NT


NT - 10.12.1985, Síða 8

NT - 10.12.1985, Síða 8
Malsvari frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútiminn h.f. Ritstj.: Helgi Pélursson Ritstjórnarfulltr.: Niels Árni Lund Framkvstj.: Guömundur Karlsson Auglýsingastj.: Steingrimur Gíslason Innblaösstj.: Oddur Ólafsson Skrifstofur: Siðumúli 15. Reykjavik. Simi: 686300. Auglýsingasimi: 18300 Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tækmdeild 686538. TIMINK Verð i lausasölu 35 kr.og 40 kr. um helgar. Áskrift 400 kr. Setning og umbrol: Tæknideild NT. Prentun: Blaðeprent h.f. Kvöldsimar: 686387 og 686306 Opinber rannsókn Hafskipsmálsins ■ Það bar til tíöinda síðast liðinn fimmtudag að Sjálf- stæðisflokkurinn hótaði stjórnarslitum. Nú er hótun um stjórnarslit nokkuð alvarlegt athæfi hjá samstarfsflokki í ríkisstjórn og því lagði þjóðin við eyru til að heyra hver ástæöan væri. Hún reyndist vera sú að Páll Pétursson þingflokksfor- maður Framsóknarflokksins hafði aðra skoðun á kjarn- orku- og vígbúnaðarmálum en Geir Hallgrímsson utan- ríkisráðherra. Pað töldu þingmenn Sjálfstæðisflokksins óverjandi og sendu sjálfan formann flokksins til að gera forsætisráðherra grein fyrir alvöru málsins. Pví er varlega trúað aö ástæða þcssa upphiaups sjálf- stæðismanna sé framkoma Páls Péturssonar. Að vísu hef- ur Páll haft sínar skoðanir á ýmsum málum sem komið hafa fyrir Alþingi en erfitt er að neita þingmanni um að hafa eigin skoðanir og láta þær í Ijós. Sannleikurinn er sá að sjálfstæðismenn eru afar haus- styggir þessa dagana. Flokkurinn er bendlaður við fjár- málahneyksli vegna Hafskipsmálsins og stefna hins óhefta einkaframtaks hefur beðið mikiö skipbrot. Fylgi flokksins hefur stórminnkað síöustu vikur og helstu forystumenn flokksins gera sér grein fyrir því að nauðsynlegt er að losna viö ákveðna menn úr valdastólum og þannig þvo að nokkru ásjónu flokksins. Þá liggur fyrir Alþingi að taka afstöðu til þess, hvernig rannsaka skuli Hafskipsmálið og þátt Útvegsbankans í því. Flestum finnst sjálfsagt að allt verði gert til þess að svo stórt mál verði upplýst sem fyrst og sem best og þjóðin fái að fylgjast mcð þcirri rannsókn. Forsætisráðhcrra hefur farið fram á opinbera rannsókn á viðskiptum Hafskips og Útvegsbankans undanfarin ár og tillaga sem hann flutti þar að lútandi var samþykkt í ríkis- stjórninni s.l. fimmtudag. Að vísu var viðskiptaráðherra Matthías Bjarnason ekki viðstaddur en hann hafði áður ekkert haft við málsmeðferðina að athuga. Nú bregður hins vegar svo einkennilega við að sjálfstæðismenn vilja ekki rannsókn málsins fyrir opnum tjöldum en bcnda á skiptaráðanda enda þótt vitað sé að rannsókn hans taki mörg ár. Er von að menn verði klumsa og spyrji hvað komi til? Hvað er það sem ekki þolir dagsbirtuna í Hafskipsmálinu? Er það mál svo stórt að lög landsins eigi ekki að ná yfir það? Þurfa sjálfstæðismenn eitthvað að fela? Ef það reynist rétt að forráðamenn Hafskips hafi sól- undað fjármunum íslenskra skattborgara á þann máta sem kemur fram í Helgarpóstinum í síðustu viku þá er það ekk- ert einkamál Hafskipsmanna. Þeim fjármunum sem þeir hafa eytt í lúxushótel og bíla, ferðalög og golf er nú þjóðinni ætlað að standa skil á, þar sem ríkið var í ábyrgð og tekur á sig tap fyrirtækisins. Þá velta menn því einnig fyrir sér hvað teljast eðlileg laun til forráðamanna Hafskips. Er það eðlilegt að for- svarsmenn einstaka fyrirtækja sem ríkið stendur í ábyrgð fyrir geti skammtað sér mánaðarlaun sem nema árslaunum þingmanna? Er það eðlilegt að þeir sem skammta sér laun á þennan máta geti notað þau til að kaupa fyrirtæki sem ekki er hægt að ganga að enda þótt vitað sé að þau séu byggð upp af fjármagni frá fyrirtæki í ríkisábyrgð? Ef þetta er stefna einkaframtaksins þá mun hún eiga sér fylgjendur fáa innan tíðar. Hafskipsmálið verður að upplýsa með öllum tiltækum ráðum og það sem fyrst. Því verður vart trúað að Sjálf- stæðisflokkurinn reyni að koma í veg fyrir opinbera rann- sókn málsins svo sem forsætisráðherra hefur farið fram á. Það gæti kallað á stjórnarslit og kosningar sem erfitt yrði fyrir þá að vinna. r Þriðjudagur 10. desember 1985 8 Lu L 1 tíma og ótíma ■ Þeir sem hafa áhyggjur af varöveislu tungunnar geta varpað öndinni léttar eftir að menntamálaráðherra hefur tekið að sér að redda málinu. NT-mynd: Ámi Sxberg ÓBORGANLEG- UR FARSI Lágmenning á greinilegu undanhaldi eftir stórhuga sókn menntamálaráðherra ■ Nýlega var frumsýndur í leikhúsi þjóðarinnar einn besti farsi, sem þar hefur verið settur á svið. Hugsuður- inn að baki þessa sjónleiks er Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra og viðskiptafræðingur frá Ögurvík og kýs hann að láta leikinn gerast í austur evrópskum ráðstefnustíl. Eins og oft þegar leikgyðjan er ann- ars vegar þá vita menn ekki hvort þeir eiga að hlæja eða gráta enda var svo í þetta skiptið. Húsið var þéttskipað og það verður að segjast eins og er að hér var um vel heppnaða halelújasam- kundu að ræða. Yfirskriftin var hvorki meira né minna en „ráðstefna um varðveislu og eflingu íslenskrar tungu“ en til- gangurinn auðvitað sá að þessi óvana- íega bíræfni stjórnmálamaður er hér að slá sig til riddara með eftirminni- legum hætti. Að sjálfsögðu hefur ráðherrann ekki meiri áhuga á eflingu og varð- veislu tungunnar en skrattinn á sálma- lögum og þó svo væri þá er það hans einkamál. Leikurinn er fyrst og fremst til þess gerður að efla og varðveita atkvæði sem fleytt hafa umræddum inn í æðstu embætti þjóðarinnar þar sem hann situr á skítugum rosabuilunum. En víkjum aftur að sjónarspilinu í Þjóðleikhúsinu. I lok leiksins eru bornar fram álykt- anir til samþykktar og eru þær að sjálfsögðu hver annarri gáfulegri. All- ar hefjast þær á sömu orðunum, sem er eins konar stef við þessum óborg- anlegu rafsódíu. „Ráðstefna um varð- veislu og eflingu tungunnar haldin að tilhlutan Sverris Hermannssonar menntamálaráðherra....“ Ein þessara ályktana kveður á um að bregðast þurfi hart við með reglu- gerðum og lagasetningum þeirri lágmenningu sem ausið verður yfir landslýð með tilkomu gervihnatta- sjónvarpsins. í ályktuninni er sett fram sú krafa að þýtt verði yfir á gullaldarmálið allt talað mál, sem berst hingað niður úr skýiunum að söng- lagatextum undanskildum. Hætt er við að þýðendur þurfi mikillar örvunar við ef þeir eiga að geta snarað textum jafnóðum og á móti þeim er tekið og vildi ég ekki vera í þeirra sporum þegar þar að kemur. Ýmsar tilraúnir hafa verið gerðar að undanförnu með þýðingar á þeim myndböndum sem nú eru í gangi meðal eyjaskeggja og það oft með hreint voðalegum árangri. Hvað þá ef slíkar þýðingar ætti að gera jafn- óðum og þær berast á öldum Ijósvak- ans. Um þetta atriði segir menntamála- ráðherra í upphafi leikritsins: „Islensk tunga á í vök að verjast. Enn mun að henni sótt af auknu afli þegar grúi vígahnatta tekur að sveima yfir höfðum okkar og spúa yfir okk- ur lágmenningu ómældri á erlendum tungum. En“, segir ráðherrann síðar í þrumuræðu sinni „kannski rís ís- lensk tunga upp undan ásókn, auð- ugri og fegurri en nokkru sinni.“ Á þessari stundu taka áheyrendur völdin í leikhúsinu með dynjandi lófa- klappi og einstaka harðlínumenn standa upp til að fylgja hrifningu sinni eftir. Ráðstefnan er sett og sóknin hafin. JÁÞ Út í kuldann ■ Út er komin hjá Forlaginu teikni- myndasagan Kuldastríðið eftir hinn fræga franska teiknara Eric Maltaite. Þetta er fyrsta sagan í nýjum flokki teiknimyndasagna um hetjuna 421. Á næsta ári mun Forlagið halda áfram útgáfu myndasagnanna um þessa vin- sælu hetju og ævintýri hennar. 421 er harðsnúinn leyniþjónustu- maður sent nótt eina er vakinn af vær- um blundi við hlið elskunnar sinnar. Miskunnarlausir heimsvaldasinnar hyggja á heimsyfirráð og sprengja sprengjur sem hafa þau áhrif að skyndilega kólnar í heiminum. Kuld- inn breiðist um allan heim eins og farsótt. 421 er sendur út í stórhríðina til að reyna að stöðva Kuldastríðið... .421 er 48 bls. og prentuð á Ítaiíu. Þuríður Baxter þýddi söguna.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.