Morgunblaðið - 08.09.2004, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.09.2004, Blaðsíða 44
ÓVENJULEG danssýning verður í Laug- ardalshöllinni með Pilobolus-dansleikhúsi í mars á næsta ári. Sýningin hefur slegið í gegn í New York og vakið mikla at- hygli í Bandaríkj- unum. Hún var á dögunum til um- fjöllunar í hinum fræga fréttaskýr- ingarþætti 60 mín- útum enda trúa menn vart sínum eigin augum þeg- ar þeir sjá hvað meðlimum Pilobo- lus-dansflokksins er til lista lagt. „Þú trúir ekki eigin augum og hvernig þau fara að þessu. Þú skilur ekki hvernig einn maður getur verið með fjóra á bakinu og hlaupið um sviðið,“ segir Ísleifur Þór- hallsson skipuleggjandi. Hann segir sýningar dansflokksins bók- aðar langt fram í tímann og að Íslendingar séu í heppnir að fá að sjá hann svo fljótt./38 Óvenjuleg dans- sýning í vetur MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. MIÐAÐ við að seldir séu 20.000 nýir og not- aðir bílar á ári skipta nálægt 20 milljarðar kr. um hendur hér á landi. Stór hluti af þessum markaði er fjármagnaður með lánum. Erna Gísladóttir, formaður Bílgreinasambandsins, segir að munurinn á vöxtum á lánum til fast- eignakaupa og lánum til bílakaupa hafi að jafnaði verið nálægt 1,5%. Síðustu daga hafi vextir hins vegar lækkað á fasteignalánum niður í 4,2% hjá mörgum lánveitendum. Vextir af lánum til bílakaupa séu hins vegar enn og hafi lengi verið 7,5%. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbanka, segist ekki telja það útilokað að vextir á bílalánum lækki. Hún segir þó mikinn eðlismun vera á bílalán- um og fasteignalánum. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að skilja á milli fjármögn- unar á húsnæði og einkaneyslu eins og bif- reiðakaupa. Auðvitað er þetta eitthvað sem fólk verður að vega og meta sjálft en ég held að það ætti helst að forðast að taka 40 ára lán til að kaupa bíl, sem er ónýtur eftir 10 ár.“ Vextir ekki lækkað á bílalánum  Vilja/C2 SÚ VAR tíðin að nýnemar í framhaldsskólum höfðu öðrum þræði ástæðu til að óttast busa- vígslur, en á síðustu árum hafa eldri nemar lagt áherslu á að gera vígsluna skemmtilegri en áður var. Þessi stúlka sá a.m.k. ástæðu til að brosa þegar hún var tekin formlega inn í Kvennaskólann í Reykjavík, en þar fór fram busavígsla í gær. Busarnir voru m.a. látnir taka nokkrar armbeygjur. Morgunblaðið/Sverrir Brosandi í busavígslu í Kvennó STJÓRN Samherja hf. á Akureyri samþykkti á fundi sínum í gær fjár- festingar sem alls nema um 2,7 milljörðum króna. Þar af eru hluta- fjárkaup í þýskum og breskum út- gerðarfélögum upp á 2,3 milljarða króna. Afgangurinn, um 400 millj- ónir, eru vegna kaupa á auknum hlut í Síldarvinnslunni og uppsjáv- arveiðiskipi frá Hjaltlandseyjum í stað Oddeyrarinnar EA, sem verður lagt. Í tilkynningu frá Samherja segir að með viðskiptunum sé fyrirtækið að auka þátttöku sína í sjávarútvegi í Evrópusambandinu. Veiðiheimildir þeirra fjögurra fyrirtækja í ESB sem Samherji á aðild að nema um 20 þúsund þorskígildistonnum, aðeins fimm þúsund tonnum lægri en veiði- heimildir fyrirtækisins á Íslands- miðum. Stjórn Samherja samþykkti að kaupa 65% hlutafjár í þýska útgerð- arfélaginu CR Cuxhaven Reederei GmbH, en fyrir átti félagið 35% hlut. Kaupverð nemur 17,3 milljón- um evra, eða rúmlega 1.500 millj- ónum. Þá voru samþykkt kaup dótt- urfyrirtækisins Onward Fishing Company Ltd. á 50% hlut í Boyd Line Ltd í Hull fyrir um 6,5 millj- ónir punda, eða 838 milljónir kr. Seljendur 65% hlutafjárins í CR eru Þorsteinn M. Baldvinsson, Kristján Vilhelmsson, Finnbogi Baldvinsson og Kaldbakur hf. en þessir aðilar keyptu þennan hlut á árinu 2000 af Samherja hf. Verður um helmingur kaupverðsins nú greiddur með eigin bréfum í Samherja hf. á genginu 12,2. Boyd Line Ltd í Hull er að hálfu í eigu dótturfélags Samherja í Skot- landi, Onward Fishing Company, og að hálfu í eigu dótturfélags Parle- vliet & Van Der Plas B.V. í Hollandi. Seljandi bréfanna er Kaldbakur hf. sem keypti þau á sínum tíma af Brim hf. Hluturinn sem Samherji keypti í Síldarvinnslunni nemur 3,6% alls hlutafjár. Seljandi var Fjárfestingarfélagið Fjörður ehf. Á Samherji og dótturfélagið Snæfugl ehf. nú rúm 37% eignarhluta í SV. Heildarkaupverð hlutabréfanna nemur 259 milljónum króna. Finnbogi Jónsson, stjórnarfor- maður Samherja, segir að fyrirtæk- ið muni leggja aukna áherslu á fjár- festingar erlendis á næstu árum, þar sem möguleikar til stækkunar hér á landi séu ekki fyrir hendi að svo stöddu, a.m.k. varðandi veiði- heimildir. Þó að útgerðirnar í Þýskalandi og Bretlandi hafi að mestu leyti verið í eigu Íslendinga sé félagið sjálft, Samherji, að auka sinn hlut. Finnbogi segir íslenska þekkingu í sjávarútvegi vera farna að skila sér með bættum rekstri, t.d. á frystiskipunum sem gerð séu út frá Þýskalandi og Póllandi. Þá hafi samningar tekist við þýsk stéttar- félög um breyttar reglur um mönn- un skipanna. Stjórn Samherja samþykkti fjárfestingar upp á um 2,7 milljarða króna Kaupa í erlendum útgerðar- félögum fyrir 2,3 milljarða ÍSLENSK skip hafa fengið stóra ogfallega síld úr norsk-íslenska síldar-stofninum á alþjóðlega hafsvæðinu milli Íslands og Noregs, Síldarsmug- unni svokölluðu, undanfarnar vikur. Norskir fiskifræðingar telja að þetta bendi til breytinga á göngumynstri síldarstofnsins og að hún gæti þá gengið inn í íslenska lögsögu, líkt og hún gerði á árum áður. Síldin hefur veiðst nokkuð norð- arlega í Síldarsmugunni undanfarn- ar vikur en undanfarin tvö ár hefur hún gengið nokkuð sunnar á vorin, allt suður í færeyska lögsögu og varð hennar vart innan íslenskrar lög- sögu sl. vor. Þá gekk hins vegar illa að veiða hana, m.a. vegna þess hve mikið af kolmunna var þá á veiði- svæðinu. 2002 árgangur norsk-ís- lenska síldarstofnsins er talinn mjög stór. Fá fallega síld í Síldar- smugunni  Kann að/11 MIKIÐ hagræði er óinnleyst í bankakerfinu að sögn Jóns Þórissonar, aðstoðarforstjóra Ís- landsbanka. Hann sagði á morgunverðarfundi bankans í gær, þar sem fjallað var um horfurnar í þjóðarbúskapnum, að búast mætti við frekari samrunum í íslenska bankakerfinu en orðið er. Umræðan um þessi mál sé þó of þröng. Ræða þyrfti um allar fjármálastofnanir í þessu sam- hengi, ekki einungis viðskiptabankana þrjá, heldur einnig fjárfestingarbanka, lífeyrissjóði, sparisjóði, tryggingafélög og Íbúðalánasjóð. „Framþróunina sem orðið hefur í íslensku viðskiptalífi má að miklu leyti rekja til þeirrar hagræðingar, einkavæðingar og umbyltingar sem orðið hefur á fjármála- og bankamarkaði,“ sagði Jón í samtali við Morgunblaðið eftir fund- inn í gær. „Við erum ekki komin til enda í þess- um efnum og verðum að hætta að horfa á þessi mál út frá þröngu sjónarhorni. Myndin er miklu stærri en svo að hún nái einungis til bankanna.“ Jón sagði að öflugri einingar á fjármálamark- aði, sem stæðu styrkari fótum í íslensku efna- hagslífi, gætu stundað mun öflugri útrás, stutt betur við bakið á viðskiptavinunum í þeirra út- rás og komið svo með fjölmargt aftur hingað til lands sem nýtist öllum. „Tækifærin eru til stað- ar og ég er sannfærður um að það muni koma til frekari samruna á fjármálamarkaði á næst- unni,“ sagði Jón Þórisson. Aukinn viðskiptahalli Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar- deildar Íslandsbanka, sagði á morgunverðar- fundinum, að aukinn viðskiptahalli og verðbólga væru merki um ójafnvægi í þjóðarbúskapnum. Margt væri þó jákvætt, s.s. nýhafið hagvaxt- artímabil, aukinn kaupmáttur og hækkandi eignaverð, góður aðgangur að fjármagni, lækk- andi langtímavextir og aukin útrás fyrirtækja. Frekari samruna spáð Aðstoðarforstjóri Ís- landsbanka vill horfa til alls fjármálalífsins  Merki/12 ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.