NT


NT - 10.12.1985, Side 15

NT - 10.12.1985, Side 15
4 Vondar kennslustundir ■ Þættir Árna Böðvarssonar um móðurmálið og íslenskan framhurð eru eitt það leiðinlegasta sjónvarps- efni sem sjónvarpið hefur boðið upp á í langan tíma og er þó af ýmsu aö taka úr þeim endanum. Sá sem slysast til að verða nemandi Árna í þessum kennslustundum, hann gæti vel ímyndað sér að engar framfarir hefðu orðið í kennslumál- um í landinu síðustu eitt til tvö hundr- uð árin. Ef til vill er það svo að fram- farimar í þessum efnum hafi ekki orð- ið stórstígar en ég á þó bágt með að trúa því að þessar kennslustundir séu dæmigerðar fyrir það skólakerfi sem við búum við. En ef svo er þá er svo sannarlega kominn tími til að við förum að hysja upp um okkur brækurnar og gera kennsluna skemmtilegri og meira að- laðandi en hún er. Mér er sagt að maðurinn hafi lengst af starfað að skólamálum og kennsla sé og hafí verið hans aðalstarf. Auð- vitað cru menn mishæfir til að gegna störfum sínum og svo sem ekkert um það að segja. En nú þegar sjónvarpið vclur kennara til að taka þjóðina í læri þá verður að gera þá kröfu að sú kennsla sé í nokkrum takt við tírnann. Nú er það svo að það sem einum finnst skemmtilegt og fróðlegt finnst öðrum leiðinlegt. Það kann að vera að ég sé eini nemandinn í skóla þjóðar- innar sem læt mér leiðast og þá verður svo að vcra. Ég get þó ekki annað en motmælt því sem rnér er boðið upp á og vil ekki trúa því að kennslustundir í íslensku þurfi að vera jafn leiðinlegar og geld- ar og þær sem ég hef orðið vitni að í sjónvarpinu aö undanförnu. Til kennarans vildi ég koma þeim skilaboðum að hann fái sér annan starfa eða leiti sér endurmenntunar. Lærlingur MARS OG TUNGLIN HANS ■ Listamaðurinn Ludek Pesek hefur gert fallega mynd af Mars eins og hann hugsar sér hann, séð frá Deimos, ytra tungli reikistjörn- unnar. Sólin skín aðeins á mjóa rönd, vinstra megin á Mars, en meiri hluti hans er í skugga. Vel má sjá marga gíga og mishæðir á þess- ari björtu brún, enda er Mars mjög grafinn gígum mynduðum af falli loftsteina. auk þess sem víða er þar að finna eldfjöll stór og smá, fjall- garða og hrikaleg gljúfur, sem teygja sig hundruð kílómetra vega- lengdir. Dcimos, sem hér er hinn hugsaði útsýnisstaður listamannsins, er lít- ið tungl og óreglulegt að lögun, stærðin um það bil 15x 12x 11 km. Yfirborð þessa litla tungls er mjög þakið gígum, sem vafalaust eru myndaðir af falli loftsteina. Innra tunglið Phobos, er nokkru stærra eða 27x21x19 km. óreglu- legt að lögun eins og hið ytra, og al- sett loftsteinagígum á sama hátt. Stærsti gígurinn er þar um fimm km í þvermái, og er nefndur Hall- gígurinn, eftir Asaph Hall, manninum sem fyrstur fann bæði þessi litiu tungl árið 1877. II Ýmislegt hefur vetið rætt og rit- að á síðari árum um þessi tvö tungl, sem ganga umhverfis Mars, og hef- ur jafnvel sumum athugendum þeirra komið til hugar, að þau, - eða að minnsta kosti annað þeirra, - væru gerð af mannlegum vitver- um, sent einhverntíma í fyrndinni hefðu byggt þennan nágrannahnött okkar, Mars. Nú hefur sú hug- mynd verið að fullu niður kveðin eftir að nærmyndir af tunglum þessum hafa teknar verið frá gervi- tunglum þeim, sem mönnum hefur tekist að senda út í geiminn. Eins og fyrr sagði var það ekki fyrr en árið 1877, sem tókst að finna þau, með bestu tækjum sem þá var völ á. Það er því ekki lítið undrunar- efni að löngu fyrr, var sagt frá tunglum þessum, og þeim allvel lýst og hvernig göngu þeirra væri ■ Mars séður frá Deimos. háttað umhverfis Mars. Það var stjórnmálamaðurinn og rithöf- undurinn frægi Jonathan Svift (f. 1667 - d. 1745) sem lýsti þessu íbók sinni: Ferðir Gullivers11, sem kom út árið 1726. Þótti mönnum hér vera um heilaspuna einan að ræða. En annað kom á daginn, er tunglin tvö voru uppgötvuð vísindalega árið 1877, eða 151 ári síðar, og þótti þá öllum hin mesta furða, að saman skyldi bera forspá rithöf- undarins og hin raunverulega til- vist þessara litlu tungla. Þykir mér þó líklegt, að hin sér- kennilega forspá eða vitneskja Jónathans Svifts um tunglin tvö, sé ekki runnin af einum saman heila- spuna hans sjálfs, heldur komi hér annað til. E.t.v. mætti hugsa sér, að rit- höfundurinn hafj komist í fjarsam- band við einhvem íbúa annars hnattar, (í öðru sólhverfi) sem meira hefur vitað um eitt og annað í okkar sólhverfi, en íbúar jarðar- innar sjálfir vissu á þeim tíma. fcigvuí Agnarsson Þridjudagur 10. desember 1985 15 Skálholtsskóli Býður fornám á vorönn fyrir nemendur sem ekki hafa hlotið tilskilda framhaldseinkunn á grunnskólaprófi eða eru orðnir 18 ára. Kenndar verða kjarnagreinar, ís- lenska, danska;enska og stærðfræði. Auk þess eru í boði kennslugreinar Lýðháskólans, svo sem myndmennt, félagsgreinar, vélritun o.fl. Kennsla hefst 7. janúar og lýkur með prófum 2., 5., og 9. maí. Umsóknir beristtil Skálholtsskóla, 801 Selfossi fyrir 28. desember. Auglýsing um styrkveitingar til kvikmyndagerðar Kvikmyndasjóður íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki til kvikmyndagerðar. Sérstök eyðublöð fást í Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 1986. Reykjavík 6. desember 1985. Stjórn Kvikmyndasjóðs íslands. Hestamenn Rauðblesóttur 9 vetra taminn hestur með marki, fjöður framan bitið aftan hægra og bitið framan vinstra, verður seldur á opinberu uppboði að Auðkúlu 1, föstudaginn 20. desember n.k. kl. 14.00 hafi réttur eigandi ekki gefið sig fram fyrir þann tíma og greitt áfallinn kostnað. Hreppstjóri Svínavatnshrepps. Brennur á gamlárskvöld Þeir sem hyggjast hlaða bálkesti til að kveikja í á gaml- árskvöld eða á þrettándanum eru beðnir að sækja um leyfi til þess sem fyrst. Umsóknum skal skila til lögreglustjóra fyrir 28. des- ember n.k. Óheimilt er að byrja á hleðslu bálkasta fyrir 15. desember. Lögreglustjórinn í Reykjavík. Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík. + Innilegar þakkir fyrir hlýhug viö andlát og útför móöur okkar Pálínu Jónsdóttur Reykjadal Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki sjúkrahúss Suðurlands. Börn og fjölskyldur t Utför Jónínu Valdimarsdóttur Schiöth frá Hrisey fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 10. desember, kl. 13.30. Helga Schiöth Rafn H. Gíslason GísliH.Sigurðsson Sigurjona SijjurðardoUir Ásta t>. Sigurðardóttir ogbarnabörn Sigurður Brynjólfsson Alda Hallgrímsdóttir Y JónínaS. Lárusdóttir Halldor Asgrimsson Ellert J. Þorgeirsson

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.