NT - 31.08.1985, Page 18
r Tlj7 Laugardagur 31. ágúst 1985 18
L UU íþróttir
Enska knattspyrnan:
Mariner verður
miðvörður í dag
- ef 0‘Leary verður ekki orðinn heill - Barnes spilar með United
■ Það gæti farið svo í dag í iner hjá Arsenal spili miðvörð í hann er vanur að gera. Arsenal-
ensku 1. deildinni að Paul Mar- staðinn fyrir framherja eins og liðið hefur átt við mikil meiðsla-
. vandamál að stríða að undan-
förnu og í síðasta leik gegn
Luton kom Mariner inná fyrir
O'Leary sem meiddist á andliti
og er ekki víst að hann verði
í dag. Mariner sjálfur hefur
átt við meiðsl að stríða en
líklegt er að hann spili sinn
fyrsta heila leik í dag - sem
miðvörður.
Arsenal hefur verið í baráttu
við margar plágur á síðustu
mánuðum. Fjórirleikmenn liðs-
ins hafa verið kærðir fyrir ölvun
við akstur og á ársþingi félagsins
í fyrrakvöld tilkynnti fjármála-
stjórn félagsins að tapið á síð-
asta ári hefði verið nálægt 24
milljónum íslenskra króna. Ar-
senal liðið ætlar sér þó ekkert að
gefa eftir í baráttu um meistara-
titilinn og víst er að Don Howe
mun leggja sig allan fram í
þeirri baráttu enda mun hann
sennilega fjúka frá félaginu ef
ekkert gengur þetta árið.
■ Magnús Pálsson miðvallarspilarinn ungi stekkur nú inní lið
umferðarinnar en hann hefur verið traustur hjá FH í sumar en átti
góðan leikámóti ÍBK um daginn. Duglegurpiltur. NT-mynd:Ámí iijama.
NT-lið fimmtándu umferðar
Þorgrímur Þráinsson, Val (2)
Valþór Sigþórsson, ÍBK (4)
Baldvin Guðmundsson, Þór (2)
Viðar Þorkelsson, Fram
Árni Stefánsson, Þór (2)
Gunnar Gíslason, KR (7)
Siguróli Kristjánsuon, Þór (5) Ólafur Þórðarson, ÍA (3)
Magnús Pálsson, FH
Jón Erling Ragnarsson, FH Guðmundur Torfason, Fram (5)
Annar leikmaður en Mariner
mun spila sinn fyrsta deildarleik
á þessu tímabili í dag. Það er
Peter Barnes hjá Manchester
United sem spila mun sem út-
herji í stað Danans Jespers
Olsens sem meiddist í ökkla á
æfingu í vikunni.
Meiðsl setja víðar strik í
reikninginn en hjá United og
Arsenal. Tottenham sem á
morgun leikur gegn Manchester
City er með fjóra landsliðsmenn
í meiðslum og City er án fimm
fastamanna. Þá munu báðir
miðverðir Luton, Foster og El-
liott vera meiddir og er búist við
að velski landsliðsmaðurinn
Peter Nicholas taki „sweeper"
stöðuna hjá Luton í leiknum
gegn Aston Villa í dag.
i
■ Verður Maríner að spila sem miðvörður í dag? Hver veit nema að sú staða henti honum vel.
Spanjólar sparka
Spænska knattspyrnan hefst á morgun - Einn íslendingur í slagnum
■ Spænska knattspyrnan hefst
á morgun með pompi og prakt
og er búist við að slagurinn
þetta árið verði bara á milli
Real Madrid og Barcelona. Bar-
celona hefur endurnýjað samn-
ing sinn við Terry Venables til
tveggja ára en Venables hjálp-
aði einmitt Barcelona til að
vinna sinn fyrsta meistaratitil í
,11 ár er liðið sigraði deildina í
fyrra. Annars hefur Barcelona
verið óvenju hæglátt í sumar.
Engar stórar stjörnur hafa verið
lokkaðar til liðsins, öfugt við
það sem venjulega hefur gerst
hjá liðinu. Barcelona mun
treysta á Bernd Schuster og
Steve Archibald til að tryggja
titil þetta árið.
Hjá Real gegnir öðru máli.
Liðið keypti markahæsta mann
Spánar í fyrra. Sá heitir Hugo
Sanchez og er mexíkanskur. Þá
keypti liðið einnig Antonio
Maceda og Rafael Gordillo sem
báðir eru landsliðsmenn og ís-
lendingum að góðu kunnir.
Einn íslendingur spilar nú í
spænsku knattspyrnunni. Það
er Pétur Pétursson sem spilar
með Hercules frá Allicante.
Ekki má svo gleyma að Atletico
de Madrid mun reyna að blanda
sér í toppslaginn með Ubaldo
Fillol, argentínska landsliðs-
markvörðinn, í markinu.
...Um helgina fer fram
keppnin um Olíubikarinn
hjá Golfklúbbi Reykja-
víkur. Er þetta ein elsta
keppni klúbbsins. Leikin
verður 18 holu undirbún-
ingskeppni á laugardag
frá kl. 9.00.
Á sunnudag fer fram
undirbúningskeppni fyrir
Nýliðabikarinn og hefst
hún kl. 9.00. Þá fer fram
undirbúningskeppni fyrir
Nýliðabikar unglinga kl.
10.00.
Af þessu má sjá að
mikið verður um að vera
í Grafarholti um næstu
helgi.
...Real Madrid sigraði
Bayern Munchen 4-2 í
úrslitaleik í knattspyrnu-
keppni sem fram fór í
Madrid í vikunni. Mörk
Real gerðu Sanchez,
Butragueno, Santillana
og Valdano en Lerby'-og
Matthaiis skoruðu fyrir
Bæjara...
...Heimsmeistarar Tékka
í íshokkí sigruðu Svía 3-2
í vináttuleik í Svíþjóð í
gærkvöldi. Leikurinn fór
1-0, 2-1 og 0-1. Tékkar
sigruðu í úrstlitaleik á síð-
ustu heimsmeistara-
keppni.
■ Bernard Langer skaust uppí annað sætið á lista yfir þá golfara í Evrópu sem þénað hafa mesta
peninga á árínu til þessa með sigri á Opna v-þýska meistaramótinu í Bremen í fyrrí viku. Sigurvegarinn
á Opna breska meistaramótinu Sandy Lyle er enn langefstur á peningalistanum. Lyle hefur unnið sér
inn 8,5 millj. íslcnskar en langer er með um 4,5 millj. Það vekur athygli að Ballesteros er aðeins í
áttunda sæti með um 3,2 millj.
Helgarknattspyrnan:
■ í dag heldur hin æsispenn-
andi 1. deildarknattspyrna
áfram með einum leik í deild-
inni. Valsmenn fá Víði Garði í
heimsókn á völlinn við Hlíðar-
enda kl. 14:00 og verða að sigra
til að halda sér í toppslagnum.
Víðismenn þurfa hins vegar á
stigi eða stigum að halda til að
sleppa við falldrauginn hræði-
lega.
Þá verða í dag fjórir leikir í 2.
deild. Skallarnir í Borgarnesi
taka á moti Blikum frá Kópa-
vogi kl. 14 og á sama tíma spila
KS og Leiftur og Eyjamenn og
Völsungar. Kl. 17 mætast síðan
á Árbæjarvelli Fylkir og Njarð-
vík í botnbaráttu 2. deildar.
í 3. deild verðurspiluðsíðastá
umferðin í B-riðli og þá ræðst
það hvort Magni eða Einherji
mæta Selfoss í úrslitaleikjum 3.
deildar. Þessi Iið hittast á Greni-
vík kl. 14 en um leið spila
Leiknir og Valur, HSÞ og
Austri og Tindastóll og Huginn.
Þrír leikir verðá í 1. deild
kvenna. KA fær Blikana í heim-
sókn á KA-völlinn en Þórsstúlk-
urnar spila á Þórsvelli gegn ÍA.
KA-leikurinn hefst kl. 17 en
hinn kl. 16. Þá spila Valur og
ÍBÍ kl. 17.
Á sunnudaginn verða síðan
þrír leikir í 1. deild karla. Þór
fær KR í heimsókn kl. 14 og á
sama tíma spila Fram og Þróttur
í Laugardalnum. Kl. 15 spila
síðan Keflvíkingar gegn Skaga-
mönnum í Keflavík. Umferð-
inni lýkur síðan á mánudags-
kvöld með leik Víkinga og FH
á Laugardalsvelli kl. 18:30. Þá
spila Valur og ÍBK og KR og
ÍBÍ í 1. deild kvenna á sunnu-
dag.
Cruz mistókst
■ Brasilíski hlauparinn Joaq-
uim Cruz náði ekki að setja
heimsmet í 800 m hlaupi á
Grand Prix - mótinu í Koblenz
í fyrrakvöld. Cruz hafði ætlað
sér að reyna að setja heimsmet
og hafði haft það á orði fyrir
mótið. Hann fékk hins vegar
tímann 1:42,49 og var það að-
eins frá fjögurra ára gömlu
heimsmeti Seb Coe frá Bret-
landi sem er 1:41,73.
í lok hlaupsins þá þurfti Cruz
að hugsa meira um að vinna
sigur á Bandaríkjamanninum
Johnny Gray en að setja heims-
met. Gray hljóp mjög vel og
setti bandarískt met með tíman-
um 1:42,60. „Ég held að ég hafi
bara hugsað of mikið um að
setja heimsmet svo einbeitingin
var ekki í stakasta lagi,“ sagði
Cruz eftir hlaupið.