NT


NT - 10.12.1985, Side 11

NT - 10.12.1985, Side 11
Þriðjudagur 10. desember 1985 11 Þorgils Óttar átti góða Ieiki með íslenska landsliðinu gegn Þjóðverjum. Hér er hann í strögli á Akureyri. inu; M M MMM l’ormumliir llcrswin lal'in.i óí llclmir Hai«nn Handknattleikur, Ísland-V-Þýskaland 21 -26: „Vantaði einbeitingu“ - sagði Þorbjörn Jensson fyrirliði eftir tapið á Akureyri ■ Það var varla gerlegt að vinna upp 6 marka iórskot gegn þessum körlum í síðari hálfleik. Við vorum ákaflega slakir í fyrri hálfleiknum, það vantaði alla einbeitingu og það var ekki sami andinn í liðinu og í fyrsta Ieiknum“ sagði Þorbjörn Jensson fyrirliði íslenska landsliðs- ins eftir að það hafði tapað 21:26 fyrir V-Þýskalandi í leik liðanna á Akureyri á laugardag. Eftir gott gengi íslenska liðsins á föstudagskvöld voru menn bjart- sýnir fyrir leikinn á laugardag og íþróttahöllin á Akureyri var þétt- setin. Byrjunin lofaði líka góðu, Is- land komst yfir 3:1 með mörkum frá Kristjáni Arasyni, Páli Ólafs- syni og Alfreð Gíslasyni sem lék sinn fyrsta landsleik á Akureyri. En þessi byrjun var því miður að- eins lognið á undan storminum. Strákarnir misstu alla einbeit- ingu í sókninni, skutu úr slæmum færum - kláruðu ekki sóknirnar - og Þjóðverjarnir með liinn stór- kostlega leikmann Fraatz í farar- broddi voru fljótir að snúa dæminu við. Hvað eftir annað geystust þeir á hraðaupphlaup, þeir jöfnuðu leikinn 3:3 en Kristján kom íslandi síðan yfir 4:3 á 8. mínútu. En þá komu 8 þýsk mörk í röð og staðan var orðin 11:4. Það sem eftir lifði hálfleiksins var jafnræði með lið- unum og staðan í hálfleik 15:9. Þessi ntunur hélst framan af síð- ari hálfleik og mátti sjá á töflunni 18:12. Þá komu 3 íslensk mörk í röð, tvö frá Kristjáni og eitt frá Guðmundi Guðmundssyni og staðan var orðin 15:18. Vonir kviknuðu, sérstaklega vegna þess að íslenska liðið fékk tvö tækifæri til að minnka muninn í 2 mörk en þá kom enn upp agaleyi í sókninni og nær varð ekki komist. Staðan breyttist í 16:21 og úrslitin voru þá ráðin. í heild olli íslenska liðið von- brigðum á Akureyri. Sóknar- leikurinn vægast sagt köflóttur og vörnin oft illa á verði svo ekki sé talað um öll mörkin sem liðið fékk á sig úr hraðaupphlaupum. Besti ntaður liðsins var Þorgils Óttar sem barðist mjög vel á vörninni og var virkur í sókninni þar sem hann fiskaði t.d. 5 víti og skoraði sjálfur eitt mark. Atli Hilmarsson átti góðan kafla í síðari hálfleik, Krist- ján Arason var þokkalegur og sömuleiðis nafni hans í markinu í síðari hálfleik en aðrir áttu fremur slakan dag. Tveir félagar Alfreðs Gíslasonar hjá Essen voru mennirnir á bak við þennan sigur Þjóðverjanna, þeir Jochcn Fraatzsem er stórkostlegur hornamaður og hraðaupphlaups- maður og markvörðurinn Stefan Hecker sem varði eins og berserk- ur í síðari hálfleik, ekki færri en 13 skot þá. Hinn markvörður liðsins, Thiel, sem er af mörgum talinn besti markvörður heims fann sig ekki í byrjun og lék ekkert í síðari hálfleik. Annars er þýska liðið geysiskemmtilegt lið, en þrátt fyrir það á okkar lið að geta mun betur gegn því, á heimavelli. Mörk íslands: Kristján 7(3), Atli 6(2), Gud- mundur 3, Sigurður 2, Þorgils, Páll og Alfred 1 hver. Mörk V-Þýskalands: Fraatz 7, Schwalb 4, Schweuker, Neivzel og Wunderlich 3 hver, Roth og Fitzek 2 hvor, Lommel 1. Dómarar voru þeir svissnesku sem dæmdu alla landsleikina og voru slakir dómarar, alls ekki i þeim gæðaílokki að vera milliríkjadómarar. gk-- w Mynd: Gylfi. Handknattleikur, Island-V-Þýskaland 20-17: Heimsklassaknattleikur -í fyrri hálfleik, sagði Kristján Arason eftir annan sigur á V-Þjóðverjum - Skemmtilegur leikur ■ íslenska karlalandsliðið í handknattleik sýndi svo sannar- lega hvað í því býr um helgina. Lið- ið sigraði V-Þjóðverja í annað sinn á þremur dögum á sunnudags- kvöldið í Laugardalshöll fyrir allt of fáum áhorfendum. Leikurinn endaði 20-17 fyrir ísland og var bæði spennandi og vel leikinn. Þetta var mun betri leikur en í Höllinni á föstudagskvöldið en kannski ekki eins spennandi. ís- lendingar höfðu alltaf forystu í leiknum utan einu sinni í fyrri hálf- leik er þeir þýsku komust í 5-4. Síð- an var ekki snúið við og sigurinn hefði getað orðið stærri ef ekki hefðu farið til spillis fjögur hraða- upphlaup þar sem bara þurfti að koma tuðrunni í netið. „Ég vil meina að við höfum leik- ið heimsklassahandknattleik í fyrri hálfleik. Vörnin var mjög góð og í sókninni gekk okkur vel á móti 6-0 vörn Þjóðverjanna,“ sagði Kristj- án Arason eftir leikinn. Vissulega hafði Kristján rétt fyrir sér. Is- lenska liðið kom til leiks með réttu hugarfari. Ekki var farið að neinu óðslega heldur vandað sig í hverri sókn - utan hraðaupphlaupin. Kristján skoraði sjálfur. fyrsta markið en Wunderlich jafnaði úr víti. Þorgils og Sigurður Gunnars- son komu íslandi í 3-1 en síðan jafnaðist leikurinn og Þjóðverjar höfðu yfir 5-4 um miðjan fyrri hálfleik. Seinni hluti hálfleiksins var mjög góður og staðan í hléi var 11-9 fyrir Island. Síðari hálfleikur byrjaði fjörlega og tvö hraðaupphlaup fóru í súginn áður en Einar varði víti frá Wund- erlich og Roth skoraði 11-10. Þá kom frábær kafli hjá íslendingum. Fjögur mörk í röð og staðan orðin 15-10. „Við náðum góðri einbeit- ingu í þessum leik og létum okkur nægja hverja sókn fyrir sig. Það skilaði sér og Þjóðverjarnir voru orðnir dálítið argir,“ sagði Sigurð- ur Gunnarsson eftir leikinn. Rétt hjá Sigga. Þjóðverjarnir voru hálf svekktir. Wunderlich setti nú bara hendur á mjaðmir og hristi hausinn eftir að Einar hafði varið frá hon- um einu sinni sem oftar. Einar fór á kostum og varði ein 15 skot. Þjóð- verjarnir ná að rétta hlut sinn í 16- 13 áður en íslendingar gera endan- lega út um leikinn með þremur mörkum. Ei.tt frá Bjarna og tvö frá Alfreð. Staðan 19-13 og nú var bara hangið á boltanum. „Við gerðuin nokkuð af því í síðari hálf- leik að hanga á boltanum og reyna að hafa langar sóknir. Þetta var til þess að reyna að varðveita forystu okkar í leiknum. Þess vegna urðu okkur á nokkur mistök en um leið var þetta pirrandi fyrir Þjóðverj- ana,“ sagði Kristján eftir leikinn. Páll Ólafsson átti síðasta orðið fyr- ir ísland og lokatölur urðu 20-17 eins og fyrr segir. Frábær úrslit. Á köflum sýndu bæði liðin hand- knattleik í heimsmælikvarða. ís- lendingar voru einfaldlega betra liðið og sigurinn afar sanngjarn þrátt fyrir hálfóhagstæða dóm- gæslu. „Dómararnir voru að mínu mati lélegir. Þeirdæmdu einhverja vitleysu og ætluðu síðan að breiða yfir hana með því að dæma á hitt liðið og úr varð enn meiri vit- leysa," sagði Kristján eftir leikinn. Sem sagt frábær árangur hjá litla Íslandi um helgina. Að vísu verð- ur því ekki neitað að stemmningin í Höllinn hjálpaði til. „Það væri frá- bært að hafa HM í Laugardalshöll. Við þekkjum hana vel og því geng- ur oft frábærlega í henni,“ sagði Sigurður Gunnarsson. Kristján varð markahæstur ís- lendinga með 4 mörk en Atli, Guð- mundur og Alfreð skoruðu 3 hver. Páll, Sigurður og Þorgils tvö mörk og Bjarni eitt. Fyrir Þjóðverja skoraði Wunderlich 5 en Fraatz var slakur og lítið með. þb ■ íþróttasamband fatlaöra útnefndi í gær ínu Valsdóttur íþróttafélaginu Ösp, íþróttamann ársins úr röðum fatlaðra árið 1985. ína er mjög fjölhæf íþróttakona, á til að mynda 3 íslandsmet í frjálsum íþrótt- um og 11 Islandsmet í sundi. Hún kemur úr röðum þroskaheftra og setti nýtt Norðurlandamet í 100 m flugsundi í þeim flokki í fyrra. Á mvndinni fyrir ofan má sjá ínu með bikarinn góða ásamt móður sinni Jónínu Þorbjörnsdóttur. Bikarinn var afhentur í hófi sem haldið var á Hótel Óðinsvé. HM U-21 árs: ísland áfram ■ íslenska landsliöiö í handknattleik skipaö leik- niönnuni 21 árs og yngri er komiö í milliriðla heinis- nicistarakcppninnar á Ítalíu og fer í þá kcppni með tvö stig úr undanriölinuin. Eins og NT skýröi frá á laugardag unnu okkar menn ítali 16-15 í opnunarleik mótsins. Aftur á móti náðu þcir ekki aö sigra Egypta heldur þurl'tu aö sætta sig viö 14-13 tap - mjög óvænt úrslit en þess ber þó aö geta að Egyptar eru allir að koma til í handknattlciksíþrótt- inni. Portúgalskir dómarar komu verulega við sögu í þessum leik. í einni sókn- inni undir lokin voru t.d. tveir okkar manna rcknir af lcikvclli - ótrúlegt og óvenjulegt og þeir portú- gölsku hafa nú lokið störf- um sínum á mótinu. Á sunnudaginn tapaöist svo viðureignin við V-Þjóð- verja 18-15. Það var góður leikur. Jakob Sigurðsson skoraöi mest okkar manna, sex mörk alls. V-Þjóðverjar fara í milli- ríðilinn með 4 stig, íslend- ingar með 2 stig og ítalir komast með ekkert stig í milliriðilinn. Úr hinum undanriðlinum koma Svíar, með 4 stig, A-Þjóðverjar og Svisslendingar með 1 stig hvor þjóð. Okkar menn mæta þremur síðasttöldu þjóðunum og verður sjálfsagt við ramman reip að draga, sérlega gegn hinu geysi- sterka liöi Svía.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.