NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 10.12.1985, Qupperneq 7

NT - 10.12.1985, Qupperneq 7
litlönd Bandaríkin: 17.000 geisla* virkir hermenn Washington-Reuter ■ Samkvæmt opinberri skýrslu, sem var birt í Bandaríkjunum fyrir nokkrum dögum, urðu allt að 17.000 hermenn fyrir geislun, sem hugsanlega var skaðleg, við kjarn- orkutilraunir Bandaríkjanna í Suður-Kyrrahafi árið 1946. Alls tóku um 46.000 hermenn og sjómenn þátt í kjarnorkutil- raunum og heræfingum við Bikini- eyju, sem kallaðar voru Crossro- ads (Gatnamót). Skýrslan, sem er unnin af rann- sóknarstofnun öldungadeildar bandaríska þingsins, dregur í efa fullyrðingar Bandaríkjastjórnar um að geislun við æfingarnar hafi verið innan hættumarka. Öldunga- deildarþingmaðurinn Alan Cranston, sem fór fram á rann- sóknina sem tók sextán mánuði, segir að hún hafi leitt í ljós að geislavirkni hafi líklega verið meiri en varnarmálaráðuneytið hefur viljað viðurkenna og að um 40% þeirra sem tóku þátt í æfingunum, hafi verið í sérstakri hættu. Bandaríkjamenn fluttu alla íbúa Bikineyjar burt áður en þeir hófu tilraunir á eyjunni. Geislavirkni eftir tilraunirnar var svo mikil að íbúarnir gátu ekki flutt heim aftur áratugum saman. Cranston hefur beðið Reagan Bandaríkjaforseta um að fyrir- skipa nýja og ítarlega rannsókn á hættu vegna geislavirkni við kjarn- orkutilraunir. ■ Hættuiegar kjamorkutUraun- ir? Ný opinber skýrsla í Bandaríkj- unum bendi til þess að tugir þús- unda hermanna hafi orðið fyrir hættulegri geislavirkni vegna til- rauna með kjarnorkuvopn. Milljarðasvindl í Nígeríu Lagos-Reuter. ■ Herstjórnin í Nígeríu er að kanna hvað hæft sé í fréttum um að Nígeríumenn hafi tapað rúmlega sjö milljörðum dollara á gjaldeyr- issvindli og braski sem nokkrir Nígeríumenn hafi tekið þátt í ásamt starfsmönnum breska bank- ans Johnson Matthey Bankers (JMB.). Breska blaðið Observer skýrði frá því fyrir nokkrum dögum að Nígeríumenn hefðu tapað mill- jörðum dollara á gjaldeyrisyfir- færslum í breskum bönkum á árun- um 1979 til 1983 sem m.a. hefðu gengið í gegnum JMB. Stjórnvöld í Nígeríu cru sögð æf yfir þessu svindli sem átti sér stað á meðan borgaraleg stjórn var við völd í rík- inu.- Suður-Kórea: Eitraðir súpu- snákar leika lausumhala ■ Fertugur veitingahúsa- eigandi í Yojubæ í Suður- Kóreu leitaði í öngum sín- um til lögregluyfirvalda seint í síðasta mánuði og kærði hvarf 700 snáka sem hann hafði safnað í sumar til að nota í súpur. Kóreska dagblaðið The Korea Herald hefur eftir veitingahúsaeigandanum, sem er fertugur, að hann hafi komið snákunum fyrir í húsagarðinum heima hjá sér þann 1. nóvember síðastlið- inn. En snákarnir, sem margir voru baneitraðir, virðast hafa fundið undan- komuleið út úr garðinum því að þegar hann ætlaði að nota þá við súpugerðina sást hvorki haus né hali af þeim. Snákasúpur þykja hið mesta lostæti í Kóreu. Þær eru sérstaklega vinsælar af miðaldra karlmönnum sem telja þær aUka kyngetu. Milljónir niður um klóakið Madrid-Rauter ■ Fjórir ræningjar grófu sig inn í bankageymslur í Madrid í gær og tóku 12 milljón peseta meðsér burt í gegnum skolpleiðslukerfið sem liggur undir borginni. Ræningjarnir tóku einnig með sér nokkur öryggishólf sem voru í einu af útibúum spænska bankans, Banco de Santander að sögn lög- reglunnar. SlNFÓNÍUHLJÓMSVEIT ISLANDS Amadeus tónleikar í Háskólabíói fimmtudaginn 12. des. 1985 kl. 20.30. Efnisskrá: W.A. Mozart: u u Einsöngvari: Einleikarar: Kór: Kórstjóri: Kynnir: Stjórnandi: Sinfónía nr. 1 Forleikur að óp. Brúðkaup Figa- rós Tvær aríur úr óp. Brúökaup Figa- rós 2. þáttur úr píanókonsert nr. 21 Aría úr óp. Don Giovanni 1. þáttur úr sinfóníu nr. 39 Aveverum 3. þáttur úr klarinettukonsert Lacrymosa Katrín Sigurðardóttir Einar Jóhannesson, klarinett GísliMagnússon.píanó Langholtskirkjukórinn Jón Stefánsson Sigurður Sigurjónsson JEAN-PIERRE JACQUILLAT Forsala aögöngumiöa er í Bókaverslunum Sigfúsar Eymundssonar og Lárusar Blöndal og ístóni, Freyjugötu 1 Sinfóníuhljómsveit íslands Þridjudagur 10. desember 1985 7 Bækur Helgarævintýri Klöru Sig. ■ Ut er komin hjá Forlaginu ný skáldsaga eftir Stefaníu Þorgríms- dóttur og nefnist hún Nótt í lífi Klöru Sig. Þeta er önnur skáldsaga Stefaníu en fyrir tveimur árum sendi hún frá sér Söguna um Önnu. Hver er Klara Sig.? Hálffertug, glæsileg, gift öndvegismanni í góðri stöðu. Nótt eina býður hún karlmanni með sér heim af balli. Eiginmaðurinn er fjarverandi og ljúft helgarævintýri í vændum. En speglarnir, sem Klara skoðar sig í, brotna og hún stendur varnarlaus frantmi fyrir nóttinni. f tíu ár hefur hún verið Klara, sterk, sjálf- bjarga, frambærileg. Hún hefur bælt ótta sinn, agað vilja sinn, unnið sigra. Gætt þess að vega fremur en að vera vegin. - Af óvenjulegu næmi lýsir Stefanía Þorgrímsdóttir ótta og ein- semd þess sem reist hefur hús sitt á sandi, segir að lokum í fréttatilkynn- ingu útgáfunnar. Nótt í lífi Klöru Sig. er 125 bls. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði. Ragnheiður Kristjánsdóttir hannaði kápu. Jarðabókin, Húnavatnssýsla ■ Jarðbók Árna Magnússonar og' Páls Vídalíns kemur nú út í nýrri ljós- prentaðri útgáfu. Þetta er áttunda bindið, og er það um Húnavatnssýslu. Jarðabók þessi var samin á árunum 1705-1713. Bogi Th. Melsteð sagn- fræðingur gaf þetta bindi út í Kaup- mannahöfn árið 1926 á vegum Fræða- félagsins. Það var fyrsta bindið af jarðabókinni sem kom út í einu lagi, en fram að því hafði hún komið út í heftum. Hinni Ijósprentuðu útgáfu verður haldið áfram á næstu árum og lýkur með útgáfu á ýmsu efni sem snertir jarðabókarverkið. Gunnar F. Guð- mundson sagnfræðingur mun sjá um þá útgáfu og semja atriðisorðaskrá við öll bindin. Um jarðabókina hefur verið sagt m.a. að hvergi sé að finna á einum stað jafnmikinn fróðleik um jarðir landsins sem í henni. „Hún er hið fyrsta rit sem hefur að geyma svo ná- kvæmar upplýsingar um kvikfénað bænda, jarðir og býli á íslandi, að fá má af henni mjög glögga vitneskju um efnahag landsmanna og hvernig hver jörð var í byrjun 18. aldar.“ Jarða- bókin hlýtur að verða undirstaða allra byggðarsögu- og staðfræðirannsókna hér á landi. GENGNAR LEIÐIR Sagnir samjfírðamtwia _ lI__ Jón Gisli Högnason Sfgurður Jónsson frá Brún EIHN Á FERÐ OG OFTAST RÍÐANDI Hestamaður áferð ■ Bókaútgáfan Kjölur hefur sent frá sér bókina Einn á ferð og oftast ríð- andi, eftir Sigurð Jónsson frá Brún. Sigurður Jónsson frá Brún var landskunnur ferðamaður. Hann átti löngum marga hesta, unni þeim og umgekkst sem vini sína, hvort sem þeir voru hrekkjóttir eða hrekklausir, gæfir eða styggir, geðgóðir eða geðill- ir. Víða hefur hann ratað, farið lítt troðnar götur, - og oftast ríðandi. Haridleggur, Snúður og Snælda hafa verið kærustu förunautar hans, þótt stundum hafi kastast í kekki með þeim, eins og gjörla segir frá í þessari bók. Hér er á ferðinni kjörin bók fyrir ferðamenn, hestamenn og alla þá, sem náin kyni vilja hafa af landi og þjóð. Fjöldi teikninga eftir Halldór Pét- ursson prýða bókina. Káputeikningu gerði Brynhildur Ósk Gísladóttir. Bókin er 244 bls. Útsöluverð er kr. 994. SVARTI Litli svarti Sambó kominn á ný ■ Iðunn hefur nú aftur sent frá sér hið sígilda ævintýri Litli svarti Sambó eftir Helen Bannerman. Bókin er prýdd litmyndum og mun óþarft að fara um hana mörgum orðum því að þessari bók hafa flestir foreldrar og afar og ömmur kynnst af eigin raun. Iðunn hefur einnig gefið út bækurnar Sambó Ojg Tvíburarnir og Litla hvíta lukka eftir sama höfund. Freysteinn Gunnarsson þýddi. Bókin er prentuð í Portúgal. Alþýðulíf Bókaforlag Odds Björnsson- ar á Akureyri sendir nú frá sér 2. bindið af „Gengnum leiðum“ eftir Jón Gísla Högnason í Hveragerði. Þettaeró. bókJóns Gísla, sem hefur gott lag á að fá viðmælendur sína til að segja frá alþýðulífi. Frásagnarmenn í þessu bindi eru: Sigrún Sigurð- ardóttir, Kristinn Sigurðsson, Jón Eiríksson. Ámi Sigurðsson, Hannes G. Hannesson, Egill Egilsson og Jón Pálsson. Prent- verk Odds Björnssonar á Akur- eyri hefur prentað bókina og bundið inn. Hún er 197 bls., með mörgum myndum og ítar- legri nafnaskrá. Verð með sölu- skatti kr. 975.00.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.