Morgunblaðið - 08.09.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 08.09.2004, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2004 11 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Stökktu til Benidorm 15. sept. frá kr. 9.990 Verð kr. 29.995 M.v. hjón með 2 börn, vikuferð í íbúð, 2–11 ára, 15. sept, netverð. Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina í haust á hreint ótrúleg- um kjörum og tryggt þér síðustu sætin til Benidorm, þessa vinsæla áfangastaðar. Hér getur þú notið lífsins við frábærar aðstæður og nýtur traustrar þjónustu farar- stjóra Heimsferða allan tímann. Þú bókar ferðina og 3 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir í fríinu. Verð kr. 9.990 Önnur leiðin til Alicante, 15. september með sköttum. Netverð. Verð kr. 19.990 Flugsæti, 2 fyrir 1, 15. sept. Alicante, með sköttum. Netverð. ÍSLENSK síldveiðiskip hafa fengið sannkallaða demantssíld í Síldar- smugunni svokölluðu að undanförnu. Norskir fiskifræðingar segja að breytt hegðunarmynstur stórsíldar- innar kunni að vera vísbending um að hún gangi á Íslandsmið líkt og hún gerði á síldarárunum. Á vef norska sjávarútvegsblaðsins Fiskeribladet er greint frá því að ís- lensk og færeysk skip hafi fengið stórsíld úr norsk-íslenska síldarstofn- inum sunnarlega í Síldarsmugunni að undanförnu. Þetta mun þó ekki alls kostar rétt, síldveiðiskipin hafa verið að veiðum norðarlega í Síldarsmug- unni síðustu vikur en engu að síður fengið þar fallega síld. Frystiskipið Hákon EA er eina ís- lenska skipið sem nú er að veiðum í Síldarsmugunni. Ingi Jóhann Guð- mundsson, útgerðarmaður skipsins, segir skipið hafa fengið mjög stóra og fallega síld þar að undanförnu, með- alþyngdin sé um 350 grömm og nán- ast öll síldin fari í stærsta flokk. Hann segir aflabrögð einnig hafa verið þokkaleg, skipið fái að jafnaði um 150 tonn á dag. Bræla hafi þó hamlað veiðum að mestu síðustu daga. Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð- ingur á Hafrannsóknastofnuninni, segir að undanfarin tvö ár hafi stór síld gengið mun vestar en mörg ár þar á undan og sl. vor hafi orðið vart við stóra síld nokkuð sunnarlega í Síldarsmugunni, innan færeyskrar lögsögu og jafnvel innan íslensku lög- sögunnar. Aftur á móti hafi þá verið gríðarmikið af kolmunna á svæðinu og erfitt að ná til síldarinnar. Þessi síld hafi síðan væntanlega gengið norðar í Síldarsmuguna. „Hitt er svo annað mál að árgangurinn frá árinu 2002 er talinn mjög stór og ef það er rétt eykst mjög síldarmagnið í hafinu milli Noregs og Íslands og um leið lík- urnar á því að síldin gangi nógu langt vestur og í íslenska lögsögu. Þá hefur orðið sú breyting á vetursetu síldar- innar að meirihlutinn af henni er far- inn að dvelja á veturna norðvestur af Lófóten í stað þess að vera inni á vest- urfjörðum Noregs, líkt og hún hefur gert lengi. Vonandi eru það vísbend- ingar um þróun sem endar inn í ís- lenskri lögsögu,“ segir Hjálmar Ótímabært að draga ályktanir Fiskeribladet hefur eftir Jens Christian Holst, norskum fiskifræð- ingi og sérfræðingi um síldina, að þetta komi mönnum á óvart og þetta geti verið merki um að breytta hegð- un síldarinnar. Í stað þess að halda kyrru fyrir í Vestfirðinum í Noregi yf- ir vetrartímann kunni hún að ganga á Íslandsmið og dvelja þar veturlangt líkt og gerðist áður fyrr. Holst segir að ótímabært sé að draga nokkrar ákveðnar ályktanir af þessu en athygli veki að sjö til átta færeysk og íslensk skip hafi verið að fá 300-400 tonn yfir sólarhringinn af síld, sem vegi að meðaltali 350 grömm. Fiskeribladet hefur eftir Holst að hann sé ekki í vafa um að síldin, sem Íslendingarnir og Færey- ingarnir hafi verið að fá á umræddu svæði, sé norsk vorgotssíld en hann sé ekki eins viss um að miklar breyting- ar verði á hegðun hennar. Fjarlægðin á milli veiðisvæðisins í Síldarsmug- unni og Vesturfjarðarins sé um 360 sjómílur og það taki síldina ekki lang- an tíma að fara þá leið. En hún gæti allt eins tekið upp á því að hafa vet- ursetu á Íslandsmiðum líkt og hún gerði fyrir hrun síldveiða við Ísland á sjöunda áratug síðustu aldar. Menn verði bara að bíða og sjá hvað gerist. Demantssíld veiðist í Síldarsmugunni                                    Kann að ganga á Íslandsmið ÚR VERINU „ÞAÐ ER notalegt að heyra hvað gestir eru almennt ánægðir með breytingarnar og hvað húsið kemur mörg- um ánægjulega á óvart,“ segir Ögmundur Skarphéð- insson, arkitekt á arkitektastofunni Hornsteinum, sem sá um að hanna breytingar á safnahúsi Þjóðminjasafns- ins við Suðurgötu. Hann sagði að allar meginlínur verks- ins hefðu verið lagðar fyrir nokkrum árum, en það væri gaman að sjá hvernig þetta allt kæmi saman sem góð heild. Endurbætur á húsinu hafa staðið í meira en áratug. Árið 1992 hófust viðgerðir utanhúss. Viðgerðir hófust að nýju árið 1998 eftir nokkurra ára hlé og í framhaldi af því var húsið allt tekið í gegn að innan. Ögmundur sagði að húsið hefði verið í mjög slæmu ástandi og því hefði þurft að ráðast í mjög viðamiklar við- gerðir og endurbætur. Reyndum að varðveita höfundarverk hönnuða hússins Ögmundur sagði að meginsjónarmið arkitektanna við þessar breytingar væri að þeir væru að vinna með verk þeirra sem hönnuðu húsið. „Við erum ekki í fyrsta sæt- inu sem hönnuðir. Þetta er fyrst og fremst höfundarverk þeirra Sigurðar Guðmundssonar og Eiríks Einarssonar og okkur fannst ekki koma annað til greina en að reyna að varðveita það eins og best varð á kosið. Þetta hús var umdeilt á þeim tíma þegar það var reist og er barn síns tíma, en það hefur unnið sér ákveðinn sess í huga fólks. Fyrir okkur kom ekki annað til greina en að reyna að láta það eins mikið í friði eins og kostur var.“ Inngangi í húsið var breytt, en Ögmundur sagði að það hefði verið óhjákvæmilegt vegna þess að það hefði ekki verið neitt athafnarými á lóðinni til að taka á móti gest- um. Það hefði verið gert samkomulag við Háskólann um að fá aðeins meira rými sunnan megin við húsið þar sem rútur, leigubílar og gestir geta lagt. „Ég veit að mörgum fannst þessi snúningur á húsinu skrítinn í upphafi, en þegar fólk er komið inn og áttar sig á hvernig húsið virkar þá finnst því þetta vera rökrétt. Það má segja að húsið hafi áður að vissu leyti snúið baki í Háskólann, en núna þegar inngangurinn er kom- inn þarna þá opnar eiginlega húsið faðm sinn á móti há- skólasvæðinu. Þetta verður miklu sterkari heild og vinn- ur vel saman.“ Allir milliveggir sem voru í gamla húsinu voru teknir niður og búið var til samfellt sýningarrými á tveimur hæðum. „Þetta gerir það að verkum að húsið fær að njóta sín sem slíkt. Sýningin var þannig hönnuð að hún væri sjálfstæð eining inn í þessu húsi. Manni finnst að út- koman sé sú að hvort tveggja fái að njóta sín mjög vel. Húsið fær að njóta sín og maður getur lesið húsið ef svo má segja, en á sama tíma er þarna sýning sem lifir sínu sjálfstæða lífi. Af viðbrögðum fólks sýnist manni að þetta sambýli ætli að ganga mjög vel.“ Á jarðhæð hússins er kominn salur sem fyrirhugað er að nota fyrir myndadeild safnsins, en hann er einnig hægt að nota undir sérsýningar. Samtals hefur sýning- arsvæði safnsins þrefaldast. „Það hefur orðið bylting í húsnæðismálum safnsins á síðustu árum. Það má ekki gleyma geymslunum í Kópavogi þar sem þorri safn- kostsins er geymdur. Það var grundvallaratriði að koma geymslunum í gott lag, en ein af ástæðunum að opnun hússins við Suðurgötu tafðist var að menn breyttu for- gangsröðuninni og settu geymslurnar í forgang. Það held ég að hafi verið afskaplega skynsamleg og mikilvæg ákvörðun. Þriðji og síðasti áfanginn í húsnæðismálum safnsins verður síðan að klára endurbætur á Atvinnudeildarhús- inu, en þar verða skrifstofur og innri starfsemi safnsins. Þá verður búið að gera mjög vel við þessa mikilvægu stofnun,“ sagði Ögmundur. Húsið kemur mörgum ánægjulega á óvart Morgunblaðið/Árni Torfason Innganginum í Þjóðminjasafnið hefur verið breytt, en það var talið nauðsynlegt til að bæta aðkomu að safninu. Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt Þjóðminjasafnsins EINS OG vant er fara þeir stóru að taka þegar haustar að, oftast eru það hængar, en sá stærsti á þessu hausti til þessa var þó hrygna sem Harry Harrysson veiddi í Hofsá í Vopnafirði í fyrradag. Þetta var 100 cm löng 23 punda hrygna sem Harry veiddi í Arnarholtshyl. Lax- inn mun rata uppstoppaður upp á vegg hjá Harry í vetur. Fleiri stórir Stórlaxar hafa einnig verið að gefa sig á Nesveiðunum í Laxá í Að- aldal, eins og ævinlega í september. Þannig veiddi Örn Sigurhansson, leiðsögumaður Strengja, sem leigir hluta veiðitímans í Nesi, 102 cm áætlaðan 22 punda hæng í Vitaðs- gjafa í vikunni. Laxinum var sleppt, líkt og sjö öðrum boltalöxum sem veiddust í Nesi þann dag. Annars er laxinn sem Harry veiddi í Hofsá annar tveggja stærstu laxa sem frést hefur af á Ís- landi á þessu sumri, sá fyrri var einnig 23 pund, veiddur í Norðurá í Borgarfirði og það skrýtna er að báðir voru hrygnur en að öllu jöfnu eru hrygnur af umræddri stærð- argráðu nauðasjaldgæfar. Metin hrynja Metin falla hvert af öðru. Á laug- ardag féll metið í Breiðdalsá, en hún hefur mest gefið 412 laxa árið 1978, en hafði í gær gefið 475 laxa. Metdagur í ánni var á mánudag, er 35 laxar veiddust. Veitt er megnið af september og telur leigutakinn Þröstur Elliðason að áin gæti farið í á sjöunda hundrað laxa. Þá er staðfest met í Laxá í Nesj- um, sem mest hefur gefið um 130 laxa, en er nú komin rétt yfir þá tölu og þar er einnig veitt megnið af september. Þá bendir allt til að met falli í Hrútafjarðará, sem mest hefur gefið 540 laxa 1986 og 533 laxa 1988. Í gærdag voru komnir 470 laxar á land og mikil veiði. Þar er veitt til 20. september. Leigutakinn Þröstur Elliðason segir þar tvennt koma til, afburðagöngur af villtum laxi og góðar heimtur af göngu- seiðasleppingum sem fram- kvæmdar voru til að styrkja göngur. Sá lax er allur af stofni ár- innar. Risabirtingur Mikil veiði hefur verið í Vatna- mótunum í Skaftá að undanförnu, þar var t.d. nýlega holl með um 80 fiska, m.a. risabirting upp á 18 pund. Flestir í umræddu holli voru ókunnugir svæðinu, sem þykir á köflum erfitt, og veiðin því merki- legri fyrir vikið. Þetta er þó ekki stærsti birtingur vertíðarinnar því 19 pundari veiddist á Hólmasvæð- inu í Skaftá fyrr í sumar. Þeir stóru eru að gefa sig Morgunblaðið/Einar Falur Efri Núpsfoss í Núpsá, einni af upptakaám Miðfjarðarár. Þeir sem til þekkja sjá þarna hversu bág vatnsstaðan er. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.