NT - 04.09.1985, Qupperneq 17
Miðvikudagur 4. september 1985 17
Frábært
popp
Propaganda -
A Secret Wish
■ í fyrra var ár Frankie Goes
To Holiywood. Það hefur lítið
borið á þeim í ár, en í staðinn
býður ZTT-fyrirtækið, sem gaf
út Frankie, upp á þýsku hljóm-
sveitina Propaganda. í henni
eru tvær stúlkur önnur þeirra
gift Paul Morley öðrum aðal-
manni ZTT-fyrirtækisins, og
tveir piltar, sem báðir hafa kom-
ið við sögu þekktra þýskra
hljómsveita eins og Die Krupps.
Nú er komin stór plata frá
Propganda, sem ber nafnið A
Secret Wish. Á henni eru 9 lög
hvert öðru betra. Platan hefst á
rólegu og draumkenndu lagi
þar sem trompet leikur aðal-
hlutverkið, og Claudia Brucken
söngkona talar textann fremur
en syngur. Næsta lag heitir The
Murder Of Love og er grípandi
og skemmtilegt. Síðast á hlið
eitt er lagið Duel/Jewel, sem
var sýnt í sjónvarpinu nýlega og
gefur hinum lögunum tveimur
ekkert eftir.
Hlið 2 hefst á laginu P-Mac-
hinery, sem mun verða næsta
smáskífa Propaganda, ogeinnig
frábært lag. Pannig er hægt að
halda áfram með alla hlið 2
Petta eru allt saman mjög góð
lög, þám. Dr Mabuse sem kom
út á smáskífu í fyrra.
Hljómurinn á þessari plötu er
frábær. Þeir sem hafa heyrt
Sæmilega
áheyrilegt
Fásinna -
Fásinna
■ Nýjasta framlag austfirskra i
til rokksins heitir Fásinna. Þessi [
hljómsveit hefur orðið sigursæl
í ýmsum keppnum hér og þar
um landið og uppskorið töluvert
af stúdíótímum í verðlaun. Ár-
angurinn er á þessari 6 laga 45
snúninga plötu frá Mjöt.
Samkvæmt plötunni er vísasti
vegurinn til að vinna sigra í
hljómsveitakeppnum að vera
með rokkhljómsveit. Fásinna
er rokkhljómsveit af þeirri teg-
und sem átti sitt biómaskeið
upp úr 1970 með sveitum eins
og Led Zeppelin, Genesis, Pink
Floyd, Yes og King Crimson.
Nútíma arftakar þessara hljóm-
sveita úti í heimi eru t.d. Maril-
lion, U2 og Saga. Hér á landi er
það Fásinna. Þetta er þokkaleg
hljómsveit á sínu sviði, en á að
vísu sínar slæmu stundir. Þar
ber fremst í flokki að telja Hitt
lagið, sem er kannski hittlag
eða smellur, en þjónar varla
miklum öðrum tilgangi. Fyrri
hlið plötunnar er sæmilega
áheyrilegHögin Gestur og gæs
og Hvað er hinumegin eru ágæt.
Lögin Spurningar og kannski
svör og Hvar er heima á hlið 2
eru líka sæmileg.
Söngurinn er mjög í ætt við
þann söngstíl sem iðkaður var á
fyrri hluta 8. áratugarins. Þetta
er hetjulegur og ungmenna-
félagslegur söngstíll, sem hæfir
vel þeim þungu og alvarlegu
pælingum um lífið og tilveruna
plötur með Frankie Goes To
Hollywood (hver hefur það
ekki) kannast við þennan
hljóm, tæran, fágaðan og glæsi-
legan. Að mínu áliti er Propa-
ganda jafnvel enn betri en Fran-
kie Goes To Hollywood . Þau
hafa upp á fleiri góð lög að
bjóða, það eru mun jafnari gæði
á þessari plötu heldur en Wel-
come To The Pleasure Dome.
A Secret Wish er ein af þess-
um plötum sem bera mark síns
tíma og vísa fram á veginn.
Platan ber þess skýr merki að
vera gerð árið 1985, hún nær
hljómi og tilfinningu tímans.
Hún sýnir líka að þýskar hljóm-
sveitir eru með þeim allra fram-
sæknustu í dag. Nú er hægt að
tala um þrjár þýskar hljómsveit-
ir sem mjög áhrifaríkar í nú-
tímatónlist það eru Kraftwerk,
DAF og Propaganda.
Tonlist Propaganda er vönd-
uð og grípandi popptónlist, gerð
með synthesizerum og effekt-
um. Þetta er án efa ein af
plötum ársins.
Enn sem komið er hefur Zang
Tumn Tumb fyrirtækið ekki
misstigið sig, heldur sent frá sér
hvert meistaraverkið á fætur
öðru. Það ber að þakka.
(9 af 10) ÁDJ
sem hljómsveitin er í. Hljóð-
færaleikur er allur með miklum
ágætum, það er jú eitt helsta
hlutverk hljómsveita af þessu
tagi að halda uppi merki góðs
hljóðfæraleiks.
Samanborið við frumraunir
ýmissa annarra hljómsveita af
landsbyggðinni, s.s. Bara
flokksins og Dúkkulísanna þá
er hér ekki um mjög sannfær-
andi frumraun að ræða. Ástæð-
an er sú að hljómsveitin er of
langt frá uppruna rokksins. Það
vantar einhvern kraft eða neista
til að trúa því að mönnunum
liggi verulega mikið á hjarta.
Tradisjónin sem þeir vinna í,
tradisjón rokkdíósáranna frá
70-75 er líka sérlega erfið
viðfangs, flestir eru sammála um
að þá hafi rokkið komist lengst
frá uppruna sínum og lengst frá
áhorfendum. Aðaláhersla var
lögð á tækni og gæði, en sálin
vildi gleymast.
Þegar allt er tekið með í
reikninginn verður þó að gefa
Fásinnu sæmilega einkunn fyrir
plötuna, því ýmislegt er vel og
skemmtilega gert. En aðalgall-
inn liggur einfaldlega í tónlistar-
stefnunni sem þeir hafa valið
sér
(6 af 10) ÁDJ
Gamlir
og góðir
OMD - Crush
■ Hljómsveitin OMD eða
Orchestral Manoeuvres in The
Dark var stofnuð einhverntím-
ann í kring um 1977 og er því
orðin 8 ára. Hún varð fyrst fræg
með laginu Electricity, sem var
eitt fyrsta lagið í tölvupoppstíl.
Á eftir fylgdu stóru plöturnar
Organisation og Architecture &
Morality, sem báðar þóttu mjög
góðar og tryggðu stöðu hljóm-
sveitarinnar sem einnar fremstu
tölvupoppsveitarinnar.
Ferill hljómsveitarinnarsíðan
þá hefur verið nokkuð skrykk-
jóttur. Hljómsveitin gerði eina
mjög tilraunakennda plötu,
Dazzle Ships, sem var fremur
illa tekið af gagnrýnendum og
almenningi. Þessi plata hefur
þó unnið á með árunum, sérstak-
lega í Ijósi þess að í fyrra sendi
hljómsveitin frá sér slappa
poppplötu.
Nýja platan með OMD heitir
Crush. Platan sýnir að hljóm-
sveitin kann ennþá sitt fag, og
er betri en sú sem kom í fyrra.
Crush er þó ekkert meistara-
stykki það vantar kraftinn og
fegurðina sem kemur fram í
bestu verkum OMD, eins og
Dazzle Ships og Architecture &
Vandað
Sting - Dream
Of The Blue
Turtles
■ Söngvari hljómsveitarinnar
Police, Sting hefur nú gefið út
sína fyrstu sólóplötu. Nefnist
hún Dream Of The Blue Turtles
og heitir víst eftir draumi sem
Sting dreymdi um bláar skjald-
'bökur.
Hljómplata þessi var tekin
upp í stúdíói Eddie Grants á
Barbados í Vestur-Indíum, og
naut Sting aðstoðar fjögurra
bandarískra jassmúsíkanta
Omar Hakims úr Weather
Report, Kenny Kirklands, Dar-
ryl Jones og Branford Marsalis.
Yfirlýst ætlun Stings var að fá
músíkanta með hæfileika til inn-
lifunar og spontanitets þar sem
hæfileikar hans sjálfs liggja fyrst
og fremst á sviði tónsmíða og
skipulagningar. Ætlunin var
semsagt að fá menn sem gætu
bætt Sting upp.
Þessi plata er mjög ólík því
sem var að gerast á fyrstu Pol-
ice-plötunum. Þar réð hvít re-
agge-tónlist ríkjum, ekki alltaf í
hæsta gæðaflokki, en oft
skemmtileg sem popptónlist. Á
síðari plötum hafa Police þróast
í alvarlegri áttir og Synchronic-
ity, sú síðasta var nokkuð góð.
Mér virðist sem þessi sólóplata
sé að nokkru leyti framhald af
henni. Þó er allt yfirbragð ólíkt,
og alls ekki hægt að segja að
Sting sé The Police á svipaðan
hátt og nafn Brians Ferry er
Morality. Crush er fyrst og
fremst samansafn nokkurra
ágætra popplaga, sem þægilegt
er að hlusta á.
Platan hefur á laginu So in
Love, sem er mjög áheyrilegt,
gott ef ekki efni í smáskífu. Þar
á eftir fylgir Secret, sem hefur
heyrst töluvert í útvarpinu, og
er vissulega með skárri lögum
sem þar heyrast. Önnur góð lög
eru t.d. Women III og 88 sec-
onds in Greensboro.
OMD er popphljómsveit.
Sem slíka má bera hana saman
við hljómsveitir eins og Tears
for Fears og China Crisis OMD
er eldri en þær báðar, og frum-
herji. Hljómsveitin er farin að
bera þess merki, það er komin
nokkur þreyta í sköpunina.
OMD heldur þó enn vel í hinar
tvær, og Crush er ekkert síðri
plata en Flaunt The Imperfect-
ion og Songs From The Big
Chair.
(7 af 10)
runnið saman við Roxy Music.
Tónlistin á Dream Of The
Blue Turtles er semsagt sam-
bland af lagasmíðum og söng
Stings og færni bandarísku jass-
leikaranna. Mér finnst þessi
samvinna hafa heppnast mjög
vel að flestu leyti. Lagasmíðar
Stings eru flestar með ágætum,
það eru engin slöpp lög á plötunni
og heildaryfirbragðið sterkt.
Það sem ýmsir gagnrýnendur
hafa fett fingur út í eru textarn-
ir. Þeir fjalla margir um pólitísk
málefni og minna oft á texta
Paul Wellers en eru þó ekki
nærri eins róttækir. Þessir textar
eru gjörólíkir svartsýnistextum
fyrstu ára Police. Það er fjallað
um heróín, námamenn, Rússa
og Bandaríkjamenn. Ég sé ekki
annað en að gott sé að taka á
þessum málefnum, það er sama
hvaðan gott kemur. Aðrir textar
eru hefðbundir ástartextar, sem
fjalla um samband milli fólks á
ýmsan hátt.
í heild má segja að þetta sé
góð plata gaman að hlusta á
hana og kemur nokkuð á óvart,
sérstaklega þeim sem lítið hafa
fylgst með Police í seinni tíð.
Sting er ekkert innantómt
kyntákn, hann hefur líka haus-
inn í lagi.
-ADJ
(8 af 10)
Hjúkrunar-
fræðingar
Stöður hjúkrunarfræðinga við eftirtaldar
heilsugæslustöðvar eru lausar til umsóknar
nú þegar: Staða hjúkrunarfræðings við
Heilsugæslustöðina í Breiðdalsvík. Staða
hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á
Eyrarbakka. Staða hjúkrunarfræðings við
Heilsugæslustöðína á Þórshöfn. Staða hjúkr-
unarfræðings við Heilsugæslustöð Suður-
nesja, Keflavík. Umsóknir ásamt upplýsing-
um um menntun og fyrri störf í hjúkrun
sendist heilbrigðis og tryggingamálaráðu-
neytinu.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
28. ágúst 1985.