NT - 10.12.1985, Qupperneq 17
Þriðjudagur 10. desember 1985 17
JE____Minning_____
Jónína Valdimars-
dóttir Schiöth
Fædd 15. apríl 1884.
Dáin 1. dcseinbcr 1985.
Aðeins áratug eftir að íslending-
ar fengu stjórnarskrá frá konungi
og þjóðin hélt upp á þúsund ára af-
mæli íslandsbyggðar fæddist á Kol-
grímastöðum í Eyjafirði Jónína
Valdimarsdóttir Schiöth. Foreldr-
ar henar voru Valdimar Árnason,
bóndi og Guðrún Þorkelsdóttir.
Var Jónína yngst af fjórum börn-
um þeirra hjóna og dvaldi í for-
eldrahúsum fram á unglingsár.
Réðist hún þá í vist að Hrafnagili
hjá Jónasi Rafnar og síðar hjá
Steingrími Matthíassyni, yfirlækni
á Akureyri. Upp úr því kynnist
hún Karli Friðrik Schiöth, kaup-
manni á Akureyri. Karl Schiöth
missti konu sína Helgu 1911 og
kom Jónína nokkru síðar á heimili
hans og tók að sér heimilisstjórn.
Átti hann þrjú börn, sem voru orð-
in stálpuð. Felldu þau hugi saman
en áður að giftingu gat orðið þurfti
Jónína að fara til Kanada 1912 með
fóstursystur sína sem var 12 ára.
Kom hún heim úr þeirri för í upp-
hafi fyrri heimsstyrjaldar 1914 eftir
að hafa verið 72 daga á leiðinni
heim. Viku síðar giftist hún Karli
Schiöth, kaupmanni.
Ferðalag þeirra var Jónínu mjög
minnisstætt en heimferðin lá í
gegnum Bretland. Komst hún það-
an heim með togara, sem var í
söluferð. Sýnir það best viðburða-
ríka ævi, að hún fygldi innflytjanda
til Kanada og kom til baka um það
leyti sem ófriður hófst 1914. Varð
hún vitni af upphafi átakanna í
Bretlandi.
Fyrstu ár hjónabandsins voru
áreiðanlega hennar mestu ham-
ingjuár. 1918 eignuðust þau
dóttur, sem þau skírðu Helgu í
höfuðið á fyrri konu Karls og tveim
árum síðar fæddist þeim sonurinn
Hinrik. Áður höfðu þau tekið í
fóstur systurdóttur hennar, Jón-
ínu, sem nú býr í Noregi.
Fjölskyldan fór ekki varhluta af
erfiðleikum kreppunnar. Svo fór
að lokum að verslun Karls varð
gjaldþrota og fluttu þau þá nánast
eignalaus út í Hrísey og hugðust
byggja þar upp að nýju. Aðeins ári
síðar 15. júní 1928 missti Jónína
mann sinn og höfðu þau þá tekið
grunn að stóru húsi þar. Það var
ekki auðvelt fyrir ekkju að standa
uppi eignalausa með þrjú ung börn
á þeim árum. Jónína lét ekki bug-
ast og byggði húsið Ásgarð með
aðstoð vina sinna og má það teljast
ótrúlegt afrek. Síðar bættist í
barnahópinn, en hún tók í fóstur
Sigurð Jóhannsson, sem núerskip-
stjóri á Akureyri.
Ég kynntist Jónínu fyrst þegar
hún var komin á níræðisaldur, en
ég hef heyrt margar lýsingar af
henni á yngri árum. Vinur hennar
og jafnaldri Kristján Sveinsson
lýsti henni m.a. svo á 80 ára afmæli
hennar:
„Allt þú lífið áfram braust,
enga hræddist vigra.
Erifðleika endalaust,
alla tókst að sigra.
Ekki býst ég ennþá við,
þú ætlir neitt að slaka.
Pú hefur aldrei haft þann sið,
að hörfa langt til baka.
Ætíð veikum veittir bót,
- vinar traustur þelinn.
Varst, sem mosa gróið grjót,
greypt í fastan melinn‘\
Jónína var lítið fyrir lof og
óþarfa málalengingar. Henni var
ekki tamt að segja sögur af sjálfri
sér, en ég er þess fullviss að sú
lýsing, sem fram kemur í ljóðlínum
Kristjáns á afar vel við hana. Þegar
hún hafði lokið við bygginguna í
Hrísey ákvað hún að koma þar upp
greiðasölu 1930 og rak hana til árs-
ins 1942. Sonurinn Hinrik drukkn-
aði með m/b Sæborgu í nóvember
1942 en hann var þá nýorðinn stýri-
maður. Upp úr því bjó hún með
dóttur sinni Helgu og tengdasynin-
um Sigurði Brynjólfssyni í Ásgarði.
Árið 1959 fluttu þau til
Kópavogs og bjó hún þar hjá þeim
þar til hún fluttist á Hrafnistu árið
1965. Dvaldi hún þar til dauðadags
við góðan aðbúnað og rnikla um-
hyggju dóttur sinnar og tengdason-
ar.
Jónína var komin á Hrafnistu
þegar ég kynntist henni. Þar bjó
hún legnst af í litlu herbergi og var
alltaf glöð með sitt hlutskipti. Það
var eftirminnilegt að hlusta á Jón-
ínu tala um langa og atburðaríka
ævi. Ávallt gerði hún mest úr því
hvað hún hefði verið heppin og
lánsöm. Hún notaði þar hvert tæki-
færi til að gleðja aðra og drýgði
gjarnan ellilaunin sín með því að
hnýta á.
Jónína átti marga vini og þeir
voru margir sem komu í heimsókn
til hennar á Hrafnistu. Hún var stolt
af því að taka á móti sem flestum á
dvalarheimili aldraðra sjómanna.
Hún hafði sjálf rekiö þjónustu fyrir
sjómenn í Hrísey og í því umhverfi
vildi húin dvelja. Fólki fannst
skemmtilegt að heimsækja hana
fyrst og fremst vegna þess að hún
gaf öllum mikið með orðum sínum
og frásögn. Hún fylgdist vel með
því, sem var að gerast og fannst
eyðslusemi og fyrirhyggjuleysi ein-
kenna margt, sem þjóðin var að
glíma við. Það var henni þó mikil
unun að horfa á alla uppbygging-
una og framfarirnar, sem áttu sér
stað í þjóðfélaginu. Henni var
minnisstætt að hún hafði þurft að
standa ein að húsbyggingunni í
Hrisey. Hún vildi koma á bygging-
arstað og vera með í ráðum þegar
barnabörnin voru að reisa hús sín
og sýndi gjarnan við það tækifæri
nokkuð af stjórnsemi sinni og
skörungsskap.
Alltaf fannst henni að hún hefði
nóg af öllu og ef hana vanhagaði
um eitthvað þá var hún fljót að
bjarga sér. Eitt sinn taldi hún að
nauðsynlegt væri fyrir sig að kaupa
ísskáp og fann út úr því að þann
grip væri hasgt að kaupa með af-
borgunum. Áður en nokkur vissi af
hafði hún keypt ísskápinn með
greiðslufresti. Hún taldi í sjálfu sér
að þetta væri ekki sérstaklega gott
form til viðskipta en fannst að rétt
væri að hún hefði svipaða hætti og
aðrir.
Lífsviðhorf Jónínu var ekki flók-
ið en af því hafa margir mikið lært.
Hún gerði ekki kröfur til samfé-
lagsins og einfalt líferni var það
eina sem hún þekkti. Hún gerði
ekki mannamun og var nákvæm í
samningum og samskiptum. Eitt
sinn fékk blaðamaður viðtal við
hana á tíræðisaldrinum. Hann
sendi síðan ljósmyndara á eftir án
þess að tala unt það, þannig að hún
gæti verið undirbúin fyrir mynda-
töku. Ljósmyndaranunt vísaði hún
frá og neitaöi frekari samskiptum
við blaðamanninn.
Nú er þessi sómakona látin. Það
eru margir, sem vilja þakka henni
fyrir samfylgdina. Henni var efst í
liugá þakklæti til þeirra, sem hún
hafði kynnst. Þær voru margar
þrautirnar, sem hún þurfti að
ganga í gegnum á lengri lífsleið en
almennt gerist. Alltaf hafði hún
samt tíma til að hjálpa öðrum og
gefa góð ráð. Kjarkurinn bilaði
aldrei og hún trúði því að sérhvert
spor, sem hún ákvað að stíga, yrði
til gæfu. Við Sigurjóna og dæturn-
ar kveðjum Jónínu í dag með virð-
ingu og þökk fyrir alla þá t*m-
hyggju og hvatningu sem hún veitti
okkur. Það var ekki skyldurækni
við gamla konu, sem rak okkur til
að hitta hana. Hún hafði ekki að-
eins lífsorku fyrir sjálfa sig. Allir
sem töluðu við hana fengu frá
henni kraft og dáðust að því já-
kvæða lífsviðhorfi, sem birtist í
sérhverju orði og athöfn. Hún vará
langri ævi með í að berjast fyrir
því, sem við eigum öll í dag. Oft á
hún eftir að koma í hugann. Henn-
ar kynslóð hefur gefið okkur mikið
til að varðveita. Það þurfti
manndóm og hugrekki til að
byggja upp með tvær hendur
tómar. Hvort verk þeirrar kynslóð-
ar sem hún tilheyrði verða nægi-
lega metin mun aðeins sagan leiða í
Ijós. Hún hafði áhyggjur en gerðist
ekki dómari í því frekar en öðru.
Hún var hamingjusöm þegar
hún dó og þá, eins og alltaf áður,
var trúin á Guð það dýrmætasta
sem hún átti.
Halldór Ásgrímsson
LÝSANDI KROSSAR
Á LEIÐI
LJÓS & ORKA
Suðurlcindsbraut 12
sími 84488
ALLT í MASTER: 2 hallir, allir fylgihlutir, 20 teg. af körlum
Athugið - Hundruð leikfanga á gömlu verði
Sparið þúsundir og kaupið jólagjafirnar tímanlega
Póstsendum LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustíg 10. S. 14806.
flokksstarf
Freyjukonur - Kópavogi
Munið jólafundinn okkar í kvöld þriðjudaginn 10. desember. kl. 20.30.
Skemmtinefndin.