NT - 18.09.1985, Qupperneq 24
HRINGDU ÞÁ í SÍIX/IA 68-65-62
Við tökum við abendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leið ir til
fréttar i blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðirtil bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsimar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
■ Hluti fundargesta á hátíðafundinum.
Forstjóri danska iðnlánasjóðsins:
Gott bankakerfi er
forsenda iðnvaxtar
50 ára afmæli Iðnlánasjóðs Islands
■ Aðgangur iðnaðar að láns-
fjármagni var meginumræður
efni Olav Grue, forstjóra
danska iðnlánasjóðsins^í erindi
sem hann flutti á hátiðafundi
íslenska Iðnlánasjóðsins í gær.
í erindinu rakti Grue sögu
danska sjóðsins, sem stofnaður
var 1958, aðallega fyrir tilstilli
Danmarks Nationalbank, með
það fyrir augum að bjóða upp á
valkost við langtíma veðlán með
fasta vexti og stutt lán peninga-
stofnana með breytilega vexti.
i niðurlagi erindis síns, sagði
Grue að hann væri sannfærður
um að velgengni dansks iðnaðar
væri ekki síst því að þakka að
þar ríkti frjálst hagkerfi þar sem
ábyrgð og ákvarðanataka hvílir
á margra herðum. Einnig sagði
hann að gott bankakerfi og
aðgangur iðnfyrirtækja að lána-
stofnunum væri grundvöllur
þess að iðnaðurinn hefði getað
vaxið svo sem raun ber vitni.
Hátíðafundur þessi var hald-
inn í tiiefni af hálfrar aldar
afmæli Iðnlánasjóðs fslands,
sem stofnaður var 1935. í frétta-
tilkynningu frá Iðnaðarbankan-
um, sem annast daglegan rekst-
ur sjóðsins, segir að sjóðurinn
hafi frá upphafi verið aðalfjár-
festingalánasjóður iðnaðarins.
Heildarráðstöfunarfé sjóðsins á
þessu ári er 700 milljónir króna.
Útistandandi lán um síðustu
áramót voru 1.600 milljónir
króna en eigið fé 410 milljónir
króna.
Starfssvið sjóðsins hefur auk-
ist síðustu ár og veitir hann nú
auk véla- og byggingalána, lán
og styrki til vöruþróunar- og
markaðsmála.
Daglega framkvæmdastjórn
sjóðsins annast Bragi Hannes-
son, bankastjóri, en skrifstofu-
stjóri sjóðsins er Gísli Bene-
diktsson. Stjórn sjóðsins skipa
þeir Jón Magnússon, hdl.,
Gunnar Björnsson, húsasmíða-
meistari og Ólafur Davíðsson,
framkvæmdastjóri.
■ Við erum á móti því að
stjórnvöld sýni sumum atvinnu-
greinum forgang fram vfir.
aðrar. Þetta sagði Jón Magnús-
son, stjórnarformaður Iðnlána-
sjóðs m.a. í samtali við blm. NT
á hátíðafundinum í gær.
„Spurningin er hvernig við vilj-
tim byggja upp atvinnugreinarn-
ar í framtíðinni. Við höfum
þegar fullnýtt sjávarútveg og
landbúnað svo að framþróunin
hlýtur að vera í iðnaði og
verslun.“
Kvóti til
þriggja ára
fyrir Alþingi
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra, lagði fram drög að nýju
kvótakerfi á ríkisstjórnarfundi í gær
■ Á ríkisstjórnarfundi í gær
lagði Halldór Ásgrímsson fram
drög að frumvarpi um stjórnun
fiskveiðanna til næstu þriggja
ára. Áður hafði frumvarpið ver-
ið kynnt samráðsnefnd, sem í
eiga sæti ýmsir hagsmunaaðilar
í sjávarútveginum. „Helstu
breytingar frá kvótakerfinu eru
að í nýja frumvarpinu er stefnan
ákveðin til þriggja ára, auk þess
sem Alþingi mun hafa meira að
segja um alla framkvæmd
kvótakerfisins," sagði Halldór
Ásgrímsson í samtali við NT í
gær.
Halldór sagði að þetta yrði
lagt fyrir Alþingi strax og þing
kæmi aftur saman. Hann bjóst
við því að það gæti tekið sinn
tíma í meðför þingsins, en hann
efaðist ekki um að þingið væri
sammála um að hafa einhverja
stjórn á veiðum áfram og á
meðan aðrar hugmyndir en
kvótakerfið kæmu ekki fram, sá
hann enga ástæðu til að ætla
annað en að frumvarpið færi í
gegn. Engin umræða varð um
frumvarpsdrögin á ríkisstjórn-
arfundinum.
Samkvæmt heimildum NT er
hugmyndin um að menn geti
millifært kvóta frá einu ári til
annars með í frumvarpsdrögun-
um. Er talað um að hægt sé að
færa um 5% af kvóta næsta
árs yfir, en á móti geta menn
lagt inn um 10% af þeim kvóta
sem þeim hefur verið úthlutað-
ur. Ekki er talið líklegt að þessi
heimild komist til framkvæmda
í ár, þar sem í gildi er löggjöf
um kvótamálin, senr nær til
áramóta.
Önnur stórbreyting er í nýju
lögunum, en það er að ýmis
atriði sem nú eru í reglugerð,
einsog t.d. millifærslur á kvóta
milli skipa, viðmiðunarmörk við
heildarafla og þannig fram eftir
götunum, verða nú í lögunum,
þannig að Alþingi mun hafa
mun meira að segja um alla
framkvæmd málsins.
Heildaraflamark er ákveðið
til hvers árs í senn og því er fyrst
og fremst verið að marka stefn-
una við stjórnun fiskveiðanna
með nýju kvótalögunum. Hins-
vegar á að gera þriggja ára spá
fram í tímann, sem byggir á
útreikningum Hafrannsóknar-
stofnunar, væntanlega fyrir
helgi.
Þegar frumvarpsdrögin voru
kynnt hagsmunaaðilum sjávar-
útvegsins, munu þau hafa lagst
misjafnlega í menn. Sjómenn
tóku þeim fálega, töldu kerfið
ekki nógu sveigjanlegt, hinsveg-
ar munu fulltrúar fiskvinnslunn-
ar og útgerðarinnar hafa tekið
hugmyndinni vel.
Myndlist: „
Gunnar Orn
sýnir í
New York
- í f rægu galleríi þar sem
aðeins þeir bestu í heim-
inum fá inni með verk sín
■ Gunnari Erni Gunnars-
syni myndlistarmanni mun
hafa verið boðið að haida
sýningu á verkum sínum í
frægu jgalleríi í New York
borg. Iþessu galleríi munu
aðeins bestu myndlistar-
menn í heiminum sýna og
þetta mun vera einhver
mesti heiður sem íslenskum
myndlistarmanni hefur
hlotnast.
Samkvæmt heimildum
NT mun bandarískur list-
fræðingur sem staddur var
hér á landi hafa rekist inn á
sýningu á verkum Gunnars
og hrifist svo mjög að hann
bauð Gunnari að halda sýn-
ingu í galleríinu.
Gunnar Örn staðfesti í
samtali við NT að sér hefði
verið boðið að halda sýn-
ingu í galleríinu og að sýn-
ingin hæfist 2. október næst-
komandi. „Ég vil helst ekk-
ert um þetta segja fyrr en
sýningin er afstaðin,“ sagði
Gunnar sem mun halda
utan bráðlega.
NT-mynd: Róbert