NT


NT - 18.09.1985, Síða 7

NT - 18.09.1985, Síða 7
Japanskir karl- menn sækja í snyrtivörur - hylja með þeim þreytu og timburmenn Tokyo-Reuter ■ Ljósir og upplífgandi augnskuggar fyrir þreytta og ósofna karlmenn, and- litsfarði og aðrar snyrtivör- ur sérstaklega ætlaðar karlmönnum njóta nú sí- vaxandi vinsælda í Japan. Japanska snyrtivörufyr- irtækið Kose, sem er fjórði stærsti snyrtivöruframleið- andi í Japan, ákvað fyrir nokkru að setja á markað snyrtivörur fyrir japanska karlmenn þótt leiðtogar fyrirtækisins væru fremur svartsýnir með að þær myndu seljast. En salan hefur gengið vonum fram- ar og nú þegar hefur fyrir- tækið hagnast um sem svarar 170 milljónum ís- lenskra króna af söl- unni. Þess ber þó að geta að sú tala nemur einungis um 3% af heildarhagnað- inum. Önnur snyrtivörufyrir- tæki og eigendur stórversl- ana staðfesta að eftirspurn eftir karlsnyrtivörum eykst nú dag frá degi. Á síðast- liðnum tveimur mánuðum hefur sala á karlsnyrtivör- um aukist um hvorki meira né minna en 110% og margar verslanir hafa nú sérstök söluborð fyrir þær. í>að eru einkum sölumenn og ungir framkvæmda- stjórar á uppleið sem sækja í snyrtivörurnar sem fela þreytumerki og gefa þeim heilbrigt útlit þegar þeir mæta í vinnuna með slæma timburmenn eftir langa og stranga drykkjunótt. Notkunin á snyrtivörum virðist vera aldursskipt að sögn eigenda snyrtivöru- verslana. Varalitur, augn- skuggi, maskari og andlits- farðar höfða fyrst og fremst til karlmanna sem eru þrítugir og yngri en eldri menn nota aðallega ýmiss konar ilmsápur og áburði. Ekkert lát á njósnum: Þýsk hjón flúin til A-Þýskalands Taugastríð milli Breta og Sovétmanna Bonn-Rcuter: ■ V-þýski ríkissaksóknarinn staðfesti í gær að ritari af skrif- stofu Helmut Kohl kanslara hefði leitað hælis í A-Þýskalandi ásamt eiginmanni sínum. Er þessar fréttir berast má segja að njósnahneykslið í V-Þýskaíandi hafi staðið nánast óslitið í sjö vikur. í kjölfar þessa síðasta atburðar verða æ háværari þær raddir sem krefjast afsagnar Zimmermans innan ríkisráð- herra sem er yfirmaður leyni- þjónustunnar. Talsmaður kanslarans, Fried- helm Ost, sagði að hjónin Herta Astrid Willner og Herbert Will- ner hefði verið grunuð um græsku og því verið undir eftir- ■ Á þessari mynd sést Ti- edge, fyrrverandi deildarstjóri í gagnnjósnaþjónustu V-Þjóð- verja, búinn tU þátttöku í kjöt- kveðjuhátíð. Það má líkja njósnahneykslinu þar í landi við allsherjar kjötkveðjuhátíð þar sem enginn veit hvað við tekur. liti. Með einhverju móti var þeim gert viðvart og þau hurfu síðan sporlaust er þau voru í fríi á Spáni. Það að þau skyldu komst undan bætir ekki orðstír v-þýsku leyniþjónustunnar. Herta Astrid Willner starfaði á kanslaraskrifstofunni og fór þar með ýmis leyndarskjöl t.d. varðandi kjarnorkumál og tæknisamvinnu v-evrópskra ríkja. Eiginmaður hennar starf- aði hins vegar á rannsóknar- stofnun er tengist Frjálslyndum demókrötum og er ekki sagður hafa haft aðgang að trúnaðar- málum. Meðan V-Þjóðverjar fylgjast með frekari framvindu njósna- hneykslisins heldur taugastríð Breta og Sovétmanna áfram. í fyrradag tók breska ríkisstjórn- in þá ákvörðun að vísa sex sovéskum borgurum til viðbótar úr landi vegna viðbragða stjórn- valda í Moskvu við upphaflegu brottvísununum. Ekki er ljóst ennþá hvort að máli þessu lýkur án frekari aðgerða eða hvort Sovétmenn muni aftur svara í sömu mynt. En raunir Thatcher eru ekki allartaldar. Breska ríkisstjórnin hefur reynt að fá bannaða út- gáfu bókar í Ástralíu. Höfundur bókarinnar er Peter Wright, fyrrverandi starfsmaður bresku leyniþjónustunnar, en hann er einn nokkurra er halda því fram að hinn látni Sir Roger Hollis hafi verið njósnari á snærum Sovétmanna. Nefndur Hollis var yfirmaður gagnnjósnaþjón- ustu Breta um árabil og lét af störfum árið 1965. Opinberlega hefur Thatcher-stjórnin lýst sekt Hollis ósannaða en eitt- hvað virðist leynast í bók Wright sem ekki þolir dagsins ljós. ,'e\ ■ • Miðvikudagur 18. september 1985 7 Afganistan: Hernaður Sovétmanna miðast við landamæri Islamabad-Rcuter ■ Að sögn vestrænna sendi- manna og afganskra skæruliða hafa Sovétmenn hert mjög sóknina gegn stöðvum skæru- liða í hinu f jalllenda Paktía-hér- ■ Barbrak Karmal forseti stjórnarinnar í Kabúl, sem nýt- ur stuðnings Sovétmanna, hef- ur átt erfitt með að afla stjórn sinni stuðnings meðal lands- manna. aði sem er á landamærum Afganistan og Pakistan. Sókn þessi hófst í síðastliðnum mán- uði og hefur til þessa gengið fremur hægt. Hart er barist í nánd við borgina Khost og í nærliggjandi dölum. Einnighafaboristfregn- ir um síendurteknar eldflauga- árásir á sovéska sendiráðið í Kabul og skotbardaga á lóð stjórnarráðsins þar í borg. Heimildir herma að margir særðir afganskir og sovéskir her- menn hafi verið fluttir til Aust- ur-Evrópuríkja til meðferðar. Ennfremur hefur frést um flutn- ing á gervilimum frá sama heimshluta til Afganistan. Er Barbrak Karmal, forseti stjórnarinnar í Kabúl, fundaði fyrir nokkru með ættarhöfðingj- um sem eru hliðhollir stjórn- inni, þá bað hann þá aðstoðar í að loka algerlega landamærum Afganistan og Pakistan. Jafn- framt gaf hann í skyn að deilur ■ Johannes Rau er talinn einn vinsælasti stjórnmálamaður í V-Þýskalandi um þessar mundir. Sósíaldemókratar hafa ákveðið að setja hann í forystu fyrir flokk sínum í næstu þingkosningum. Vestur-Þýskaland: um réttmæti þessara landamæra kynnu að verða endurvaktar. Pakistanar hafa um árabil veitt afgönskum skæruliðum skjól og þar eru nú hundruð þúsunda flóttamanna frá Afganistan. Frægur hönnuður: Laura Ashley léstí gærdag Coventry-Reuter ■ Höfuðáverki varðþess valdandi að hin sextuga Laura Ashley lést á sjúkrahúsi í Coventry í gær. Meiðslin hlaut hún við fall niður stiga fyrir nokkru. Ashley var með þekktustu hönnuðum í Bretlandi þar sem vefnað- arvara er annars vegar. Mynstur og snið hennar þóttu hafa yfir sér gamal- dags og rómantískan blæ. Laura Ashley hóf störf á fyrrnefndum vettvangi í litlum mæli á heimili sínu fyrir um þrjátíu árum síðan. Frá þeimtímahefur umfang starfsins vaxið með ótrúlegum hraða. Nú ræður fyrirtækið sem ber nafn hennar yfir 180 versl- unum um allan heim og hjá því starfa um 4000 manns. Skömmu fyrir dauða Ashley voru opin- beraðar áætlanir um mikla stækkun fyrirtækisins og þá sérstaklega miðað við Bandaríkjamarkað þar sem Laura Ashley-vörur hafa náð mjög miklum vinsældum. Eftirlifandi eiginmaður og fjögur börn Ashley munu halda áfram að reka fyrirtækið eins og áður. Sósíaldemókratar sækja í sig veðrið Bonn, A-Bcrlín-Reuter ■ V-þýski sósíaldemókratinn Johannes Rau sem er forsætis- ráðherra í þýska héraðinu Norður-Rín og Westphalia hef- ur tilkynnt að hann sé reiðubú- inn til þess að taka að sér forystu fyrir flokki sósíaldemó- krata í næstu þingkosningum. Skoðanakannanir benda til þess að Rau sé nú vinsælasti stjórn- málamaður V-Þjóðverja. Eftir fund í framkvæmda- nefnd Sósíaldemókrataflokks- ins tilkynnti Willy Brandt að Rau hefði verið falið að skipu- leggja kosningaherferðina fyrir þingkosningarnar árið 1987. Rau staðfesti að hann hefði tekið þetta að sér og sagðist vera tilbúinn til þess að axla slíka ábyrgð. Þó að hvorugur vildi beinlínis taka þannig til orða að um forystuhlutverk sé að ræða þá herma fréttir að svo sé. Hinn 54 ára gamli Rau er reyndur stjórnmálamaður og sagður líkjast nokkuð flokksfé- laga sínum Helmut Schmidt hvað varðar viðhorf. Samkvæmt skoðanakönnun vikuritsins Stern nýtur Rau mun meiri persónuvinsælda heldur en Kohl kanslari. Fyrrnefndurnaut stuðnings 43% aðspurðra en síðarnefndur aðeins 32%. Það ber að taka fram að þetta endur- speglar þó ekki fylgi þingflokk- anna í skoðanakönnuninni. Samtímis því að Willy Brandt tók þátt í því að treysta Rau í sessi undirbjó hann ferð sína til A-Þýskalands. Þangað hefur Brandt ekki farið síðan komst upp um njósnir Guillaume sem var aðstoðarmaður hans. Það voru A-Þjóðverjar sem höfðu Guillaume á sínum snærum. Stjórnvöld í A-Berlín bera á móti því að þau taki v-þýska stjórnarandstöðu fram yfir stjórnina, en það er talið að móttökur þær sem Brandt fái muni verða til þess fallnar að auka hróður sósíaldemókrata sem sáttagjörðamanna. NEWSINBRIEF September 17 Reuter ■ BONN - West Germ- any’s espionage scandal erupted anew with the def- ection of a secretary in Chancellor Helmut Kohl’s office. Governmentsourc- $ es said she has excaped QC despite surveillance as a potential spy and had had ^ access to secret material (j) on West Germany’s nucle- «>» ar energy programme and Uj high-technology projects. ^ • PARIS - The French newspaper Le Monde said Defence Minister Charles Hernu knew in advance about the alleged sabotage of the Greenpeace ship Rainbow Warrior by French agents and hid the truth from an official in- vestigation. It said the sa- botage was carried out by two French inilitary frog- men who escaped by air from New Zealand. • ISLAMABAD - Afgh- an rebels said they shot down a helicopter gunship ^ carrying an Afghan major- g so general and a Soviet offic er believed to have been á general. Allt eight men aboard were killed when the aircraft crashed near the Pakistani border. • NEW DELHI - Prime Minister Rajiv Gandhi met Tamil separatist leaders to try to revive stalled peace talks on Sri Lanka’s ethnic conflict, officials said. MOSCOW -The Kremlin is expected to expel more Britons from Moscow foll- owing London’s decision S to order out six more Sovi- ^ et personnel on spying CQ charges, official Soviet so- ^ urces said. ^ AMARANTE, Portug- E al - Firemen fought to control a fire raging in pine forests in Northern Portugal which caused hundreds of villagers to fiee their homcs, officials said. • MOSCOW - Three cosmonauts blasted off aboard a Soyuz spacecraft in the Soviet Union’s ninth manned mission to the Salyut-7 station, which has orbited earth since April 1982. • LISBON - An Angolan court has sentenced a Portuguese citizen and two Angolans to death for $ spying for South Africa, QC fhe Portuguese news ag- ency ANOP said. ^ • BRUSSELS - The Sovi- ^ et Union has continued to Uj deploy SS-20 medium- ■3E range nuclear missiles despite a moratorium ann- ounced by Moscow in April, NATO said. • THE HAGUE - Nicar- agua told the World Court the United Stated was responsible for more than 300 million dollars of ec- onomic damage caused by guerrillas seeking to overt- hrow the government. LONDON - L aura As- " hley, the British designer Ifamous for her textiles | with Romantic prints, . died at the age of 60 in 1 Central England, leaving I a question mark over the . future of the business 1 empire she created and led | for mbre than 30 years. NEWSINBRIEFA

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.