NT - 04.09.1985, Blaðsíða 4

NT - 04.09.1985, Blaðsíða 4
Miðvikudagur 4. september 1985 4 Aðalfundur Stéttarsambands bænda: Verulegur samdráttur framundan hjá bændum - samkvæmt samningi Stéttarsambandsins og ríkisstjórnarinnar ■ Bændakonur í landi Ásgarðs, hinu nýja sumarhúsasvæði Stéttarsambandsins. ■ AðalfuncJur Stéttarsam- bands bænda var haldinn á Laugarvatni 29.-30. ágúst. Fyrir fundinum lágu fjölmörg mál, má þar m.a. ncfna nýju framleiðsluráðslögin, samning ríkisstjórnar og Stéttarsam- bandsins, inntöku búgreinasam- bandanna í Stéttarsambandið, staða markaðsmála o.m.fl. Ræða formanns Fundurinn hófst með ræðu formunns Stéttarsambandsins Inga Tryggvasonar og kom þar m.a fram að skipan og hlutverk Framleiðsluráðs cr verulega breytt með nýju lögunum og verðlagning búvara breytist talsvert. Nú verðleggja aðskildir aðilar landbúnaðarvöru á mis- munandi framleiðslustigum og tekin verður upp staðgreiðsla til búvöruframleiðenda. Úr útflutningsbótum vcrður verulega dregiö á næstu árum og er áætlað að þær verði 4% af heildarframleiðslunni árið 1990. Þær útflutningsbætur scm þann- ig sparast rcnna í framleiðnisjóð landbúnaðar svo hægt verði að grciðafyrirbúháttabreytingum. Ingi sagði þaö mikilvæga stcfnumörkun að innlend að- föng nýtist í framleiðslu búvara bæði með hliðsjón af fram- leiðsluöryggi og atvinnu og í lögunum er ákvæðj um að þær hækkanir á verðlagi og kaupi í landbúnaði komi bændum til góða ársfjórðungslega. Hlýtur það að teljast mikil kjarabót fyrir bændur. I'á er mjög mikilvægt að í lögunum eru auknar tryggingar fyrir því að það verð sem um er samið verði að fullu greitt. Samningurinn Sá samningur sem ríkisstjórn- in gerði við Stcttarsamband bænda sl. miðvikudag um, að framleiðendur fái fullt verð fyrir 107 milljónir lítra mjólkur og 12.500 tonn sauðfjárafurða á verðlagsárinu 1985-1986 og svo 106 milljónir lítra mjólkur og 11.800 tonn sauðfjárafurða á verðlagsárinu 1986-1987, hlýtur að teljast tímamótasamningur. Pað er ljóst að með þessum samningi er verulegur samdrátt- ur framundan hjá bændum. Talsverðar umræður spunnust um hvernig ætti að mæta sam- drættinum og varð það að sam- komulagi að það magn sem fullt verð fæst fyrir veröi skipt milli héraða, og miðað verði við það búmark sem var árið 1980. Bændur urðu einnig sammála um að framleiðsluréttur einstaka framleiðenda verði miðaður við framleiðslu undanfarinna tveggja ára. f þessum samningi er einnig að finna ákvæði um að ef fram- leiðslan á áður greindum vöru- flokkum verði meiri en ábyrgð ríkissjóðs nær til fer fram upp- gjör í lok hvers verðlagsárs á þeim hluta framleiðslunnar sem ekki hefur selst á innlendum markaði en farið til útflutnings eða er í birgðum. Uppgjörið fer þá þannig fram að fullt kostnað- arverð er fundið á umframfram- leiðslunni og síðan verður verð- ábyrgð hennar skipt milli ríkis- sjóðs og framleiðenda sam- kvæmt því magni sem hvor um sig ber ábyrgð á. Síðan er ákvæði um að nefnd fjögurra manna veröi stofnuð og skal hún annast framkvæmd þessa samnings. Nefndin á við upphaf hvers samningstímabils og svo ársfjórðungslega að gera áætlun um framleiðslu, mark- aöshorfur, stöðu birgða umsam- inna afurða og ráðstöfun fram- leiðslunnar. Báðir aðilar þ.e ríkið og Stétt- arsamband bænda geta hvenær sem er á samningstímanum ósk- að eftir endurskoðun á öðrum fulltrúar búgreinasambandanna sæti í stjórn Stéttarsambandsins og verða því 9 menn í stjórn þess nú í stað 7 áður. Aðrir stjórnarmenn Stéttarsambands- ins voru endurkjörnir. Nýju framleiðsluráðslögin gera ráð fyrir að fulltrúar sem eiga að skipa Framleiðsluráð verði til- nefndir á aðalfundi. í Fram- leiðsluráði er stjórn Stéttar- sambands bænda og svo þrír menn að auki frá búgreinafé- lögunum, en það eru þeir Hall- haft við Stéttarsamband bænda og þeim fannst að lögin hefðu verið keyrð í gegn á of skömm- um tíma og án nægilegrar kynn- ingar. Þeir lögðu áherslu á að svona meðferð væri lítilsvirðing af hálfu stjórnvalda og að aðrar stéttir létu ekki bjóða sér slíkt. Bændur eru almennt mjög óhressir með skertar niður- greiðslur ríkissjóðs á landbún- aðarvörum og telja það mikla kjaraskerðingu og krefjast þess að þeim verði komið á að nýju. kostur á að fá lánstíma fullverð- tryggðra G og J lána lengdan um 10 ár. Pá þarf að athuga hvort ekki verði framkvæman- legt að bændur fái heimild til að nýta það fé sem þeir greiða til Stofnlánadeildar í formi 1% framleiðslugjalds til lækkunar verðbótaþáttar eigin lána hjá Stofnlánadeild. Bændur telja það brýnt hags- munamál að áfram verði unnið að framleiðslustjórnun í búvöru- framleiðslu Það er einnig mikið kappsmál að efla alla kynningarstarfsemi á landbúnaðarvörum og leita allra leiða til markaðsöflunar bæði innanlands og utan. ■ Jón Helgason landbúnaðarráðherra ávarpaði fundinn. Við hlið hans sitja Magnús Sigurðsson fundarstjóri, Böðvar Pálsson og Ingi Tryggvason formaður Stéttarsambandsins. Ánægja Þess má geta að aðalfundur- inn lýsir ánægju sinni með þá fyrirgreiðslu sem hefur verið gerð til uppbyggingar loðdýra- rækt í landinu og vill fundurinn minna á að Framleiðnisjóður veiti auknu fjármagni til að leysa vanda fóðurstöðva og til að reisa nýjar. Einnig er fundurinn mjög ánægður með framgöngu fjár- málaráðherra í stöðvun búvöru- innflutnings til varnarliðsins og skorar á bændur í stsjórn Stétt- arsambandsins og á heilbrigðis- yfirvöld að koma í veg fyrir allan ólöglegan innflutning á búvöru í framtíðinni til verndar heilbrigði íslenska búfjárins. Síðast en e.t.v. ekki síst má atriðum en magntölunum en samningstíminn er tvö næstu verðlagsár. Búgreinasamböndin Nú um nokkurt skeið hafa ýmsar aðrar búgreinar en þær hefðbundnu rutt sér til rúms. Má þar til dæmis nefna kjúkl- ingabændur. eggjaframleiðend- ur, svínabændur, loðdýrarækt- endur o.mfl. Þessi búgreinafélög hafa ekki tilheyrt Stéttarsambandi bænda frant að þessu. Fyrir aðalfundinum lá tillaga að búgreinafélögin fengju fulla aðild aö Stéttarsamband- inu þ.e. bæði setu- og tillögurétt og var það samþykkt. Tveir menn, þeir Haukur Halldórsson formaður loðdýraræktenda og Jón Gíslason formaður eggja- framleiðenda tóku sæti í stjórn Stéttarsambandsins fyrir hönd búgreinafélaganna. Þeir sögðust vera mjög ánægðir með að vera loks komn- ir inn í Stéttarsambandið. Með inntöku þeirra í sambandið væri búið að viðurkenna alla búvöru- framleiðslu sem stunduð er í landinu og allir bændur væru nú loks komnir á sama bás. Fulltrúum fjölgar Aðalfundurinn ákvað að fjölga þeim fulltrúum sem sæti eiga á fundum sambandsins. Þeir voru 46 áður en verða nú 52. Búgreinafélögin teljast 10 og má því gera ráð fyrir að fulltrúar verði 62 á næsta fundi sem haldinn verður. Eins og áður segir taka nú ■ Frá aðalfundi Stéítarsambands bænda á Laugarvatni dór Kristinsson formaður svína- ræktcnda, Bjarni Helgason for- rnaður garðyrkjubænda og svo Jónas Halldórsson formaður kjúklingabænda. Álit bænda Þeir fulltrúar sem sátu aðal- fundinn gagnrýndu mjög þær aðferðir sem viðhafðar voru á framkvæmd framleiðsluráðslag- anna sl. vor. Þeir gagnrýndu að stjórnvöld hefðu lítil samskipti Einnig finnst þeim að of geyst sé farið í afnámi útflutningsbóta. Sérstök athygli var vakin á því á aðalfundinum að ófremd- arástand ríkti víða í sveitum vegna þess að ríkissjóður hefur ekki greitt nema helming lög- boðinna framlaga jarðræktar- laga síðasta árs. Þetta er auðvit- að óviðunandi og einnig það að of háir tollar eru á framkvæmda- og rekstrarvörum búgreina. Það er og brýnt að lántakendum hjá Stofnlánadeild verði gefinn nefna þá ánægjulegu stað- reynd að Stéttarsambandið hef- ur keypt 5 hektara lands í Ás- garði í Grímsnesi undir sumar- og orlofshús. Mæltist þessi nýj- ung vel fyrir á fundinum og var samþykkt að tvö hús skyldu reist í landi Ásgarðs og eitt í landi Hóla í Hjaltadal. Framkvæmd- um verður hagað þannig að húsin verða tilbúin næsta vor og geta bændur þá eins og aðrar stéttir notið hvíldar og hressing- ar. Bændakonur á ferðalagi Meðan bændur þinguðu á Laugarvatni brá betri helmingur þeirra sér í ferðalag um Suður- land undir leiðsögn Stefáns Jas- onarsonar frá Vorsabæ í Flóa. Að sjálfsögðu brostu veður- guðirnir sínu fegursta og náttúr- an tjaldaði því sem til var til heiðurs bændakonum. Fyrst var ferðinni heitið í Ásgarð í Grímsnesi, en þar hefur Stéttarsambandið keypt land undir sumar- og orlofshús. Mörgum kann e.t.v. að þykja það skjóta skökku við að þænd- ur hafi þörf fyrir að fara upp í sveit í hvíld og afslöppun. En bændur eru sennilega eina stétt- in í landinu sem ekki hefur aðgang að slíkum húsurn og er þetta því mjög þarft framtak. Landið í Ásgarði er mjög fallcgt og eflaust hefur einhverj- um verið hugsað til að gaman verði að vera þarna með elsk- unni sinni á fallegu sumar- kvöldi! Frá Ásgarði var ferðinni heit- ið í Mjólkurbú Flóamanna. Það er mikil stofnun og eru um 200 starfsmenn yfir sumarið þegar mest er en um 120 yfir hávetur- inn. Starfsemin hófst árið 1929 og hefur mjólkurbúið starfað óslitið síðan. Bændakonur gengu í gegnum vinnslusali bús- ins og þar var margt forvitnilegt að sjá. Síðan buðu mjólkurbús- menn bændakonum í hádegis- mat og þar var meðal annars kynnt ný jógúrt sem kom á markað þann dag. Næst var förinni haldið að Laugardælum og hin vinalega kirkja þar skoð- uð og svo sem leið lá í gegnum Selfoss. Þegar keyrt var fram hjá áfengisverslun staðarins varð leiðsögumanni það á orði að þetta væri sundlaug staðarins og eflaust má segja það með réttu við sum tækifæri a.m.k.!! Eftir að hafa keyrt í gegnum Eyrarbakka og Stokkseyri lá leiðin að rjómabúinu á Baug- stöðum. Það er ekki starfrækt lengur en er varðveitt sem safn. Það starfaði frá 1905-1952 og þar fór mjög merkileg starfsemi frarn. Þær konur sem þar störf- uðu nutu mikillar virðingar og þóttu þær sem komust að á rjómabúunum góðir kvenkost- ir. Frá Baugstöðum var haldið að Forsæti í Villingaholtshreppi og þar býr bóndi sem gerði sér lítið fyrir að gera upp orgelið úr Landakirkju og hefur það nú inni í stofu hjá sér. Þetta er mikill gripur og nánast undur að einn maður leggi í svo mikið stórvirki. Á þeim bæ var einnig vindmylla ein mikil. Hún fram- leiðir ekki rafmagn heldur hitar vatn með vatnsnúningi og getur framleitt talsvert magn í 6-7 vindstigum. Nú var ekið sem leið lá aö Þjórsárveri í kaffidrykkju á veg- um kvenfélagsins þar. Það var að sjálfsögðu myndarlega á móti bændakonum tekið, vísur kveðnar að bændasið og lagið tekið. Eftir að hafa snætt nægju sína var haldið í Skálholt og þaðan aftur á Laugarvatn. Þetta var mjög ánægjuleg ferð og eflaust hlakka margar til næstu ferðar.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.