NT - 04.09.1985, Page 24

NT - 04.09.1985, Page 24
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddarverða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leiðir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrirábendingu sem leiðirtil bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Sídumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 VuniHcímar- á«lrr>ft a« Hroifinn MRíiftn * ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 ------------------------------------- .•<W' • ■______________•____________________________ Forsætisráðherra kominn heim af ráðstefnu um framtíðarspár: Skuldir þriðja heimsins og viðskiptahalli Bandaríkjanna - helstu áhyggjuefnin auk eyðingar olíulinda og fyrirsjáanlegs matvælaskorts „Það er ómögulegt að greina frá þessum umræðum í stuttu símtali, en þarna voru vísindamenn frá öllum heimshlutum, Kína, Japan, Austur- og Vestur-Evrópu, Bandaríkjunum og Mexíkó, og það var afar fróðlegt að heyra viðhorf þcirra til vanda- mála sem voru til umfjöllun- ar,“ sagði Steingrímur Her- mannsson forsætisráðherra í samtali við NT í gær, en ráð- herrann kom í gær heim frá ráðstefnu í Mexíkó, er fjallaði um framtíðarhorfur og fram- tíðarspár. Forsætisráðherra var boðið til ráðstefnunnar og sat hana ásamt Vilhjálmi Lúðvíkssyni framkvæmda- stjóra Rannsóknaráðsríkisins. Forsætisráðherra sagði að helstu áhyggjucfni rnanna hefðu verið skuldabyrði þró- unarríkjanna, viðskiptahalli Bandaríkjanna og áhrif hans á hagþróun hins vestræna heims, eyðing skóga í heimin- um og orkumál í ljósi þess að því er spáð að öll olía í heimin- um verði uppurin innan 100 ára. Ein afleiðing þess er talin verða mikil verðhækkun olíu þegar á næsta áratug. f>á er spáð vaxandi matvælaskorti í heiminum á næstunni. Steingrímur Hermannsson sagði að á hinn bóginn hefði stungið nokkuð í stúf bjartsýni kínversku fulltrúanna en þar í landi er spáð hvorki meira né minna en 20% hagvexti á þessu ári. f>á hefði verið einkar fróðlegt að heyra Japanana lýsa því sem þeir teldu for- Togarinn Sölvi Bjarnason sleginn Fiskveiðasjóði: Eigum sið- ferðilegan forkaupsrétt ■ Fiskveiðasjóður var eini að- ilinn sem bauð í togarann Sölva Bjarnason BA, á seinna upp- boði á togaranum hjá sýslu- manni Barðastrandarsýslu í gær. Varsjóðnumsleginn togar- inn á 146 milljónir króna, sem er sarna og vátryggingaverð togarans. Krafa Fiskveiðasjóðs á hendur eigcndum togarans var 172 milljónir. Undanfarin ár hefur togarinn veriö gerður út frá Bíldudal og eru heimamenn mjög áfram um að kaupa togarann af Fiskveiða- sjóði. Um síðustu helgi var haldinn stofnfundur almenn- ingshlutafélags til kaupa á tog- aranum og verður framhalds- stofnfundur haldinn í kvöld þar sem gengið verður frá stofn- samningi félagsins. Að sögn Magnúsar Björnssonar. skrif- stofustjóra Fiskvinnslunnar á Bíldudal verða Fiskvinnslan og hreppsfélagið stærstu hluthaf- arnir, en einnig hafa margir einstaklingar sýnt því áhuga að eignast hlut. A stofnfundinum voru 50 manns. Sölvi er eini togarinn, sem hefur verið gerður út frá Bíldu- dal og að sögn Magnúsar eru líkur á að erfitt atvinnuástand skapist nú þegar togarinn hættir að landa í kauptúninu. Sagði hann að Fiskvinnslan hefði gert ráðstafanir þannig að það tekst að brúa september, hinsvegar er óvíst með framhaldið, en Magnús bjóst ekki við að Fisk- veiðasjóður seldi togarann fyrr en eftir fjóra mánuði. Gunnar Páll ívarsson, skrif- stofustjóri hjá Fiskveiðasjóði sagði í gær, að stefnt yrði að því að taka hagstæðasta tilboði sem bærist í togarann. Sagði hann að heimamenn ættu engan for- kaupsrétt. Fari svo að sjóðnum berist ekki nógu hagstætt tilboð, yrði skipið ekki selt. Magnús Björnsson viður- kenndi að heimamenn ættu ekki lagalegan forkaupsrétt en hins- vegar vildi hann meina að þeir ættu siðferðislegan forkaups- rétt. Sagðist liann bjartsýnn á að Fiskveiðasjóður seldi togar- ann ekki öðrum aðilum. Benti hann á ályktun, sem ríkisstjórn- in stóð að, þar senr kveðið er á að miða skuli við að skip sem seld eru á uppboðum vegna þess að þau ná ekki almennum skuldbreytingum, skuli seld inn- an héraðs. Á fjárlögum er ákveðin fjárhæð sem heima- mönnum er gefinn kostur á að fá að láni, til að geta keypt skipin aftur í héraði. sendur fyrir efnahagslegri vel- gengni undanfarinna ára. Áður en forsætisráðherra fór til Mexíkó opnaði hann íslandssýningu sem haldin var í Minneapolis fyrr í sumar. Þar voru m.a. sýndar íslenskar ullarvörur, íslenskar sjávar- afurðir og jafnframt gat þar að líta sýningu á íslenskum Ijós- myndum frá síðustu aldamót- um. Sýningin var haldin að frumkvæði ríkisstjórans í Minnesota. Leiga á íþróttamann* virkjum borgarinnar: 27% hækkun að meðaltali frá l.sept. ■ Leiga fyrir notkun á íþróttamannvirkjum Reykja- víkurborgar hefur verið hækkuð um 27% að meðal- tali fyrir veturinn 1985-86. Þessi hækkun tekur gildi frá og með 1. september. Meðal íþróttamannvirkja sem eru í eigu Reykjavíkur- borgar má nefna Laugardals- höll og gervigrasvöllinn í Laugardal. Áburðarverk- smiðjan: Verkfallið stendur enn ■ „Pað hefur ekkert gerst í málinu enn og ekki hefur verið haldinn samn- ingafundur síðan í síðustu viku,“ sagði Hákon Björnsson forstjóri Áburðarverksmiðj unnar er blaðamaður innti hann eftir verkfallsfréttum úr verksmiðjunni. „Hverjar eru kaupkröf- ur verkfallsmanna?" „Það ber að minnsta kosti mikið á milli þeirra og því sem sáttanefnd hef- ur boðið, þannig að litlar líkur virðast vera á því að þetta leysist á næst- unni.“ „Kemur verksmiðjan til með að stöðvast með þessu áframhaldi?“ „Það eru allar líkur á því ef verkfallið heldur lengi áfram. Áhrifa þess er þegar tekið að gæta verulega, því viðhald og viðgerðir á vélum verk- smiðjunnar liggja alger- lega niðri.“ ■ Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir tekur hér við sérstökum bæklingi úr hendi Ármanns Arnar Ármannssonar en Samtök um bvggingu tónlistarhúss gáfu hann út í tilefni samkeppninnar. Vigdís lét þau orð falla að samkeppni þessi væri gífurlega skemmtileg landkynning því þetta mun vera í fyrsta skipti sem íslendingar bjóða verkefni út til allra arkitekta á Norðurlöndum. NT-mynd: Svenír Samtök um byggingu tónlistarhúss: Efna til samkeppni norrænna arkitekta Gífurlega skemmtileg landkynning, segir forseti íslands íslendinga um fjárstuðning. ■ Samtök um byggingu tón- listarhúss buðu í gær öllum arkitektum á Norðurlöndum til samkeppni um hönnun væntan- legs tónlistarhúss, og er tilgang- ur keppninnar að fá frani sem besta lausn á þessu tónlistarhúsi íslendinga og ráða í framhaldi af því arkitekt hússins. Þrennum verðlaunum verður úthlutað og er upphæðin sam- tals 2,6 milljónir króna og bund- in vísitölu byggingarkostnaðar. Að sögn Armanns Arnar Ármannssonar formanns dóm- nefndar keppninnar og for- manns Samtaka um byggingu tónlistarhúss er samkeppni sem þessi dýrt fyrirtæki en samtökin sæju fyrir endann á fjárútlátum vegna keppninnar. Húsinu hefði verið valinn staður í Laug- ardalnum í Reykjavík. Ármann og fleiri í samtökun- um lögðu áherslu á það á frétta- mannafundi í gær að húsið væri tónleikahús með sveigjanlegum notkunarmöguleikum fyrir flutning tónlistar af öllum gerðum. Gert væri ráð fyrir góðri aðstöðu fyrir upptöku hljóðs og myndar og húsinu ætlað að vera aðsetur Sinfóníuhljómsveitar íslands en að auki ætlað að hýsa hvers konar fundi og ráðstefn- ur. Sérstakur forsagnarhópur hefur í 2 ár unnið á útboðsgögn- unum fyrir norrænu arkitektana og kynnti hópurinn sér hin margvíslegustu tónlistarhús og ennfremur byggjast útboðs- gögnin á starfi dómnefndarsem fulltrúaráð samtakanna fól að gera tillögu um skipan hússins. Dóntnefndin er skipuð 4 arki- tektum, hljómburðarfræðingi, tónlistarmanni og byggingar- manni og ræddu þau við einstakl- inga og hópa úr tónlistarlífinu og kynntu sér aðstæður og gerði dómnefndin síðan tillögur um skipan hússins. Áðalsalur hússins á að rúma 1400 manns en gert er ráð fyrir að hægt verði að stækka salinn út í anddyrið. Sviðið á að verða um 240m' og á pallalyftum svo að hljómsveitargryfja verði til staðar þegar á þarf að halda fyrir óperu og söngleiki o.s.frv. Áð auki er gert ráð fyrir litlum sal sem mun rúma um 300 manns. í>ar sem íslendingar eru ekki milljónaþjóð verður bygg- ingarkostnaði haldið í skefjum en tónlistarlífi á íslandi er nauð- syn á húsnæði hið allra fyrsta og mun því verða leitað til allra um Samtökin eru að hefja skipulega fjáröflun og fyrsta skrefið í henni verður happdrætti. Að sögn Ármanns hefur al- menningur sýnt væntanlegu tónlistarhúsi mikinn áhuga og Gunnar S. Björnsson stjórnar- maður bætti því við að hvergi nokkurs staðar í heiminum væri eins alrnenn þátttaka í tónlistar- lífi heillar þjóðar og á íslandi þar sem kórar, hljómsveitir og tónlistarskólar væru í hverjum kima landsins. Samkeppnisgögn liggja frammi hjá arkitektafélögum allra Norðurlanda en þátttöku- gögn fást hjá trúnaðarmanni dómnefndar Þórhalli Fórhalls- syni hjá Arkitektafélagi íslands, Freyjugötu 41, Reykjavík. Skilafrestur er til 1. niars 1986.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.