NT - 14.09.1985, Blaðsíða 14
1. Peter Geitel
Erkki Vanhanen
Nissan 240 RS 268 hö.
Pétur og Errki eru báðir reyndir
bílablaðamenn.'Pétur gefur m.a. út
ein stærstu bílablöð Finnlands og
fleira. Þeir komu í Ljómann í fyrra í
ævintýraleit og fundu þau, urðu að
hætta keppni eftir að hafa beygt
hásingu á grjóti og fest í á.
2. Asgeir Sigurðsson
Pétur Júlíusson
Ford Escort 1600 100 hö.
Ásgeir er efstur að stigum til ís-
landsmeistara eftir meistaralegan
akstur en bíllinn fór í öskutunnuna
eftir óhapp á háhraða í síðasta ralli. í
staðinn er fjölskyldubíll kunningja
tekinn á leigu og útbúinn í hvelli.
3. Sakari „Saku" Vierimaa
Tapio Eirtovaara
Opel Manta 2000 GpB 210 hö.'
Saku keyrði Möntuna sína í köku í
þúsund vatna rallinu og er í staðinn
búinn að redda sér öðrum samskonar
bíl. Þeir Tapio eru vanir rallkarlar og
íslendingunum eflaust skæðir.
4. Chris Lord
Birgir Viðar Halldórsson
Audi Quattro 360 hö.
Nær hvert mannsbarn veit nú hvað
Quattro er, einn öflugasti rallbíll
heims. Chris er m.a. með þeim efstu
í Bretlandsmeistarakeppninni, skrif-
ar líka í blöð. Birgir leggur til reynslu
og þekkingu á íslandi.
5. Eiríkur Friðriksson
Práinn Sverrisson
Ford Escort RS 2000 180 hö.
Eiki kokkur er að vanda með Þráni
barþjóni á góðum Escort sem vanur
er að vinna. Eika finnst mest gaman
að „pedalímetal" sem verður að spara
til að klára.
6. Ríkharður Kristinsson
Atli Vilhjálmsson
Toyota Corolla GT 1600 150 hö.
Rikki og Atli unnu það afrck að ná
þriðja sæti í Ljómanum tvö ár í röð á
heimasoðinni Lödu. Nú fyrst með
alvöru bíl, gamla Íslandsmeistarabíl-
inn hans Dóra Úlfars, og ætla alla
leið, fylgist með þessurn.
7. Bjarmi Sigurgarðarsson
Úlfar Eysteinsson
Talbot Sunbeam Lotus2200 250 hö.
Bjarmi rauk upp á stjörnuhimininn
í fyrstu tilraun, en bilanir felldu hann
úr tveim röllum í ár. Þeir Úlfar
veitingamaður takast óhræddir á við
stóra kalla utan úr heimi. Löng röll er
sterka hlið Bjarma.
8. Þorsteinn Ingason
Sighvatur Sigurðsson
Toyota Corolla GT 16 1600 124 hö.
Menn ntuna enn keyrslu Steina og
Hvata í síðasta ralli, Húsavík. Nær
nýr bíllinn er ólíklegur til bilana og
þetta tvennt gerir þá líklega til árang-
urs.
9. Þórhallur Kristjánsson
Sigurður Jensson
Talbot Sunbeam Lotus 2200 200 hö.
Þórhallur hefur ekið undir getu í
sumar, en safnað stigum. Þeir Siggi
Jens eru í öðru sæti til íslandsmeistara
- hvað gerist í Ljómanum?
10. Óskar Qlafsson
Árni Óli Friðriksson
Ford Escort RS 2000 150 hö.
Óskar er jafnaðarökumaður sem
kemur sterkari út eftir því sem röllin
eru lengri. Bíllinn er gamalreyndur
og valt m.a. í síðasta rallykrossi hjá
Árna Óla. Hafa náð langt á úthald-
inu.
11. Birgir Vagnsson
Gunnar Vagnsson
Ford Cortina HH 2000 160 hö.
Hjólbarðahallarbræður eru ómiss-
andi hluti íslenskrar rallsögu. Nú á
bestu rallCortínu heims, smíðaðri
niðri í kjallara. Hún hcldur vonandi
ofurhraða Biggós út, þessa stráka
verðið þið að sjá!
12. Guðnrundur Jónsson
Sæmundur Jónsson
Subaru Justy 4x4 J10 1000
Tvíburarnir hófu einmitt sinn feril
í síðasta Ljómaralli og sýndu mikið
efni. Nýi krílbíllinn þeirra er óbreytt-
ur en með fjórhjóladrifinu yfirgnæf-
andi líkur á að klára.
13. Marjo Salonen
Tuula Karkkulainen
Toyota Corolla Gt 16 1600 160 hö.
Einu konurnar til að keppa við
Helgu konu Ómars Ragnarssonar.
Unnu m.a. dömubikarinn í 1000
vatna rallinu. Hvað verða margir
kallar fyrir aftan þær?
14. Örn Ingólfsson
Halldór Arnarsson
Trabant 600 Nokkur hö.
Vinsælasti rallkappi landsins, Dala-
bóndinn á Trabbanum verksmiðjuút-
búna. „Dali" er gamalreyndur og
lætur ekkert, alls ekkert raska ró
þeirra feðga. Keppir fyrir ánægjuna,
kemur nær alltaf í mark og alltaf
brosandi.
15. Ólafur Sigurjónsson
Halldór Sigurjónsson
Ford Escort 2000
Þessir bræður af Suðurnesjunum
hafa komið frekar á óvart í sumar.
Með látlausum akstri hafa safnast á
þá all nokkur íslandsmeistarastig og
með varkárni þeirra á góðum bíl
koma þeir örugglega vel í mark nú.
16. Júlíus Ólafsson
Franz Jezorski
Lada 1600 120 hö.
Þessi Lada hefur tvisvar kornist
þriðja í mark Ljómans. Júlíus á að
baki kraftmikla Escorta en lætur lítið
á sig fá þótt Ladan sé ekki sú sigur-
stranglegasta í ár.
17. Charlie Nichols
Hilmar Gunnarsson
Talbot Sunbeam Ti 1600 120 hö.
Charlie hefur verið hér meira og
minna síðan í fyrra. Hann rekur
rallbílaleigu heima í Bretlandi þaðan
sem rallbíll Bjarma Sigurgarðarsson-
ar er fenginn. Charlie langar nú að
vera sjálfur með í Ævintýrinu.
18. Bjarni Haraldsson
Þórður Þórmundsson
Mitsubishi Lancer 1600
Lancerinn ódrepandi hefur keppt
frá upphafi ralls á íslandi og í fleiri
ökukeppnum. Keppnisreynsla
Bjarna bliknar í samanburði en þeir
Þórður eiga sannarlega skilið að klára
vel.
19. Helga Jóhannsdóttir
Þorfinnur Ómarsson
Toyota Tercel 4x4 1500
Helga er kona Ómars Ragnarsson-
ar og Þorfinnur sonur þeirra. Meðan
Ómars er ófær um rallakstur vegna
meiðsla halda þau mæðginin uppi
merki fjölskyldunnar. Aðrir kepp-
endur hugsa hlýtt til hennar því
Helga hefur fórnfús stansað og hjálp-
að upp úr.
20. Jón R. Ragnarsson
Rúnar Jónsson
Ford Escort Cosworth 2000 250 hö.
Jón stendur snilldarkarlinum Óm-
ari bróður skammt að baki og er á
fyrsta klassa bíl. Sonurinn Rúnar
stendur pabba sínum líka lítt að baki
í hægra sætinu. Velgja ugglaust út-
lendingunum undir uggum.
21. Þorvaldur Jensson
Pétur Sigurðsson
Lada Sport 4x4
Valdi á mörg söguleg röllin að
baki. Nú er farið á algerlega óbreytt-
um Lada jeppa árg. ’81 frá B og L.
Eins og hinir þrír fjórhjóladrifsbílarn-
ir njóta Valdi og Pétur þess öryggis
að festast ekki á verri leiðuni eins og
Kili eða Fjallabaki.
22. Halldór Gíslason
Karl ísleifsson
Vauxhall Chevette 2300
Chevettan eins og breskra bíla er
vandi hefur mikið bilað og reynt
verulega á taugar ökumanna. Þær eru
þó flestar hláturtaugar og skila þeim
alltaf furðu langt.
23. Daníel Gunnarsson
Valsteinn Stefánsson
Opel Kadett 2000
Kadettinn var einn vinsælasti rall-
bíll Evrópu vegna styrks og endingar.
Það er einmitt það sem þarf til að
klára Ljómarallið. Ökumennirnir
hafa ekki oft komist alla leið, sann-
lega ekki þeirra sök.
24. Hermann Hermannsson
Ragnar Bárðarson
Ford Escort 2000
Bíllinn er settur saman úr búi Jóa
Hlöðverss. og lítur vel út til að takast
á við Ljómann. Þeir Hermann og
Ragnar byrjuðu rallferil sinn í Húsa-
víkurrallinu um daginn.
25. Brynjólfur V. Júlíusson
Ólafur I. Ólafsson
Ford Escort 2000 150 hö.
Borgnesingarnir efnilegu á ágætum
bíl loksins. Eitthvað á líklega eftir að
gerast hjá þeim áður en yfir lýkur ef
dæma má af fyrri röllum þeirra.
26. Sigmar H. Gunnarsson
Mitsubishi Lancer 1600
Sigmar er enn þegar blaðið fór í
prentun kóaralaus. Það ætti að bjarg-
ast svo þessi skemmtilega akandi
Reyðfirðingur komist með. Getur
náð góðri stöðu ef bíllinn heldur út.
27. Michael Reynis
Konráð G. Valsson
Subaru ÆÆ GFT 1600
Michael Reynis fór sína fyrstu ferð
í rallbíl með Hafsteini Aðalsteinssyni
í vor, og er nú kominn sjálfur af stað.
Kóarinn hefur keppt á gamalli Lödu,
nú er það Subaru Ævars og Ægis.
28. Arnar Theodórsson
Gunnar Gunnarsson
Lada 1500 72 hö.
Nýliðar, en rallinu samt ekki
ókunnir, hafa verið viðgerðarmenn
fyrir aðra og Arnar keppt í Rally-
krossi. Bíllinn er af ódýrustu sort og
þarf sjálfsagt að spara til að sleppa í
gegn um þann hildarleik sem Ljóma-
rallið er göntlum standardbílum.
29. Pétur Ástvaldsson
Guðmundur H. Stefánsson
Ford Pinto 2000
Einnig nýliðar, og hafa líka verið
viðgerðarmenn. Pintoinn er fyrsti
ameríski bíllinn á rallslóðum síðan
Camaroinn hans Dóra Úlfars var og
hét. Hann er tekinn beint af götum
bæjarins í slarkið.
SÓLUD
VETRARDEKK
Allar stærðir og gerðir af sóluðum
vetrardekkjum.
Sama ending - 50% spamaður.
Leitið upplýsinga hjá okkur
eiSatflctiJBf
Smiðjuvegi 34
Kópavogi
Skeifunni 11
Reykjavík
Brekkustíg 37
Njarðvík