Morgunblaðið - 08.09.2004, Side 8

Morgunblaðið - 08.09.2004, Side 8
ALLS rituðu 167 manns nafn sitt í samúðarbók rúss- neska sendiráðsins á Íslandi um fórnarlömbin í Beslan í Norður-Ossetíu í Rússlandi. Blóðbað í kjölfar gíslatöku í grunnskóla í borginni kostaði að minnsta kosti 335 manns lífið og er talið að annað hvert fórnarlamb hafi verið barn. Bókin til minningar um fórnarlömbin lá frammi í sendiráðinu í gær og í fyrradag. Morgunblaðið/Sverrir Vottuðu fórnar- lömbum samúð Reuters Gríðarleg sorg ríkir í Beslan í Norður-Ossetíu þar sem á fjórða hundrað gíslar féll. Alexander Rannikh sendiherra var viðstaddur. FRÉTTIR 8 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Í dag eru 851 einstak-lingir á biðlistum eft-ir félagslegu húsnæði í Reykjavík. Þar af eru 95 sem skilgreindir eru í brýnni þörf. Sigurður Kr. Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Félagsbú- staða, segir að biðtími geti verið 1–2 ár, en sé mun minni fyrir þá sem eru í brýnni þörf. Búið er að út- hluta um 130 íbúðum það sem af er þessu ári, en síð- ustu tvö árin hefur verið úthlutað um 200 íbúðum á ári. Félagsbústaðir eiga í dag 1.670 íbúðir. „Brýnasta þörfin getur verið til dæmis einstæð móðir með tvö börn, atvinnulaus, börnin eitthvað veik sem gerir það að verkum að hún getur ekki farið út á vinnumarkaðinn. Hún gæti líka sjálf verið öryrki. Það er bara metið hvaða möguleika fólk eigi á að spjara sig úti á markaðinum. Þess vegna er það náttúrlega sár- grætilegt þegar fólk er að missa húsnæði vegna húsreglnabrota og vegna þess að það greiðir ekki leigu,“ segir Sigurður. Frá 1989 hefur biðlistinn verið að meðaltalinu 450–460. Sigurður segir að árið 2001 hafi listinn farið að lengjast, í ársbyrjun 2002 voru 560 á biðlista, og hafði þeim fjölg- að í 883 í byrjun árs 2003. Lengst- ur var listinn í ágúst 2003 þegar 1.062 einstaklingar biðu eftir íbúð. Í dag eru 851 á biðlistanum, og hefur því fækkað um 20% frá sama tíma í fyrra. Sérstakar húsaleigubætur Ástæðu þess að fjöldinn er nú á niðurleið aftur segir Sigurður fyrst og fremst tilkomu svokall- aðra sérstakra húsaleigubóta í mars á þessu ári. Þær gera fólki sem er á biðlistanum kleift að leigja íbúð á almennum markaði og fá viðbót við húsaleigubæturn- ar til jafns við niðurgreiðslu leigu- verðs hjá Félagsbústöðum. Almennar húsaleigubætur eru að hámarki 12.500 kr. fyrir barn- lausan einstakling eða par í tveggja herbergja íbúð, og bætast sérstakar húsaleigubætur við þær. Sérstakar húsaleigubætur eru reiknaðar sem hlutfall af húsaleigubótum. Fyrir hverjar 1.000 kr. fær leigjandi 1.300 kr. Því fengi einstaklingur sem fær 12.500 í almennar bætur 16.250 kr. í sérstakar bætur, og því sam- tals 28.750 kr. Með þessu kerfi eiga einstaklingar að geta leigt á almennum markaði, en geta samt fengið fyrirgreiðslu frá Reykja- víkurborg sambærilegar við þær sem þeir fengju í félagslegri íbúð. Meðal greiðslubyrði leigj- enda um 21 þúsund krónur Meðal greiðslubyrði leigjenda hjá Félagsbústöðum er mismun- andi eftir stærð íbúða. Í skýrslu stjórnar Félagsbústaða fyrir árið 2003 kemur fram að flestir séu í tveggja eða þriggja herbergja íbúðum, og þurftu þeir sjálfir að greiða að meðaltali um 21 þúsund krónur í húsaleigu, eftir að búið er að draga frá húsaleigubætur. Leigan sem Félagsbústaðir þurfa að fá af hverri íbúð er svo- kölluð raunleiga, sem er sú upp- hæð sem Félagsbústaðir þurfa að fá til að reksturinn standi undir sér. Innheimt leiga er reiknuð sem 5,32% af fasteignamati íbúðar á hverju ári. Mismunurinn á raun- leigunni og þeirri leigu sem leigj- andinn borgar er niðurgreiðsla borgarinnar. Í reglum um félagslegar íbúðir er kveðið á um skilyrði sem þurfa að vera til staðar til að einstak- lingur komist inn í kerfið, þ.á m. tekjumörk og eignarmörk, segir Ellý Þorsteinsdóttir, fram- kvæmdastjóri ráðgjafasviðs hjá Félagsþjónustunni í Reykjavík. Einu sinni á ári er svo farið yfir fjárhagsupplýsingar um þá sem leigja félagslegar íbúðir til að at- huga hvort aðstæður þeirra hafi breyst. Ef aðstæður hafa batnað er haft samband og fólki bent á möguleika til að hætta að búa í fé- lagslegu húsnæði, t.d. með því að að leigja á almennum markaði eða kaupa húsnæði með viðbótarláni. Tekið hart á vanskilum Þegar leigjandi hjá Félagsbú- stöðum stendur ekki skil á leigu fer ákveðið kerfi í gang strax sama mánuð og fyrsta greiðsla berst ekki. „Við sendum út greiðsluseðil, gjalddagi er 1. hvers mánaðar og eindagi 10. hvers mánaðar. Ef greiðsla á leigu hefur ekki borist 28. þess sama mánaðar er það sent til innheimtufélags. Margir hafa gagnrýnt þessi snöru viðbrögð, en ástæðurnar fyrir þeim eru einfaldar. Hjá okkur er tekjulágt fólk og einn mánuður í vanskil getur verið byrjunin á stóru vandamáli, við viljum reyna að grípa inn í það strax,“ segir Sigurður. Innheimtuferlið getur staðið í 2–3 mánuði, en að þeim tíma lokn- um, fáist ekki greiðsla, er leigu- samningi rift og útburðarferli hefst. Þegar þetta ferli er að hefj- ast er leigjandanum bent á að leita til Félagsþjónustunnar í Reykja- vík, sem og Ráðgjafastofu um fjármál heimilanna. Ef ekkert gengur að fá greiðslu fer málið fyrir héraðsdóm og að lokum til sýslumanns, sem sér um að bera viðkomandi út. Fréttaskýring | Félagslegar íbúðir Biðlistar stytt- ast í borginni Í dag er 851 einstaklingur á biðlista eft- ir félagslegu húsnæði í Reykjavík Mikil ásókn er í íbúðir Félagsbústaða. Breytingar hugsanlegar á greiðslum í Reykjavík  Fyrirhugað er að breyta nið- urgreiðslu borgarinnar á fé- lagslegu leiguhúsnæði Fé- lagsbústaða þannig að hún sé ekki ákveðin greiðsla á íbúð heldur miðist við aðstæður hvers leigjanda. Góð reynsla hefur ver- ið af því að nota sérstakar húsa- leigubætur til að stytta biðlista eftir félagslegum íbúðum. Því mætti hugsanlega yfirfæra það kerfi yfir á niðurgreiðslu borg- arinnar í íbúðum Félagsbústaða. brjann@mbl.is ÞEIR sem borða mikla fitu eiga ekki frekar á hættu að fá hjarta- og æðasjúkdóma en þeir sem borða litla fitu, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rann- sóknar Mar- grétar Leósdótt- ur, læknis og doktorsnema í Malmö, á tengslum mat- aræðis og tíðni hjarta- og æða- sjúkdóma. Rann- sóknin var kynnt á dögunum á Evrópuþingi hjartalækna sem fram fór í München. Samkvæmt rannsókninni var tíðni hjarta- og æðasjúkdóma álíka há hjá þeim sem borðuðu mikla fitu, þ.e. fita var um 45–50% af fæðu, og hjá þeim sem borðuðu litla fitu, þ.e. fita var minna en 30% af fæðu, en samkvæmt manneld- ismarkmiðum er mælt með að fitu- hlutfall fari ekki yfir 30–35%. Mar- grét segir niðurstöðurnar hafa komið nokkuð á óvart enda hafi því almennt verið haldið fram að mikil neysla á fitu, og þá sérstaklega mettaðri fitu, yki hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum. „Þetta bendir til þess að við höf- um verið að horfa í ranga átt með því að einblína á fituna. Vanda- málið í dag er að við borðum hrein- lega of mikið, þá virðist ekki skipta öllu máli hvort orkan kemur úr fitu, kolvetnum eða próteinum. Ef við borðum meira en við brennum verðum við feit og það er offitan sem er hættuleg,“ segir Margrét. Skiptir ekki máli hvort fitan er mettuð eða ómettuð Rannsókn Margrétar er hluti af stórri sænskri rannsókn sem hófst árið 1991 en um 30.000 íbúar í Malmö hafa tekið þátt í henni. Er um að ræða heilsukönnun þar sem þættir eins og mataræði, áfeng- isneysla, reykingar og hreyfing eru skoðaðir í tengslum við ýmiss kon- ar sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma og krabbamein. Í rannsókn Margrétar kom einn- ig í ljós að það skipti ekki máli hvort fólk neytti mikillar mettaðrar fitu eða ekki. „Samkvæmt mann- eldismarkmiðum er mælt með því að mettuð fita sé ekki meira en 10– 15% en þeir sem borðuðu helmingi meira magn en það áttu ekki frek- ar á hættu að fá hjarta- eða æða- sjúkdóma en þeir sem fylgdu manneldismarkmiðum,“ útskýrir Margrét. Hún segir að taka verði tillit til þess að rannsóknin hafi ein- ungis náð yfir sjö ár og að allir þátttakendur hafi verið á miðjum aldri. Niðurstöðurnar hefðu ef til vill verið aðrar ef mataræði fólks um tvítugt hefði verið skoðað og heilsufar þess svo kannað fjörutíu árum seinna. Hún bendir þó á að tvær nýlegar stórar bandarískar rannsóknir um sama efni sem gerð- ar voru á lengri tíma hafi gefið svipaðar niðurstöður og hennar rannsókn Hreyfa sig og borða trefjar, ávexti og grænmeti Margrét bendir á að þeir sem borða mikla fitu hafi tilhneigingu til að borða mikið yfirleitt og borði auk þess bætiefnasnauðan mat, og það geti verið hluti ástæðunnar fyrir því að menn hafi talið að fitan væri svo mikill skaðvaldur. „Fólk sem vill vernda sig gegn hjarta- og æðasjúkdómum á fyrst og fremst að passa sig á að borða ekki of mikið, halda þyngdinni á réttu róli. Þá á það að hreyfa sig og borða mikið af trefjum, ávöxtum og grænmeti en það hefur verið sýnt fram á að þessir tveir þættir minnka áhættuna á hjarta- og æða- sjúkdómum,“ segir Margrét að lok- um. Rannsókn á tengslum mataræðis og hjarta- og æðasjúkdóma Mikil fituneysla eykur ekki líkur á að veikjast Reuters Margrét Leósdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.