NT


NT - 04.09.1985, Side 7

NT - 04.09.1985, Side 7
Miðvikudagur 4. september 1985 7 Útlönd Verkfalli blökkumanna í Suður-Afríku lokið Jóhannesarborg-Rcutcr: ■ Verkfalli blökkumanna í námum Suður-Afríku lauk í gær og verkalýðsleiðtogar hvöttu námumenn til að mæta aftur til vinnu í dag. Verkfallið hófst á mánudag, en þátttaka í því var heldur dræm. Fyrri dag verkfallsins tóku aðeins um 28 þúsund manns þátt í því og síðari daginn var tala verkfallsmanna komin nið- ur í 10 þúsund. Um 160 þúsund blökkumenn eru í verkalýðsfé- lögum, en talið er að rúmlega hálf milljón vinni í námunum. í yfirlýsingu verkalýðsfélags- ins sagði að verkfaílið hefði verið afboðað vegna þess að atvinnurekendur hefðu hótað að reka blökkumenn úr vinnu. Þá hefðu atvinnurekendur ætlað að kasta blökkumönnum út úr búðum sínum og neitað að gefa þeim að borða. í gær sakaði verkalýðsfélagið námaeigendur um að reyna að koma af stað illindum. Tals- menn félagsins sögðu að sums staðar hefðu blökkumenn verið neyddir til að vinna með vopna- valdi. Þrátt fyrir að verkfallinu lyki í gær hélt gjaldmiðill Suður-Afr- íku, rand, áfram að falla í verði á alþjóðamörkuðum. Það var metið á 45,50 bandarísk sent í gærmorgun, en var komið niður í 42 sent er markaðir lokuðu. ^r—NEWS IN BRIEF-] Reuter September 3rd L ■ WASHINGTON - ^ The United States wel- ^ comed Soviet leader Mikhail Gorbachev’s statement that he was prepared to submit serious proposals to improve sup- erpower relations at his meeting with President Reagan in November. • SIDON, Lebanon - A su- icide bomber rammed a car packed with explosives into a Pro-Israeli militia post in South Lebanon, killing himself and killing or wounding eight civili- ans and militiamen, secur- ity sources said. S Svíar afselta grískt eyjavatn með skipum frá meginland- inu. Svíar hyggjast nota af- gangsorku frá díselrafstöð- um til að afselta sjóinn. Af- seltunaraðferð Svíanna er sögð hafa ýmsa kosti. Það þarf t.d. ekki að hita sjóinn upp í suðumark eða að nota lágþrýstiklefa til afsöltunar- innar. Tækjabúnaður allur er úr plasti sem ekki tærist. ATHENS - About eighte- en British tourists, some of them deaf and dumb, were injured when a man threw two hand grenades, j, shattering windows at the- s ir hotel in the seaside res- ^ ort of Glyfada, near CQ Athens, police said. § s BONN - West Germany’s opposition parties failed in a bid to oust the Interior Minister in a stormy parli- amentary debate on the country’s spy scandal after Chanccllor Helmut Kohl bluntly rejected their demands. • EDWARDS Air Force Base, California - The U.S. space shuttle Disc- overy landed smoothly just before dawn, ending a mission that included dar- ing space-walk repairs of a disabled satellite and put thrce communications sa- tellites into orbit. LONDON - Millionaire novelist and former member of parliament ■y Jeffrey Archer was named n Deputy Chairman of ^ Britain’s ruling Conser- vative Party in a drive to liven up its image and win back lost support. • | LA PAZ - Strikcs spread across Bolivia as labour I leaders prepared to study I calls for an indefinite gen- eral strike in protest at I tough economic measures I against fíve-figure inflat- ion. • , GENEVA - Scientists 1 have little hope of fínding |a rapid cure for AIDS and the death rate from ' the virus well be far higher ^ than generally accepted, Uj the World Health Org&n- Cc isation (WHO) said. CQ • ^ MONS, Belgium NATO’S Supreme Allied Commander in Europe, Lu General Bernard Rogers, ^ renewed his call for the United States to produce modern chemical weapons and said he wanted better political guidance on their use. I • DUSSELDORF, West I Germany - A member of | the soviet trade mission to West Germany went on I trial accused of industrial ■ espionage for the Soviet secret service, the KGB. | • . BRUSSELS - Champa- igning for an early general I election in Belgium began | in earnest after King Bau- douin last night granted a I government request for jimmediate dissolution of _ parliament. NEWSINBRIEF ■ Sænska þróunarfyrirtæk- ið, SU, hefur undirritað samning við tækni- og þróun- arráðuneyti Grikklands um að setja upp verksmiðju til að afselta sjó í gríska eyja- klasanum með sérstakri afseltunaraðferð sem Svíar hafa fundið upp. Mikill skortur er á fersku vatni á grískum eyjum og flytja margar þeirra vatn ■ Um tvær milljónir manna, aðallega böm, dvelja nú í hjálparbúðum á hungursvæðunum í Eþíópíu. Þar hafði ekki rignt í langan tíma þar til í sumar og það vatn var þegið með þökkum. Eþíópía: Aðstoð við bág- stadda þökkuð Addis Ahaba-Reutcr: ■ Mengistu Haile Mariam, leiðtogi Eþíópíu, þakkaði er- lendum aðilum fyrir aðstoðina sem þeir hafa veitt íbúum á hungursvæðum landsins og sagði að hún hefði bjargað milljónum manna frá hungur- dauða. Mengistu lét þessi orð falla á mánudag á fundi miðstjórnar verkamannaflokks landsins, sem fer með stjórn þess. Síðan í október hefur um 900 þúsund tonnum af gjafa- korni verið dreift til hinna 7,5 milljóna íbúa á hungursvæðun- um. Þá sagði Mengistu að um tvær milljónir barna dveldu nú í hjálparbúðum, sem alþjóða- stofnanir hefðu komið á fót í landinu . Stjórnvöld í Eþíópíu hafa að auki keypt kornvörur fyrir um 62,8 milljónir Bandaríkja- dollara (jafnvirði 2,6 milljarða ísl. kr.) Um 500 þúsund manns hafa flutt búferlum frá hungursvæð- unum í norðurhluta landsins Sveigjanleiki í við- ræðum um geimvopn Moskva-Washington-Reuter: ■ Bandaríski öldungadeild- arþingmaðurinn Robert Byrd, sagði í gær eftir fund sinn og nokkurra annarra öldunga- deildarþingmanna með Mikhail Gorbachev, leiðtoga Sovétríkj- anna, að sér virtist sem Gorbac- hev væri reiðubúinn til að sýna sveigjanleika í viðræðunum um geimvopnaáætlun Bandaríkj- anna á fundi sínum með Ronald Reagan, forseta, í Genf í nóvember. Byrd sagði að Gorbachev væri tilbúinn til að leggja fram róttækar tillögur um fækkun meðaldrægra og langdrægra kjarnorkueldflauga, ef Banda- ríkjamenn vildu hætta við geim- vopnaáætlun sína. Þá sagði öldungadeildarþingmaðurinn Sam Nunn að Gorbachev gerði sér fulla grein fyrir því að ómögulegt væri að aðskilja vís- indalegar tilraunir í geimnum frá geimvopnaáætluninni. Fund öldungadeildarþing- mannanna með Gorbachev ber upp á sama tíma og viðtal viö leitogann í bandaríska vikurit- inu Time var gert heyrinkunn- ugt. Það er fyrsta viðtalið sem birtist við Gorbachev frá því að hann tók við völdum fyrr á árinu. í viðtalinu segir Gorbachev að svo virðist sem Bandaríkja- stjórn líti ekki fyrirhugaðan fund í Genf sömu augum og hann geri. Hann telji ástand heimsmála nú mjög varhugavert og á fundinum muni gefast kjör- ið tækifæri til að bæta samskipti stórveldanna. Larry Speaks, talsmaður stjórnarinnar í Washington, segir að Gorbachev fari með rangt mál, því Bandaríkjastjórn sé tilbúin til samninga við Sovét- menn. til frjósamari svæða og gert er ráð fyrir að um 200 þúsund flytji næsta ár. í áætlun stjórnvalda er mið- að við að hinir brottfluttu brjóti um 85 þúsund hektara af nýju landi til ræktunar. Þá tilkynnti Mengistu að næsta ár mundi ganga í gildi ný 10 ára áætlun, þar sem kveðið verður skýrar á um þátt sjórn- valda, samvinnubúa og einka- framtaksins í efnahag landsins. Áætlunin þykir benda til þess að stjórnvöld í Eþíópíu hygg- ist hverfa að nokkru frá þeim sósíalisma, sem ráðandi hefur verið frá því stjórn Haile Sel- assie, keisara, var steypt af stóli árið 1974. Má nefna að í henni er m.a. gert ráð fyrir að einkaaðilar geti fengið lánað fjármagn til kaupa á erlendum vélum og tækjum fyrir smá- fyrirtæki sín. Sovétríkin: ■ Gorbachev með hjálm á höfði. Til verndar vopnum úr eeimnum? Kenýa: Landnáms- ráðherra borinn út Nairobi-Reuter ■ Eliud Mwamunga, land- námsráðherra Kenýa, var fyrir stuttu borinn út úr íbúð sinni í Mombasa vegna þess uð hann stóð ekki í skilum við leigusalann. Dagblað í Kenýa birti á sunnudag mynd af ráðherr- anum þar sem hann sat fúll á svip innan um húsgögn sín og heimilistæki á gangstétt- inni fyrir utan heimili sitt. Dómstóll í Mombasa borg hafði áður veitt leigusalan- um leyfi til að henda Mwam- unga út, vegna þess að hann hafði ekki borgað leiguna fyrir íbúð sína.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.