTl