Morgunblaðið - 08.09.2004, Blaðsíða 23
kvöldverðar í Perlunni í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Kristinn
og Viktoríu krónprinsessu til Íslands hófst í gær í roki og rigningu
Morgunblaðið/Golli
g Viktoría krónprinsessa komu til Bessastaða í hífandi roki og rigningu í gær.
Morgunblaðið/Þorkell
sa og íslensku forsetahjónin skoð-
dir leiðsögn þjóðminjavarðar.
Silvía Svíadrottningheimsótti BarnaspítalaHringsins í gær þar
sem hún ásamt forsetafrúnni,
Dorrit Moussaieff, kynnti sér
starfsemi hans. Drottningin
er kunn fyrir að láta sér annt
um velferð barna og var hún
afar áhugasöm og spurði
margs, að sögn Ásgeirs Har-
aldssonar, prófessors í
barnalækningum og sviðs-
stjóra lækninga á barnaspít-
alanum, sem fylgdi drottn-
ingunni um spítalann.
„Svíadrottning hefur sýnt í
gegnum árin að hún hefur
mikinn áhuga á börnum og velferð
þeirra og í heimsókninni hérna sást
vel að sá áhugi er raunverulegur.“
Hann sagði drottninguna greini-
lega vera mjög vel inni í málefnum
barna.
„Skildi ekki alveg
hvað hún sagði“
Sagðist Ásgeir einnig hafa tekið
eftir að hún hefði spurt foreldra
barnanna margs og sinnt þeim
börnum sem hún hitti vel og gefið
sér góðan tíma.
Þau Arnór Freyr Gíslason og Hel-
ena Sigurhansdóttir, bæði sjö ára,
afhentu Silvíu og Dorrit gjöf frá
spítalanum, geisladisk með ljóði eft-
ir Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra, annan disk með íslensk-
um söngvurum og lyklakippu með
merki kvenfélagsins Hringsins.
Krökkunum leist vel á drottn-
inguna og forsetafrúna. „Ég skildi
bara ekki alveg hvað hún sagði því
hún talaði útlensku,“ sagði Arnór
um drottninguna en bætti við að
þetta hefði verið „bara gaman“.
Morgunblaðið/Golli
Silvía drottning og Dorrit Moussaieff tóku við gjöfum á Barnaspítalanum.
Ásgeir Haraldsson tók á móti Silvíu drottn-
ingu og Dorrit Moussaieff forsetafrú.
Drottningin vel inni
í málefnum barna
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 23
LailaFreivalds, utanrík-isráðherra Svíþjóðar,gagnrýndi öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna í ræðu sinni
á hádegisfundi í Háskóla Íslands
í gær og sagði ástandið í Darfur-
héraði í Súdan og flótta-
mannabúðunum í norðurhluta
Chadhafa komið allt of seint á
dagskrá ráðsins.
Tók sænski utanríkisráðherra
þetta sem dæmi um að þörf væri
á breytingum á samsetningu og
starfsreglum öryggisráðsins.
Kappkosta ætti áfram að gera
Sameinuðu þjóðunum kleift að
taka erfiðar ákvarðanir og fram-
fylgja þeim. Á sama tíma væri
þörf á að pólitískri stefnu innan
öryggisráðsins væri framfylgt í
auknum mæli.
Freivalds sagði að um leið og
reynt væri að stunda hjálparstarf
meðal varnarlausra íbúa landsins
„verðum við að halda áfram að
þrýsta á stjórnvöld í Súdan að
stöðva fjöldamorðin, um leið og
við störfum á þann hátt að Sam-
einuðu þjóðunum er mögulegt að
aðhafast af þeirri staðfestu sem
við viljum sjá,“ sagði Freivalds.
Bar lof
á Íslendinga
Hún vék einnig að öryggis-
málum Eystrasaltsríkjanna og
Norðurlandanna og sameig-
inlegum hagsmunum þeirra í
þeim efnum. „Það er mikilvægt
að við leitum sameiginlegra
lausna á víðtækum öryggismálum
eins og umhverfisvernd, skipu-
lagðri glæpastarfsemi og út-
breiðslu vopna. Það er líka mik-
ilvægt að við aukum samstarf við
ríki austan við nýju landamæri
Evrópusambandsins, þar sem þau
verkefni sem að okkur steðja þar,
steðja í auknum mæli að okkur
öllum,“ sagði hún.
Freivalds bar lof á starf Íslend-
inga sem fara með formennsku í
Norrænu ráðherranefndinni í ár.
Málefni á borð við umræðu um
lýðræði, náttúru og menningu,
hefðu verið ofarlega á baugi hjá
Íslendingum.
Utanríkisráðherra Svíþjóðar á hádegisfundi á vegum HÍ
Ástandið í Darfur kom of seint
á dagskrá hjá öryggisráði SÞ
Morgunblaðið/Ómar
Halldór Ásgrímsson og Laila Freivalds í Ráðherrabústaðnum í gær.
arna inni
a hags-
á því og
sland eða
sækja
a er í dag
n okkur
ndi og
að auð-
ð Evr-
msókn
ðar
ákvörðun
ingu og
áfram yrði unnið samkvæmt
stjórnarsáttmála ríkisstjórn-
arinnar.
Halldór greindi frá því að fundi
loknum að hann hefði þegið boð
um að koma í opinbera heimsókn
til Svíþjóðar og að það yrði fyrsta
opinbera heimsókn hans á erlenda
grundu eftir að hann tekur við
embætti forsætisráðherra. Hann
vildi þó ekki upplýsa hvenær hún
yrði.
ð
Vaxandi áhugi á
Íslandi í Svíþjóð
Karl Gústaf ræddi aukin viðskiptatengsl landanna
SVÍAR hafa mikinn áhuga á Íslandi og viðskiptatengsl landanna hafa aukist ár
frá ári, að því er Karl Gústaf Svíakonungur sagði í ræðu sinni yfir hátíð-
arkvöldverði í Perlunni í gær.
„Áhugi á Íslandi fer vaxandi í Svíþjóð. Það birtist til dæmis í því að 25.000
Svíar ferðast hingað á hverju ári. Fjöldi þeirra vex stöðugt, ár frá ári.“ Kon-
ungur sagði heitar laugar og íslenska hestinn vera meðal þess sem dregur
landa hans til Íslands.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, afhenti Viktoríu, krónprinsessu
Svíþjóðar, hest að gjöf í tengslum við menningardaga í fyrra. „Sá hestur gleður
nú fötluð börn í Dölunum í Svíþjóð,“ sagði konungur í ræðu sinni í gær.
Konungur sagði viðskipta- og fjárfestingaþing verða haldið í tengslum við
heimsóknina. „Samskipti á sviði viðskipta milli landanna standa traustum fót-
um og fara vaxandi með hverju ári. Á síðari árum hafa fjölmörg íslensk fyr-
irtæki fjárfest í Svíþjóð og og sænskt hugvit og tækni hefur náð fótfestu á Ís-
landi.“
Nýju athafnafólki vel tekið í Svíþjóð
Forseti Íslands sagði framlag Svíþjóðar til íslenskrar listsköpunar ótvírætt.
„Svíar hafa einnig haft víðtæk áhrif á þróun íslensk atvinnulífs og tekið virkan
og skapandi þátt í að treysta undirstöður þeirrar velferðar og framfara sem við
nú njótum.“
Hann sagði tíma hafa verið til kominn að Íslendingar endurgyldu þessa lið-
veislu, og það hafi nýverið verið gert. „KB-banki er orðinn umsvifamikill í
sænsku fjármálalífi, reyndar einnig á öðrum Norðurlöndum, og Baugur opnaði
í fyrra nýtt vöruhús í hjarta Stokkhólms. Áður fyrr létum við Íslendingar okkur
að mestu nægja að selja fisk til Svíþjóðar en nú viljum við efla viðskipti okkar
og athafnatengsl á mörgum sviðum, nýta hæfileika og hugvit þeirrar ungu kyn-
slóðar sem komin er á vettvang, menntuð á heimsvísu og staðráðin í að helga
löndum okkar krafta sína. Við metum mikils hversu vel þessu nýja athafnafólki
hefur verið tekið í Svíþjóð,“ sagði Ólafur Ragnar í ræðu sinni í Perlunni í gær.