NT - 04.09.1985, Page 6

NT - 04.09.1985, Page 6
auglýsingar varahlutir Hedd hf. Skemmuvegi M-20 Kópavogi Varahlutir - ábyrgá,- viðskipti Höfum 'fyrirliggjandi varahluti í flestar tegundir bifreiða, m.a. Galant 1600 árg 79 -*Volvo 343 árg 79 Subaru 1600 árg 79 Ránge Rover árg 75 Honda Civic árg 79 Bronco árg 74 Datsun 120 A árg 79 Wagonerárg75 Mazda 929 árg 77 Scout II árg 74 Mazda 323 árg 79 Cherokee árg 75 Mazda 626 árg 79 Land Rover árg 74 Mazda 616 árg 75 Villis árg '66 Mazda 818 árg 76 Ford Fiesta árg'80 Toyota M II árg 77 Wsrtburg árg '80 Toyota Cressida 79. Laoa Safir árg '82 Toyota Corolla árg '79^ Landa Combi árg '82 Toyota Carina árg 74" Lada'Sporl árg '80 Toyota Celica árg 74 Lada 1600 árg '81 Datsun Diesel árg '79 Volvo 142 árg 74 Datsun 120 árg '77 Saab99árg'76 Datsun 180 B árg'76 Saáb96árg'75 Datsun 200 árg 75 Cortina 2000 árg 79 Datsun 140 J. árg 75 Scíutárg’75 Datsun 100 A árg 75 V-^hevelle árg 79 Daihatsu A-A)egro árg '80 Carmant árg 79 Transit árg 75 Audi 100 LS árg 76 Skoídi 120 árg ’82 Passatárg’75 Fiat 132 árg 79 (^pet- Fteeefd árg 74 Fiat 125 P árg ’82 VW 1303 árg 75 F-Fermont árg 79 C Vega árg 75 P-jSranada árg 78 Mini árg 78 Ábyrgð á öllu, allt inni þjöppumælt' og gufuþvegið. Vélar yfirfarnar eða uppteknar með allt að 6 mánaða ábyrgð. ísetning ef óskað er. Kaupum nylega bíla til niðurrifs og jeppa. Staðgreiðsla. Opið virka daga frá kl. 9-19 laugardaga kl. 10-16. Sendum um land allt. Hedd h.f. síma 77551 og 78030 Reynið viðskiptin ökukennsla Kenni á Audi ‘82. Nýir nemendur geta byrjað strax og greiða aðeins tekna tíma. Æfingatímar fyrir þá sem hafa misst réttindi. Æfing í borgarakstri. Læriö. þar sem reynslan er mest. Greiðslu- kjör, ennfremur Visa og.Eurocard. Símar 27716 og 74923. Ökuskóli Guðjóns Ó. Hanssonar. bílaleiga BIIALEICA REYKJAVÍK: AKUREYRI: BORGARNES: VÍÐIGERÐI V-HÚN.: BLÖNDUÓS: SAUÐÁRKRÓKUR: SIGLUFJÖRÐUR: HÚSAVÍK: EGILSTAÐIR: VOPNAFJÖRÐUR: SEYÐISFJÖRÐUR: FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: HÖFN HORNAFIRÐI: 91-31815/686915 96-21715/23515 93-7618 95-1591 95-4350/4568 95-5884/5969 96-71498 96-41940/41594 97-1550 97-3145/3121 97-2312/2204 97-5366/5166 97-8303 interRent húsnæði óskast ________óskar að taka á leigu 2 herbergja íbúð fyrir einn starfsmann blaðsins. Upplýsingar í síma 687695 á skrifstofutíma, kl. 9 til 17. Allurakstur krefst \l varkárni ÖLL ALMENN PRENTUN LITPRENTUN TÖLVUEYÐUBLÖÐ • Hönnun • Setning • Filmu- og plötugerð • Prentun • Bókband PRENTSMIDJAN (^cldci H F. SMIÐJUVEGI 3, 200 KOPAVOGUR SIMl45000 Er öryggi þitt ekki hjólbarða virði? UUMFEROAR ráð varahlutir Aðalpartasalan Simi23560 Autobianci 77 Buick Appalo 74 AMCHornet'75 HondaCivic’76 AustinAllegro'78 Datsun 100 A'76 AustinMini'74 Simca1306'77 :Chevy Van '77 Simca 1100 '77 ChevroletMalibu'74 Saab99 73 Chevrolet Nova 74 Skoda120L’78 DodgeDart'72 Subaru4WD'77 Dodge Coronet'72 Trabant'79 Ford Mustang '72 Wartburg '79 FordPinto'76 ToyotaCarina’75 Ford Cortina'74 ToyotaCorolla'74 Ford Escort'74 Renault4'77 Fiat 131 77 Renault5’75 Fiat 132 '76 Renault 1274 Fiat 125 P’78 Peugout504 74 Lada'1600'82 Jeppar Lada1500'78 Wagoneer'75 Lada1200’80 RangeRover’72 ■ Mazda 323 77 Scout 74 Mazda929'74 FordBronco’74 Volvo145 74 VW1300-1303 74 VW Passat 74 Mercury Comet 74 , Ábyrgð á öllu, kaupum bíla til niðurrifs, sendum um land allt. Opið virka daga frá kl. 9-19, laugardaga frá kl. 10-.1p. Aðal- partasalan Höfðatúni 10, sími 23560. STAÐAR NEM! Öll hjól eiga að stöðvast algerlega áðuren að stöðvunarlínu er komið. ■ Káre Willoch, forsætisráðherra og formaður íhaldsflokksins og Gro Harlem Brundtland, formaður Verkamannaflokksins, berjast um það hvort þjóðarskútunni skuli stefnt til hægri eða vinstri. Þingkosningarnar í Noregi: Stórfyrirtæki og NATO hrædd við vinstrimenn ■ Erlend olíufyrirtæki og bankar í Noregi eiga erfiða daga í vændum nái Verkamannaflokkurinn meirihluta í þingkosningunum í landinu 9. þessa mánaðar. Þá óttast yflrmenn NATO að breytt utanríkisstefna landsins gæti veikt varnarbandalagið. Gro Harlem Brundtland, formaður Verkamannaflokksins, hefur heitið því að minnka umsvif erlendra olíufyrir- tækja í landinu og auka að sama skapi framleiðslu innlendu olíufyrirtækjanna þriggja. Olíupeningarnir yrðu síðan notaðir til að auka samneyslu í þjóðfé- laginu. Vinstri menn ásaka Káre Willoch, forsætisráðherra og leiðtoga íhalds- flokksins, um að hafa skorið niður framlög til heilbrigðismála. Afleiðingin sé mikil bið eftir sjúkrahússplássum. Þá telja þeir ónógu fjármagni varið til málefna aldraðra. Willoch telur það hins vegar ábyrgðarlaust að veita olíu- gróðanum út í hagkerfið, það muni aðeins leiða til meiri verðbólgu. Verð- bólgan er nú 5,7%, en var um 10 prósent árið 1981. Að auki benda þing- nienn borgaraflokkanna þriggja á að samneysla í landinu hafi aukist álíka mikið í tíð samsteypustjórnar borgara- flokkanna og hún gerði meðan Verka- mannaflokkurinn var við völd. Forráðamenn Verkamannaflokksins hafa einnig lagt mikla áherslu á nauðsyn þess að skapa ný atvinnutækifæri í landinu og vilja að stofnaður verði sérstakur sjóður til þess. Atvinnuleysi er þó með því minnsta sem þekkist í Evrópu, aðeins um 2,5 prósentustig. Vinstri menn hafa nú fallið frá áform- um um að þjóðnýta banka landsins, sem þeir hétu að gera í kosningunum fyrir fjórum árum. Þess í stað vilja þeir minnka áhrif fulltrúa hlutabréfahafa í stjórnum bank- anna með því að skipa fulltrúa flokk- anna í þær. í tillögum þeirra er gert ráð fyrir að þriðjungur stjórnarmanna yrði kjörinn af starfsmönnum, annar þriðjungur af hluthöfum og hinir af ríkisvaldinu. í utanríkismálum aðhyllist verka- mannaflokkurinn þá stefnu að lýsa Nor- eg kjarnorkuvopnalaust svæði, með þeim skilyrðum þó að bæði risaveldin myndu virða þá yfirlýsingu. Þá er Verkamannaflokkurinn andvígur nú- verandi stefnu NATO um meðaldrægar kjarnorkueldflaugar, þótt svo engum hafi verið komið fyrir í Noregi. Hægri menn hafa lýst yfir að þeir muni halda fast við óbreytta stefnu í efnahagsmálum, fái þeir umboð kjós- enda til að stjórna áfram næstu fjögur árin. Borgaraflokkarnir hafa afnumið ýmis höft á fj ármálaviðskipti og beitt sér fyrir stofnun lánamarkaðar sem lýtur lögmálum framboðs og eftirspurnar. Greiðslu- og vöruskiptajöfnuður við útlönd er nú mjög hagstæður og velferð þegna Noregs er meir en nokkru sinni fyrr. En hvernig fer svo í kosningunum á mánudag? Skoðanakannanir benda til að mjög mjótt verði á mununum. Ótrú- legt þykir að Verkamannaflokkurinn nái hreinum meirihluta, en hann hefur nú 66 af þeim 155 þingmönnum sem sitja á norska Stórþinginu. Brundtland formaður myndi því líklega þurfa að leita til frjálslynda flokksins og flokks vinstri sósíalista um stuðning við mynd- un stjórnar. íhaldsflokkurinn er nú, stærsti stjórn- málaflokkurinn með 53 þingmenn, en auk hans mynda Kristilegi flokkurinn og Miðflokkurinn núverandi stjórn. Kristi- legir hafa 15 þingmenn og miðjumenn 11. Þessir flokkar hafa lýst yfir áhuga á frekara stjórnarsamstarfi en kjósendur hafa síðasta orðið þar urn. (Byggt á Reuter og Economist) Sovétríkin: Þrælkunarbúðir fyrir kirkjurækni Stokkhólmur-Reuter ■ Ukraínubúinn Josyf Terelia, sem mjög hefur barist fyrir mannréttindum í Sovétríkjunum, hefur verið dæmdur í sjö ára þrælkunarbúðir og fimm ára útlegð fyrir starf á vegum kaþólsku kirkjunnar í Úkraínu. Það var hópur sovéskra útlaga í Stokkhólmi sem skýrði frá þessu. Terelia, sem er 43 ára, hefur áður verið í þrælkunarbúðum í 18 ár fyrir afskipti sín af trúmálum. Hann var forsvarsmaður hóps sem barðist fyrir rétti kirkjunnar og safnaðarmeðlima í Úkraínu, en kaþólska kirkjan er bönn- uð þar. Terelia gaf út 10 eintök af neðanjarð- arblaðinu „Samizdat“, þar sem fjallað hefur verið um sögu kaþólskunnar í Úkraínu. Persaflóalönd: Átelja írana fyrirskortá friðarvilja Riyadh-Rcutcr ■ Aðildarlönd Samvinnuráðs Persaflóa átöldu írana harðlega á fundi sínum í gær, fyrir að hafa sýnt tilraunum til að binda enda á stríð þeirra og íraka lítinn áhuga. í sameiginlegri yfirlýsingu utanríkisráðherra Saudi-Arabíu, Kuwait, Bahrain, Qatar, Oman og Sameinuðu furstadæmanna, sagði að Samvinnuráðið mundi láta einskis ófreistað til að ná frani friðsamlegri lausn á stríð- inu. Það hefur nú geisað í nær sex ár. Á næstunni munu fulitrúar Samvinnuráðsins og Efnahags- bandalags Evrópu hittast til að ræða möguleika á efnahags- og viðskiptasamvinnu. í fyrra setti Efnahagsbandalagið 13,4% toll á nokkrar útflutningsvörur Saudi- Arabíu og önnur lönd við Persa- flóa óttast að Efnahagsbandalag- ið muni setja samsvarandi toll á útflutningsvörur þeirra.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.