NT - 14.09.1985, Blaðsíða 6

NT - 14.09.1985, Blaðsíða 6
Spænsk stemmning á El Sombrero ■ Anton við innganginn að staðnum. Með þessu getur fólk bara valið hvað það ætlar að borða mikið og borgað eftir því. Fólk sem vinnur hér í nágrenninu og aðrir sem leið eiga um Laugaveginn, geta nú hlaupið hér inn í hádeginu og fengið sér smáskammt að borða.“ Grísaveislur í vor var boðið upp á grísaveislur á E1 Sombrero. Að sögn Antons heppnuðust þessar veislur mjög vel. Sett voru upp langborð í salnum og grís steiktur á teini í grillinu.Veislu- gestir sátu að kræsingunum í rúmar þrjár kiukkustundir og leikin var spænsk tónlist. Mikil og góð stemmning myndaðist og er líða tók á kvöldin var farið að syngja íslensk lög og nokkrir fengu sér snúning. - Nú er ætlunin að byrja aftur með grísaveislurnar og áætlað er að sú fyrsta verði í byrjun október. Það er mikið að gera hjá Antoni, sinna þarf pöntunum og það er spurt um hann úti í sal. Spjallinu er því að mestu lokið. Hann viður- kennir að mikið sé að gera, öll fjölskyldan hjálpi til á staðnum og hann sjálfur skiptist á að baka pizzur, elda, þjóna á barnum, vaska upp og fleira og fleira. „Auðvitað koma alltaf upp einhver vandamál við svona rekstur, segir hann að lokum,„en hingað til hefur staður- inn gengið bara vel.“ NT-myndir: Sverrir. Rætt við eigandann, Anton Narvaes Hlaðborð í hádeginu „Það nýjasta hjá okkur núna er hlaðborð í hádeginu með heitum og köldum réttum. Gestir velja sér af réttunum og síðan er borgað eftir vikt. Til dæmis kom hér fjöldskylda ein í hádeginu á dögunum og fékk sér að borða. Maðurinn borðaði fyrir 300 krónur, konan fyrir 250 og hvort barnanna fyrir 70 krónur. ■ Starfsfólk við hádegishlaðborðið. ■ Að koma inn á E1 Sombrero á Laugaveginum er eins og að koma inn í annan menningarheim. Boga- myndaðir ljósir veggir, rauðdúkuð borð og meira að segja matarlyktin, allt hefur þetta einhvern suðrænan blæ yfir sér. - Hið sama má segja um gestgjafann sem tekur brosandi á móti okkur. Skyldi maðurinn vera spænskur? Nei, ekki það, suður-am- erískur, já frá Chile. Anton Narvaes heitir maðurinn og hefur nú rekið veitingastaðinn E1 Sombrero í nærri níu mánuði. Við tökum hann tali og spyrjum fyrst um hvernig þetta ævintýri hafi byrj- að Spænsk stemmning „Það var í júní í fyrra sem ég tók húsnæðið á leigu,“ segir Anton. „Þá hafði lengi verið hér efnalaug og garðurinn girtur af á heldur ósmekk- legan hátt með timbri og bárujárni. Ég byrjaði á að rífa niður alla milliveggi og að hreinsa allt drasl út. Síðan var að setjast niður og athuga hvernig ætti að hafa staðinn og skissa þetta upp. Eftir það var bara að hefjast handa og varð þetta geysimikið verk. Öll fjölskyldan tók þátt í þessu bæði konan og börnin. Ég er sjálfur lærður járnsmiður þannig að ég gat gert heilmikið sjálfur. Þó voru fengnir rafvirkjar og pípulagningamenn til að sjá um þau mál. Svo að segja allar innrétt- ingar voru smíðaðar hér á staðnum til dæmis barinn, borðin í salnum og allar hurðir. - Stefnt var að því að hafa salinn í hvítum og svörtum litum, rauðir dúkar á borðum með rauðum blómum í hvítum vösum. Þetta eru mínir litir, þeir skapa vissa stemmningu í salnum, spænska stemmningu eða suður-ameríska. Bogarnir og allar innréttingar eru svona frekar grófar og passa vel í þetta andrúmsloft, hér er enginn lúxus inni, en samt er hlýlegt." „Vinnan við staðinn tók nærri sex mánuði, en 13. desember var svo opnað. Aðsóknin var hæg til að byrja með, en um jólin var orðið hér fullt hús á hverju kvöldi. Síðan hefur staðurinn bara gengið vel.“ Á báti til íslands Anton er fæddur í Chile. Öll fjölskylda hans fluttist til Danmerk- ur og settist að þar. Konu sinni Jónu Þorgeirsdóttur kynntist hann þar og árið 1967 fluttust þau til ísíands. Upp úr 1970 gerðist hann íslenskur ríkisborgari og fékk þá nafnið Anton, en skírnarnafn hans er Antonio. Eftirnafninu Narvaesfékk hann að halda óbreyttu, því á sama tíma varð Ashkenasy íslenskur ríkisborgari og þar var komið for- dæmið. Fjölbreyttur matseðill „Fljótlega eftir að opnað var fór staðurinn að verða vinsæll. Það komu alltaf fleiri og fleiri og við reyndum að gera allt okkar besta til að hafa gestina ánægða. Pizzurnar urðu fljótlega vinsælar, en af þeim bjóðum við upp á yfir tuttugu teg- undir. Síðan bjóðum við upp á ýmsa spænska þjóðarrétti, þar á meðal ■ Á barnuin. Árið 1973 fluttust þau hjónin til Svíþjóðar og starfaði Anton þar við járnsmíðar. í frístundum hófst hann handa við að smíða bát og er líða tók á dvölina í því landinu vann hann að bátnum öllum stundum og gerði hann haffæran. Fyrir um þrem árum var svo lagt upp frá Svíþjóð óg siglt til íslands með fjölskylduna og búslóð innanborðs. Börnin voru nú orðin þrjú. - Er hingað kom full- kláraði Anton bátinn og seldi síðan. Þetta er fjörtíu tonna stálbátur, heitir nú Farsæll og er gerður út frá Grindavík. „Hugmyndin var allan tímann að opna veitingastað," segir Anton, „og ég var búinn að undirbúa það síðan ég kom frá Svíþjóð. í bakhöndinni hafði ég alveg sérstaka uppskrift að pizzudeigi, sem er algjör leyniupp- skrift." Paella og saltfiskréttinn Bacalao. - Grillréttirnir eru líka vinsælir, gest- irnir geta fylgst með úr salnum þegar kokkarnir eru að grilla og þannig er nú einnig með pizzugerð- ina. Ur eldhúsinu er boðið upp á bæði kjöt- og fiskrétti og ljúffenga for- og eftirrétti." „Af barnum er boðið upp á bæði sterk og létt vín, en reglan er hjá okkur að aðeins matargestir fá keypta drykki á barnum. Mest er hér drukkið af hvítvíni og rauðvíni með matnum og mjög algengt er að fólk fái sé „irish coffee“ eftir matinn. Bjórlíkið er einnig á boð- stólum en það er nú að hverfa og ekki má gleyma spænska þjóðar- drykknum „sangria", sem við blöndum hér á staðnum úr ekta hráefnum."

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.