NT - 14.09.1985, Blaðsíða 4

NT - 14.09.1985, Blaðsíða 4
14. september 1985 Lamett: Geysisterkt gólfefni ■ Árvík sf. hefur nú hafið inn- flutning á nýju gólfefni sem nefnist Lamett. Efni þetta er framleitt í Svíþjóð nánar tiltekið í Váxjö. Með- eigandi verksmiðjunnar þar er ung- ur íslendingur Tryggvi Magnússon. í blaðaviðtali við hann á dögunum kom fram, að í Svíþjóð hafi verið talað um Lamett sem mestu byltingu í gólfklæðningum frá því linoleum- dúkurinn kom fram á sjónarsviðið. Er blaðamaður NT vildi kynna sér málið hafði Tryggvi farið utan að sinna verksmiðjurekstrinum, en talsmenn Árvíkur þeir Gunnar Brynjólfsson, sölustjóri og Sverrir Einarsson, skrifstofustjóri veittu greiðar upplýsingar um þetta nýja gólfefni. Sterkt Að mörgu leyti líkist Lamett parketi. Það er framleitt úr suðræn- um viði „eukalyptus" sem er harð- pressaður í 6-7 mm þykkar plötur og á báðar hlið^^r þrýst harðplasti. Pressaði viðurpn er um 98% af efnisþyngdinní Ög Lamett er mun þyngra efni en venjulegt parket. Plast er einnig aðeins lítill hlutii efnisins. Lamett hefur gengið í gegnum- miklar gæðaprófanir í Svíþjóð. Til dæmis má nefna prófun á sliti þar sem visst viðnám er látið snúast á fletinum. í þeirri prófun þoldi La- mett 2200 snúninga áður en fór að sjást á því, en venjulegt parket 150-200 snúninga. Út frá þessu má segja aö hið nýja gólfefni sé tífalt sterkara en parket. Lamett fékk einnig bestu mögulegar einkunnir í hálkuprófun, hörkuprófun, upplit- unarprófun, í þoli gegn kemiskum efnum og brunaprófun. Ekkert sást á efninu þótt sígaretta brynni upp á því. Fjöldi gerða Þegar hafa komið til landsins tvær nýjustu gerðir af Lamett og tólf eru á leiðinni. Gerðirnar verða því fjór- tán íbyrjun. Má þarnefna viðarlíki, korklíki, hreina og blandaða liti. Liti og mynstur verður einnig hægt að sérpanta ef magnið fer yfir 50 fermetra og fyrirtæki geta jafnvel fengið Lamett með eigin merkjum. Gólfefnið er í þrem stærðum, flísum 38x38 cm og borðum 19x120 cm og 19x241 cm. Eftilvill erstærsti kosturinn við þetta nýja efni, að það er svo harðpressað að það á ekki að hreyfa sig eftir að það hefur verið lagt á gólf, en sá galli hefur fylgt parketinu. Vel mætti því hugsa sér að nota efnið á gólf í sumarbústöð- um eða á aðra þá staði þar sem miklar hitabreytingar eiga sér stað, einnig á fjölfarna staði til dæmis veitingahús og opinberar byggingar. Lamctt llísarnar og borðin eru nótuð á öllum köntum og við lagn- ingu er það heillímt saman. Öflug verksmiðja Verksmiðjan í Váxjö er um 900 fermetrar að stærð og búin mjög fullkomnum og nýtískulegum tækjum. Starfsmenn þar eru aðeins fimm talsins, en ársframleiðslan get- ur orðið um 300 þúsund fermetrar. Þá er aðeins miðað við eina vakt í verksmiðjunni, en til greina kemur að taka upp þrískiptar vaktir og mundi þá ársframleiðslan fara að nálgast eina milljón fermetra. Reyndar mun sala oy eftirspum ráðai mestu um hve framleiðslan verður mikil. Þegar er farið að selja Lamett í Svíþjóð og sala að hefjast í ná- grannalöndunum. í samvinnu við bandaríska risafyrirtækið Formica er nú áætlað að koma framleiðslunni á markað í Hollandi og Englandi strax í haust og í Þýskalandi næsta vor. Einnig eru uppi áætlanir um að koma vörunni á Ameríkumarkað eftir um það bil ár. Formica Eins og áður var getið hefur samvinna tekist með Lamett og Formica. Formica hefur um langan tíma verið stærsta fyrirtækið í harð- plastframleiðslu og rekur verk- smiðjur um allan heim. Til marks um risastærð þessa fyrirtækis mun næststærsta fyrirtækið í þessari grein aðeins ná 1/10 hluta af stærð Form- ica. íslenska fyrirtækið G. Þor- steinsson og Johnson hf. hefur flutt inn Formica harðplast í ein fjörutíu ár. Fyrir tveimur árum var fyrirtæk- inu skipt og varð Árvík þá til og er nú umboðsaðili fyrir Formica vörur hér á landi. Innflutningur er þó fjölbreyttari og ber þar hæst vörur frá fyrirtækinu 3M. Og nú er það sem sagt nýja gólfefnið Lamett sem bætist við í hópinn. Gunnar Brynjólfsson telur að verðið á Lamett verði síst hærra en á parketi yfirleitt. Aðaldreifingaraðili á Lamett verður BYKO.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.