NT


NT - 04.09.1985, Síða 3

NT - 04.09.1985, Síða 3
EP Miðvikudagur 4. september 1085 kák HM-einvígið hófst í Moskvu í gær. Kasparov stendurtii vinnings í fyrstu skákinni: Karpov í nauðvörn allan tímann ■ Ef marka má táflmennskuna í 1. einvígisskák Kasparovs og Karpovs sem fór í bið í gær virðist Kasparov hafa margt lært af maraþonviðureigninni í vetur, því hann tefldi af firnakrafti og stendur greinilega til vinnings í skákinni sem fór í bið eftir 41. leik. Einvígi þeirra fer nú fram í Tschaikovskí - tónleikahöllinni í Moskvu og var báðum keppend- um tekið vel er þeir mættu til leiks í gær. Kasparov hóf leikinn að venju með drottningarpeðsbyrj- un en þegar í þriðja leik gaf hann kost á NimzoindVerskri vörn, sem ekki í eitt einasta skipti var tefld í fyrra einvígi þeirra. Sjald- séð afbrigði kom upp og virtist mörgum sem Karpov væri óör- uggur í fasi, hann eyddi miklum tímaogeftir 12 leiki hafði Kaspar- ov náð klukkustundar forskoti. Staða hans var að auki mun betri og sleppti hann heimsmeistaran- um aldrei úr heljargreipum sínum og blasir sigur hans við. Þess má geta að Kasparov tefldi 30 skákir án sigurs í fyrra einvíginu. Eins og kunnugt er hefur regl- um verið breytt frá því sem áður var. Þeir tefla 24 skákir og heldur Karpov titlinum á jöfnu. Vinni annar keppandi sex skákir innan 24 skáka hefur hann borið sigur úr býtum í einvíginu. Fáir eiga von á því, þó óskabyrjun Kaspar- ovs nú bendi til þess að hann sé í miklum vígahug. 1. einvígisskák: Hvítt: Garrí Kasparov Svart: Anatolv Karpov Nimzoindversk vörn Þar sem að ljóst þykir að fyrstu skákir þessa einvígis muni gefa mönnum innsýn í þau vopnavið- skipti sem framundan eru í Moskvu er fyrsti leikur Kasparovs í hinu nýbyrjaða einvígi um margt forvitnilegur. Mun hann leika kóngspeðinu fram, sem undir lok maraþon-einvígisins í vetur reyndist hemsmeistaranum erfið, eða velur hann drottningarpeðs- byrjun sem oftast varð uppá ten- ingnum í einvíginu? I."d4 (Karpov átti yfirleitt auðvelt með að verjast þessum leik og þeim byrjunarkerfum sem frá honum falla, en að þessu sinni hefur Kasparov sitthvað nýtt á taktein- unum.) 1. .. Rf6 2. c4e6 3. Rc3! (Býður uppá Nimzoindverska vörn. í fyrra einvíginu lék Kasp- arov langoftast 3. Rf3 ogstundum 3. g3. Nimzoindverskavörnin varð aldrei uppá teningnum.) 3. .. Bb4 4. Rf3 (í þau fáu skipti sem Kasparov hefur gefið kost á Nimzoindversku vörninni hefur hann yfirleitt leik- ið 4. e3 ásamt 5. Rge2) 4.. . cS 5. g3 (Sjaldséð afbrigði en gott til síns brúks þegar haft er í huga að Karpov hefur aldrei mætt þessu afbrigði áður á skákferli sínum. Fyrsta leynivopn áskorandans hefur séð dagsins ljós.) 5.. . Re4 (Algengara er 5. - cxd4 6. Rxd4 0-0 eða 6. - Re4. Leikurinn sem Karpov velur leiðir til allmikilla uppskipta og oft og tíðumjafntefl- islegrar stöðu sem hentar Karpov vel.) 6. Dd3 Da5 7. Dxe4 Bxc3t 8. Bd2 (Auðvitað ekki 8. bxc3 Dxc3 og hvítur tapar hróknum á al.) 8. .. Bxd2t 9. Rxd2 Db6 (Þessi leikur mun fyrst hafa kom- ið fram í skák Ubilava og Lerners á Skákþingi Sovétríkjanna í fyrra. Áður hefur verið leikið 8. - Rc6 -9. d5 Rd4 10. Bg2 með flókinni stöðu eða 9. - 0-0. ) 10. dxc5 Dxb2 11. Hbl Dc3!? (í áðurnefndri skák lék Lerner 11. - Da3 og náði betri stöðu eftir 12. Bg2 Dxc5 13. 0-0 Rc6 14. Hfdl 0-0. Kasparov hefur áreið- anlega haft sitthvað að athuga við taflmennsku hvíts en Karpov verður fyrri til að víkja frá áður- nefndri skák. Hann mátti alls ekki leika 11. - Dxa2 vegna 12. Dd4 0-0 13. Dc3! Da6 14. Bg2 og viðhótuninni 15. Hal finnstengin haldgóð vörn.) 12. Dd3 Dxd3 (Drottningaruppskipti tryggja frumkvæði hvíts en það er vart hægt að benda á betri leið. Þannig má svara 12. - Da5 með 13. Hb5 Dc7 (en ekki 13. - Dxa2 14. Dc3! o.s.frv.) 14. Re4 með betri stöðu.) 13. exd3 Ra6 14. d4 (Mun sterkara en 14. Re4 f5 15. Rd6t Ke7 16. d4 b6 17. Rxc8t Hhxc8 18. cxb6 axb6 19. Hxb6 Hcb8 og svartur nær peðinu fljót- lega til baka.) 14. .. Hb8 15. Bg2 Ke7 lllll II n lilllliEili 1111 i A ; L: H 1111A ||0|| ill 1 101 m b b II 2 ISHLJSL 11 I (Það er athyglisvert að svartur á óhægt með að losa um sig t.d.15. - b6 16. cxb6 axb6 17. Ke2 ásamt tvöföldun á b - línunni og b6 - peðið riðar til falls. Þá hótar svartur því beinlínis ekki að leika 16. - d6 vegna 17. cxdóf Kxd6 18. c5t ásamt 19. Rc4. Byrjunartafl- mennska Karpov hefur því beðið skipsbrot og frumkvæði Kaspjrov er afar ógnandi). 16. Ke2 HdS 17. Re4 b6 18. Rd6! (Skemmtilegar leikbrellur eru aðalsmerki Kasparovs. Hér er ein slík á ferðinni. í fljótu bragði virðist svartur ná að rétta úr kútnum með 18. - bxc5 en svo er ekki þegar betur er að gáð: 19. Hxb8 Rxb8 20. dxc5 og svartur getur sig hvergi hrært vegna þess að 20. - Ra6 strandar á 21. Rxc8t Hxc8 22. Bb7! og hvítur vinnur mann.) 18. .. Rc7 (Það tekur langan tíma að skipta að ná uppskiptum á riddaranum sterka á d6 og á nteðan bætir hvítur vígstöðu sína) 19. Hb4 Re8 20. Rxe8 Kxe8 21. Hhbl Ba6 (Svartur gat reynt að komast út i hróksendatafl peði undir með 21. - Bb7 22. Bxb7 Hxb7 23. cxbó axb6 24. Hxb6 Hxb6 25. Hxb6 Ha8 með einhverjum jafnteflis- möguleikum. Því er e.t.v. best að halda biskupunum á borðinu og leika 22. Bfl. B6 - peðið fellur hvort eð er.) 22. Ke3 d5!? 23. cxd6 (Staðan er alltof einföld til þess að Kasparov falli í gildru heims- meistarans. Eftir 23. cxd5 'exd5 25. cxb6 Hxb6 26. Hxb627. Hxb6 heldur svartur jöfnu með 27. - Bc4!, a2 - peðið fellur t.d. 28. Hb2 Ha8 o.s.frv.) 23. .. Hbc8 (En ekki 23. - Hxd6 24. c5! o.s.frv.) 24. Kd3! Hxd6 25. Ha4! ■si llllllilllllll 1 |i 11181 Alí ■ 1 lill 111 111 II a aill 31. f3 Hd5 32. Hcl Hbd7 33. a5 g5 34. hxg5 Hxg5 35. g4 h5 (Karpov reynir eðlilega að skapa sér mótspil en það er heldur máttlítið í samanburði við peða- meirihluta hvíts á drottningar- væng sem er á fleygiferð upp í borð.) 36. b6 axb6 37. axb6 Hb7 38. Hc5! Í5 (Vitavonlaust er auðvitað fram- haldið 38. - Hxc5 39. dxc5 Kd7 40. gxh5 o.s.frv.) 39. gxh5 Hxh5 40. Kc4 Hh8 41. Kb5 Ha8 (Loks nú uppsker Kasparov árangur markvissrar tafl- mennsku. Svartur verður að láta peð af hendi til þess að forða biskupnum.) 25. .. b5 26. cxb5 Hb8 27. HaB4 Bb7 28. Bxb7 Hxb7 29. a4 (Hvítur stendur til vinnings. Um- frampeðið gerir út um taflið. Það er dálítið merkilegt að í 48. skák hins sögurfræga einvígis í vetur tókst Kasparov að sigra andstæð- ing sinn í hróksendatafli en þá voru hinir tæknilegu örðugleikar mun meiri en núna.) 29. .. Ke7 30. h4 h6 BBffl m...........111 i & - Hér fór skákin í bið. Staða Karpovs er vitavonlaus og má inikið vera haldi hann baráttunni áfram á morgun en þá er biðskák- in á dagskrá. Óskabyrjun Kaspar- ovs sem teflt hefur af miklum krafti. Helgi Ólafsson stórmeistari skrifarumskák Uppla C^C^I V V X. / ) /O )/ »Hf/ blaðinu er að finna fréttir og greinar um húsbyggingar og innanstokksmuni, um byggingarefni og byggingaraðferðir, nýjungar í tækni og það nýjasta frá arkitektunum er kynnt. Fjölmargir seljendur fasteigna auglýsa í Innan húss og utan, enda nær blaðið til nánast allra landsmanna. Ef þú ert að lerla þér að fasteign getum við sparað þér mikla vinnu. MEIRIHATTAR BLAÐ HLAÐIÐ FRÉTTUM AF HEIMILUM, HÚSUM OG FASTEIGNAMARKAÐINUM Fylgir blaðinu á laugardögum Ég óska eftir ad gerast áskrif andi ad NT. NAFN HEIMILI PÓSTNR. STADUR NAFNNR. UNDIRSKRIFT

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.