NT - 18.09.1985, Blaðsíða 10

NT - 18.09.1985, Blaðsíða 10
Veiðijörð tii sölu Tilboð óskast í jörðina Hólkot í Ólafsfirði. Jörðin er við Ólafsfjarðarvatn í um þriggja km. fjarlægð frá kaupstaðnum. Gott íbúðar- hús. Túnstærð 15 hektarar og ræktanlegt land til viðbótar verulegt. Jörðinni fylgir veiðiréttur í Ólafsfjarðarvatni ásamt hlutdeild í nýstofnuðu hlutafélagi um laxeldi og haf- beit. Góð eign, sem skapar margvíslega möguleika. Tilboðum skal skilatil Fasteigna- sölunnar hf., Gránufélagsgötu 4, Akureyri sími 96-21878 (opið frá 17-19) heimasími sölumanns 96-25025 og fást þar jafnframt frekari upplýsingar um eignina. Innritun í Árbæ og Breiðholti fer fram sem hér segir: I Árseli mánud. 23. sept. kl. 17-20 (enska - þýska - leikfimi). í Gerðubergi þriðjud. 24. sept. kl. 17-20 (enska - þýska - ítalska - spænska - saumar). Námsflokkar Reykjavíkur Símar 12292- 14106. Kennarar Kennara vantar ennþá fyrir 5. bekk og forskóla. Góð íbúð fyrir hendi, ferðakostnað- ur greiddur. Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 94-1257 og 94-1337. Grunnskóli Patreksfjarðar. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 137. tbl. 1983 og 2. og 5. tbl. 1984 Lögbirtingarblaðs á húseigninni Nónási 6, Raufarhöfn neðri hæð þinglesinni eign Sigvalda Ómars Aðalsteinssonar fer fram eftir kröfu Atla G íslasonar hdl. og Brynjólfs Eyvindssonar hdl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 19. september 1985 kl. 18. Uppboðið er annað og síðasta uppboð. Sýslumaðurinn í Þingeyjarsýslu Bæjarfógetinn á Húsavik. Verkafólk Rangárvallasýslu Aðalfundur verkalýðsfélags Rangæings verður haldinn sunn- udaginn 29. september n.k. I Verkalýðsfélaginu Hellu og hefst kl. 17.00. Á dagskrá venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 76. 82. og 89. tbl. 1985 Lögbirtingarblaðs á jörðinni Lyngási, Kelduhverfi þinglesinni eign Sveins L. Ólafssonar og Elínar Karlsdóttur fer fram eftir kröfu Trygg- ingarstofnunar ríkisins á eigninni sjálfri fimmtudaginn 19. september 1985 kl. 14.00. Sýslumaðurinn í Þingeyjarsýslu Bæjarfógetinn á Húsavík. Framsóknarfélögin í Reykjaneskjördæmi Formannsfundur verður haldinn í Kópavogi fimmtudaginn 19. september kl. 20.30. Stjórn Kjördæmissambands Reykjaness Innilegar þakkir sendi ég sonum mínum.tengda- dætrum, ættingjum og sveitungum svo og öllum þeim, sem glöddu mig og konu mína með heimsóknum, gjöfum og góðum kveðjum á sjötíu ára afmæli mínu þann 4. ágúst. Sigurður Magnússon Hnjúki. Miðvikudagur 18. september 1985 10 Guðjón Ármann Eyjólfsson skólastjóri: - höfuðóvinur sjómanna Um eldvarnir og eldvarnarskóla Meðfylgjandi grein er tekin úrnýútkomnu tölublaði „Slökkviliðsmannsins“, sem er blað Landssambands slökkviliðsmanna. Blaðið er að mestu helgað öryggismálum sjómanna, en aukning á brunum og slysum um borð í skipum og bátum er uggvænleg. Þetta tölublað „Slökkviliðsmannsins“ á erindi til miklu fleiri en þeirra sem vinna að eldvörnum og ætti m.a. að vera til í hverju skipi. ■ Guðjón Ármann Eyjólfsson, skólastjóri. ■ Tvímælalaust er eldsvoði um borð í skipum eitt hið alvar- legasta sem getur komið fyrir í hverju skipi og hefur venjulega mjög afdrifaríkar afleiðingar. í skýrslum um heildarfjölda slysa og tjóna á skipum eru tjón af völdum eldsvoða ætíð efst á blaði. Sérhvert skip er sjálfstæð ein- ing og er næstum því alltaf nema í höfn án utanaðkomandi aðstoðar þann tíma, sem eldur er að þróast í óviðráðanlegt víti. Áhöfnin sjálf verður því ætíð að vera viðbúin að ráða niðurlögum elds, sern verður laus um borð. Til þess að tryggja sem réttust viðbrögð og árangursríkust hafa allar Evrópuþjóðir fyrir löngu síðan komið upp vel búnum skólum, sem hafa það höfuð- verkefni að þjálfa skipshafnir, og slökkvilið í slökkvitækni. Eitt mesta öryggisatriði fyrir hvert skip og alla sjómenn er, að allir um borð hafi bæði þekkingu og þjálfun til að ráða niðurlögum eids um borð, hvort sem hann kemur upp, þegar skipið er við land eða úti á rúmsjó. Fróðlegar skýrslur hafa verið unnar um sjóslys og er unnt að draga af þeim margar ályktanir og mikilsverðar. Árið 1984 fórust samkvæmt upplýsingunr Lloyd’s 215 kaup- skip samtals 1.294.537 BRT að stærð (sjá töflu 2). Rúmlestatala allra íslenskra þilfarsskipa 1. janúar 1985 var 112.847 BRT. Árið 1983 fórust 209 skip, samtals 1.351.510 BRT, (nærri því níu sinnum stærð íslenska flotans). Skipin fórust af völdum veðurs, árekstra, stranda, elda og sprenginga o.s.frv.; en lang- flestir skipstapar urðu þó af völdum eldsvoðaogsprenginga. Samtals fórust 56 skip af þessum sökurn eða 26% skipanna. Fyrirsögn yfirlitsgreinar um slysin er: „Fire is still the numb- er one enemy of seafares“, eða: „Eldsvoði er enn höfuðóvinur sjómanna". í ársskýrslu tryggingafélaga í Liverpool árið 1982 korn í ljós að nærri þrisvar sinnum (2,8) meiri líkur voru á að skip færist af völdum eldsvoða en af nokkr- um öðrum orsökum. Þegar flett er opinberum gögnum um slys hér á landi eins og t.d. hinni vönduðu og fróð- legu árbók Slysavarnafélags Is- lands kemur í ljós, að á hverju ári eru 10-20% þeirra, sem bjargað er úr lífsháska, bjargað úr brennandi skipum eða húsum. Á fimm ára tímabili, frá 1979-1983, er í slysaannál SVFÍ getið um 22 eldsvoða um borð í skipum og 6 skip sökkva á hafi úti á þessu fimm ára tímabili af völdum bruna. Samkvæmt skýrslum Sam- ábyrgðar íslands um tjón á fiski- skipum er fjöldi brunatjóna um borð í skipum undir 100 rúm-

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.