NT - 10.12.1985, Blaðsíða 4

NT - 10.12.1985, Blaðsíða 4
 Þriðjudagur 10. desember 1985 iaví 9 Nokkrar af lafréttir t'-m ■ Loðnuveiðin hcfur gengið vei síðustu daga og þrær víða fullar. Loðnu- aflinn er nú kominn í 570-580 þús. tonn á þessari vertíð, og er þessi mikli afli aðal uppistaðan í þeirri aukningu sem orðið hefur í heildarafla Islcnd- inga í ár. IVIyndin er af þróni h já Síldarverksmiðju ríkisins á Siglufirði. NT-mynd: B.G. Góð loðnuveiði ■ Loðnuveiðin hefur verið góð undanfarna daga og er heildarveið- in nú orðin ú milli 570-580 þúsund tonn. Eftir að veður lægði um miðja síðustu viku (fimmtudag) kom besti dagur vertíðarinnar hingað til en þá fengu 26 bátar um 18.800 tonn, og hefur veiðin hald- ist góð síðan. Loðnan hcfur nú færst nokkuð austar en áður og er nú út af Þistil- firði. Bátarnir hafa verið nokkuð fljótir að fylla sig og hafa margir fengið í sig yfir nóttina. Næsta höfn viö miðin er Raufarhöfn , en þang- að er um 8 tíma stím. Á Siglufjörð og austfjarðarhafn- irnar er hins vegar um 14-I6stunda sigling, en annars hafa bátarnir landað víðs vegar um land. Ferskfiskur: Aukning á útflutningi ■ Samkvæmt upplýsingum sem Fiskifélag íslands hefur sent frá sér um útflutning sjávarafurða á tíma- bilinu jan.-okt. 1985, hefur heild- arútflutningurinn aukist talsvert frá því í fyrra. Á umræddu tímabili hafa verið flutt út 524.112 tonn af sjávarafurðum að verðmæti 20.976.575 þús. kr. á móti 378. 071 tonni að verðmæti 12.180.828 þús. kr. á sama tíma 1984. (vcrðlag hvors árs). Á þessu ári (jan.-okt) hefur hlutfall sjávarafurða miðað við heildarverðmæti vöruútflutnings landsmanna verið 77,1%, en var á sama tíma í fyrra 70,6%. Af einstökum afurðaflokkum eru frystar afurðir langverðmæt- astar (11.854.121), því næst koma saltaðar afurðir (4.203.621 kr.), þá mjöl og lýsi (2.365.147 kr.), og fjórðu í röðinni eru ísaðarog nýjar afurðir (1.820.589 kr.). Hvað niagn varðar þá var mest flutt út af mjöli og lýsi (194.943 tonn), því næst af frystum afurðum (133.306 tonn), þá ísuðum og nýj- um afurðum (122.000 tonn), og fjórðu í röðinni eru saltaðar afurðir (65.682 tonn). Það sem einkum vekur-athygli í þessum útflutningstölum fyrir fyrstu tíu mánuði ársins er hin gífurlega aukning sem orðið hefur í útflutn- ingi á ferskum og ísuðum fiski, ým- ist með gámum, skipum, eða tlug- vélum. Alls hefur þessi útflutningur aukist um 120% frá því í fyrraoger nú um 122 þús. tonn. Nýr fiskur fluttur út með gámum nam 24.884 tonnum en var í fyrra 9.587 tonn, eða aukning upp á tæp 160%. Út- flutningur á nýjum fiski með skip- um (siglingar) er í ár 95.850 tonn en var í fyrra 44.841 tonn. eða aukning upp á um 114%. Útflutn- ingur á ferskum fiski með flugi hef- ur þó ekki aukist eins mikið eða úr 995 tonnum í fyrra í 1.267 í ár, eða um rúm 27%. Aflinn það sem af er árinu ■ Fiskifélag tslands tölvukcyrði í gær bráðabirgðaaflatölur fyrir nóv- embermánuð. Samkvæmt þessum tölum var heildaraflinn í nóvember 253.896 tonn og af þeim afla voru bátar með 229.528 tonn og togarar 24.368. Þessi mikli munur milli báta og togara liggur fyrst og fremst í loðnunni, en af henni veiddust 194.736 tonn í nóvember. Á tímabilinu janúar-nóvember hefur heildarveiðin verið 1.476.763 tonn og þar af er bátaafl- inn 1.157.574 tonn, en togaraaflinn 319.189 tonn. Heildarþorskaflinn er orðinn 298.523 tonn. Heildaraflinn í nóvember í fyrra var rúmum 28 þúsund tonnum meiri en í ár, en heildaraflinn fyrir tímabilið janúar-nóvember var rúmum 109 þúsund tonnum meira í ár en í l'yrra. Mest af þessari aukn- ingu liggur í loðnuaflanum. Af einstökum verstöðvum hefur mestur afli borist á land í Vest- mannaeyjum það sem af er árinu, eða rúm 150 þús. tonn, en í síðasta mánuði hafði Seyðisfjörður vinn- inginn, en þar var landað rúmum 34 þúsund tonnum. Meðfylgjandi tafla sýnir landað- an afla eftir landshlutum og fisk- tegundum, í nóvember og það sem af er árinu. ■ Loðnan hefur sett nokkurn svip á mannlíf við sjávarsíðuna seinni partinn í síðustu viku eink- um á höfnum norðan lands og aust- an. Gæftir hafa verið góðar víðast hvar þó sáratregt hafi verið hjá bát- um á Suðurnesjum en betri veiöi var þó fyrir norðan. Togarar hafa flestir fengið þokkalegan afla eink- um þeir sem verið hafa á flottrolli fyrir Vestfjörðum. Vesturiand Reytingur af bolfiski barst á land á Vesturlandi í síðustu viku. 170 tonn bárust til Ólafsvíkur og var megin uppistaðan þorskur. Svipað magn kom á land á Hellissandi og Rifi þorskurinn var þar einnig í fyrirrúmi. Sáralítið, var svarið á Akranesi, þegar NT spurðist fyrir um landanir á bolfiski í síðustu viku. Krossvíkin landaði 75 tonn- um í vikunni, þar af voru tuttugu tonn þorskur. í gær var veriö að landa úr Haraldi Böðvarssyni 130 tonnum. Enginn bolfiskafli hefur borist á land í Grundarfirði síðan Runólfur landaði þarsíðast. Hann kemur inn í dag og er búist við full- fermi. Skelin cr allsráðandi í Stykkishólmi og hefur enginn bol- fiskur borist þar á land í síðustu viku. Vestfirðir Togarinn Guðbjartur á ísafirði, kom inn í gær með fullfermi um 140 tonn og var uppistaða í aflan- um þorskur. Fóru 25 tonn þar af í gáma. Línubátarnir Orri og Guðný fóru fimm róðra í síðustu viku og komust upp í 10 tonn í róðri. Guðbjörgin á ísafirði hefur ver- ið á veiðum og kemur inn í dag. í Bolungavík landaði togarinn Dagrún sl. þriðjudag 3. des, 30 tonnum af þorski og sama dag landaði Sólrún 18 tonnum af út- hafsrækj u. Togararnir Heiðrún og Dagrún koma inn í dag, en voru með 50 og 80 tonn af blönduðum afla síðast þegar fréttist. Línubátar í Bolungavík voru með frá 7-91/: tonn í róðri síðustu viku en flestir fóru fimm róðra. Fjórir loðnubátar lönduðu 2.300 tonnum um helgina á Bolungavík. Veiði hjá rækjubátum hefur verið dræm. Togarinn Páll Pálsson í Hnífsdal, kemur inn í dag, með um 100 tonn af blönduðum afla. í Súðavík landaði togarinn Bersi í gær tæplega 110 tonnum, mest karfa og grálúðu og fóru um 60 tonn í gáma. Veiði rækjubáta í Súðavík hefur verið dræm eins og flestra rækjubáta við Djúpið. Á Flateyri landaði togarinn Gyllir í gær 40 tonnum af blönduð- um afla en hafði fyrr um daginn landað rúmlega 40 tonnum á ísa- firði, sem fóru í gáma. Línubáturinn Jónína fór í þrjá (róðra í vikunni og fékk samanlagt 14 tonn en Byr fór tvo róðra og fékk rúmlega 8 tonn samanlagt. Lítið var landað á Þingeyri síð- ustu viku, Framnesiðerenn í slipp, en Sléttanesið er á veiðum og kem- ur inn í dag. Á Hólmavík landaði línubátur- inn Ásbjörg um 12 tonnum eftir tvo róðra í síðustu viku. Saman- lagður afli tveggja rækjubáta yfir vikuna var 45 tonn af rækju en 21 tonni var landað af skelfisk á Hólmavík. Norðurland Gæftir voru góðar á Norðurlandi í síðustu viku og á Skagaströnd lönduðu tveir bátar 51,7 tonni af hörpudiski eftir 9 róðra en enginn bolfiskur barst á land. Togarinn Drangey frá Sauðár- króki kom til Sauðárkróks með um 90 tonn af þorski og á Siglufirði landaði togarinn Sigluvík rúmlega 89 tonnum hjá Þormóði ramma. Til Grenivíkur kom línubátur- inn Núpur með rúmlega 35 tonn af þorski og Óskar landaði þar einnig rúmlega 15,6 tonnum af þorski. Á Akureyri voru tvær landanir í síðustu viku og kom Svalbakur inn mánudaginn 2. des. með 173 tonn mest af karfa og einnig talsvert af grálúðu og þorski. Þá kom togar- inn Harðbakur inn með 183 tonn mest karfa oggrálúðu, þann 5. des. Húsvíkingar fengu aðallega rækju eða 24,604 tonn og með slæddust um 20 tonn af bolfiski. í Hrísey landaði togarinn Snæ- fell rúmlega 60 tonnum mest af þorski og togarinn Skjöldur frá Siglufiröi landaði 31 tonni af þorski og Sólfellið um 3 tonnum af þorski og grálúðu. Grímseyingar fengu mjög góðan afla í vikunni eða 70 tonn af ufsa frá 3 bátum og 30 tonnum var landað á Dalvík af bátum frá Grímsey. Til Þórshafnar komu um 3 drag- nótabátar inn með samtals 14,6 tonn af þorski og steinbít og Fagra- nesið landaði einnig 8,16 tonnum af þorski. Austfirðir Loðnan setur sinn svip á þau byggðarlög á Austfjörðum þar sem loðnubræðslur er að finna. Bræðsl- urnar tvær á Seyðisfirði tóku á móti rúmum 8 þúsund tonnum af loðnu í vikunni og á Eskifirði var landað um 5 þúsund tonnum og þarf af kom Jón Kjartansson SU-111 með um 3300 tonn í þremur veiðiferð- um. Á Reyðarfirði var landað um 6 þúsund tonnum í vikunni og Norð- firðingar eru búnir að taka á móti um 47 þúsund tonnum af loðnu á vertíðinni þar sem af er. Á Vopnafirði landaði Eyvindur vopni 65 tonnum af bolfiski í vik- unni og var aðaluppistaða aflans þorskur. Slæm tíð hefur gert skel- fiskbátum erfitt fyrir en Lýtingur sem er stærsti skelfiskbáturinn kom þó með 20 tonn af skel. Tog- skip þeirra Vopnfirðinga, Brett- ingur er að koma úr veiðiferð og landar í dag um 100 tonnum af bolfiski. Ljósafell landaði í gær á Fá- skrúðsfirði um 90 tonnum af bol- fiski en Hoffellið er á veiðum. Enginn afli barst á land á Stöðv- arfirði í vikunni en togarinn Krossanes seldi í Hull sl. miðvik- udag um 110 tonn af þorski og fékk 50 krónur fyrir kílóið. Kambaröst mun hins vegar selja í Englandi upp úr miðjum mánuðin- um. Hornafjarðarbátarnir Skógey og Árný lönduðu um 20 tonnum á Hornafirði og 11 reknetabátar komu með um 300 tonn af síld í vikunni sem öll fer í frystingu. Alls hafa nú borist um 2500 tonn af síld til Hornafjarðar á haustvertíðinni sem nú er að ljúka. Síld er enn að berast á land á Djúpavogi og var tekið á móti um 50 tonnum í vikunni. Sunnutindur og Stjörnutindur seldu afla sinn ný- lega í Bretlandi og fengu tæpar 50 krónur fyrir kílóið. Atvinnuástand er einna verst á Breiðdalsvík en frystihúsið á staðnum er lokað og nokkuð af verkafólki þar komið á atvinnu- leysisskrá. Reykjavík og Reykjanes Fjórir Reykjavíkurtogarar lönd- uðu í síðustu viku allir hjá Granda. Jón Baldvinsson landaði um 148 tonnum af þorski og karfa, Ottó M. Þorláksson landaði um 118 tonnum af karfa og ufsa, Ásbjörn landaði 124 tonnum af þorski og karfa og Ásþór kom með 64 tonn af aðallega karfa. Af bátaafla í höfuðborginni er það að segja að sáratregt hefur verið í síðustu viku. Svipaða sögu er að segja af báta- afla á Suðurnesjum. A voginni í Grindavík fengum við til dæmis þær upplýsingar að þeir 4-5 bátar sem væru á netum hefðu ekkert fengið og línubátarnir rétt í soðið. í Keflavík eru um fimm bátar á net- um og hafa þeir fengið þetta frá hálfu upp í átta tonn. Tveir bátar eru þar á dragnót og veiða svo til eingöngu sandkola en þeir hafa verið með um 10 tonn. Togarinn Bergvík landaði í Keflavík 43 tonnum hjá Hraðfrystihúsinu en Dagstjarnan KE landaði 110 tonn- um af ufsa og karfa hjá Sjöstjörn- unni þann 29. nóv. í Hafnarfirði hefur komið svo að segja togari á dag undanfarnar vikur, en síðustu viku var þó óvenju lítið um togara. Þá komu tveir togarar, Otur með um 120 tonn og Víðir með um 80 tonn. Víðir var í sinni fyrstu veiðiferð eftir að liafa legið óhreyfður í u.þ.b. ár, en togarinn hét áður Apríl. Túrinn gekk því vel þrátt fyrir að ekki hafi verið gert mikið fyrir skipið áður en það fór. í gær komu hins vegar inn þrír togarar, Gullver með um 1700 kassa, Hafnarey með tæpa 2000 kassa og Jökull með eitthvað minna. Allt góður fiskur. Sex eða sjö bátar leggja upp í Hafnarfirði og voru þeir með frá 3-4 tonnum upp í 10 tonn. Bráðabirgðatölur nóv. 1985 (Tonn) ÖLLSKIP: Suðurland Reykjanes Vesturland Vestfirðir Norðurland Austfiröir Erlendis Samtals afli Þorskur 989 3.591 1.899 3.098 3.513 1.259 1.833 16.182 A.botnf. 1.886 5.484 1.122 1.453 3.037 793 3.359 17.134 Sfld 8.355 4.486 665 _ 192 7.912 _ 21.610 Loðna l2.495 21.918 8.929 10.756 64.975 73.803 1.860 194.736 Rxkja - 66 - 523 589 3 - 1.181 Humar - - - - - - - - Hörpudiskur - - 1.992 505 390 166 - 3.053 Kolmunni - - - - - - - — A.afli _ - - - - - - - Samtals 23.725 35.545 14.607 16.335 72.696 83.936 7.052 253.896 Jan.-nóv.l985 Þorskur 27.339 60.306 37.483 45.410 70.786 44.546 12.653 298.523 A. botnf. 47.219 72.974 17.157 24.255 34.440 25.458 22.011 243.514 Síld 10.094 8.887 1.207 28 561 27.193 - 47.970 Loðna 100.023 80.776 30.459 27.213 239.616 327.163 45.140 850.390 Rækja _ 2.208 1.035 8.378 8.002 . 1.048 - 20.671 Humar 909 600 20 - - 846 - 2.375 Hörpudiskur - 4 9.733 1.022 2.091 470 - 13.320 Kolmunni - - _ - - - - - A.afli - _ _ _ - - - - Samtals 185.584 225.755 97.094 106.306 355.496 426.724 79.804 1.476.763

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.