Sunnudagsblaðið - 21.04.1957, Blaðsíða 6

Sunnudagsblaðið - 21.04.1957, Blaðsíða 6
246 SUNNUDAGSBLAÐIÐ Páskasiðir í Sevi.iU á Spáni Á ENGUM STAÐ í veröldinni er páskanna minnst með jafnmikl- um hátíðahöldum og á Spáni, og þó einkanlega í Sevilla. Þar er án efa hin mesta trúarlega leiksýn- ing, sem dæmi eru til nokkurs- staðar, hvort heldur sem leitað er í Evrópu, Asíu eða Ameríku. í þúSundvim spánskra borga og svéitaþorpa er píningarsögunnar minnst með iitauðugum helgigöng um og trúarlegri tónlist, og standa þessi hátíðahöld yfir dö um sam- an, já svo að segja allan sólarhring inn í heila viku. Fólk leggur sig aðeins stutta stimd til svefns, og aðfaranótt föstudagsins langa, fer það alls ekki í rúmið. „Þá nótt svaf enginn í Jerúsalem“, segja Spán- verjar. hvern björgunarbát og björgun- arfleka upp af biblíum í vatnsþétt- um umbúðum. Sama er að segja um biblíur fyrir flugvélar. Enn í dag ar verið að senda nýj- ar biblíuútgáfur út á markaðinn víðsvegar í heiminurn. Rétt fyrir styrjöldina var nýja testamentið gefið út í líkri útgáfu og venju- legar skáldsögur og veraldlegar bækur, það er að segja með glæsi- legri kápu, sem gekk í augun á kaupendum, og varð þetta til þess að margir nýir lesendur hins hel- aga orðs bættust við þá sem fyrir voru. Fyrir ekki alllöngu hefur nefnd lærðra manna frá fjörutíu kirkju-. félögum á Englandi lokið við 15 ára starf, og árangur þess er ný endurskoðuð fjöldaútgáfa á biblí- unni. Mdnn þessir liafa leiðrétt og strikað út fimm þúsund skekkjur, sem verið hafa í fyrri útgáfum og breytt þrjú hundruð orðum, sem breytt hafa merkingu eftir því sem tímar hafa liðið. Á Suður-Spáni er hver einasti gluggi prýddur með pálmagrein- um og blómum. Frá húsasvöliim hanga teppi og iitsaumaðir dúkar, og stundum er þar einnig komið l'yrir speglum, sem glampar á í sólskininu. Kirkjus.úlurnar eru sveipaðar flauelsdúkum og rauðir dreglar eru lagðir milli allra bekkjaraðanna. Hinir dýrmætustu silfurmunir glitra á altörunum, og það er mikil trúarvakning meðal Spánverja og þeir gefa mörg og fögur loforð’ um afturhvarf, iðrun og yfirbót. Í Valiadolid falla íbúar bæjar- ins á kné, þegar helgigöngurnar fara framhjá, og í Toledo liggur fólk ílötum beinum á jörðinni ldukkan 3 að morgni meðan skrúð- ganga svartklæddra munka, Los Silenciosos (liinna þöglu) þokast eítir götunum. Á mörgum stöðum eru fætur betlaranna laugaðar við dómkirkjurnar. í Murcia og fleiri bæjum leggur skrúðgangan leið sína til fangelsanna og hefur það- an á brott með sér nokkra fanga, sem látnir eru lausir til minning- ar um hinn iðrandi ræningja, sem krossfestur var til annarar hand- ar Jesús Krists, og hvarvetna má heyra trumbuslátt og tónlist. Stærstu og frægustu helgigöng- urnar eru í SeviJla á suður-Spáni. Á hverjum einasta degi í dymbil- vikunni eru helgimyndir Maríu meyjar og Jesú Krists, teknar út úr kirkjunum og bornar í broddi fylkingar í skrúðgöngunum, sem fara um borgina, kílómetir eftir kílómetir, klukkustundum saman, við lágværan undirleik hljóm- sveita. En að lokum, klukkan tólf á miðnætti laugardagskvöldið fyr- ir páska, kveður við mikill klukknahljómur um gervalla borg- ina, er öllum kirkjuklukkum er hringt samtímis. Þetta er loka- atriði hátíðahaldanna og helg'i- gangna páskavikunnar. Um 200 000 gestir víðsvegar að úr veröldinni koma árlega til Se- villa til þess að vera viðstaddir — og: Ijósmynda — liin iitauðugu hátíðah.ö.Id. í marga daga eru göt- urnar lokaðar fyrir öllum öku- tækjum, og gangstéttirnar eru þaktar fólki, sem liaft hefur með sér stóla heiman að frá sér. Þátt- takendurnir í skrúðgöngunum, ganga tveir og tveir saman í síð- um útsaumuðum kyrtlum. Götu- ljósin lifa ekki, og einu ljósin, sem sjáanleg eru í borginni, eru frá kyndlum eða kertum, sem borin eru í skrúðgöngunni. Hljómlistin ómar í næturkyrrðinni, en öðru hvoru hljóðnar hún, og heyrist þá ekkert annað en skóhljóð skar- Öðru hvoru nemur fylkingin staðar, og há og kvell rödd hrópar nöfn Jesú eða Maríu meyjar, og svo eru sungin nokkur vers, venju- lega aðeins fjögur í senn. Oft eru þetta falleg vers í einfaldeik sín- um. Iiver flokkur eða déild í skrúð- göngunni ber trémyndir á geysi- stórum palli eða stöpli, — og sýna myndir þessar atburði úr pining- arsögu Krists. Hver mynd er upp ljómuð af sliini hundruð kertna og skreytt með rósum, gullepla- blómum og nellikkum. í hvert sinn, sem eitt af þessum líkönum er borið framhjá má heyra þungt og þreytulegt fótatak, því að jafn- vel þótt myndir þessar með fót- stalli þeirra vegi milli tvær og þrjár lestir, eru þær ekki fluttar á vögnum eða vörubílum, heldur bornar af nokkrum tugum manna. í skrúðgöngunni taka jafnt þátt aðalsmenn, ríkir og fátækir, skrif- stofufólk, verkamenn, nautaats-

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.