NT - 19.10.1985, Qupperneq 15
■m
Form Island:
Listmunirnir endurspegla
náttúru lands íss og elda
Hringferð sýningarinnar lýkur í Norræna húsinu
■ Fyrir einu og hálfu ári
hófst kynningarátak á íslenskri
listhönnun. Þá var send sýning
á rúmlega 200 listmunum, sem
um 40 íslenskir listamenn hafa
hannað, í hringferð um Norður-
Iöndin. Hringferð þessari er nú
lokið og verður íslendingum
gefinn kostur á að virða munina
fyrir sér á sýningu í Norræna
húsinu. Form Island, en svo
nefnist sýningin, verður opnuð
kl. 16 sunnudaginn og henni
lýkur 3. nóvember.
t’egar NT bar að garði í
Norræna húsinu var í óða önn
verið að taka listmunina upp úr
kössum og koma þeim fyrir í
sýningarsalnum. Þarna mátti sjá
húsgögn, kermik, lampa, ljós-
myndir, myndvefnað, fatnað og
þannig mætti halda áfram að
tína til hin mismunandi svið,
sem íslensk listhönnun fæst við.
Það var í apríl 1984 að Vigdís
Finnbogadóttir, forseti íslands,
sem er verndari sýningarinnar,
opnaði hana í Listiðnaðarsafn-
inu í Helsinki, en hún var þá
stödd þar í opinberri heimsókn.
Ferðasaga Form Island er síðan
nokkurn veginn á þessa leið í
stórum dráttum: Frá Helsinki
hringsólaði hún um þrjár aðrar
borgir í Finnlandi. Þaðan var
haldið til Danmerkur, þá var
skroppið yfir sundið til Svíþjóð-
ar, þaðan lá leiðin til Noregs, og
átti svo að enda í Færeyjum. Sú
varð þó ekki raunin, því Danir
báðu um að fá sýninguna aftur
áður en hún lyki hringferð sinni
á íslandi. Var orðið við þeirri
ósk og var sýningin send til
Fredriksberg.
Sýning þessi hefur hvarvetna
vakið mikla athygli, og dómar
um hana mjög lofsamlegir. „Ár
og lækir, sem fossa af brún hafa
„stirðnað í silfurskartgripum."
„Svartur íbeinviður og hvítt
fílabein, sem tengjast í silfri
minna á hið svarta gróður-
snauða land elds og ísa.“ „Eld-
fjallalandið og duttlungafullar
hreyfingar þess eru endursköp-
uð í svörtum og hrjúfum leir-
skúlptúrum." Þessar tilvitnanir
í dóma um sýninguna, sýna að
frændur okkar á Norðurlöndun-
um hafa kunnað vel að meta
sköpunarverk íslenskra list-
hönnuða.
Form Island er eina stóra
átakið, til að vekja athygli á
■ Það var vandlega búið um listmunina í kössunum og eins gott að fara að öllu með gát, því um
verðmæta hluti ræða, sem ekki mega við miklu hnjaski. Þær Anna Stefánsdóttir, Hildur Hákonardóttir
og Hulda Josefsdóttir eru á myndinni að taka upp hluta af mununum.
■ í forgrunni eru leikmunir
eftir þær Jónu Guðvarðardóttur
og Jónínu Guðnadóttur og í
bakgrunni myndvefnaður eftir
Hildi Hákonardóttur.
NT-myndir: Árni Bjarnu
íslenskum listiðnaði og hefur
sannarlega tekist að gera það.
Hafa listamennirnir sem standa
að henni fengið fjölda íyrir-
spurna og sýningartilboða.
Fjöldi aðila styrkti sýninguna,
finnska menntamálaráðuneyt-
ið, Norræni mennigarsjóðurinn,
Iðnþróunarsjóður íslands,
Menningarsjóður íslands og
Finnlands.Eimskip, Flugleiðir
og Timburverslunin Völundur.
Uppsetning sýningarinnar var
undir umsjón Stefáns Snæbjöms-
sonar.
24. október
í lok kvennaáratugar skorum við á konur að leggja niður störf þann 24. október n.k.
til að fylgja fram kröfunni um bætt launakjör kvenna.
Adda Bára Sigfúsdóttir, veðurfræðingur
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Sóknar
Anna Benónýsdóttir, símavörður
Anna Borg, skrifstofumaður
Anna Sigurðardóttir, verkakona
Anna Sigurðardóttir, kvennasögusafnið
Anní G. Haugen Félagsráðgjafi
Arna Jónsdóttir, fóstra
Arndís Steinþórsdóttir, viðskiptafræðingur
Aður Eir Vilhjálmsdóttir, prestur
Álfheiður Ingadóttir, blaðamaður
Ásthildur Ólafsdóttir, skrifstofumaður
Bergþóra Einarsdóttir, blaðamaður
Börg Elnarsdóttir, rithöfundur
Edda Björgvinsdóttir, leikkona
Elín G. Ólafsdóttir, kennari
Elísabet Gunnarsdóttir, kennari
Erna Hauksdóttir, formaður Hvatar
Gerður Steinþórsdóttir, borgarfulltrúi
Guðlaug Pétursdóttir, verkakona
Guðlaug Teltsdóttir, kennari
Guðríður Elíasdóttir, formaður Framtíðarinnar ■
Guðrún Agnarsdóttir, alþingismaður
Guðrún Ágústsdóttir, borgarfulltrúi
Guðrún Árnadóttir, meinatæknir
Guðrún Backmann
Guðrún Erla Geirsdóttir, myndlistarkona
Guðrún Gísladóttir, bókavörður
Guðrún Halldórsdóttir, skólastjóri
Guðrún Helgadóttir, alþingismaður
Guðrún Jónsdóttir, skrifstofumaður
Guðrún Jónsdóttir, borgarfulltrúi
Guðrún K. Óladóttir, skrifstofumaður
Guðrún Ögmundsdóttir cand.comm.
Halldóra J. Rafnar, blaðamaður
Helga Backmann leikkona
Helga Birna Gunnarsdóttir, þroskaþjálfi
Helga Thorberg, leikkona
Hildur Kjartansdóttir, saumakona
Hólmfríður R. Árnadóttir, útbreiðslustjóri
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarfulltrúi
Ingibjörg Hafstað, kennari
Ingibjörg Óskarsdóttir, skrifstofumaður
Jóhanna Sigurðardóttir, alþingismaður
Jónína Leósdóttir, varaþingmaður
Katrín Fjeldsted, læknir
Kicki Borhammar, blaðamaður
Kolbrún Jónsdóttlr, alþingismaður
Kristín Halldórsdóttir, alþingismaður
Kristín Kvaran alþingismaður
Kristfn Máantylá, skrifstofumaður
Lára V. Júlíusdóttir, lögfræðingur ASÍ
Linda Rós Michaelsdóttir, kennari
Magdalena Schram, blaðamaður
Margrét Pála Ólafsdóttir, fóstra
María Pétursdóttir, skólastjóri
Ragna Bergmann, formaður Framsóknar
Rannveig Traustadóttir, þroskaþjálfi
Ragnhildur Guðmundsdóttir, form. Símamanna
Salóme Þorkelsdóttir, alþingismaður
Sigríður Th. Erlendsdóttir, sagnfræðingur
Sigríður Kristjánsdóttir, sjúkraliði
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, alþingismaður
Sigríður Skarphéðinsdóttir, iðnverkakona
Sigrún Aspelund, skrifstofumaður
Sigrún Ágústsdóttir
Sigrún Eldjárn, myndlistarkona
Sigurbjörg Sveinsdóttir, saumakona
Sjöfn Ingólfsdóttir, bókavörður
Snjólaug Kristjánsdóttir, verkakona
Sólveig Brynja Grétarsdóttir, bankamaður
Stella Stefánsdóttir, verkakona
Unnur Jónasdóttir, skrifstofumaður
Unnur Stefánsdóttir, fóstra
Valborg Bentsdóttir, skrifstofumaður
Valdís Bjarnadóttir, arkitekt
Valdís Garðarsdóttir, skrifst.stj.
Valgerður Sigurðardóttir, skrifstofurmaður
Vilborg Harðardóttir, blaðamaður
Þóra Friðriksdóttir, leikkona
Þorbjörg Samúelsdóttir, verkakona
Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri
Þórunn Gestsdóttir, formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna
Þórunn Theódórsdóttir, form. Starfsmannaf.
Kópavogs.
Mætum allar á útifundinn á Lækjartorgi kl.14. sama dag.
Sýnum samstöðu.