NT - 14.09.1985, Blaðsíða 8

NT - 14.09.1985, Blaðsíða 8
14. september 1985 8 Innanhú ítalskur matseðill ítalskur matur er alltaf mjög góð- ur og þar að auki yfirleitt mjög ódýr og þess vegna mjög vinsæll. Berðu fram seðjandi spaghettirétt sem forrétt. Þá getur þú haft aðal- réttinn léttari og borið fram græn- metisrétt og salat með. Síðan er endað á góðum eftirrétt. Þessi matseðill er auðveldur í tilbúningi og með undantekningu á eftirréttinum (sem bragðast betur ef hann er útbúinn daginn áður) er hægt að matreiða alla réttina eftir að þú ert komin heim úr vinnu. Marineraðu fiskinn, búðu til tó- sjóða brokkálið og spaghettið. Þar á eftir er sósan á spaghettið búin til og áður en þú veist af ertu tilbúin með matinn. Það ætti ekki að þurfa að taka meira en um það bil 1 klukkustund. Allar uppskriftirnar eru fyrir 6. Komið í mat ■ Það er mjög ánægjulegt að eyða kvöldinu með góðum vinum yfir góðum mat og við léttar samræður. En litlir matarpeningar gera manni oft erfitt fyrir. En það er vel hægt að bjóða gestum en fara samt ekki mikið fram úr matarpeningunum. Prófið þessa matseðla sem koma hér á eftir. Fyrst munum við hafa ítalskan matseðil en næstu vikur mun fylgja á eftir franskur sveitamatseðill, kínvcrskur matseðill og síðan einn frá Mið-Austurlöndum . Það eru til margar aðfcrðir til að útbúa góða rétti án þess að hafa mikil peningaráð og hér koma svo nokkur: Notið góð hráefni en lærið að drýgja þau. Hálft kíló af rækjum dugar skammt ef þú ætlar að nota þær í rækjukokkteil fyrir 6 manns, en þetta sama hálfa kíló getur náð langt ef þú steikir þær að kínverskum hætti með grænmeti eða saxar þær saman við spaghettisósu. Þá duga þær vel handa 6 manns. Pottréttir eru líka alltaf vinsælir. Bæði er hægt að nota í þá ódýrara kjöt heldur en í stórar steikur en svo eru þeir auðveidir í matreiðslu. Það er líka hægt að búa þá til í tíma og hita svo upp þegar með þarf. Spaghcttiréttir eru líka alltaf vinsælir. Þú getur gert hvort sem er búið til þitt eigið spaghetti eða keypt það tilbúið. Berðu það fram í sósu sem er bragðgóð en samt ódýr eins og í krabbasósunni í ítalska matseðlinum. Berðu fram óáfengt púns á undan matnum (gestirnir geta komið á eigin bíl) í staðinn fyrir dýra kokkteila. Spaghetti Vongole '/} bolli olía 4 saxaðir hvítlauksbátar 1 lítill laukur, fínsaxaður !4 tsk rauðar piparflögur 1/2 bolii hvítvín (eða inysa) 2 dósir niðursoðinn krabbi, síaður, geymið soðið 1 msk salt 750 gr spaghetti 2 msk olía /i bolli söxuð ný persilla 1/4 bolli niðurrifið brauð, ristað á pönnu. Hitið upp Vi af bolla af olíu á stórri pönnu og látið þar út í hvít- lauk og lauk. Sjóðið laukinn í feitinni en látið hann ekki brúnast. Bætið út í piparflögum, hvítvíni (eða mysu) og soðinu úr krabbadós- unum. Sjóðið við meðalhita þangað til helmingurinn af vökvanum hefur gufað upp. Bætið krabbanum út í og sjóðið í I mínútu í viðbót. Takið af hitanum og hitið varlega upp þegar spaghettið er tilbúið. Látið suðuna koma upp á 6 lítrum af vatni, bætið út í það salti og síðan spaghettinu. Hrærið í og látið það sjóða í 10-15 mínútur þangað til það er soðið en samt stíft. Látið renna af því í sigti. Hristið vatnið vel af og blandið 2 msk af olíu saman við. Leggið spaghettið á stórt hitað fat og blandið krabbasósunni saman við ásamt persillunni og ristaða brauðinu. Berið fram strax. Það er hægt að búa til sósuna daginn áður og hita hana stðan upp rétt áður en á að nota hana. Miðjarðarhafsýsa 6 sneiðar af heilli ýsu unt 3 cm þykkar 14 bolli olía '!4 bolli sítrónusafi 1 tsk salt Skraut: sítrónusneiðar söxuð persilla Raðið ýsunni á stóran flatan disk. Hellið olíunni og sítrónusafanum yfir og stráið saltinu þar á. Snúiö sneiðunum við til þess að lögurinn dreifist vel um þær og látið þær standa minnst 1 klukkustund við herbergishita en lengur í ísskáp. Snúið fisksneiðunum öðru hverju. Forhitið grillið í 10 mínútur. Raðið fisksneiðunum á rist og steikið þær í 6 mínútur á hvorri hlið í um það bil 20 cm fjarlægð frá grillinu. Látið þær á disk og skreytið með sítrónu- sneiðum og persillu. Brokkkál á ítalska vísu 1 stórt búnt brokkkál 3 msk matarolía 1 saxaður hvítlauksbátur Va tsk rauðar piparflögur salt og pipar Va bolli vatn Skerið grófu endana af brokkkál- inu og afhýðið stilkana ef þeir eru stórir og sýnast mjög trefjaðir. Sker- ið síðan brokkkálið í 4-5 cm löng stykki. Það er líka hægt að nota frosið brokkkál en þá er það afþítt áður. Hitið olíuna í nokkuð stórum potti, látið út í hana hvítlaukinn og piparflögurnar. Steikið án þess að það brúnist eða í um það bil 1 mínútu. Bætið brokkkálinu út í og þekið það vel með olíu. Kryddið með dálitlu salti og pipar. Hellið vatninu yfir, setjið lok á pottinn og sjóðið við lítinn hita í 15 mínútur. Það má bæta út í öðrum 14 bolla af vatni ef það sýnist ætla að gufa upp. Smakkið og leiðréttið krydd ef með þarf. Tómatsalat 6-10 tómatar í sneiðum ’/t bolli rauðvínsedik 'A bolli oh'a 1 tsk salí V\ tsk svartur pipar 'A tsk basilikum tsk oregano 2 msk söxuð ný persilla Nokkrum klukkutímum áður en salatið er borið fram cr tómatsneið- unum raðað í salatskál. Hellið edik- inu og olíunni yfir og stráið þar yfir kryddinu. Blandið öllu varlega saman. Geymið við herbergishita í nokkra klukkutíma. Sikileysk ostaterta 1 þykkur tertubotn 500 gr kotasæla 'A bolli sykur 3 msk Cointreau eða annar appel sínulíkjör 'h bolli ristaðar möndluflögur 'A bolli súkkat 'V\ bolli saxað suðusúkkulaði. Skraut: 1 'h bolli rjómi 2 msk flórsykur 2 msk Cointreau eða annar appel- • Spaghetti Vongóle • Grilluð Miðjarðarhafsýsa • Brokkkál á ítalska vísu • Tómatsalat • Sikileysk ostaterta sínulíkjör súkkulaðiflögur eða ristaðar möndluflögur eða jarðarber. Útbúið tertuna daginn áður en á að nota hana ef það er hægt. Ef kakan er ójöfn ofaná er sú ójafna skorin af. Skerið kökuna í 3 eða 4 botna álíka þykka. Látið renna af kotasælunni ef þörf er á og þeytið hana síðan í hrærivél þangað til hún er orðin mjúk og jöfn. Þeytið saman við Oórsykurinn, líkjörinn, möndlurn- ar, súkkatið og súkkulaði. Smyrjið nú ostakreminu á milli laga en ekki ofan á kökuna. Pakkið nú kökunni vel innan í plastfilmu og geymið í ísskáp yfir nótt eða í minnst 1 klukkustund. Nú er rjóminn þeyttur og síðan er þeytt saman við hann sykurinn og líkjörinn. Breiðið á kökuna og hliðarnar. Sprautið afganginum meðfram jaðrinum á kökunni. Skreytið með súkkulaði, ristuðum möndluflögum eða jarðarberjum. Effco þurrkan læknar ekki kvef En það er óneitanlega gott að snýta sér í hana Hún er svo stór og mjúk og særir nebbann ekki neitt. Svo þegar kvefið er batnað getur þú notað afganginn af rúllunni til annarra hluta, eins og t.d. til að þrífa bílinn, bátinn, sumarbústaðinn og svo getur þú að sjálfsögðu notað hana til algengustu heimilisstarfa. Það er eitthvað annað að þrífa með Effco þurrkunni. Hún gerir heimilisstörfin, sem áður virtust óyfirstíganleg, að skemmtilegum leik. Ohreinindin bókstaflega legga á flótta þegar Effco þurrkan er á lofti. Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum og verslunum.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.