Morgunblaðið - 27.08.2004, Side 6
6 B FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
GYLFI Þ. GÍSLASON
Gylfa Þ. Gíslasonar, vinar- og sam-
úðarkveðjur. Sömu kveðjur sendum
við börnum þeirra hjóna, tengdabörn-
um, barnabörnum og öðrum ættingj-
um hans og nánum vinum.
Björk og Sighvatur
Björgvinsson.
Minningarbrot um Gylfa Þ. Gísla-
son leita á mig þar sem ég hugsa til
hans á leið á fund erlendis.
Þau minningarbrot eru fjölbreytt
enda maðurinn ákaflega fjölhæfur,
leiftrandi greindur hugsuður, lista-
maður og framúrskarandi stjórn-
málamaður sem alltaf sá Ísland í sam-
hengi við umheiminn og var opinn
fyrir menningarstraumum og áhrif-
um sem koma máttu landi og þjóð að
gagni.
Ég man eftir meitluðum setning-
um, einstökum framfaramálum og
jafnvel fallegu lögunum hans, þótt
seint verði ég talinn séfræðingur í
tónlist.
Þegar ég tók sæti á Alþingi fyrir
þrjátíu árum var ég ekki ókunnugur
Gylfa Þ. Gíslasyni. Kynni okkar hóf-
ust sem samkennarar við viðskipta-
deild Háskóla Íslands. Gylfi var þar
fremstur; einstakur kennari og fræði-
maður. Hann var sískrifandi og gaf út
fjölda fræðirita. Umhyggja hans fyrir
nemendum var mikil og hann bætti
við mörgum tímum sem hann ekki
fékk greitt fyrir til að undirbúa þá
sem best.
Kennsla hans var lífleg og nutu gáf-
ur hans og fjölbreytt lífsreynsla til
fulls við kennsluna og dugði það vega-
nesti mörgum nemendum vel og
lengi. Stundum fannst mér kapp hans
við kennslu jafnvel vera fullmikið, því
stundum bætti hann við efni sem við
hinir vorum að kenna og sýndi það
ástríður hans og dugnað vel.
Á Alþingi naut hann mikillar virð-
ingar. Þrátt fyrir veika stöðu Alþýðu-
flokksins á Alþingi 1974 var mikil
samstaða um hann sem forseta þings-
ins á hátíðarþinginu í tengslum við ell-
efu hundrað ára afmæli Íslands-
byggðar það ár. Forysta hans þar
sýndi mikinn metnað, stórhug og um-
hyggju fyrir landi og þjóð. Þekking
hans á þjóðlífinu, hvort sem var á sviði
atvinnumála, efnahagsmála, menn-
ingar og lista naut sín vel í samskipt-
um við innlenda og erlenda gesti Al-
þingis.
Hann var lengi í forystu á vettvangi
Norðurlandaráðs þar sem hann naut
mikillar virðingar og vinsælda. Í vina-
hópi var hann hrókur alls fagnaðar,
naut þess að segja frá og spila á píanó.
Glaðværð hans og hæfileikar hrifu
okkur hin með.
Gylfa verður fyrst og síðast minnst
fyrir framlag hans til íslenskra stjórn-
mála. Sem menntamálaráðherra
markaði hann merk spor í íslensku
skólakerfi og ekki hafði hann síður
heillavænleg áhrif á íslenska menn-
ingu. sem hann hafði ávallt í hávegum
enda var hér allt saman komið í einum
manni; fræðimaður, listamaður og
stjórnmálamaður.
Í stjórnmálum var Gylfi alþjóða-
sinni í bestu merkingu þess orðs. Ís-
land í samfélagi þjóðanna og sú sýn að
velsæld okkar væri best tryggð í nánu
samstarfi við aðrar þjóðir og með því
að deila kjörum og ákvörðunum um
sameiginlega hagsmuni með þeim var
honum hugleikið. Hann hafði sýn til
framtíðar sem var í senn djörf og
raunsæ og ekki almenn á þeim tím-
um.
Við kveðjum nú einn eftirminnileg-
asta stjórnmálamann síðari tíma.
Hann var stundum umdeildur sem er
einkenni manna sem skilja mikið eftir
sig en enginn getur dregið í efa þann
mikla árangur sem hann skilur eftir
sig á sviði efnahagsmála, frjálsra við-
skipta, alþjóðamála, skólamála og ís-
lenskrar menningar. Ég vil fyrir hönd
Framsóknarflokksins þakka sameig-
inlega vegferð, ekki síst ljúfmennsku
og drengskapar sem hann sýndi í
garð „andstæðinga“ í stjórnmálum.
Framkoma hans gæti verið mörgum
til eftirbreytni og gagns.
Við Sigurjóna sendum Guðrúnu og
öðrum aðstandendum samúðarkveðj-
ur og biðjum góðan Guð að styrkja
þau í sorg sinni og sárum missi.
Halldór Ásgrímsson.
Gylfi Þ. Gíslason var brautryðjandi
nútímalegra stjórnarhátta á Íslandi
og alla tíð eindreginn talsmaður opins
þjóðfélags og frjálsra viðskipta. Hann
skildi flestum betur að þá vegnar Ís-
lendingum best er þeir taka virkan
þátt í alþjóðlegu samstarfi, að á sjálf-
stæði þjóða reynir fyrst í samskiptum
við aðrar þjóðir, en ekki við einangr-
un.
Gylfa verður lengi minnst sem for-
ystumanns í viðreisnarstjórninni sem
olli straumhvörfum í íslenskum efna-
hagsmálum við upphaf sjöunda ára-
tugar liðinnar aldar. Viðreisnar-
stjórnin var við völd frá 1959 til 1971
og beitti sér í upphafi fyrir kerfis-
breytingu í hagstjórn sem rykkti ís-
lensku hagkerfi upp úr fari haftabú-
skapar og millifærslna er rekja mátti
til kreppuáranna á fjórða tug aldar-
innar. Viðreisnarstjórnin felldi að
mestu niður gjaldeyrisskömmtun og
höft á innflutningi vöru. Hún lagði um
leið niður flókið kerfi innflutnings-
gjalda og útflutningsbóta sem hafði
að miklu leyti rofið samhengi erlends
markaðsverðs og innlends verðlags.
Gengisskráning krónunnar var ein-
földuð og leiðrétt og gengið fellt.
Þessar róttæku ráðstafanir færðu ís-
lensk efnahagsmál nær þeirri skipan
sem þá var algengust í Vestur-Evr-
ópu og lögðu grunn að hagvaxtar-
skeiði með vaxandi útflutningi sjáv-
arafurða og upphafi stóriðju.
Jafnframt var hafinn undirbúningur
að samningum við markaðsbandalög-
in tvö í Evrópu, Efnahagsbandalagið,
sem þá hét svo, og Efta, Fríverslunar-
samtök Evrópu. Aðild Íslands að Efta
1970 var mikilvægur áfangi í átt til frí-
verslunar. Í þessu starfi var Gylfi Þ.
Gíslason í fararbroddi sem viðskipta-
ráðherra allan sjöunda áratuginn og
fram á hinn áttunda. Ég var svo lán-
samur að starfa að ýmsum verkefnum
fyrir Gylfa Þ. Gíslason í ráðherratíð
hans, bæði á sviði efnahags- og við-
skiptamála og menntamála. Mér er
sérstaklega minnisstæður undirbún-
ingur fyrir umfjöllun Alþingis um að-
ildarsamninginn að Efta. Umræður
um hann, bæði utan þings og innan,
höfðu að mestu snúist um áhyggjur
manna af erfiðleikum innlends iðnað-
ar vegna lækkandi verndartolla í kjöl-
far aðildar. Gylfi sá af glöggskyggni
sinni að hin hlið málsins, nýir mögu-
leikar útflutnings vegna greiðari að-
gangs að erlendum mörkuðum, hafði
verið vanmetin í umræðum og kynn-
ingu málsins. Hann fól því starfshópi,
sem ég tók þátt í, að semja skýrslu um
Efta og eflingu útflutnings til þess að
leggja fyrir þingið. Þetta jákvæða við-
horf var dæmigert fyrir Gylfa og ein-
kenndi öll verk hans. Betri samstarfs-
mann en hann er ekki unnt að hugsa
sér.
Víðtæk menntun Gylfa og háskóla-
ferill var á sviði hagfræða og nafn
hans mjög tengt efnahagsstefnu við-
reisnarstjórnarinnar og eflingu
markaðsbúskapar.Honum var samt
vel ljóst að þótt markaðurinn sé þarf-
ur þjónn er hann stundum afleitur
húsbóndi. Hagkerfið verður jafnan að
skoða sem hluta af stærri samfélags-
heild þar sem menntun og menning
gegnir mikilvægu hlutverki og velferð
styðst í senn við samhjálp og sjálfs-
björg og myndar umgjörð um þjóð-
lífið. Þessi viðhorf mótuðu allt stjórn-
málastarf Gylfa Þ. Gíslasonar, og
hann talaði fyrir þeim af ákefð og ein-
lægni.
Gylfi var menntamálaráðherra
samfleytt í hálfan annan áratug,
1956–1971. Á þessum tíma beitti hann
sér fyrir margháttuðum framförum á
sviði mennta og menningarstarfs.
Hann var í senn fjölgáfaður og gagn-
menntaður maður og því vel til þess
fallinn að hafa forystu í menntamál-
um. Málefni Háskóla Íslands voru
honum hugleikin. Á síðustu ráðherra-
árum sínum vann hann mjög að því að
endurskipuleggja fjármál skólans og
að auka fjölbreytni í háskólastarfi
með stofnun nýrra námsbrauta.
Hann fól mér nokkur verkefni á þessu
breytingaskeiði, meðal annars við
undirbúning fjárlagagerðar fyrir há-
skólann og samningu nýrra reglu-
gerða um starfsemi háskóladeilda og
nýrra námsbrauta. Mér er í fersku
minni áhugi hans og hugkvæmni við
undirbúning þinglegrar meðferðar á
málefnum háskólans því að hann vildi
veg hans sem mestan.
Á hörpu Gylfa Þ. Gíslasonar voru
margir strengir. Listalíf í landinu,
ekki síst tónlistarlífið, á honum mikið
að þakka. Hann studdi dyggilega
starf tónlistarskólanna og kom á
skipulagi fyrir þá með hæfilegri
blöndu opinbers stuðnings og fram-
lags frá einkaaðilum. Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og tónlistarflutningur í
landinu yfirleitt átti í honum traustan
stuðningsmann.
Þegar Gylfi lét af þingmennsku ár-
ið 1974 hvarf hann aftur að háskóla-
kennslu og rannsóknum. Hann hófst
þá handa á nýju og mikilvægu sviði
hagfræðinnar, auðlindahagfræði,
einkum fiskihagfræði, og lét að sér
kveða á þeim vettvangi síðustu starfs-
árin. Við áttum á þeim árum mörg
samtöl um stjórn fiskveiða og auð-
lindaskatt sem hagstjórnartæki.
Það varð hlutskipti mitt sem við-
skiptaráðherra við lok níunda og upp-
haf tíunda áratugar aldarinnar sem
leið að taka upp þráðinn í breytingum
til frjálsræðis á fjármagnsmarkaði og
í gjaldeyrisviðskiptum. Það var mér
mikilvægt að eiga Gylfa að til skrafs
og ráðagerða í þessum efnum. Á
heimili hans og konu hans, Guðrúnar
Vilmundardóttur, var gott að koma.
Ég hef í þessum línum rifjað upp
örfá atvik og þætti sem það var gæfa
mín að fá að kynnast í fjölbreyttu og
umfangsmiklu stjórnmála- og fræða-
starfi Gylfa Þ. Gíslasonar. Mér er þó
enn hugstæðari vinsemd hans og góð-
girni og óþreytandi áhugi á því að
bæta íslenskt samfélag. Hans verður
minnst sem tímamótamanns í ís-
lensku þjóðlífi. Ég kveð hann með
virðingu og þakklæti og votta fjöl-
skyldu hans samúð.
Guð blessi minningu Gylfa Þ. Gísla-
sonar.
Jón Sigurðsson.
Gylfi lifði einstaklega fjölbreytilega
og langa ævi og honum auðnaðist að
eiga mikinn þátt í því að líf meðborg-
aranna varð betra. Allir Íslendingar
vita við hvern er átt þegar rætt er um
Gylfa. Fáir landsmenn fá slíkan sess
meðal þjóðar sinnar að þekkjast á for-
nafni sínu áratugum eftir að þeir
hættu störfum.
Gylfi var fyrst og fremst fyrir aðra.
Þess vegna var hann jafnaðarmaður,
kennari, listamaður og fjölskyldufað-
ir. Hann skildi betur en aðrir hvernig
hægt er að miðla umhyggju. Hann
var alþjóðlegur menntamaður og
hann var einn örfárra stjórnmála-
manna sem gat hafið sig yfir dægur-
þras og sett fram hugsjónir þannig að
þær voru fólki skýrar í áratugi.
Þegar Gylfi kom aftur í viðskipta-
og hagfræðideildina eftir áratuga fer-
il í stjórnmálum sem ráðherra var
hann fyrstur til að nota glærur og
dreifa þeim til nemenda löngu áður en
það varð almennt í skólanum. Þegar
ég kom að viðskipta- og hagfræði-
deildinni, einmitt í stöðu Gylfa, leitaði
ég ráða hjá honum við kennsluna eins
og ég hafði gert svo oft fyrr og síðar í
stjórnmálunum. Aldrei brást ráðgjöf
Gylfa. Gylfi var leiftrandi kennari og
umhugað um nemendur. Einu sinni
gaf hann mér handrit um listamenn,
sem löngu seinna kom út á bók, og þar
fjallaði hann af nærfærni um sam-
ferðamenn sína. Hann hallmælti ekki
fólki þótt hann kynni vel að takast á í
brýnum.
Ég átti því láni að fagna að starfa
með Gylfa í Alþýðuflokknum þótt
hann væri þá að mestu búinn að draga
sig í hlé. Hann hringdi stundum í mig,
allt fram á dánarárið, og miðlaði hug-
myndum um eitthvert snjallræði í
pólitíkinni eða til að fjalla um eitthvað
sem sneri að skólanum og deildinni.
Hann var alltaf vakandi fyrir sínu um-
hverfi og vænna þótt mér um símtöl
Gylfa en annarra manna. Við í við-
skipta- og hagfræðideild missum mik-
ið þegar Gylfi hverfur og nú eru þeir
báðnir farnir Gylfi og Ólafur, menn-
irnir sem breyttu allri viðskipta- og
hagfræðimenntun á Íslandi og veittu
nýjustu þekkingu fræðanna inn í
stjórnmálin þótt þeir væru hvor í sín-
um flokknum.
Þegar ég var ungur maður í Þýska-
landi við nám kom Gylfi til Þýska-
lands og flutti erindi um land og þjóð.
Mikið vorum við ungu Íslendingarnir
stoltir þegar okkar maður töfraði alla
upp úr skónum og erindin voru sam-
stundis gefin út. Slíkur var kraftur
hans í húmanísku umhverfi Mið-Evr-
ópu. Hann var húmanisti fram í fing-
urgóma og afsprengi aldargamals há-
skólasamfélags. Því gleymir enginn
sem upplifði hvernig hann gat skipt
milli íslensku, dönsku, ensku, þýsku
og frönsku í sömu ræðunni og allt
reiprennandi. Við höfum ekki átt slík-
an stjórnmálamann síðan.
Gylfi skrifaði mikið og hafði rit-
leiknina frá föður sínum, Þorsteini
Gíslasyni ritstjóra, og hún gekk í arf
til sonanna þar sem við bættust sál-
argáfur Guðrúnar, Vilmundar og
Kristínar úr móðurætt drengjanna.
Enn er Þorsteinn einn beittasti penni
landsins, Vilmundur lét samfélagið
nötra í áraraðir og Þorvaldur kryfur
samfélagið æ vægðarlausar eins og
háttur fjölskyldunnar er.
Gylfi, Guðrún og fjölskyldur þeirra
eru einstaklega vandað fólk. Ég starf-
aði með Vilmundi á sínum tíma í Al-
þýðuflokknum og Bandalagi jafnað-
armanna og aldrei hef ég unnið með
meiri stjórnmálamanni fyrr eða síðar
og nú tveimur áratugum seinna er
Þorvaldur einn minn helsti samstarfs-
maður.
Ég var stundum að reyna að fá
Gylfa til að taka þátt í atburðum
deildarinnar þegar ég var deildarfor-
seti en það vildi hann ekki. Hann vildi
seinni árin ekki lengur taka þátt í op-
inberum atburðum og að þessu við-
horfi, eins og öðru í fari Gylfa, er að-
eins hægt að dáðst.
Með Gylfa er genginn síðasti mað-
urinn af kynslóð stjórnmálamanna og
fræðimanna sem mótuðu þjóðfélagið
upp úr miðri síðustu öld. Hann sam-
einaði margt í sínu starfi og lífi og
hans verður minnst sem stjórnmála-
manns og kennara en umfram allt
sem manns sem vildi meðborgurum
sínum vel.
Ágúst Einarsson.
Hvað er langlífi?
Lífsnautnin frjóva,
alefling andans
og athöfn þörf.
Fáir munu hafa uppfyllt þessi kjör-
orð Jónasar með svo fullkomnum
hætti sem Gylfi Þ. Gíslason, sem nú er
kvaddur að loknum löngum lífsferli
leitar að sannindum og lífsgildum,
ekki aðeins í eigin heldur enn frekar í
almanna þágu. Ungur mun hann hafa
einsett sér að skynja og skilja veröld-
ina og mannlífið til almennrar leið-
sagnar um samfélag sitt, án þess að
fórna ljúfri lífsfyllingu mannsins, sem
gæði og gildi á heildina litið miðast
við. Og hvílík eggjun hins harða
heims, sem hann fæddist til á fyrri
stríðsárunum, var í nábýli við á
kreppuskeiði námsáranna og tókst á
við fulltíða maður á síðari stríðsárun-
um.
Við upphaf kynna minna af þjóð-
málum rétt fyrir stríð tók Gylfi, ótrú-
lega ungur og kjarkaður, að tala til
þjóðarinnar skýrri röddu skynsem-
innar, en með djúpum undirtón sið-
gæðis og samvisku. Hann tókst á við
það tröllvaxna verkefni að verja þjóð-
ina fyrir pólitísku ofstæki, sem herj-
aði á hana frá tveimur hliðum, leiða
hana til skilnings á aðgreiningu hlut-
lægra staðreynda og huglægs gildis-
mats, sem væri á frjálsu valdi manns-
andans til góðviljaðra aðgerða,
gagnstætt nauðhyggju vélrænnar
þróunar, sem reynt var að halda að
fólki. Frá þessum boðskap var braut-
in greið til að takast á við æ stærri
fræðileg og þjóðmálaleg viðfangsefni.
Ætíð reis hann til jafns við tilefnin og
sleppti engu tækifæri til að túlka
stöðu mannsins í samtíðinni og þjóð-
arinnar í umheiminum, og varð þann-
ig leiftrandi andríkur ræðumaður og
listrænn túlkandi að auki.
Á þessum ferli skárust brautir okk-
ar snemma þá er hann kenndi bók-
færslu í M.R. og hafa síðan legið sam-
an með ýmsum frávikum um sex
áratugi. Sem mótandi Viðskipta-
fræðadeildar Háskólans færði hann
mér og fjölda hliðstæðra færi á að
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Ásgeir Ásgeirsson forseti Íslands afhendir Gunnari Gunnarssyni rithöfundi
fálkaorðuna. Með þeim á myndinni eru Bjarni Benediktsson forsætisráð-
herra og Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra.
Menntamálaráðherrar fyrr og nú stilla sér upp fyrir ljósmyndarann. Frá
vinstri: Eysteinn Jónsson, Ragnhildur Helgadóttir, Gylfi Þ. Gíslason, Vil-
hjálmur Hjálmarsson og Sverrir Hermannsson.