NT - 04.09.1985, Síða 8
Máisvari frjálslyndis,
samvinnu og félagshyggju
Útgefandi: Nútíminn h.f.
Ritstj.: Helgi Pétursson
Ritstjórnarfulltr.: Níels Árni Lund
Framkvstj.: Guömundur Karlsson
Auglýsingastj.: Steingrímur Gislason
Innblaðsstj.: Oddur Ólafsson
Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík.
Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300
Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn
686392 og 686495, tæknideild 686538.
Setning og umbrot: Tæknideild NT.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Kvöldsimar: 686387 og 686306
Sjálfvirkur sími
í sveitir landsins
■ Árið 1981 þegar Steingrímur Hermannsson var
samgöngumálaráðherra voru samþykkt lög á Alþingi
sem kváðu á um að lokið skyldi lagningu sjálfvirks síma
í sveitir landsins.
í þeirri áætlun sem samþykkt var, var reiknað með að
verkinu skyldi lokið á fimm árum eða á árinu 1986.
Þegar var hafist handa um að hrinda áætluninni í
framkvæmd og verkinu miðaði það vel að því verður að
öllum líkindum lokið um áramót, eða ári fyrr en ætlað
var. Verið er að ljúka jarðsímalögnum og setja um
fjölsímabúnað sem síðan verður tengdur við sjálfvirkan
síma landsmanna.
Þessu verki er vert að fagna og taka eftir.
Eitt af því sem skapað hefur aðstöðumun þeirra sem
í sveitum landsins búa og hinna sem í þéttbýlinu eru. í
strjálbýlu landi sem Islandi er síminn afar nauðsynlegt
tæki til að auðvelda samskipti og boðleiðir milli manna
og ekki síður nauðsynlegt öryggistæki sem á að vera
hægt að grípa til hvenær sem er.
Lengi hefur það verið ósk þeirra sem ekki hafa haft
sjálfvirkan síma að fá hann og virðist það langþráða
takmark nú vera í nánd.
Þessi ákvörðun Alþingis var góð en ekki er þar með
sagt að allar ákvarðanir varðandi símakerfi landsins hafi
verið viturlegar. Á þessum árum var einnig rokið til og
farið í að símavæða bílaflota þeirra landsmanna sem á
því höfðu efni. í því máli virðist hafa skort nokkra
framsýni því að öllum líkindum verða þeir sem fjárfestu
í slíkum bílasímum að henda þeim og kaupa aðra þar
sem þeir verða ónothæfir innan tíðar.
Byggja þarf allt bílasímakerfið upp á nýtt og því hefur
þessi skammsýni ráðamanna kostað þjóðina mikið.
En lagfæra þarf fleira í fjölmiðlakerfi landsins. Ennþá
skortir mikið á að dreifikerfi ríkisútvarpsins nái jafnt til
allra landsmanna. Hljóðvarpið næst ekki á F.M. bylgju
hvar sem er og margir njóta ekki sjónvarpsins sem skyldi
vegna lélegra sendinga.
Þessu þarf að bæta úr hið fyrsta því það hlýtur að vera
réttmæt krafa landsmanna að þeir eigi jafnan aðgang að
fjölmiðlakerfi landsins hvort heldur það er sjónvarp,
útvarp eða sími óháð því hvað þeir búa.
Landbúnaðar-
pólitík Jónasar
Kristjánssonar
Liðin er sú tíð að landsmenn hrökkvi við yfir
leiðaraskrifum D.V. um landbúnaðarmál. Enn einn
langhundurinn, studdur jafngildum rökum og áður um
það efni birtist á síðum þess blaðs í gær. Leiðarinn er
skrifaður af ritstjóra þess sem manna fróðastur er um
landbúnaðarmál, sjálfmenntaður í greininni.
Þar kemst fræðimaðurinn enn að þeirri niðurstöðu að
landbúnaðurinn sé og hafi verið baggi á íslenskri þjóð.
Sjaldan er góð vísa of oft kveðin og sé það skoðun
jafn gagnmerks manns og Jónasar Kristjánssonar að svo
sé, er það ábyrgðarhluti að koma henni ekki á framfæri.
Cató hinn gamli endaði allar ræður sínar á því að
leggja til að Karthagó yrði lögð í rúst. Ekki er útséð
ennþá hvort ritstjóra D.V. tekst það ætlunarverk sitt að
telja þjóðinni trú um að landbúnaðurinn sé höfuðmein-
semd íslensks efnahagslífs, og sárt væri það fyrir þann
sama mann ef hann næði ekki markmiðum sínum í þeim
efnum.
Miðvikudagur 4. september 1985 8
Vettvangur
Sigrún Magnúsdóttir:
Éger-égget-
égverð-égvil
Framsöguræða um framboðsmál á
f undi Landssambands f ramsóknarkvenna
■ Sigrún Magnúsdóttir.
■ ÉG ER - ÉG GET - ÉG
VERÐ - ÉG VIL.
Voru einkunnarorð sem
Landssambandið gaf okkur til
hvatningar. Fyrir nokkrum
dögum heimsótti ég eina aldna
framsóknarkonu, sem þessi
brýningarorð gætu átt við.
Engri framsóknarkonu hefur
tekist ennþá að feta í fótspor
hennar. En fyrir 40 árum setti
hún sér markmið og tókst að
framfylgja þeim. Einnig sýndi
hún sérstakt afrek að fara í
háskólanám á fimmtugsaldri.
Sérstaklega í þá daga.
Hún bað að skila sérstaklega
góðri kveðju til ykkar allra. Ég
þarf tæplega að taka það fram
að ég á hér við Rannveigu
Þorsteinsdóttur.
Ég vil nú beina þessum brýn-
ingarorðunum til okkar hér í
dag og segja:
VIÐ ERUM - VIÐ GET-
UM - VIÐ VERÐUM - VIÐ
VILJUM.
HVAÐ ERUM VIÐ?
Við erum ung og tiltölulega
fámenn Landssamtök fram-
sóknarkvenna.
Við erum ákveðnar að berj-
ast fyrir framgangi Framsókn-
arflokksins.
Við erum samtök sem unnið
hafa geysimikið og gott starf
síðustu árin og aukið hlut
kvenna í flokknum mikið.
Við erum í samtökum sem
hafa vakið athygli á sér m.a.
með frábæru námskeiðahaldi.
Við erum með fræga sam-
þykkt í fórum okkar. Húsavík-
ursamþykktina.
Við erum bundnar af stórum
orðum og kröfum.
Við erum núna skyldugar að
standa við þau og hefja fram-
kvæmdir.
Við erum lítt áberandi í
sögu flokksins og næstum ó-
sýnilegar í sögu þingflokksins.
Við höfum ekki átt nema einn
fulltrúa í þingflokkum, Ran-
veigu Þorsteinsdóttur.
Við erum stundum óánægð-
ar í flokknum og nöldrum þá í
köllunum.
Við erum ákveðnar að
stefna að jafnri hlutdeild karla
og kvenna í flokknum. Svo og
á framboðslistum hans.
Við erum vanari en karlar
að vinna saman á bak við og
hafa stuðning hvor af annarri
og þess vcgna erum við
kannski ragari í baráttunni um
toppsætin.
EN HVAÐ GETUM VIÐ?
Við getum brotið blað í
framboðsmálum og gert okkur
sýnilegar líkt og Rannveig
gerði fyrir tæpum 40 árum.
Við getum hætt að nöldra í
köllunum (enda litill ávinning-
ur) og farið að vinna hlutina
eftireigin framkvæmdaáætlun.
Við getum orðið fjölmenn
samtök og t.d. sett okkur þau
markmið að fimmfalda félaga-
tölu okkar í vetur. Hver félagi
fær það verkefni að koma með
fimm nýja félaga. Mætti hugsa
sér að veita viðurkenningu.
Við getum haldið áfram að
efla konur með námskeiða-
haldi og styrkja þannig sjálfs-
traust þeirra og gera þær færari
í baráttuni.
Við gfctum stofnað kvenna-
miðstöð niður á Rauðarárstíg og
ra'ðið starfsmann allan daginn
í samvinnu við F.F.K. Við í
stjórn F.F.K. ákváðum á fundi
í vikunni að engin ávöxtun á fé
væri betri en sú sem stuðlaði
að framgangi framsóknar-
kvenna og eflingu flokksins.
■ Nokkrar landsþingskonur við nefndarstörf.
Fullir undir stýri
valda æ fleiri slysum
■ Það er ekki að ástæðulausu
að oft er fjallað um bílaumferð
og aksturslag á íslandi í bæjum
og á þjóðvegum. Bílaeign er
orðin svo almenn hér á landi,
að hún mun hvergi í heiminum
vera öllu meiri, sé miðað við
höfðatölu. Sem að líkum lætur
aukast umferðaróhöpp og slys
við fjölgun bíla og meiri
akstur.
Svo oft er búið að tíunda
þær hörmungar og eignatjón
sem af umferðarslysum verða
að það mun vera að bera í
bakkafullan lækinn að fara
með þá þulu, enda er hún
óskemmtileg.
En greinilegt er að ein teg-
und umferðarslysa eykst jafnt
og þétt, sem auðvelt ætti að
vera að komast hjá. En það
eru slys sem ölvaðir ökumenn
valda.
Óhugnanlegar tölur
Á vegum dómsmálaráðu-
neytisins hefur verið tekin
saman skýrsla um ölvunarakst-
ur, og birt hefur verið í
blöðum. Gerir lítið til þótt
farið sé yfir þá svörtu skýrslu
oftar. Þar kemur í Ijós að á
fyrri hluta þessa árs hafi orðið
veruleg aukning á bílveltum
og útafakstri, sem valdið hafa
slysum á mönnum. Á árunum
1981—84 voru þess konar slys
að meðaltali 56 á ári. í ár eru
þau orðin 104 og í Ijós hefur
komið að þriðjungur þessara
slysa er vegna þess að öku-
menn hafa keyrt ölvaðir.
Einnig kemur í ljós að kærur
til lögreglunnar hafi verið 58
fleiri á þessu ári en á sama tíma
í fyrra. í höfuðborginni hefur
umferðaróhöppum sem ölvað-
ir menn hafa valdið fjölg-
að úr 69 í 82. Sambærilegar
tölur hafa einnig verið teknar
saman úr nágrannabyggðun-
um.
Dómgreindarskortur
Hér þarf ekki vitnanna við.
Fleiri og fleiri ökumenn leggja
það í vana sinn að setjast
drukknir undir stýri. Maður
hlýtur að álykta að þessi hættu-
legi dómgreindarskortur stafi
af drykkjunni. Því ættu menn
ekki að treysta því þegar sest
er að drykkju að þeir snerti
ekki bíla sína fyrr en af þeim
er runnið og verstu timbur-
menn um garð gengnir. Þegar
farið er til gleðskapar sýnist
öruggasta ráðið að skilja bíl-
ana eftir heima, og lyklana að
þeim í góðri geymslu fjarri
vösum þeirra sem hefja áfeng-
isdrykkju.
Undanfarnar vikur hafa
birst í NT greinar og fréttir um
ölvunarakstur og hafður uppi
áróður gegn slíku athæfi. Ekki
sýnist veita af og vonandi hefur
þetta einhver áhrif til hins
betra.