Sunnudagsblaðið - 31.03.1957, Page 8

Sunnudagsblaðið - 31.03.1957, Page 8
200 SUNNUDAGSBLAÐIÐ Hin hebres ran vaEd IIINIR Hvanefndu „Dauðahafs- strangar“ — strangar með gömlum biblíutcxtum — hafa komið af stað mikilli deilu milli hinna lærðu. Fyrstu strangarnir fundust fvrir um það bil tíu árum, en rannsókn þeirra mun taka langaii tíma. Fundur þcssara stranga cr vafa- iaiist sá fornleifafundur, er mesta alhygli hefur vakið á þcssari öld. Dessir gömlu biblíutextar, sem cnn hcfur ekki verið raðað saman nc skrásettir, komu fræðimönnum næstum úr jafnvægi — og margir neituðu blátt áfram lengi vel að trúa sanngildi fundarins. Enn í dag cru miklar deilur milli ritn- ingarfróðra manna um það, hvaða þýðingu þcssi hcbresku handrit kunna að hafa, en enginn efast Icngui' um sannlciksgildi strang- anna. Árið 1947 fundust fyrstu hand- ritin af tilviljun. Tvcir Beduína- drengir voru að leit.a að geit. sem tapast liafði. Þegar þeir voru að leita, fundu þeir gamian helli við Qumran vestan við Dauöahafið. Inni í hcllinum voru margar gaml- ar leirkrukkur, sem voru fullar af liandritutn. Einstöku handrit voru skráð á skinn, en önnur á papyrus. Þessi fyrsti fundur leiddi tii af- armikillar leitar að fornleifum í hcraðinu Qumran. í þeirri leit fundu vísindamennirnir hella og' liolur svo hundruöum skipti, en íæst þeirra höfðu handrit að geyma. Þrátt fyrir það hefur furðu íjölbreytt efni komið fram í dags- ins ljós. Hin fyrstu handrit. sem fátækir Arabar höfðu selt fvrir nálega ekk ert;, eru nú í hinu hebreska forn- gripasafni í ísrael, en meginhluíi þcss, cr síðár hcfur fundízt, er gcymdur í Forngripasafninu i Jerúsalem. Nú hefur verið ákveð- ið, að allir þeir fundir, scm kunna að vera gerðir í framtíðinni, skuli Faðir Dolcrcq, prior við klaustrið St. Etiennc i Jcrúsalem, sko'ðar eitt af liinum fornu handritum. •fyrst koma á þetta safn, þar sem þckktir sérfræðingar á vegum al- þjóðasamtaka vinna nú við að flokka og skrásetja þá. F.r þctta gert til þess að koma í veg fyrir að þessir munir tvístrist víðsvcgar um heipiinn. Þetta er verk, sem krefst mikill- ar þolinmæði, því að margir af bútunum cru mjög smáir — þeir minnstu á stærð við nögl. Jafn- óðum og handritin hafa verið at- huguð. er ætlunin að senda þau aftur til sinna réttu eigenda, sem eru Vatikanið, stjórn Jórdaníu og stofnanir, sem hafa kostað upp- gröftinn. Handritin, sem fundust við Qumran, eru meira en 2000 ára gömu.l. A einum stranga'num var meðal annars fullkominn tcxti af riti Jesaja spámanns — skrifað 100 árum fvrir fæðingu Krists. Hvcrsu athyglisverðir þcssir fundir eru í raun og veru verður ljósast. þegar þess er gætt, að elztu handrit gamiatestamentisins, sem áöur voru til á frummálinu, hebreskunni, eru frá 10. öld eftir kristsburð. Það eru að vísu til nokk ur eldri handrit, en þau eru öll þýdd. grísk cða latnesk. Nú hafa fræðimenn fengið til meðferðar handrit, sem ef til vill eru aðeins nokkrum öldum yngri en frum- ritin sjálf. Að sjáfsögðu verða hinir nýju biblíutcxiar, sem hafa fundizt, ná- kvæmlega bornir saman við texta þá, er áður voru til. Hér er ekki um að ræða augnabliksverk og enn of snemmt að segja, hversu áhrifamiklir hinir nýju fundir kunna að verða fyrir núverandi biblíutexta. Vísindamennirnir hafa þegar gctað dregið vissar ályktanir af jjví efni, sem hefur fundizt. Fræði menn eru í aðalatriðum sammála um, að strangarnir hafi verið hluti af stóru bókasafni, og að skjölin hafi verið skrifuð af flokki gyð- inga — nokkurskonar munkafé- lagi —, er neínist essaer. Essearn- ir voru í þessu héraði á tímabil- inu frá 100 fyrir fæðingu Krists til um það bil 70 ár e.Kr. Forn- leiíafræðingar haía við uppgröft

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.